Fréttablaðið - 22.10.2021, Qupperneq 10
51,4%
Kvennalandsliðið
hefur unnið rúmlega
helming af 24 lands-
leikjum sínum í októ-
ber til þessa.
Ísland sendir að
minnsta kosti fjóra
einstaklinga á Vetraról-
ympíuleikana.
Af þeim 69 mörkum
sem leikmenn íslenska
liðsins hafa skorað
hefur Dagný skorað
þrjátíu.
Þótt aðeins sé um annan leik
Íslands í undankeppni HM
2023 að ræða er leikur Íslands
og Tékklands afspyrnumikil
vægur fyrir framtíðarhorfur
íslenska liðsins. Stelpurnar
okkar hafa aldrei unnið
Tékka en geta náð fram
hefndum í dag eftir sárt jafn
tefli árið 2018.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI „Þetta er ótrúlega mikil
vægur leikur. Við erum án stiga og
Tékkar eru með fjögur stig. Auð
vitað er margt sem getur gerst,
sama hver úrslitin verða í þessum
leik en hvert stig skiptir miklu máli
ef við ætlum okkur á HM. Ég tala nú
ekki um ef við ætlum okkur að ná
í efsta sæti riðilsins,“ sagði Dagný
Brynjarsdóttir, leikmaður íslenska
kvennalandsliðsins í knattspyrnu, á
blaðamannafundi landsliðsins í gær
þegar hún var spurð út í mikilvægi
leiks Íslands og Tékklands í kvöld.
Stelpurnar hafa um leið einhvers
að hefna eftir að jafntefli í síðustu
viðureign liðanna gerði út um HM
vonir íslenska liðsins.
„Við vorum nálægt því að kom
ast áfram í lokakeppnina í síðustu
undankeppni. Þar byrjuðum við vel
og eftir að hafa séð stemminguna í
kringum Heimsmeistaramótið
þegar karlalandsliðið fór árið 2018
viljum við ná sama árangri,“ sagði
Dagný enn fremur, spurð hvaða
þýðingu það hefði að komast á HM
í fyrsta sinn.
Líklegt er að það falli Íslandi og
Tékklandi í skaut að berjast um
annað sætið í riðlakeppninni sem
veitir þátttökurétt í umspilinu.
Evrópumeistarar Hollands eru lík
legir til að taka efsta sætið en Tékkar
eru þegar búnir að fá stig gegn Hol
lendingum sem gæti reynst þeim
drjúgt. Íslenska liðið má því ekki við
að missa Tékkana lengra fram úr sér.
Sagan er hins vegar Íslandi ekki
hliðholl. Íslenska kvennalands
liðinu hefur aldrei tekist að vinna
Tékkland í fjórum tilraunum til
þessa. Tveimur leikjum hefur lokið
með jafntef li og tveimur með
tékkneskum sigri. Leikir liðanna
í undankeppni HM 2019 enduðu
báðir með jafntefli, sá síðari gerði
út um vonir Íslands um að komast
í umspilið fyrir HM.
Tékkland er eitt af þremur lönd
um innan evrópska knattspyrnu
sambandsins sem íslenska kvenna
landsliðið hefur mætt en ekki unnið
leik gegn ásamt Austurríki og Rúss
landi.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari
kvennalandsliðsins, telur liðið
vel búið undir að reyna að sækja á
Tékkana á réttum stöðum enda líði
tékkneska liðinu vel án bolta.
„Við þurfum að pressa þær á rétt
um stöðum og réttum tímum þegar
komið er á ákveðin svæði vallarins
og við höfum farið vel yfir það. Þetta
er gott lið og á einhverjum tíma
punkti munu þær vera meira með
boltann,“ sagði Þorsteinn á blaða
mannafundinum og hélt áfram:
„Það hefur sami þjálfari verið
með liðið í langan tíma og þær
sýndu það gegn Hollendingum að
það er mikið spunnið í þetta lið.
Þar tókst þeim að kreista út jafn tefli
þótt þær hafi varla farið yfir miðju
í seinni hálfleik. Þær vörðust vel og
voru þéttar og sýndu að þeim líður
vel að verjast. Það er erfitt að brjóta
þær aftur enda eru þær með líkam
lega sterkt lið og það skiptir öllu
máli að lenda ekki undir.“ ■
Tékkunum líður vel með að verjast
Glódís Perla
nálgast óðfluga
hundrað lands-
leiki en þessi 26
ára miðvörður
leikur 95. leik
sinn í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
10 Íþróttir 22. október 2021 FÖSTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 22. október 2021 FÖSTUDAGUR
kristinnpall@frettabladid.is
ÓLYMPÍULEIKAR ÍSÍ hefur ekki
ákveðið hvort krafa verði gerð um
bólusetningu við Covid19 hjá full
trúum Íslands á Vetrarólympíuleik
unum í Peking. Andri Stefánsson,
sviðsstjóri Afreks og Ólympíu sviðs
staðfesti þetta í samtali við Frétta
blaðið.
Ólympíunefndin mun ekki krefj
ast þess að þátttakendur verði bólu
settir en óbólusettir þurfa að fara í
þriggja vikna sóttkví við komuna til
Kína. Andri segir að von sé á hand
bók frá Ólympíunefndinni á næstu
dögum þar sem þetta ferli verði
nánar útskýrt.
Út frá því verði ákvörðun tekin
um hvort krafist verður bólusetn
ingar eða einstaklingum standi til
boða að taka út þriggja vikna sóttkví
við komuna til Peking.
„Það er ekki búið að taka ákvörð
unina. Það er auðvitað mjög erfitt að
ætla að fara í þriggja vikna sóttkví
rétt fyrir mót, þannig að það gefur
augaleið að það er auðveldara að
þiggja bólusetningu til að auðvelda
undirbúninginn,“ segir Andri,
spurður hvort ÍSÍ sé búið að taka
ákvörðun.
Fyrr í þessari viku ákvað kanad
íska Ólympíunefndin að gera kröfu
um bólusetningu hjá öllum Ólymp
íuförum frá Kanada en bandaríska
Ólympíunefndin tók sömu ákvörð
un í síðasta mánuði.
Þá staðfestir Andri að allir full
trúar Íslands á Ólympíuleikunum
í Tókýó fyrr á þessu ári hafi verið
bólusettir. ■
ÍSÍ ekki búið að
ákveða kröfu um
bólusetningu
Snorri Einarsson verður líklega einn
af fulltrúum Íslands í Peking.
Persía mottur
Parki býður upp á sérvaldar handhnýttar mottur
og vandaðar vélofnar mottur úr hæsta gæðaflokki.
Yfir 300 mottur til á lager og sérpantanir í boði.
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi | 595 0570Finndu okkur á Facebook!facebook.com/Parki.interiors