Fréttablaðið - 22.10.2021, Qupperneq 16
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Hrafn Guðlaugsson er
sölu- og þjónustustjóri ein-
staklinga hjá Sjóvá á Ísafirði.
Hann keypti nýlega sína
fyrstu íbúð og veit hvað
þarf að hafa í huga varðandi
tryggingamálin.
Hrafn segir það mjög algengt að
ungt fólk sem flytji að heiman hafi
lítið sem ekkert spáð í trygginga-
mál, nema mögulega við kaup á bíl.
„Engu að síður er mjög mikilvægt
að setja sig inn í þessa hluti þegar
maður byrjar að búa. Þegar fólk
býr heima hjá foreldrum sínum
fellur það undir heimilistryggingu
þeirra, en það breytist auðvitað
þegar fólk flytur annað. Það er
fyrst og fremst mikilvægt að passa
að vera með heimilistryggingu
sem hentar hverjum og einum.
Þær tryggingar taka ekki aðeins á
innbúi heldur eru þar aðrir mikil-
vægir þættir eins og slysatrygging í
frítíma,“ útskýrir Hrafn.
„Sé fólk að kaupa sér íbúð er alltaf
til staðar lögboðin brunatrygging.
Fasteignatrygging er einnig gríðar-
lega mikilvæg en hún tryggir eign-
ina sjálfa fyrir tjónum, til dæmis
ef lögn springur og vatn úr henni
eyðileggur gólfefni, en slík vatns-
tjón eru því miður nokkuð algeng.
Í fjölbýlishúsum er algengast að
húsfélög séu með sameiginlega fast-
eignatryggingu. Þó er mikilvægt að
kanna það við íbúðarkaupin og þar
geta fasteignasalinn, húsfélagið eða
tryggingarfélögin hjálpað,“ bætir
hann við.
Mikilvægt að fara reglulega
yfir tryggingarnar
Þegar fólk hefur búskap þarf að
huga að mikilvægum tryggingum
eins og heimilistryggingu og
fasteignatryggingu, ef við á. „Þegar
keypt er heimilistrygging er nauð-
synlegt að fara vel yfir innbúið
og leggja mat á hvað það myndi
kosta að endurnýja það allt, ef til
tjóns kæmi. Til innbús telst allt
það sem þú tekur með þér þegar
þú flytur eins og t.d. húsgögn, föt,
skartgripir og raftæki, en oft á fólk
miklu meira en það heldur. Þegar
fólk byrjar að búa á það kannski
ekki mjög mikið eða verðmætt
innbú. Mikilvægt er að fara reglu-
lega yfir innbúsverðmæti og upp-
færa það í heimilistryggingunni í
takt við þær breytingar sem verða.
Til dæmis þegar fólk flytur eða
þegar fjölskyldan stækkar. Þá er
um að gera að ráðfæra sig við ráð-
gjafa okkar, þannig að tryggingar-
verndin taki mið af aðstæðum
hverju sinni,“ segir hann.
Rétt viðbrögð geta komið
í veg fyrir alvarleg tjón
„Algengast tjón á heimilum eru
vatnstjón og mikilvægt er að huga
að forvörnum í því samhengi.
Maður þarf að vita hvar vatns-
inntakið er í húsinu. Við mælum
með að hafa heita og kalda vatnið
merkt þannig að auðvelt sé að
skrúfa fyrir ef til tjóns kemur.
Hægt er að fá slíkar merkingar hjá
okkur hjá Sjóvá. Við höfum einni
séð dæmi um að þvottavélar sem
standa ekki á gólfi séu að falla
niður og því er mikilvægt að setja
öryggisfestingar á þær eða þil fyrir
framan vélina,“ bendir Hrafn á
og nefnir að forvarnaaðgerðir séu
alltaf til bóta á heimilum.
Eldvarnir afar mikilvægar
„Sömuleiðis er mikilvægt að
hafa eldvarnirnar í góðu lagi á
heimilum. Í skoðanakönnun
sem Eldvarnabandalagið lét gera
á síðasta ári kom í ljós að á 28%
heimila er enginn eða aðeins einn
reykskynjari og á ríflega helmingi
heimila eru allt í senn reykskynj-
arar, slökkvitæki og eldvarna-
teppi. Ég var til dæmis mjög hissa
þegar ég fékk nýja íbúð afhenta
árið 2019 og sá að það var ekki
neinn reykskynjari til staðar. Þeir
hafa margsannað gildi sitt og eru
eitt einfaldasta og áhrifaríkasta
öryggistækið sem þú getur sett
upp heima hjá þér,” segir Hrafn
ákveðinn og bætir við að gott sé
að yfirfara reykskynjara heimilis-
ins að minnsta kosti árlega, sjá til
þess að þeir séu rétt staðsettir og
batteríin í lagi. Hægt er að nálgast
góðan fróðleik um þessi mál á vef
Húsnæðis-og mannvirkjastofn-
unar undir merkjum átaksins
Eldklár, www.hms.is/eldklar eða á
Instagram-síðu þeirra.
Tryggingar sem taka mið af
aðstæðum hvers og eins
Hrafn segir Sjóvá leggja mikinn
metnað í að veita alhliða ráðgjöf
um tryggingar til viðskiptavina
og að fara vel yfir aðstæður og
þarfir þeirra. „Tryggingarverndin
þarf að endurspegla aðstæður
hvers og eins. Þó að við reynum
að hafa reglulega samband við
viðskiptavini okkar að fyrra bragði
þá er líka mikilvægt að fólk átti
sig sjálft á því hvenær ástæða er
til að hafa samband við okkur og
gera breytingar á verndinni. Það
skiptir okkur líka miklu máli að
fólk átti sig á fyrir hverju það er
að tryggja sig, þannig að það viti
hvenær það á að leita til okkar. Við
leggjum mikið upp úr því að veita
góða ráðgjöf til þess að fólk átti
sig betur á af hverju það ætti að
tryggja sig og til að finna trygg-
ingar sem henta aðstæðum hvers
og eins. Við viljum að fólk upplifi
þá hugarró sem felst í að vita að
það sé vel tryggt ef eitthvað kemur
fyrir. Því má alltaf leita til okkar
með þær spurningar sem vakna,
hvort sem er í síma, netspjalli, með
tölvupósti, eða bara með því að
koma við hjá okkur,“ útskýrir hann
áhugasamur.
Gott að líf- og sjúkdómatryggja
sig á meðan maður er ungur
Líf- og sjúkdómatryggingar eru
mikilvægar og geta skipt sköpum
þegar á reynir. „Það skiptir miklu
máli fyrir ungt fólk, sem og aðra, að
vera með slíkar tryggingar ef mæta
þarf ófyrirséðum áföllum. Það er
einmitt um að gera að tryggja sig
þegar maður er ungur og heilsu-
hraustur því þá eru minni líkur á að
eitthvað hafi komið upp í heilsufari,
eins eru tryggingarnar ódýrari. Á
þessum árum höldum við kannski
fæst að nokkuð komi fyrir en ef eitt-
hvað kemur upp á, svo sem alvarleg
veikindi eða slys, þá getur skipt öllu
máli að vera með góðar tryggingar.
Þetta er ekki síst mikilvægt þegar
fólk er komið með fjölskyldu og
ýmsar skuldbindingar, eins og hús-
næðis- eða bílalán,“ leggur Hrafn
áherslu á.
Áherslan hjá Sjóvá er alltaf á
framúrskarandi þjónustu
Hrafn segir að Sjóvá leggi mikinn
metnað í að veita viðskiptavinum
framúrskarandi þjónustu, bæði við
ráðgjöf og ef til tjóns kemur. „Þetta
hefur sannarlega fallið í kramið
hjá viðskiptavinum okkar, enda
höfum við verið efst í Íslensku
ánægjuvoginni síðustu 4 árin.
Við sjáum þetta líka í reglulegum
þjónustukönnunum sem við fram-
kvæmum, viðskiptavinir okkar eru
afar ánægðir með tjónaþjónustuna
og sömuleiðis ráðgjöfina. Við-
skiptavinir í Stofni fá þá einnig
afslátt af iðgjaldi og árlega endur-
greiðslu, séu þeir tjónlausir, auk
ýmissa fríðinda og afsláttarkjara,
svo sem á dekkjum og barnabíl-
stólum.”
Þjónusta fyrir alla
Að sögn Hrafns er Sjóvá sífellt að
þróast, bæði hvað varðar stafræna
þjónustu og annað. „Til dæmis er
einfalt að sækja um líf- og sjúk-
dómatryggingar hjá okkur á
netinu og eins bjóðum við upp á
rafræna kaskóskoðun fyrir öku-
tæki sem eru sex ára og yngri.
Einnig er afar einfalt og öruggt
að tilkynna hvers kyns tjón til
okkar rafrænt, sem hjálpar okkur
einnig að flýta afgreiðslutíma
málanna. Veflausnin Innsýn er
mjög skemmtileg nýjung í tjónaaf-
greiðslu en þar geta sérfræðingar
okkar skoðað tjónsmuni og vett-
vang tjóna í gegnum snjallsíma
viðskiptavinar og er heimsókn
til hans jafnvel óþörf. Þetta er því
þægileg lausn fyrir viðskiptavini
okkar,“ segir Hrafn áhugasamur og
bætir við: „Í dag er einnig hægt að
bóka símtal eða fjarfund á Teams
með þjónustufulltrúa. Eins er hægt
að sækja um flestar tryggingar á
sjova.is. Við vorum að setja í loftið
nýja þjónustusíðu fyrir viðskipta-
vini, Mitt Sjóvá, þar sem hægt er
að skoða tryggingarnar og fá góða
yfirsýn.“
Þó að mikið sé lagt upp úr að
þróa stafræna þjónustu Sjóvár þá
er eftir sem áður áhersla á per-
sónulega þjónustu við viðskipta-
vini. „Ef fólk kýs frekar að koma til
okkar og ræða málin yfir kaffibolla
þá tökum við alltaf vel á móti því,“
segir Hrafn glaður í bragði.
Höfuðstöðvar Sjóvár eru í Kringl-
unni 5, 103 Reykjavík. Síminn er 440
2000 um land allt, en Sjóvá hefur á
að skipa 22 útibúum og þjónustu-
skrifstofum víðs vegar um landið.
Góðar tryggingar veita hugarró og öryggi
Fasteigna-
trygging er
einnig gríðar-
lega mikilvæg
en hún tryggir
eignina sjálfa
fyrir tjónum, til
dæmis ef lögn
springur og vatn
úr henni eyði-
leggur gólfefni,
en slík vatnstjón
eru því miður
nokkuð algeng.
segir Hrafn.
MYND/BB
Einnig er afar
einfalt og öruggt að
tilkynna hvers kyns tjón
til okkar rafrænt, sem
sömuleiðis hjálpar
okkur að flýta afgreiðslu-
tíma málanna.
Hrafn Guðlaugsson
2 kynningarblað 22. október 2021 FÖSTUDAGURFYRSTA HEIMILIÐ TRYGGINGAR