Fréttablaðið - 22.10.2021, Page 18

Fréttablaðið - 22.10.2021, Page 18
Reynslan sýnir að oft reynast litir mun dekkri á veggjum innan heimil- anna en í sjálfum málningar- verslun- unum. Jóhanna Heiður Gestsdóttir innanhússhönnuður veitir viðskiptavinum vandaða og ítarlega litaráðgjöf í nýju og endurbættu sýningarrými málningardeildar BYKO Breidd. „Sýningarrýmið í málningardeild BYKO var formlega opnað á þessu ári og það hefur þegar margsann- að notagildi sitt,“ segir Jóhanna. „Í málningardeildinni seljum við Svansvottaða gæðamálningu og þar starfa að meðaltali fjórir starfs- menn á degi hverjum sem veita faglega og lipra þjónustu. Við- skiptavinir eru mjög ánægðir með að hafa kost á að fá ráðgjöf við val á rétta litnum, því oft getur litavalið vafist fyrir fólki. Í litaráðgjöfinni í BYKO er unnið með raunverulegar litaprufur auk þess sem breyta má birtuskil- yrðum í sýningarrými, sem er ný og nauðsynleg nálgun þegar velja á liti fyrir rými,“ segir Jóhanna. „Þannig má skoða litina í birtu- skilyrðum sem líkist birtunni heima hjá fólki eða í því rými sem á að mála, því reynslan sýnir að oft reynast litir mun dekkri á veggjum innan heimilanna en í sjálfum málningarverslununum þar sem fólk velur litina. Þess vegna lagði BYKO áherslu á að útbúa sýningar- rými þar sem hægt væri að breyta lýsingunni, það er frábær viðbót fyrir viðskiptavini og auðveldar þeim litavalið.“ Besti staðurinn til að velja liti „Við erum með ný litakort frá Andreu fatahönnuði og Elísabetu Gunnars sem eru virkilega falleg og skemmtileg og það er gaman að geta sýnt litapallettur þeirra Alhliða ráðgjöf við litaval í boði hjá BYKO Innanhússhönnuðurinn Jóhanna Heiður Gestsdóttir tekur vel á móti viðskiptavinum sem koma í litaráðgjöf og hjálpar fólki að taka upplýsta ákvörðun. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Í litaráðgjöfinni í BYKO er unnið með raunveru- legar litaprufur og það er hægt að breyta birt- unni til að skoða litina í ólíkum birtuskilyrðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR hérna í sýningarrýminu okkar,“ segir Jóhanna. „Litirnir sem prýða veggi okkar koma einnig úr smiðju Málningar og Karenar Óskar, sem hefur hannað fallegt og heildstætt litakort fyrir BYKO sem er aðgengi- legt á heimasíðunni okkar. Það er þó alltaf betra að koma og sjá málaðar prufur í verslunum BYKO, því litir á skjá eða prentaðir litir í bæklingum gefa ekki nákvæma mynd af því hvernig litirnir koma út í rými. Nýja litastúdíóið fer ekki fram hjá neinum sem kemur í BYKO. Það er það fyrsta sem fólk sér þegar gengið er inn í verslunina. Það er afskaplega fallega hannað og breitt úrval lita prýðir alla veggi,“ segir Jóhanna. „Í litaráðgjöfinni eru svo hin ýmsu litablæbrigði og litatónar kynntir fyrir viðskiptavinum.“ Lýsing skiptir miklu máli „Ég útskýri eðli litanna og sýni muninn á heitum og köldum litum og það er gott að vita í hvaða átt rýmið sem á að mála snýr, því birtuflæðið inn í rýmið hefur mikið að segja, ekki síst þegar mjög dökkir litir eru valdir,“ segir Jóhanna. „Þá skiptir máli að lýsingin sé í lagi og ef náttúrulegt birtuflæði er ekki nægilegt mæli ég hiklaust með aukinni lýsingu í rými, en þannig má líka kalla fram stórkostleg áhrif með sam- spili ljóss og lita. Dökkir litir geta nefnilega verið alveg magnaðir ef lýsingin er rétt. Áhrif lita eru afskaplega skemmtileg og breytileg, því upp- 4 kynningarblað 22. október 2021 FÖSTUDAGURFYRSTA HEIMILIÐ MÁLNING

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.