Fréttablaðið - 22.10.2021, Page 32

Fréttablaðið - 22.10.2021, Page 32
Listamennirnir verða á staðnum allan tímann og tala við gesti og útskýra list sína. Anna Eyjólfsdóttir Torg Listamessa í Reykjavík verður haldin dagana 22.-31. október á Hlöðuloftinu á Korpúlfsstöðum. kolbrunb@frettabladid.is Listamessan, sem hefst í dag, er nú haldin í þriðja sinn. Hún á að vera árlegur viðburður, en féll niður í fyrra vegna Covid. Árið 2019 mættu tíu til tólf þúsund manns á messuna og búast má við enn meiri fjölda nú en messan stendur yfir í sjö daga í stað þriggja áður. Torg Listamessa er stærsti sýn- ingar- og söluvettvangur íslenskrar myndlistar en þar má sjá á einum stað fjölbreytileg listaverk. Söluverð verka rennur að fullu til listamann- anna. Tilgangur messunnar er að auka sýnileika myndlistarinnar og gera fólki auðveldara fyrir að kynna sér samtímalist sem og að eignast listaverk eftir íslenska eða erlenda listamenn sem starfa hér á landi. Fimmtíu og átta listamenn, félags- menn í SÍM, eiga að þessu sinni verk á messunni. Sýningarstjóri er Annabelle von Girsewald sem hefur unnið með íslenskum myndlistar- mönnum síðan 2010. Í víðu samhengi „Listamessan er vaxandi verk- efni og það er mikill fengur að fá Annabelle sem sýningarstjóra, en hún aðstoðar listamennina og veitir þeim listræna ráðgjöf,“ segir Ásgerður Júlíusdóttir, verkefnis- og kynningarstjóri SÍM. „Nýr þáttur í messunni er kynning á erlendum gestalistamönnum sem verða þar með sérstakan bás.“ „Þarna kemur fólk og skoðar verk og sér þau í víðu samhengi. Lista- mennirnir verða á staðnum allan tímann og tala við gesti og útskýra list sína. Listamessa eins og þessi skiptir miklu máli, ekki bara meðan á messunni stendur því eftir hana hefur orðið framhald á samskiptum listamanna og kaupenda,“ segir Anna Eyjólfsdóttir, formaður SÍM. Skemmtileg listamiðstöð Ásgerður og Anna segja Korp- úlfsstaði bjóða upp á alls kyns möguleika. Þar verður opnaður stór fremri salur í notalegu rými þar sem verða kaf f iveitingar. Fimmtudaginn 28. október er langur fimmtudagur en þá verður opið frá 18 til 22 og tangódansara- hópur mætir á svæðið. „Draumur okkur er að þarna verði til skemmtileg listamiðstöð, ekki bara fyrir myndlistarmenn heldur fyrir aðrar listgreinar, þannig að þarna verði til dæmis tónleikar og upplestrar,“ segir Ásgerður. Frekari upplýsingar um Torg Listamessu má finna á sim.is og heimasíðunni facebook.com/Torg- Listamessa. ■ Samtímalist á Korpúlfsstöðum Anna og Ás- gerður hafa um- sjón með Torgi Listamessu. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI kolbrunb@frettabladid.is Borgarsögusafn býður fjölskyldur velkomnar í haustfríi grunnskól- anna í Reykjavík dagana 22. til 26. október en á þeim dögum verður ókeypis aðgangur inn á alla staði safnsins fyrir börn og fullorðna í þeirra fylgd. Þó þarf að greiða í ferj- una út í Viðey. Á Árbæjarsafni er fjölskyldum boðið í léttan leiðangur sem safn- fræðslan hefur útbúið fyrir safn- gesti þar sem leitað er að gripum, herbergjum og húsum til þess að kynnast safninu og sýningunum betur. Landnámshestar og -hænur eru á vappi um safnsvæðið og leik- fangasýningin Komdu að leika og útileiksvæðið er á sínum stað. Safn- ið er opið alla daga frá klukkan eitt til fimm. Landnámssýningin býður fjöl- skyldum í könnunarleiðangur um Kvosina og er hann í boði allt haustfríið. Tímaf lakk um höfuð- borgina, er skemmtileg ganga sem bar nabókahöf undar nir Linda Ólafsdóttir og Margrét Tryggva- dóttir leiða um miðborgina. Gang- an hefst við Landnámssýninguna í Aðalstræti á morgun, laugardag, klukkan 14. Þá verður Björk Bjarna- dóttir, umhverfis- og þjóðfræð- ingur, með spennandi erindi um uppruna hrekkjavökunnar sunnu- daginn 24. október klukkan 14. Ljósmy ndasafn Reykjavík ur býður fjölskyldum að koma að skoða aðalsýningu safnsins sem nefnist Hilmir snýr heim, en á henni má sjá fjölda passamynda af sjötugum körlum annars vegar og blómum í náttúru Íslands hins vegar. Hvað eiga eiginlega þessir karlmenn og blómin sameiginlegt? Sjóminjasafnið í Reykjavík býður fjölskyldum í leiðangur um grunn- sýninguna Fiskur & fólk, en hún fjallar um alls konar forvitnileg sjávardýr, skip, sardínudósir og margt f leira sem tengist hafinu og reyndar líka það sem ætti ekki að finnast þar. Sigling út í Viðey er góð hugmynd að samveru í haustfríinu. Siglingin tekur bara nokkrar mínútur og er skemmtileg byrjun á hressandi útivistardegi í Viðey. Gestir fá kort af eyjunni í miðasölu Eldingar á Skarfabakka og þar má finna upp- lýsingar um ótal staði sem gaman er að skoða. Siglt er frá Skarfabakka. Gjald í ferjuna er 1.700 krónur fyrir fullorðna og 850 krónur fyrir 7 til 15 ára. Börn 6 ára og yngri sigla frítt. Menningarkortshafar fá 10% afslátt í ferjuna. Hægt er að kaupa miða fyrir fram á vef Eldingar. ■ Ókeypis í haustfríinu Margrét og Linda leiða skemmtilega göngu um borgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR Kíktu í heimsókn! Opið virka daga kl. 10-18 Laugardaga 11-15 Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - patti.is Sjá nánar á patti.is Ný sending af gæðarúmum frá Dupen N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM með og án rafmagns lyftibúnaði Komið og skoðið úrvalið 16 Menning 22. október 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 22. október 2021 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.