Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 1
#0' !'-*$*0. '0/&)
!)1)7HKK/;6/3 :3)L61P;)35KK)3
R/;3.K +3 #E:OH3;" R%?A" 03=E153 :3/L3)/K 2PK) 2=L M=5NNJK
/K/L BH1M/4 Q.K 2=853 L)381 MPN1 L=; 1IKM521
0=22/ 1-=KK/ 2)L)K P :3)L1P;5
1P/ LPK.1/3
)" ($'! &%&#%$''$)*($&
@M21 /GG ' 2GP1)M)
4"0/' &(+3'12'/),3' -20+"-%/
>58/3-5K) >)L.=M2SI115335:O)3 /GG &2N/K) '2O.N3)7.25K/ ' F2)93;54 "
(2103.;/3 B4 DIK2SI11537M)/1 2=, $3J1 ' 73E88 0=8)3
7.K :<MM ): 7=21$)N54 Q.K M'
2'3N-)M5K P 1-J S)8) ';/3 =K7.K NJL21 P );8=3;4 #!
AC21.S=K165KK *3K)3!3=E3
QO)31)362JK 7)KK)3J8 2)/L)3:H14#"
"% ! "# ! !"!$
L A U G A R D A G U R 5. J Ú N Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 131. tölublað . 109. árgangur .
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · www.hekla.is/sumarferd
SUMARFERÐ HEKLU
Rafmögnuð 7.-11. júní
Borgarnes • Blönduós • Sauðárkrókur
Siglufjörður • Akureyri • Húsavík • Mývatn
Egilsstaðir • Reyðarfjörður • Höfn í Hornafirði
Kirkjubæjarklaustur • Vestmannaeyjar • Selfoss
Pantaðu heimsendan
reynsluakstur eða kíktu við!
SJÓMENN ERU
BURÐARSTÉTT
SAMFÉLAGSINS
200 MÍLUR 56 SÍÐUR
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
„Það er ákveðin hætta á því að
þetta tímabundna atvinnuleysi þró-
ist yfir í langtímaatvinnuleysi. Ég
hef töluverðar áhyggjur af því. Það
gæti orðið mesti skaðinn af þessum
faraldri,“ segir Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Í viðtali við Morgunblaðið í dag
lýsir Ásgeir áhyggjum af þenslu
„Þó að það hafi
verið markmið
aðgerða Seðla-
bankans að
hvetja kerfið
áfram, þá eru
ákveðnar áhyggj-
ur af að þetta sé
að fara hraðar af
stað en gert var
ráð fyrir, að við sjáum meiri þenslu-
áhrif en við viljum. Ég hef líka
áhyggjur af því að á vinnumarkaði
séum við mögulega að sjá ósam-
ræmi milli kunnáttu vinnuafls og
þarfa atvinnulífsins. Að það vanti
fólk með rétta menntun og reynslu
miðað við fyrirliggjandi verkefni, að
of margir finni ekki vinnu við hæfi.
Sömuleiðis blasir við að unga fólkið
hefur farið verst út úr kórónuf-
araldrinum í efnahagslegu tilliti og
því getur reynst erfiðara að feta sig
inn á vinnumarkað en áður.“
Í viðtalinu kveðst Ásgeir vera
bjartsýnn á efnahagshorfurnar. „Ég
held að Ísland muni áfram verða
öflugt ferðaþjónustuland, þótt gull-
æðið sé líklega búið í þeirri grein. Á
sama tíma verðum við að reyna að
skjóta fleiri stoðum undir hagkerfið
og dreifa áhættu. Það er lærdóm-
urinn sem við ættum að draga af
Covid-kreppunni.“
Mikill skaði af atvinnuleysinu
- Seðlabankastjóri lýsir þungum áhyggjum af stöðu ungs fólks á vinnumarkaði
MÁhyggjur af … »10
Ásgeir Jónsson
Hraun flæddi yfir gönguleiðina við hinn svokall-
aða Gónhól í gærmorgun. Af Gónhóli er útsýni
yfir eldgosið í Geldingadölum og hafa margir
lagt leið sína þangað að undanförnu. Nú er það
ekki hægt lengur enda er hóllinn umkringdur
hrauni. Rennsli hraunsins var viðbúið og hafði
lögreglan lokað svæðinu fyrir nokkrum dögum.
Ekki er vitað til þess að neinn hafi lent í hættu á
svæðinu, en vont veður var þar í gær. »4
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hraun flæddi yfir gönguleiðina vinsælu að Gónhóli
„Ég fékk bara það ískalda svar að
læknirinn hefði metið það svo að ég
gæti beðið. Það fannst mér
ómennskt,“ segir Ástþrúður Kristín
Jónsdóttir í Sunnudagsblaði Morg-
unblaðsins um helgina.
Ásta lenti í hestaslysi hinn tólfta
apríl. Sex hryggjarliðir brotnuðu og
kvaldist Ásta óskaplega en hún
komst ekki í aðgerð fyrr en tveimur
dögum eftir slysið.
„Ég sagði hjúkrunarfræðingnum
að ég myndi hreinlega ekki lifa þetta
af og bað um töflu sem myndi ganga
frá mér; það væri mannúðlegra,“
segir Ásta og segist finna til með
starfsfólki spítalans.
„Rosalega er allt hægt í vöfum ef
manneskja jafn slösuð og ég var er
látin bíða í tvo sólarhringa. Það er
ekki ásættanlegt. Mig langaði frekar
að deyja en bíða, það er engin spurn-
ing.“
Morgunblaðið/Ásdís
Sárkvalin Ástþrúður K. Jónsdóttir
lenti í hestaslysi í apríl.
Langaði
frekar að
deyja
- Beið í tvo sólar-
hringa eftir aðgerð
Eignir íslenskra lífeyrissjóða jukust
um 148,5 milljarða króna í apríl-
mánuði. Með hækkandi virði eigna-
safna þeirra fóru heildareignir
þeirra yfir 6.000 milljarða múrinn í
fyrsta sinn. Nema þær nú 6.028
milljörðum samkvæmt nýbirtum
gögnum Seðlabanka Íslands. Hafa
eignirnar aukist um ríflega 1.000
milljarða á 14 mánuðum. Af sund-
urliðuðum tölum bankans má sjá að
tvo þriðju hluta eignaaukning-
arinnar í apríl má rekja til hækk-
andi virðis innlendra eigna og
þriðjung til þess að erlend eigna-
söfn hafa ávaxtast vel.
Eignirnar jukust um
149 milljarða í apríl