Morgunblaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
Ari Páll Karlsson
ari@mbl.is
Nýtt listagallerí hefur litið dagsins
ljós í Hamraborg í Kópavogi. Um
er að ræða gallerí á milli tveggja
bensíndælna ÓB sem standa í bíla-
kjallara undir fjölbýli en áður var
Olís þar til húsa.
Nafnið á galleríinu er einfalt en
það er einfaldlega stafurinn Y sem
vísar bæði í gula litinn sem er ráð-
andi í rýminu auk þess sem bíl-
númer Kópavogs byrjuðu hér áður
fyrr á bókstafnum Y, líkt og glögg-
ir lesendur ættu að muna. Sér-
stakur arkitektúr bensínstöðv-
arinnar býður upp á mikinn
sýnileika með stórum gluggum á
þremur hliðum sýningarrýmisins.
„Við viljum færa listina nær fólk-
inu. Mörgum finnst svolítið ógn-
vekjandi tilhugsun að labba inn í
gallerí. Þetta er svolítið eins og
einhvers konar hulinn heimur og að
setja þann hulda heim inn í al-
menningsrými færir hann örlítið
nær,“ segir Olga Lilja Ólafsdóttir,
annar aðstandenda gallerísins Y, en
með henni í verkefninu er listamað-
urinn Sigurður Atli Sigurðsson. Í
bakrými gallerísins hanga svo verk
til sýnis og sölu eftir breiðan hóp
listamanna.
Arkítektúrinn heillar
Húsið á sér skemmtilega sögu en
það er teiknað á sjötta áratug síð-
ustu aldar af arkítektinum Benja-
mín Magnússyni og mætti segja að
þar glitti í áhrif frá Parísarborg
þar sem hann lærði og bjó um
tíma. „Þegar bensínstöðin var
þarna þá sást lítið í rýmið, lottó-
miðar í gluggunum og innréttingar
sem huldu glerið,“ segir Olga og
mætti því segja að rýmið hafi sjald-
an notið sín eins vel og það gerir í
dag. „Það sem drífur okkur áfram
er að opna þennan heim. Heimur
myndlistarinnar á ekki bara að
vera innan myndlistarinnar heldur
vera opinn fleirum,“ segir Olga en
vert er að taka fram að nýlega
ákvað Olís að gera þessa tilteknu
bensínstöð að þeirri stöð sem selur
bensín á lægsta verði allra ÓB-
stöðva sinna og því má við búast að
þar verði margt um manninn á
næstunni.
Listakonan Una Björg Magn-
úsdóttir er fyrsti listamaðurinn til
að sýna í þessu nýja rými en hún
hlaut nýlega hvatningarverðlaun ís-
lensku myndlistaverðlaunanna og
mætti því segja að hún sé ein af
vonarstjörnum íslenskrar mynd-
listar í dag. Sýningin ber nafnið
„Hæg sena“ og skoðar hvernig við
nálgumst myndmál eftir því í hvaða
form það er sett. Skúlptúrar sýn-
ingarinnar eru útskornar stólbríkur
sem hefðbundið er að finnist í
kirkjum og séu skreyttar kristi-
legum táknmyndum eða dýrlingum.
Skúlptúrar Unu sýna þess í stað
einfaldar myndir af hverfulum
augnablikum.
„Verkin hafa vísun í útskurði
sem finna má í kirkjum og líkja
eftir því hvernig handverk er notað
til þess að upphefja trúna segir
Una og á við stólbríkurnar. Hún
heldur áfram og segir um skúlp-
túrana sína: „Myndirnar á verk-
unum sýna hverful stutt augnablik
en þau eru ekki síður mikilvæg.
Þetta er tilraun til þess að taka ut-
an um þessi augnablik og efnisgera
þau.“
Morgunblaðið/Eggert
Skúlptúrar Una Björg Magnúsdóttir við uppsetningu verksins. Hægt er að sjá heildarmyndina á sýningunni sjálfri.
Með fullan tank af myndlist
- Nýtt gallerí opnar á bensínstöð í Hamraborg - Arkítektúrinn það sem heillar
Bensínstöð Olga vill færa myndlist í almenningsrými. Arkítektúrinn heillar.
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
Töff í Taifun
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Verð 19.980
Einnig til í hvítu
Við kynnumst tveimur spennandi löndum með sína framandi
menningarheima og mikla náttúrfegurð, sem lætur engann ósnort-
inn. Kynnumst hinum æva gömlu höfuðborgum Yerevan og Tblisi,
förum upp í Kákassufjöllin, skoðum ævagömul klaustur, virki og
kirkjur. Komum við í vínhérað og smökkum á víni heimamanna.
Röltum um gamlan heilsubæ,
förum í bað í æva gömlu bað-
húsi, göngum eftir hengibrú.
Ekki má gleyma fólkinu sem
tekur okkur fagnandi en íbúar
beggja landa eru einstaklega
gestrisnir og kynnumst við
þeim. Við erum í ævintýri
sem er við allra hæfi.
Síðumúli 13 - 108 Reykjavík | Strandgata 29,
2 hæð, 600 Akureyri, sími 588 8900
info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Perlur Kákasusfjalla, hlið Evrópu að
Miðausturlöndum og Asíu
Forn menning, heillandi mannlíf, hrífandi
saga og stórkostleg náttúra
Georgía og Armenía
10.-20. september 2021
Innifalið er flug, hótel, fullt fæði í
Georgiu og Armeniu, allar
skoðunarferðir, ísl. farastjóri
ásamt heimamanni og aðgangur
þar sem við á.
Verð á mann í 2ja manna herbergi
er 348.700 kr. Takmarkaður fjöldi.
FÁ
SÆTI
EFTIR
Poncho
Opið kl. 11-15 í dag
Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 |
Við erum á facebook
Kr. 5.900.-
Litir: hvítt,
ljósblátt,
bleikt, svart
Eftirlitsstofnun
EFTA (ESA)
hefur nú lokað
rannsókn sinni á
bindandi álitum
skattayfirvalda í
EFTA-ríkjunum
þremur sem eiga
aðild að Evr-
ópska efnahags-
svæðinu, Íslandi,
Noregi og Liecht-
enstein, og hefur ekki fundið nein
dæmi um að álitin séu ósamrým-
anleg reglum EES-samningsins um
ríkisaðstoð, sem samsvara reglum
um ríkisaðstoð í ríkjum Evrópusam-
bandsins.
Fram kemur á heimasíðu ESA, að
stofnunin hóf rannsóknina að eigin
frumkvæði og var hún gerð samhliða
rannsókn framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins á bindandi álit-
um skattyfirvalda í aðildarríkjum
Evrópusambandsins.
Eftirlitsstofnun EFTA hefur eft-
irlit með framkvæmd og beitingu
EES-samningsins af hálfu EFTA/
EES-ríkjanna. Stofnunin hefur að-
setur í Brussel og situr Högni Krist-
jánsson í stjórn ESA fyrir hönd Ís-
lands.
Engin brot á
reglum um
ríkisaðstoð
Högni
Kristjánsson
SMARTLAND
MÖRTUMARÍU