Morgunblaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 20
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Oddur F. Helgason, æviskrárritari hjá ORG ættfræðiþjónustunni í Skerfjafirði, vill að stofnað verði nýtt félag um ættfræðigrunn hans og Unnar Bjargar Pálsdóttur, konu hans, og starfsemi ættfræðiþjónust- unnar. „Ég vil helst að þjóðin stofni sjálfseignarstofnun um þetta því þá er þetta hennar og pólitíkin bland- ast ekki inn í starfið,“ segir Oddur. Nafnið er tilbúið: „Menningarskáli þjóðarinnar“. Oddur situr einn í ættfræðiþjón- ustunni í Skerjafirði og skráir upp- lýsingar í ættfræðigrunninn þegar blaðamaður lítur þar inn einn morguninn í vikunni. „Neineinei, ég er ekkert einn við þetta. Það eru menn á Akureyri, í Kópavogi og um allt land og raunar víða um heim að afla gagna. Allt er þó skráð inn hér á skrifstofunni og við erum fleiri við það, meðal ann- ars Reynir Björnsson og Kristján Unnar Ellertsson,“ segir Oddur. Nálgast 860 þúsund nöfn Upplýsingarnar fær Oddur ekki aðeins úr prentuðum heimildum. Hann rekur garnirnar úr fólki sem kemur við til að fá upplýsingar um forfeður sína og það ratar allt í grunninn. Sömuleiðis fær hann upplýsingar hjá áhugafólki sem fær aðstöðu í ættfræðiþjónustunni til að vinna að ábúendatölum eða öðru. Nú eru að verða komnar upplýs- ingar um 860 þúsund manns inn í ættfræðivefinn. Og það eru ekki aðeins einfaldar upplýsingar um einstaklinginn, forfeður hans og af- komendur heldur eru skráðar allar tiltækar upplýsingar, svo sem hvar viðkomandi hefur búið, stöðu hans og jafnvel sögur af fólki og vísur. Stöðugt bætast við áhugaverðar upplýsingar. Oddur segir að upp- lýsingarnar skapi þessum ætt- fræðivef sérstöðu. Hægt sé að nota hann til að segja sögu þjóðarinnar. Oddur segir að hægt sé að tvö- falda grunninn því þar séu skráðir bæði forfeður og afkomendur fólksins um allan heim. Vill stofna sjálfseignarstofnun ORG ættfræðiþjónustan er í rúm- góðu húsnæði í Skerjafirði. Þar hefur verið komið upp vinnuað- stöðu og geta þrír til fjórir gestir sinnt rannsóknum eða áhuga- málum, auk starfsmanna. Hefur það færst í aukana. Meðal annars hafa þar unnið menn sem vinna að samningu ábúendatala einstakra sveita. Þá er í húsnæðinu mikið bókasafn um þjóðfræði. Oddur verður áttræður á þessu ári en heldur ótrauður áfram. Hann er þó farinn að huga að því hvernig best er að halda starfinu áfram og hefur staðnæmst við stofnun sjálfseignarstofnunar, eins og fyrr greinir. „Til þess þarf ég aðstoð forráða- manna þjóðarinnar,“ segir Oddur og lætur þá von í ljósi að skrif- stofustjóri Alþingis taki að sér að fara fyrir stjórn Menningarskála þjóðarinnar og með honum í stjórn verði skjalaverðir landshlutanna. Hann segir einnig æskilegt að ganga frá persónuvernd vegna ætt- fræðigrunna. Þetta séu viðkvæmar upplýsingar og tekur fram að ORG ættfræðiþjónustan hafi frá upphafi unnið með tölvunefnd og síðar Per- sónuvernd og lagt áherslu á að fara eftir settum reglum. Tilbúinn með arftaka En hættir ekki starfið þegar stofnandinn fer frá því? Oddur neitar því. Segir að samstarfs- maður hans, Kristján Unnar Ell- ertsson, sé aðeins 25 ára gamall og viti alveg hvernig eigi að vinna að þessum málum. Hann hafi áhuga á málefninu, þolinmæði og minni, eins og þurfi til þess að halda starf- inu gangandi. Samstarfsfólk Þórður í Skógum er einn elsti samstarfsmaður ORG ættfræðiþjónustu en hann varð 100 ára í apríl. Frá heimsókn í Skóga, Unnur Björg Pálsdóttir, Oddur F. Helgason, Kristján Unnar Ellertsson og Þórður Tómasson. Saga þjóðar í einum ættfræðigrunni - Oddur Helgason vill stofna Menningarskála þjóðarinnar 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Tvær verslanir, Rúmfatalagerinn og Ilva, voru opnaðar í nýjum verslunarkjarna, Norðurtorgi á Akureyri, í gær. Fjöldi fólks lagði leið sína á Norðurtorg og má gera ráð fyrir að straumurinn verði stöðugur fyrstu dagana, en báðar verslanir bjóða upp á tilboð á ýmsum varningi í tilefni af opnun á nýjum stað. Norðurtorg er við Austursíðu 2, í gamla Sjafnarhúsinu sem svo hefur verið nefnt fram til þessa. Verslunarkjarninn er í allt um 11 þúsund fermetrar að stærð og hafa gríðarmiklar framkvæmdir verið frá því í fyrrasumar við hús- næðið. Það hefur í kjölfarið tekið miklum breytingum, það var stækkað og því breytt frá fyrra horfi auk þess sem bílastæðum var fjölgað til muna. Á svæðinu mun einnig koma upp hrað- hleðslustöð fyrir Tesla sem opnuð verður síðar í þessum mánuði. Alþjóðlegt útlit Rúmfatalagerinn flutti sína verslun úr Glerártorgi þar sem verslunin var starfrækt í rúm 20 ár. Nýja Rúmfatalagersverslunin á Akureyri er önnur í röðinni sem byggð er upp með nýju alþjóðlegu útliti móðurfélagsins JYSK, en sú fyrsta var opnuð á Fitjum í Reykjanesbæ í maímánuði. Þar er notast við hillukerfi, nýja lýsingu og léttstemmda uppstillingu í verslunarrými. Verslunin er í 2.100 fermetra húsnæði í nýja verslunarkjarnanum Norðurtorgi. Ilva hefur rekið verslun á Korputorgi í Reykjavík frá árinu 2008, verslunin fyrir norðan er önnur verslun félagsins hér á landi. Verslunin Ilva er líkt og Rúmfatalagerinn uppbyggð með glæsilegu nýju innréttingakerfi í takt við aðrar alþjóðlegar versl- anir Ilva-keðjunnar. Ilva er í um 1.300 fermetra húsnæði á Norð- urtorgi. Samningar um nýtt rými Norðurtorg er í eigu félagsins Klettáss og segir Pétur Bjarna- son, annar af eigendum þess, að unnið sé að samningum um út- leigu á því rými sem eftir stendur í verslunarkjarnanum. „Vonandi getum við fljótlega upplýst um leigutaka að því rými,“ segir hann. Framkvæmdir við breytingar á húsnæði hafa staðið yfir undan- farna mánuði og hafa iðnaðarmenn í tugatali verið þar við störf. Áætl- að er að kostnaður við fram- kvæmdir nemi um 2,7 milljörðum króna. Pétur segir að staðsetning hús- næðisins hafi heillað en hann sjái fyrir sér að þótt það sé nú norðar- lega í bænum muni bærinn vaxa í þá átt og innan fárra ára verði Norðurtorg æ meira miðsvæðis. Morgunblaðið/Þorgeir Norðurtorg Aðstandendur Norðurtorgs við opnunina á Akureyri í gær, frá vinstri feðgarnir Ari Pétursson og Pétur Bjarnason og Þórarinn Ólafsson og Björn Ingi Vilhjálmsson frá Ilvu og Rúmfatalagernum. Tvær verslan- ir opnaðar á Norðurtorgi - Rúmfatalagerinn og Ilva af stað í gær í nýjum verslunarkjarna Verslun Viðskiptavinir streymdu inn í Ilvu þegar opnað var í gær. '/ )++0* þú það sem (/ ,-&."* "$ á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA Allt um sjávarútveg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.