Morgunblaðið - 05.06.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 05.06.2021, Qupperneq 24
SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is A fleiðingar faraldurs kór- ónuveirunnar virðast einna mest hafa haft áhrif á biðlista og biðtíma eftir endurhæfingarþjónustu í heilbrigð- iskerfinu. Biðlistar hafa þó víðar stækkað og biðtími eftir þjónustu lengst þótt á mörgum sviðum hafi þeim einnig fækkað sem bíða eftir þjónustu og biðtími þar styst á um- liðnu ári veirufaraldursins. Miklar upplýsingar um stöðuna má lesa út úr ítarlegu svari Svandís- ar Svavarsdóttur heilbrigðis- ráðherra við fyrirspurn Önnu Kol- brúnar Árnadóttur, þingmanns Miðflokksins, um biðlista í heilbrigð- iskerfinu, sem dreift hefur verið á Alþingi. Birt eru svör frá opinberum og einkareknum stofnunum. Þar kemur m.a. fram í svörum Landspít- alans svo dæmi séu tekin um bið eft- ir skurðaðgerðum að 1. febrúar sl. biðu 1.286 eftir aðgerðum á auga- steini en þeir voru 723 á sama tíma fyrir ári og hefur því fjölgað um 78%. Í fyrra voru gerðar rúmlega 1.600 aðgerðir en bent er á að á árinu 2019 dró úr fjölda auga- steinsaðgerða utan spítalans og færðust sjúklingar þá í auknum mæli af stofum og til Landspítalans. Bið eftr augasteinsaðgerðum hefur lengst úr 12 vikum í febrúar í fyrra í 23 vikur í febrúar síðastliðnum. Fjölgað hefur á biðlista fyrir að- gerðir vegna vélindabakflæðis og þindarslits vegna frestunar aðgerða í faraldrinum og á að vinna áfram jafnt og þétt niður biðina en skortur á legurýmum er einnig sagður hafa áhrif. 161 bíður eftir gallsteina- aðgerð en þeir voru 83 1. febrúar í fyrra og á að vinna biðlistann niður jafnt og þétt. 89 eru á biðlista eftir brottnámi legs vegna frestunar að- gerða en voru 44 fyrir ári og 392 bíða eftir liðskiptum á mjöð og hefur fjölgað um 64% frá febrúar í fyrra og bíða alls 827 eftir liðskiptaaðgerð á hné en voru 494 ári áður. „Gripið hefur verið til tvöfalds átaks í bækl- unaraðgerðum um helgar til að ná niður biðlistanum, samtals 16 lið- skiptaaðgerðir á helgi (þrjár helgar sem af er ári). Ekki er hægt að keyra það oftar en gert er þar sem sama starfsfólk vinnur þessa átaks- vinnu og vinnuna dagsdaglega. Unn- ið er jafnt og þétt að því að bæta ferla, áhersla á að stytta legutíma hjá þeim sem fara í mjaðma- liðskipti,“ segir í skýringum Land- spítalans. Eftirspurn eftir þjónustu barna- og unglingageðdeildar (BUGL) hefur aukist jafnt og þétt og fjölgað hefur á biðlistum, segir í svarinu. 131 var á biðlista 11. mars sl. en 101 um mánaðamótin febrúar/ mars í fyrra. Var komum fækkað til muna tímabundið vegna tilmæla sóttvarnayfirvalda vegna faraldurs- ins sem hefur hægt á inntöku nýrra sjúklinga. Meðalbiðtíminn er núna tæpar 24 vikur sem er óveruleg aukning frá í fyrra. „Fækkun koma á göngudeild milli ára skýrist annars vegar af því að það þurfti að setja hópmeðferð á bið vegna sóttvarnaráðstafana tengt Covid-19. Reyndar var það leyst að hluta til seinni hluta árs með því að leigja stóran sal þar sem hægt var að uppfylla sóttvarnareglur,“ segir í svarinu. Biðtími hjá átröskunarteymi á geðsviði Landspítalans hefur lengst um 142,6% og er engin ein skýring sögð á því heldur samspil margra þátta, s.s. bág staða húsnæðis geð- þjónustunnar, fækkun starfsmanna og veirufaraldurinn. Einnig hefur fjölgað á biðlista eftir þjónustu ADHD-teymisins eða úr 507 í fyrra í 727 á biðlista 11. mars sl. Biðlistar stækkuðu og biðtími lengdist Morgunblaðið/Eggert Heilbrigðisþjónusta Mestu áhrif faraldursins urðu á biðlista og bið eftir aðgerðum sem ekki teljast lífsbjargandi eða bráðaaðgerðir skv. skýrslunni. 24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Enn hækkarfast-eignamat á Íslandi. Virðist einu gilda hvort í landinu ríkir sam- dráttur eða vöxtur, fasteignamatið hækkar og með því álögur á eigendur fast- eigna. Matið er í raun eins og sjálfvirkur skattatjakkur, sem veldur því að gjöld á húsnæði hækka langt umfram verðlag og hagvöxt. Að þessu sinni hækkaði fast- eignamat um 7,4% á landinu og var hækkun meiri á höfuðborg- arsvæðinu en landsbyggðinni. Vissulega hefur húsnæðis- verð hækkað á höfuðborgar- svæðinu. Þá hækkun má hins vegar ekki rekja til eðlilegrar þróunar framboðs og eftir- spurnar, heldur hafa pólitískir ráðamenn beinlínis valdið henni með því að sjá til þess að of lítið er byggt og ber þar meirihlutinn í Reykjavík meg- inábyrgð. Mörg sveitarfélög hafa brugðist við hækkun fast- eignamats með því að lækka álagningarhlutfallið og er það vel. Það á hins vegar ekki við um þau öll og hafa eigendur at- vinnuhúsnæðis verið sér- staklega ósáttir við að álagn- ingarhlutfallið á það hafi lítið lækkað miðað við íbúðar- húsnæði. Það á til dæmis við í Reykja- vík þar sem markmiðið virðist vera að hafa alla skatta og gjöld eins há og leyfilegt er og þótt fasteignagjöld hafi eitt- hvað verið lækkuð af íbúðar- húsnæði er ekkert slegið af at- vinnuhúsnæði. Í Morgunblaðinu í fyrradag var rætt við forstjóra fast- eignafélaganna Eikar og Reita. Í þeirri umfjöllun kom fram að á undanförnum sex ár- um hefði fasteignaskattur á at- vinnuhúsnæði hækkað um 68%. Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, segir þar að fyrir fimm árum hafi fasteignagjöld verið um 12% af veltu félagsins, en nú séu þau 20% af veltu. Í greininni á fimmtudag bregðast tveir bæjarstjórar við gagnrýni fasteignafélag- anna. Ármann Kr. Ólafsson í Kópavogi segist skilja óánægj- una og þar hafi verið reynt að koma til móts við hana með því að lækka gjöldin. Aldís Haf- steinsdóttir í Hveragerði segir að þar hafi verið reynt að miða við að hækkunin færi ekki fram úr verðlagsþróun með því að lækka álagningarhlutfallið hækki fasteignamatið úr hófi fram. Aldís gagnrýnir líkt og for- stjórar fasteigna- félaganna að gagnsæi við ákvörðun fast- eignamatsins sé lítið. „Það er jafn snúið fyrir okkur sveitarstjórnarmenn að skilja og gera áætlanir á grundvelli þeirra upplýsinga sem við höf- um eins og fyrir atvinnurek- endur sjálfa, því auðvitað er fasteignamatsaðferðin sér- kennileg og það er lítill fyrir- sjáanleiki í henni.“ Vitaskuld er ekki boðlegt að aðferðin við að búa til fast- eignamat sé sveipuð dulúð og svo ógagnsæ að stjórnmála- menn og atvinnurekendur standi á gati. Fasteignamatið hefur marg- vísleg áhrif. Þeir sem leigja út húsnæði geta ekki endalaust tekið á sig hækkanir sem fylgja hækkun matsins. Fast- eignamatið leiðir því óhjá- kvæmilega til þess að leiga hækkar. Það mun síðan ugg- laust verða til þess að fast- eignamatið hækkar enn meira næst. Fasteignamatið er því orðið nokkurs konar gerandi í þenslunni og það getur varla verið ætlunin. Þetta er sérstaklega ergi- legt þegar staðan er eins og nú. Fyrirtæki í leiguhúsnæði hafa mörg átt í miklum krögg- um vegna kórónuveiru- faraldursins. Í miðbæ Reykja- víkur má víða sjá tóma búðarglugga og lokaða veit- ingastaði. Sú staða ætti tæp- lega að valda því að fast- eignamatið rjúki upp, hvað þá að það hækki umfram verðlag almennt. Venjulega er það svo að stjórnmálamenn þurfa að taka ákvarðanir um að hækka skatta og verða þá að bera pólitíska ábyrgð á því. Fast- eignamatið er leið til þess að hækka skatta sjálfkrafa og stjórnmálamennirnir geta sagst vera með fjarvistar- sönnun. Það er ekki sann- gjarnt gagnvart eigendum íbúðarhúsnæðis, sem fæstir eru að innheimta gróðann af hærra húsnæðisverði. Þeir búa flestir í sínu húsnæði og eru með sínar tekjur. Þeirra að- stæður breytast ekki þótt fast- eignamatið hækki og það leiðir ekki til að þeir hafi meira milli handanna – nema þeir kjósi að selja og þá þurfa þeir ekki lengur að borga fasteigna- gjöld. Það er ekki heldur sann- gjarnt að eigendur atvinnu- húsnæðis þurfi stöðugt að greiða hærra hlutfall af veltu sinni í fasteignagjöld, sama hvernig árar í viðskiptalífinu. Sama hvernig árar í efnahagslífinu, alltaf hækkar fasteignamatið} Dularfulla fasteignamatið M enntamálaráðherra svaraði í liðinni viku fyrirspurn minni á Alþingi um námsárangur pilta og stúlkna í skólakerf- inu. Í svarinu koma fram sláandi upplýsingar, ekki síst tölur um veru- legan kynjahalla sem kalla á skýringar og aðgerðir. Frammistaða grunnskólastúlkna í öllum námsþáttum er að jafnaði marktækt betri en frammistaða drengja. Á framhaldsskólastigi birtist mikill munur á kynjum þegar litið er til brautskráningar. Hagstofa Íslands upp- lýsir að 35% fleiri stúlkur en piltar braut- skráðust með almennt stúdentspróf skóla- árið 2018-2019. Fram kemur að háskólamenntuðu fólki hefur fjölgað á síðustu árum en þróunin hef- ur verið ólík eftir kynjum. Ríflega helmingur kvenna á aldrinum 25-64 ára hefur lokið háskólagráðu á móti 35% karla. Samkvæmt nýlegri könnun í 28 ríkjum Evr- ópu eru konur alls staðar í meirihluta nemenda í há- skólum eins og hér á landi en hlutfall karla þó hvergi lægra en hér. Kynjahlutfall nemenda við Háskóla Ís- lands er nú 32% karlar og 68% konur, karlar ná ekki þriðjungi nemenda. Brotthvarf úr framhaldsskóla skýrir hluta af þessum mun. Almennt hverfa drengir frekar brott úr fram- haldsskóla en stúlkur. Af svari um brotthvarf nýnema sést að brotthvarf drengja er meira en stúlkna, með hlutfallinu þrír drengir fyrir hverjar tvær stúlkur. Þá kemur fram um brotthvarf nem- enda sem hafa horfið frá námi fjórum árum eftir innritun að brotthvarf pilta er töluvert meira en stúlkna. Stúlkum virðist almennt ganga að mörgu leyti vel í skólakerfinu og er það gleðiefni. En svara þarf hvers vegna árangur drengja er áberandi lakari. Er þetta það jafnrétti sem við sækjumst eftir? Þessi halli yrði ekki þolaður ef hann væri stúlkum í óhag. Í svarinu virðist vikið að hugtakinu skóli án aðgreiningar sem gefinni stærð. Væri goðgá að spyrja hvort gagnrýnni afstaða en í svarinu birtist væri kannski nauðsynleg til að bæta úr þeim ágöllum á skólakerfinu sem svör ráðherra bera með sér? Í svari ráðherra er ekki að finna marktæk úrræði til að efla hag drengja í skólakerfinu þótt svo halli á þá sem raun ber vitni. Nýsamþykkt mennta- stefna 2021-2030 sýnist einkennast af hóflegum metn- aði. Þar er skilað auðu um málið og ber hún ekki með sér neina raunhæfa viðleitni til að bæta úr ágöllum á skólakerfinu eða kynjahallanum sem einkennir það. Umbótum sýnist eiga að skjóta á frest. Nýtt Alþingi þarf að afloknum kosningum að taka fast á þeim brotalömum í skólakerfinu og kynjahalla sem svar ráðherra ber með sér. olafurisl@althingi.is Ólafur Ísleifsson Pistill Kynjahalli í skólakerfinu Höfundur er þingmaður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Alls voru 48 einstaklingar á biðlista í febrúar sl. og meðal- biðtími 2,7 ár hjá Endurhæfingu – þekkingarsetri en það veitir einstaklingum með meðfæddan eða ákominn heilaskaða og hrörnunarsjúkdóma endurhæf- ingu, þjálfun og stuðning. Á sama tíma í fyrra voru 39 á bið- lista og biðin 1,8 ár. Fram kem- ur að fjölgun á biðlista megi skýra með vaxandi ásókn í sér- hæfða meðferð. „Sóttvarnir urðu til þess að erfitt reyndist að veita þjónustunotendum nauðsynlega meðferð og íhlut- un. Fjarfundabúnaður var not- aður eins og hægt var en ekki gátu allir nýtt þann þjón- ustumöguleika. Mikil afturför og aukinn heilsuvandi hefur orðið hjá þeim sem ekki gátu fengið meðferð vegna sótt- varna. Aukna þjálfun, endurnýj- un og breytingar á hjálpar- og stoðtækjum hefur þurft í kjöl- farið,“ segir í svarinu. Aukinn heilsuvandi ENDURHÆFING

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.