Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 33
MESSUR 33á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Tökum á móti ástvinum í hlýlegu
og fallegu umhverfi
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
Öll aðstaða í samræmi við tilefnið. Hlýlegt og fallegt
húsnæði og nýir glæsilegir bílar.
Sjá nánari upplýsingar á utfor.is
Útfararþjónusta
Við veitum alla þjónustu tengda andláti ástvina
– Þjónusta um allt land og erlendis
– Þjónusta í heimahúsi og á stofnunum
í yfir 70 ár
Guðný Hildur
Kristinsdóttir
Framkvæmdastjóri
Ellert Ingason
Sálmaskrár,
útfararþjónusta
Emilía Jónsdóttir
Félagsráðgjöf,
útfararþjónusta
Guðmundur
Baldvinsson
Útfararþjónusta
Lára Árnadóttir
Útfararþjónusta
Sigurður Bjarni
Jónsson
Útfararþjónusta
Magnús Sævar
Magnússon
Útfararþjónusta
Jón G. Bjarnason
Útfararþjónusta
Helga
Guðmundsdóttir
Útfararþjónusta
ÁRBÆJARKIRKJA | Sumarleg helgistund á
ljúfu nótunum kl. 11. Félagar úr kór Árbæjar-
kirkju syngja undir stjórn Krisztinu Kalló Szkla-
nér organista. Fermingarbarn staðfestir skírn-
arheitið. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir
prédikar og þjónar fyrir altari.
ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta á sjómannadaginn
kl. 14. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjón-
ar fyrir altari ásamt Jóhönnu Maríu Eyjólfsdótt-
ur djákna. Kór Áskirkju syngur. Organisti Bjartur
Logi Guðnason. Kaffisopi í Ási á eftir.
Guðsþjónusta á Skálafelli, Hrafnistu, kl. 13.
Séra Sigurður Jónsson þjónar, Bjartur Logi
Guðnason leikur á orgelið. Félagar úr Kór Ás-
kirkju syngja.
ÁSTJARNARKIRKJA | Engar guðsþjónustur
verða í Ástjarnarkirkju í júní, júlí og ágúst en
kirkjan stendur fyrir guðsþjónustum í Garða-
kirkju á Álftanesi kl. 11 þessa mánuði í sam-
starfi við söfnuðina í Hafnarfirði, Garðabæ og
Álftanesi. Þar verður boðið upp á vandaða dag-
skrá, guðsþjónustu, sunnudagaskóla og kirkju-
kaffi með menningarlegri dagskrá. Guðsþjón-
ustan 6. júní: Prestur er sr. Hennig Emil
Magnússon og organisti Jóhann Baldvinsson.
Sjómannalög verða sungin í messukaffinu á
eftir.
BESSASTAÐASÓKN | Sumarmessur í Garða-
kirkju, alla sunnudaga kl. 11. Bessastaðasókn
tekur þátt í sumarmessunum.
Sjá Garðakirkja hér á síðunni.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Göngumessa Breið-
holtssafnaðanna verður í Breiðholtskirkju kl.
11 á sunnudaginn. Lagt af stað kl. 10 frá Fella-
og Hólakirkju. Sr. Magnús Björn Björnsson
þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Breiðholts-
kirkju syngja undir stjórn Arnar Magnússonar.
Léttar veitingar eftir guðsþjónustuna.
Guðsþjónusta Alþjóðlega safnaðarins í Breið-
holtskirkju kl. 14. Sr. Toshiki Toma, prestur inn-
flytjenda, þjónar.
BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessa sunnudag-
inn 6. júni, sjómannadaginn. Hugguleg stund
með léttri tónlist. Hólmfríður Ólafsdóttir djákni
þjónar ásamt messuþjónum og kammerkór Bú-
staðakirkju syngur undir stjórn Jónasar Þóris
kantors.
DIGRANESKIRKJA | Sunnudaginn 6. júní
2021 kl. 11. er fermingarmessa í Hjallakirkju.
DÓMKIRKJAN | Hátíðarmessa á sjómanna-
daginn klukkan 11. Biskup Íslands Agnes M.
Sigurðardóttir prédikar, séra Sveinn Valgeirs-
son þjónar fyrir altari. Magnús Már Björnsson
syngur einsöng. Kári Þormar dómorganisti og
Dómkórinn syngur undir hans stjórn. Lesarar
frá Landhelgisgæslunni.
FELLA- og Hólakirkja | Gönguguðsþjónustur
Breiðholtssafnaða í júní. Það er orðin árviss
hefð að byrja sumarið á því að ganga á milli
kirknanna í Breiðholtinu í góðra vina hópi.
Helgihald kirknanna verður því sameiginlegt
næstu sex sunnudaga. Eftir stundina er boðið
upp á léttar veitingar. Næsta sunnudag 6. júní
verður messa í Breiðholtskirkju. Gengið frá
Fella- og Hólakirkju kl. 10 guðsþjónusta í Breið-
holtskirkju kl. 11.
GARÐAKIRKJA | Sjómannadagsmessa. Sr.
Henning Emil Magnússon þjónar. Organisti Jó-
hann Baldvinsson. Sumarsunnudagaskóli í
vinnustofunni á Króki á sama tíma og eftir
messu er messukaffi og sjómannalögin sungin
í hlöðunni.
GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudaginn 6. júní
verða tvær fermingar í Grafarvogskirkju. Fyrri
ferming er kl. 10:30 og sú seinni kl. 13:30.
Prestar kirkjunnar þjóna. Kór Grafarvogskirkju
leiðir söng. Organisti er Hákon Leifsson.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. María
G. Ágústsdóttir, sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir
og Daníel Ágúst Gautason djákni þjóna. Kirkju-
kór Grensáskirkju leiðir söng ásamt Kristjáni
Hrannari Pálssyni organista. Þrjú börn verða
fermd í messunni sem er öllum opin. Þriðjudag-
ur 8. júní: Kyrrðarstund kl. 12, einnig á netinu.
GRINDAVÍKURKIRKJA | Sjómannamessa kl.
14. Kór Grindavíkurkirkju og Erla Rut Káradóttir
organisti. Einsöngur: Páll Jóhannesson. Ræðu-
maður: Fannar Jónasson bæjarstjóri. Sr. Elín-
borg Gísladóttir þjónar. Sjómenn heiðraðir. Að
því loknu ávarp forseta Íslands.
Björgunarbátur blessaður á kirkjuhlaðinu.
Skrúðganga niður að „Von“ og blómsveigur
lagður þar. Kvennakór Grindavíkur syngur undir
stjórn Bertu D. Ómarsdóttur. Hægt verður að
horfa á beint streymi frá messunni á heima- og
facebooksíðu Grindavíkurbæjar.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Ferming-
arguðsþjónusta sunnudaginn 6. júní kl: 10:30.
Sr. Leifur Ragnar Jónsson þjónar og predikar
fyrir altari. Organisti Hrönn Helgadóttir og kór
Guðríðarkirkju syngur. Kirkjuvörður Lovísa Guð-
mundsdóttir, meðhjálpari Guðný Aradóttir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Sjómannadagurinn.
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Árni Þórð-
arson prédikar og þjónar fyrir altari. Hópur
messuþjóna aðstoðar. Forsöngvarar leiða
safnaðarsöng. Organisti er Björn Steinar Sól-
bergsson. Kirkjukaffi eftir guðsþjónustu.
HÁTEIGSKIRKJA | Sjómannadagurinn. Guðs-
þjónusta kl. 11. Barn verður fermt í guðsþjón-
ustunni. Kordía, kór Háteigskirkju, syngur. Org-
anisti er Guðný Einarsdóttir. Prestur er Helga
Soffía Konráðsdóttir. Fermingarathöfn kl. 14.
Organisti er Guðný Einarsdóttir og prestur
Helga Soffía Konráðsdóttir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sunnudaginn 6.
júní 2021 kl. 11. er fermingarmessa í Hjalla-
kirkju.
HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Guðsþjón-
usta í Hólaneskirkju á sjómannadaginn 6. júní
kl. 11. Skrúðganga frá hafnarsvæðinu til Hóla-
neskirkju kl. 10.30. Í guðsþjónustunni syngjum
við saman sjómannalög og sálma undir stjórn
Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur organista.
Ræðumaður dagsins er Guðmundur Finnboga-
son. Séra Bryndís Valbjarnardóttir þjónar fyrir
altari.
Að athöfn lokinni verður gengið að minnisvarð-
anum um drukknaða sjómenn frá Skagaströnd
sem stendur við kirkjuna og lagður þar blóm-
sveigur.
HVALSNESKIRKJA | Sjómannadagsmessa
kl. 14. Prestur sr. Önundur Björnsson. Félagar
úr kirkjukórnum syngja. Blómsveigur lagður að
minnisvarðanum um drukknaða sjómenn eftir
messu.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn samkoma
með lofgjörð og fyrirbænum kl. 20. Ólafur H.
Knútsson prédikar. Einnig verður Heilög kvöld-
máltíð. Kaffi að samverustund lokinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sjómannamessa 6.
júní kl. 11 í Bíósal Duus-safnahúsa. Félagar úr
Kór Keflavíkurkirkju leiða söng við undirleik og
stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Sr. Erla
Guðmundsdóttir messar. Safnstjóri Byggða-
safns Reykjanesbæjar kynnir sýninguna Fast
þeir sóttu sjóinn – bátasafn Gríms Karlssonar. Í
lok dagskrár verður lagður krans við minnis-
merki sjómanna á Bakkalág við Hafnargötu.
KÓPAVOGSKIRKJA | Helgistund í Borgum,
safnaðarheimili Kópavogskirkju, kl. 11. Dr. Sig-
urjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur prédikar og
þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Kópavogs-
kirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéovu, kant-
ors kirkjunnar.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa sunnudaginn
6. júní kl. 11. Söngfélagið Góðir granna syngur
við messuna undir stjórn Egils Gunnarssonar
og undirleik Magnúsar Ragnarssonar. Guð-
björg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar,
stúlka fermd í messunni. Heitt á könnunni að
messu lokinni.
MOSFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta í Mos-
fellskirkju kl. 11. Sunnudaginn 6. júní. Sr. Arn-
dís G. Bernhardsdóttir Linn leiðir helgihald og
Kirkjukór Lágafellssóknar leiðir safnaðarsöng
undir stjórn Þórðar Sigurðarsonar organista.
Bryndís Böðvarsdóttir les ritningarlestra.
NESKIRKJA | Messa kl. 11 á sjómannadag.
Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng
undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organ-
ista. Prestur er Steinunn Arnþrúður Björnsdótt-
ir. Hressing og samfélag á torginu eftir messu.
SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Helgistund tileink-
uð sjómönnum kl. 11. Agnar H. Gunnarsson
flytur hugleiðingu. Félagar úr Leikfélagi Sauðár-
króks syngja sjómannalög, kirkjukór syngur
sálma. Organisti Rögnvaldur Valbergsson,
prestur: Sigríður Gunnarsdóttir
SELJAKIRKJA | Gönguguðsþjónusta safnað-
anna í Breiðholti. Hist verður við Fella- og Hóla-
kirkju og gengið til Breiðholtskirkju þar sem
guðsþjónusta hefst kl. 11.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11 á sjómannadegi. Sóknarprestur þjónar.
Organisti kirkjunnar leikur á orgelið. Félagar úr
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða almenn-
an safnaðarsöng. Birgir Vigfússon og Guðrún
Brynjólfsdóttir lesa ritningarlestra. Kaffi og
terta eftir athöfn í safnaðarheimilinu. Eftir
kirkjukaffið er boðið upp á dans á kirkjuhlaðinu
þar sem Margrét Jóhannesdóttir, kirkjuvörður
og danskennari, kennir öllum línudans ef veður
leyfir.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Guðsþjónusta til-
einkuð sjómönnum og fjölskyldum þeirra að
kveldi sjómannadags, kl. 20. Jóhanna Gísla-
dóttir flytur hátíðarræðu. Organisti er Rusa
Petriashvili og kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir al-
mennan safnaðarsöng. Kaffi og konfekt í safn-
aðarheimili eftir guðsþjónustu.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnu-
dag kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson sóknarprest-
ur annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón
Bjarnason.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Sjómannadagsmessa kl.
11. Prestur sr. Önundur Björnsson. Félagar úr
kirkjukórnum syngja. Blómsveigur lagður að
minnisvarðanum um drukknaða sjómenn eftir
messu.
VÍDALÍNSKIRKJA | Sumarmessur í Garða-
kirkju alla sunnudaga kl. 11. Vídalínskirkja tek-
ur þátt í sumarmessunum. Sjá Garðakirkja hér
í síðunni.
Morgunblaðið/Ómar
Stykkishólmskirkja