Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 40

Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 Amma Dísa var ótrúleg í öllum skilgreiningum orðsins. Aðdáun okkar, ást og virð- ingu gagnvart þessari yndis- legu stórbrotnu konu er erfitt að koma í orð. Hún var hjarta fjölskyldunar sem sló á Lauga- veginum, opið, fullt af ást og gleði. Táknmynd dugnaðar, elju, réttlætis og ósérhlífni. All- ir áttu örugga höfn í faðmi ömmu á Laugaveginum. Sama hvaða erfiðleika fólk barðist við í lífinu var alltaf hægt að finna stundarfrið hjá ömmu Dísu. Þar hlóðum við batteríin. Hún fyllti maga okkar af mat, breiddi yfir okkur þegar við sofnuðum á sófanum og gaf okkur heilræði um ólgusjóinn sem lífið er. Og eini sykurinn sem maður fékk var á pönnu- kökunum eða marengstertunni, hún var ekki að sykra raun- veruleikann eða sitja á skoð- unum sínum. Og ég verð henni ævinlega þakklátur fyrir það. Hún vildi öllum vel, ætíð bros- mild og hlý og lexíurnar hennar munu lifa áfram, ekki bara í orði, heldur í þeim gildum sem við lærðum af henni með henn- ar gjörðum, viðhorfi og styrk. Ástin, sem brann í brjósti hennar gagnvart fólkinu í kringum hana, er sem viti sem leiðbeinir okkur áfram í ólgusjó Þórdís Jóhannesdóttir ✝ Þórdís Jóhann- esdóttir fædd- ist 10. september 1919. Hún lést 13. maí 2021. Útförin fór fram 27. maí 2021. lífsins. Takk fyrir allt elsku fallega amma Dísa. Grétar Þór Guðjónsson og fjölskylda Dísa frænka er dáin. Mann setur hljóðan. Hugurinn reikar aftur til frumbernsku. Alla mína tíð frá því ég man eftir mér var Laugavegurinn hjá Dísu og Svabba fastur punktur í tilverunni. Eins og sagt var í fornöld þá lágu allar leiðir til Rómar. Í minni tilveru lágu flestar leiðir niður á Laugaveg til Dísu, Svabba og krakkanna. Til fjölda ára fóru foreldrar mínir niður á Laugaveg á að- fangadag eftir mat til að sam- einast þeirri stóru fjölskyldu sem þar bjó. Ég hlakkaði alltaf til, enda einbirni. Að komast í fjörið á Laugaveginum var toppurinn á tilverunni. Þó ekki væri nema til að fá að slást við Rósu frænku, en hún hafði ein- stakan áhuga á húfunni minn sem ég bar iðulega á þessum árum. Við vorum alltaf til í þannig glens. Sigga frænka var þarna yfirleitt, leitaði í marg- mennið eins og fleiri. Hvílíkur kokkur hún Dísa. Að öllum konum og körlum ólöstuðum var hún Dísa frænka sá besti kokkur og matargerð- arkona sem Ísland hefur alið. Það var stórhættulegt fyrir fólk í aðhaldi að heimsækja Dísu. Hvílíkar kræsingar. Alltaf veisla á Laugaveginum. Síðasti víkingurinn er fallinn. Dísa var yngst 11 systkina. Ættuð frá Skálholtsvík í stórum hópi systkina. Ég var svo hepp- inn að fá að eyða mörgum sumrum í Skálholtsvík hjá föð- urbræðrum mínum. Heiðar- legra fólki hef ég ekki kynnst á mínum lífsferli en Dísu, pabba og systkinum. Ekki þurfti skrif- aðan samning, nema formsins vegna. Orðin stóðu. Tímarnir breytast og mennirnir með. Nú þarf allt að vera fest á pappír og dugar oft ekki til. Dísa var fylgin sér og hafði ákveðnar skoðanir á lífinu og tilverunni, eins og við flestöll. Hún sagði sína meiningu und- anbragðalaust. Við vissum öll hvar við höfðum Dísu. Ekkert fals eða meðvirkni. Það er ekki mikið um stuðning við svona af- stöðu í dag. Að standa á sínu. Dísa var alltaf nálægt mér, vegna þess að pabbi og mamma ræktuðu vinasamband með henni og Svabba alla tíð. Í end- urminningunni er Laugavegur- inn baðaður gullnum ljóma. Yf- irleitt fór fjölskyldan í bæinn á Þorláksmessu. Þá var komið við hjá Dísu og Svabba, hvað ann- að, og fengið kaffi og með því. Fyrstu jólagjafirnar mínar fyr- ir pabba og mömmu voru keyptar á þeim degi. Þá fór ég oftar en ekki með peninga í vasa eftir sölu á happdrætt- ismiðum frá Krabbameinsfélag- inu. Gekk niður Laugaveginn og spáði í úrvalið. Oftar en ekki varð Rammagerðin fyrir valinu. Einn er sá sem fagnar and- láti hennar! Fyrir margt löngu sagði Dísa frá draumi sem hana dreymdi. Svavar kom til hennar og kvartaði yfir því hvers vegna hún væri ekki löngu komin yfir í Draumalandið, hennar væri sárt saknað. Gengin er góð kona sem á stað í hjarta mínu. Megi minn- ing hennar lifa. Magnús Ingólfsson. Elsku pabbi. Þá er kominn tími til að kveðja. Þetta er búið að vera langt og erf- itt ferli þar sem þú hefur horfið frá okkur smám sam- an í heim gleymskunnar. Þegar þú greindist með alzheimer-sjúk- dóm fyrir rúmum sjö árum gerði ég mér grein fyrir því að tíminn sem við áttum saman með þér væri ekki sjálfsagður og ég reyndi Baldur Kristjánsson ✝ Baldur Krist- jánsson fæddist 6. mars 1951. Hann lést 9. maí 2021. Útför Baldurs fór fram 19. maí 2021. að njóta hverrar mínútu sem ég átti með þér. Ég á svo margar góðar minningar um þig. Þú varst yndis- legur faðir og alltaf með mjög góða nær- veru. Þar sem þú vannst við rann- sóknir og kennslu varstu mikið heima og tókst frá upphafi mikinn þátt í uppeldi okkar systk- ina. Það varst þú sem kynntir mömmu og alla fjölskylduna fyrir Svíþjóð, en þú bjóst þar í rúmlega 18 ár bæði í Gautaborg og Stokk- hólmi. Við áttum níu góð ár saman í Stokkhólmi þar sem þú vannst að rannsóknum og skrifaðir doktors- ritgerð þína í sálfræði og uppeld- isfræði. Í formálanum að doktors- ritgerðinni skrifarðu að þú veltir fyrir þér hvað þið mamma hefðuð gert dætrum ykkar með því að láta þær lifa við þann lífsstíl sem fjölskyldan gerði. Ég er svo þakklát fyrir þann lífsstíl sem þið kynntuð okkur. Við kynntumst fólki alls staðar að úr heiminum og þá sérstaklega fyrstu tvö árin í Stokkhólmi þegar við bjuggum á Wenner Gren Center. Það tímabil hafði mikil áhrif á okkur öll og er líklega ein af ástæðunum fyrir því að ég valdi að gerast mannfræðingur. Fjöl- skyldan var mikið saman á þess- um árum og við nutum þess virki- lega að vera í Stokkhólmi. Ég á margar góðar minningar af göngutúrunum sem við fórum í, en þú elskaðir að ganga og einn af uppáhaldsstöðum þínum var Hagaparken. Við spjölluðum mik- ið í þessum göngutúrum og mér fannst þú vita allt. Þú varst eins og alfræðibók, þú fylgdist vel með fréttum og varst góður í bæði sögu og landafræði. Þegar þú fluttir fyrst til Svíþjóðar hafðir þú skoðað landakortið til þess að vita hvar allar mikilvægustu borgirn- ar í Svíþjóð væru. Þú hafðir líka mjög gaman af tungumálum og veltir oft fyrir þér hvaðan orðin kæmu, ég man sérstaklega eftir orðinu peysa sem þú sagðir að kæmi af franska orðin paysan. Við höfðum það mjög gott í Sví- þjóð og það voru mikil viðbrigði fyrir þig að flytja aftur til Íslands. Þú varst alltaf svo glaður þegar við fengum vini í heimsókn frá út- löndum og spjallaðir mikið við þá og hafðir mikla ánægju af því að sýna þeim landið og þá sérstak- lega Kleifarvatn og Reykjanes- skaga. Margir vina minna sem komu í heimsókn tala um það hversu yndislegur þú varst og þau eiga góðar minningar frá ferðun- um sem þú fórst með okkur í. Núna erum við Sif báðar fluttar til Svíþjóðar, en það er orðið okkar annað heimili, þökk sé þér og mömmu. Að lokum vil ég þakka fyrir all- an þann tíma sem við áttum sam- an og allar þær góðu minningar sem þú gafst mér og okkur. Þú munt lifa áfram í hjörtum okkar, elska þig alltaf. Þín Sigríður Baldursdóttir. Hinn 19. maí síðastliðinn fylgdi ég honum Baldri pabba síðasta spölinn. Þessi yndislegi maður sem tók mig að sér þegar ég var lítill gutti og ól mig upp sem sinn. Minning- arnar streyma um hugann, og eru þær margar yndislegar og skemmtilegar. Ferðalög sem voru bæði hérlendis og erlendis. Bú- seta á stöðum sem voru eins og úr ævintýrasögum. Ferðir sem voru bæði með skipi, lest og flugi. En það sem stendur upp úr er per- sónan sem pabbi geymdi. Ljúfur og réttsýnn með meiru. Sá tími sem við áttum saman, samræður um allt á milli himins og jarðar. Hann var fullur af þekkingu. Aldrei lenti hann á gati þegar spurt var. Það voru til svör við flestu. Gönguferðirnar okkar með myndavélarnar, stundum var far- ið á svipaðar slóðir, en stundum var það eitthvað nýtt og framandi. Á milli þess sem gengið var í nátt- úrunni var spjallað um daginn og veginn, lífið og tilveruna. Barna- börnin voru í miklu uppáhaldi og eru ófáar myndirnar sem hann hefur tekið af þeim. En eftir standa yndislegar minningar og þakka ég honum fyrir allt það sem hann gaf mér. Það er geymt en ekki gleymt. En nú kveð ég þig elsku pabbi minn, takk fyrir allt. Við hittumst síðar. Þinn Björgvin. ✝ Óskar Berg var fæddur á Húsavík þann 24. maí 1948, yngstur í ellefu systkina hópi. Hann var sonur hjónanna Sigurjóns Hall- dórssonar, f. 6.3. 1902, d. 9.12. 1963, og Elísabet- ar Sigríðar Friðriksdóttur, f. 2.10. 1905, d. 21.4. 1985. Eft- irlifandi systkini Óskars eru; Benoný, f. 31.5. 1931, Kári Rafn, f. 1.10. 1933, Kolbrún Hulda, f. 25.2. 1936, og Gylfi, f. 7.7. 1942. Látin eru: Elías Ben, f. 1.7. 1927, d. 19.12. 1998, Halldór Friðrik, f. 19.2. 1929, d. 9.7. 2013, Mary Al- berty, f. 20.3. 1930, d. 3.8. 2009, Kolbeinn Oddur, f. 12.9. 1932, d. 27.5. 2020, Sigrún, f. eru Jóna Kristín, f. 11.1. 2004, Svandís Ósk, f. 11.1. 2004, og Anna Lísa, f. 10.5. 2005. Þór- hallur á einnig dótturina Sig- urveigu Þórhallsdóttur, f. 18.6. 1986. Sigurveig er gift Sigurjóni Ólafssyni, f. 9.10. 1982, og sonur þeirra er Pét- ur, f. 9.12. 2015. b) Berglind Ósk, f. 29.5. 1970. Móðir henn- ar er Margrét Lilja Guðmundsdóttir, f. 28.8. 1954. Berglind er ógift og barnlaus. Eftirlifandi unnusta og sam- býliskona Óskars er Þórhalla Guðmundsdóttir, f. 25.8. 1949. Óskar starfaði megnið af starfsaldri sínum við bíla- sprautun og réttingar í Reykjavík og þótti mikill hag- leiks- og verkmaður á því sviði. Lengst starfaði hann hjá Bílasprautunar- og rétt- ingaverkstæðinu Víkurósi, þar sem hann eignaðist sína trygg- ustu vini og félaga á lífsins vegferð. Hann lést á bráða- móttöku Landspítalans í Foss- vogi þann 25. maí 2021. Útför hans fer fram frá Oddakirkju á Rangárvöllum í dag, 5. júní 2021, klukkan 13. 8.7. 1937, d. 25.8. 2014, og Ingibjörg Bankey, f. 18.10. 1943, d. 24.4. 2016. Dætur Óskars eru: a) Agnes Ólöf, f. 05.10. 1966, móðir henn- ar er Olga Soffía Thorarensen, f. 5.10. 1945. Sam- býlismaður Agnesar Ólafar var Finnbogi Arnar Ástvaldsson, f. 5.9. 1956, þau slitu sambúð. Barn þeirra er Vigdís Th. Finn- bogadóttir, f. 17.6. 1983, gift Sæmundi Sveinssyni, f. 29.8. 1984. Synir Vigdísar og Sæ- mundar eru Sigurður Ásgeir, f. 18.12. 2010, og Ólafur Odd- ur, f. 5.3. 2013. Agnes Ólöf er gift Þórhalli Jóni Svavarssyni, f. 13.12. 1960. Dætur þeirra Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabba minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góð- leg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skína inn þá gleður okkar minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem förum við um landið út og inn er fjarsjóðurinn okkar pabbi minn. (Guðrún Sigurbjörnsdóttir) Hvíl í friði pabbi minn. Þín Agnes Ólöf (Lóa). Elsku afi. Æskuminningarnar sem tengjast þér eru sveipaðar einhvers konar ljóma því mér fannst afi í Reykjavík alltaf svo fá- ránlega töff og skemmtilegur. Alltaf snyrtilega klæddur, fínn um hárið og skeggið og í nýpússuðum skóm. Þegar ég varð unglingur bjó ég hluta úr vetri hjá ykkur Nínu á meðan ég var í skóla í bænum. Þá mánuði kynntumst við betur og það má segja að þá hafi ég kynnst þér sem manneskju, ekki bara sem afa í Reykjavík. Skemmtileg- ast fannst mér þegar þú sýndir mér gamla dótið þitt inni í her- bergi, gömul myndaalbúm með tilheyrandi sögum og svo auðvitað bílskúrsstundirnar okkar. Í bílskúrnum sátum við á plast- kössum, hlustuðum á tónlist, reyktum camel og drukkum bjór. Við vorum trúnaðarvinir og þú sagðir mér frá því hvernig líf þitt hefði líklega orðið öðruvísi ef Bakkus hefði ekki tekið eins stór- an toll af lífi þínu og hann gerði. Þú vissir hvaða hildarleik hann lék þig, en þú fannst bara ekki leiðina út. Þegar þú ræddir þessi mál fyrst opinskátt við mig á ung- lingsaldri sagði ég við þig: „Þú ert samt afi minn, og þú skalt bara vera það.“ Þá brostir þú votur um augun og sagðir: „Jæja elskan, þá höfum við það þannig.“ Það bar aldrei skugga á okkar samskipti og þú varst fljótur að bregðast við ef eitthvað bjátaði á. Þú gerðir við gömlu bíldrusluna mína, málaðir fyrstu íbúðina okk- ar Sæma með okkur og kenndir okkur handtökin og þegar við héldum að þú værir farinn heim eftir langan málningarvinnudag mættir þú aftur með fulla potta af kjötbollum og kartöflumús í kvöldmatinn. Það voru sennilega bestu kjötbollur sem ég hef bragðað um ævina. Þú varst svo stoltur af okkur stelpunum þínum og strákunum. Þú elskaðir jólin og jólaljósin. Þú varst sælkeri og elskaðir góðan mat og bakkelsi og saman deild- um við ævilangri ástríðu fyrir Prince polo. Þú varst dýravinur af guðs náð og hundar voru þar í mestu uppáhaldi. Þú varst líka barngóður og hafðir unun af því að fíflast og segja brandara í kringum litla krakka og fá þau til að hlæja, breyttist eiginlega í hálf- gerðan trúð á köflum og hlóst þá oft hæst sjálfur að allri vitleys- unni. Þú sagðir alltaf að þeir lifðu lengst sem lýðnum leiddist. Ég hefði gjarnan viljað að þú hefðir verið dálítið leiðinlegri þannig að við hefðum getað haft þig lengur hjá okkur. Ég er samt þakklát fyrir þau rúmu þrjú ár sem við fengum að hafa þig eftir að þú veiktist í ársbyrjun 2018, en þá lifðir þú af hvorki meira né minna en 45 mínútna hjartastopp. Læknarnir komu þér aftur af stað, en lífsgæði þín voru nokkuð skert eftir áfallið og þér fannst erfitt að sætta þig við að þurfa að- stoð við ýmsar athafnir daglegs lífs sem þú hafðir áður sinnt sjálf- ur. Elsku afi, ég á eftir að sakna þín, símtalanna, hlátursins, ein- lægninnar, vináttunnar og kær- leikans á milli okkar. Takk fyrir að gefa mér hlutdeild í lífi þínu, líka á þeim stundum sem þig lang- aði ekki að ég vissi að aðstæður þínar voru ekki sem bestar. Takk fyrir þéttu faðmlögin, trausta handabandið og að vera skemmti- legi, fyndni og stríðni afi minn. Ástarkveðja, Vigdís. Óskar Berg Sigurjónsson HINSTA KVEÐJA Þótt döpur sé nú sálin, þó mörg hér renni tárin, mikla hlýju enn ég finn þú verður alltaf afi minn. (Heba Dögg Jónsdóttir) Takk fyrir allt elsku afi okkar, Jóna Kristín, Svandís Ósk og Anna Lísa. Við Dúna, eins og vinkona mín Sigrún Þorleifsdóttir var alltaf kölluð, urðum svo frægar einu sinni að vera leyni- gestir í 60 ára afmæli Marínar systur minnar í Vínarborg í Aust- urríki. Þvílíkt og annað eins höfð- um við hvorugar upplifað, þó margt hafi drifið á daga okkar í gegnum tíðina. Þar naut Dúna sín vel, hún skreytti allan veislusalinn Sigrún Þorleifsdóttir ✝ Sigrún Þor- leifsdóttir var fædd 16. desember 1927. Útförin fór fram 1. júní 2021. þannig að skemmti- leg veisla varð enn skemmtilegri og miklu fallegri. Þetta var ógleymanleg veisla og samveru- stundir okkar Dúnu þarna úti voru ynd- islegar. Svona var allt okkar samband. Hún sóttist eftir gleði og söng og við tvær gengum saman í Pólýfónkórinn sem var undir dyggri stjórn heiðursmannsins Ingólfs Guðbrandssonar. Vera okkar, söngur og líf, í Pólýfón- kórnum, um langt árabil, var mikil lífsfylling fyrir okkur báðar og elskuðum við hreinlega báðar að fara á æfingar og tónleika. Minn- ingar hrannast upp; æfingarnar, tónleikarnir en þó ekki síst ferða- lögin með kórnum til Spánar, sem eru algjörlega ógleymanlegar, enda fólkið í kórnum og kringum hann með skemmtilegasta fólki sem ég hef kynnst á ævinni. Við Dúna vorum afar þakklátar fyrir þennan skemmtilega félagsskap sem í söngnum var að finna og þá var ekki síður ánægjulegt að syngja tónlist eftir mörg helstu og bestu tónskáld tónlistarsögunnar. Svo enduðum við saman í kór eldri borgara í Hafnarfirði. Það var góður félagsskapur eins og alltaf myndast í kringum söngáhuga. Ég og Dúna áttum margar falleg- ar og góðar samverustundir í langan langan tíma, stundir sem ég hefði ekki viljað missa af og er þakklát fyrir að hafa upplifað með Dúnu. Ég votta öllum aðstandendum mína dýpstu samúð. Guðrún Gísladóttir (Rúna).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.