Morgunblaðið - 05.06.2021, Side 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
H
eimildarmyndin Hálfur
Álfur eftir Jón Bjarka
Magnússon hlaut dóm-
nefndarverðlaun
Skjaldborgar, hátíðar íslenskra
heimildarmynda, á síðasta ári.
Margar keppnismyndanna hafa
verið sýndar í Bíó Paradís að und-
anförnu og nokkuð ljóst að gróskan
er mikil í greininni.
Hálfur Álfur fjallar um hjónin
Trausta „Álf“ Breiðfjörð Magn-
ússon og Huldu Jónsdóttur en þau
voru afi og amma höfundarins.
Stykkið hefst á óræðri myrkursýn,
dauf birta berst úr fjarska. Þegar
klippt er á nærmynd af ljósinu
reynist skíman vera úr vita sem
ferðast um sjónardeildarhringinn,
út og inn. Þessi gamli og fallegi viti,
málaður appelsínugulum lit, er á
Sauðanesi þar sem Trausti gegndi
hlutverki vitavarðar fyrir margt
löngu en hjónin ólust upp á Strönd-
um og búa í höfuðborginni í nútíð
myndarinnar. Þegar frásögn hefst
er aldarafmæli Trausta handan við
hornið en Hulda er örlítið yngri –
og er myndin ákveðinn lokakafli á
æviskeiði þessa mæta fólks.
Framan af virðist myndin vera í
athugunarstíl (e. observational)
heimildarmynda, þar sem mynda-
vél er sem fluga á vegg og fylgist
með því sem fyrir hana ber með
eins konar „vísindalegu sjónar-
horni“ (sem er vitanlega ómögu-
legt). Margt sem fylgir er þó af
öðrum meiði, á þann hátt að við-
föngin taka meðvitað þátt í að
skapa galdur myndarinnar. Við
nemum hversdagsleikann en um
leið sviðsetningu hans – heim sem
er mótaður eftir hugðarefnum höf-
undar og viðfanganna, sem mætti
ganga svo langt að kalla meðhöf-
unda.
Trausti „Álfur“ er í forgrunni
frásagnar. Í upphafi sést hann
undirbúa morgunverð með öllu sem
felst í því – að sjóða sér hafragraut
(nokkuð þunnan), smyrja brauð-
sneið og skera banana með vasa-
hníf. Hin tæplega aldargamla sögu-
hetja er fígúra í einkennilegra lagi
– ekta og kjörin söguhetja í bíó-
mynd. Honum mætti lýsa sem spé-
fugli – lífsglöðum með eindæmum
en hann syngur og trallar daginn,
og myndina, út og inn með hárri
rödd sinni. Hann segist sko vera
„alls engin spekingur“ en við fáum
þó að kynnast honum í gegnum frá-
sagnir hans og ýmis uppátæki (tal-
andi hans er frekar óskýr og hjálp-
aði enskur texti á köflum örlítið til
þess að átta sig). Trausti segir m.a.
frá bernskudraumi þar sem álfur
vitjaði hans og tjáði honum að hann
myndi aldrei drukkna um ævina og
væri því fær í flestan sjó, en
Trausti sótti sjó um hríð líkt og fað-
ir hans áður. Álfurinn var verndari
hans og því vildi Trausti taka upp
nafnið Álfur honum til heiðurs.
Myndin notar álfaþráðinn sem
meginuppistöðu í vefnaði sínum.
Lög og kveðskapur um álfa og
huldufólk eru sungin af Trausta en
hljóma einnig í útsetningum Teits
Magnússonar og Sindra Freys
Steinssonar. Máninn hátt á himni
skín, hrímfölur og grár – en líka
veraldlegri álfakvæði eins og lagið
„Pistol-Packing Mama“ í flutningi
kantrísöngvarans Als Dexters. Á
heimili þeirra hjóna hljómar einatt
gamla gufan en hún virðist færa
áhlýðendum vísur og fregnir af álf-
um liðlangan daginn. Á þennan
sniðuga hátt er sköpuð furðuver-
öld, í senn kunnugleg og framandi,
en einstaklega notaleg.
Mótvægi Trausta er síðan Hulda
eiginkona hans en hún virðist vera
andstæða hans að mörgu leyti.
Hulda er hlédrægari, með djúpa
rödd, bókelsk og svolítið kaldhæð-
in. Hún hneykslast á uppátækjum
Trausta og gefur lítið fyrir áætl-
anir hans um að taka sér Álfs-
nafnið. Hún fer með ýmis kvæði í
heilu lagi en hún segir eiginmann-
inn aldrei hafa verið fyrir bækur.
Skiljanlegt er að Trausti sé örlítið
atkvæðameiri, einfaldlega þar sem
hann er svo úthverfur persónuleiki.
Samband hjónanna og jafnvægi
þeirra á milli er einkar skemmti-
legt. Auðvelt er að þykja vænt um
þau – og hugur rýnis leitar ósjálf-
rátt til fjölskyldumeðlima sem til-
heyra sömu kynslóð.
Nokkrum sinnum er horfið aftur
til sena þar sem Trausti skoðar lík-
kistuna sína, sem honum er mjög
umhugað um, og ræðir við mann
sem virðist starfa hjá útfararstof-
unni. Þessi atriði draga á skemmti-
legan hátt fram að menn veigra sér
ekki við að „leika“ örlítið og búa til
bíó. Skiljanlega er hálfa álfinum
hinsta stundin ofarlega í huga en
hann einblínir á hundrað árin. Þeg-
ar afmælisveislan skellur á í björt-
um veislusal með tilheyrandi fögn-
uði og söng með niðjum og vinum
syngur Trausti hæst allra – „lay
that pistol down“.
Hálfur Álfur er skemmtileg og
falleg mynd sem er merkilegur
vitnisburður um fólk og kynslóðina
sem það tilheyrir. Hún lýsir hvers-
dagsleika þess en leyfir sér líka að
vera ekki of jarðbundin. Gjörn-
ingur verksins er persónulegur, og
sýnir fram á gildi þess að skapa list
þvert á kynslóðir.
Veistu af álfi úti á hól?
Falleg Hálfur Álfur er „skemmtileg og falleg mynd sem er merkilegur vitnisburður um fólk og kynslóðina sem það
tilheyrir“. Hún fjallar um hjónin Trausta „Álf“ Breiðfjörð Magnússon og Huldu Jónsdóttur, afa og ömmu höfundar.
Bíó Paradís
Hálfur Álfur bbbbn
Leikstjórn, handrit, kvikmyndataka og
klipping: Jón Bjarki Magnússon. Ísland,
2020. 63 mín.
GUNNAR
RAGNARSSON
KVIKMYNDIR
Sýning Unu
Bjargar Magn-
úsdóttur, Hæg
sena, verður opn-
uð í Y galleríi í
Hamraborg þar
sem áður var
bensínstöð Olís.
Y er rekið af
Olgu Lilju Ólafs-
dóttur og Sigurði
Atla Sigurðssyni
og er Una Björg fyrst til að sýna i
galleríinu en hún hlaut fyrr á árinu
hvatningarverðlaun íslensku mynd-
listarverðlaunanna.
Verk sýningarinnar skoða hvern-
ig við nálgumst myndmál eftir því í
hvaða form það er sett, segir í til-
kynningu, og spyrja hvort hefðir
handverksins hafi mátt til þess að
upphefja og færa merkingu og vigt
í hversdagsleg augnablik sem verði
til og hverfi á svipstundu og oft án
þess að nokkur taki eftir þeim.
Fyrsta sýningin
haldin í YGallery
Una Björg
Magnúsdóttir
Þjóðhátíðardagur Svía er á morg-
un, 6. júní, og af því tilefni verður
hátíðardagskrá streymt á face-
booksíðu sænska sendiráðsins á Ís-
land og hefst hún á hádegi. Af við-
burðum á dagskrá má nefna
tónleika Léons og Josés Gonzáles.
Gonzáles er ein stærsta stjarna Sví-
þjóðar í tónlistargeiranum og mun
hann koma fram í sumarbústað sín-
um í Bohuslän á vesturströnd Sví-
þjóðar. Tónlistarkonan Léon kem-
ur fram í hljóðveri í Stokkhólmi
sem tengist ABBA sterkum bönd-
um og er hún sögð alþjóðleg tónlist-
arstjarna með ótvíræða rödd.
Dagskrána má finna á facebook-
síðu sendiráðsins.
Vinsæll Tónlistarmaðurinn José Gonzáles.
Léon og Gonzáles
á þjóðhátíðardegi
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
THE WASHINGTON POST
ROGEREBERT.COM
TOTAL FILM
USA TODAY
THE SEATTLE TIMES
THE GUARDIAN
GEGGJAÐ FRAMHALD AF EINUM ÓVÆNTASTA
SPENNUÞRILLER SÍÐUSTU ÁRA
HROLLVEKJANDI SPENNUMYND
THE WRAP FILM
SÝNDMEÐ ÍSLENSKU TALI