Morgunblaðið - 14.06.2021, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2021
SORE NO MORE SORE NO MORE
Náttúrulegt hitagel Náttúrulegt kæligel
Fyrir
æfin
gu Eftir æfingu
14. júní 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.42
Sterlingspund 171.74
Kanadadalur 100.23
Dönsk króna 19.795
Norsk króna 14.6
Sænsk króna 14.629
Svissn. franki 135.27
Japanskt jen 1.1078
SDR 174.91
Evra 147.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 178.2056
Hrávöruverð
Gull 1891.95 ($/únsa)
Ál 2470.0 ($/tonn) LME
Hráolía 72.41 ($/fatið) Brent
« Fjórir stjórnendur Toshiba voru
látnir taka pokann sinn eftir neyð-
arfund hjá japanska raftækjafram-
leiðandanum á sunnudag.
Í síðustu viku kom út svört skýrsla
með niðurstöðum sjálfstæðrar rann-
sóknar sem leiddi í ljós að stjórn-
endur Toshiba hefðu átt í samráði við
japönsk stjórnvöld um að hafa hemil
á áhrifafjárfestum (e. activist in-
vestor) í hluthafahópi félagsins.
Að sögn FT má vænta frekari upp-
sagna hjá Toshiba og ekki ósennilegt
að hluthafar vilji að stjórn-
arformaður félagsins segi af sér.
ai@mbl.is
Uppstokkun hjá Toshiba
STUTT
í hvert einasta skipti sem krónan hefur orðið
mjög sterk hafi styrkingin gengið til baka
fyrr eða síðar með tilheyrandi skakkaföllum.
„Í gegnum alla hagsöguna hefur það gerst
þegar gengið yfirskýtur að það lækkar skarp-
lega nokkru seinna, með miklum látum. Það
er alls ekki gott til lengdar að krónan farí
gegnum djúpa dali og hæðir, og þegar krónan
sýnir merki þess að vera að styrkjast ættum
við að sýna smá fyrirhyggjusemi og „flagga“
því ef hætta getur skapast á ofrisi.“
Konráð rifjar upp að það olli erfiðleikum
víða í hagkerfinu síðast þegar gengi krón-
unnar var með sterkasta móti. Minnist hann
þess þegar ferðaþjónustan var í örum vexti og
fjölgun ferðamanna, samhliða einhliða vænt-
ingum á gengismarkaði, varð til þess að krón-
an styrktist jafnt og þétt frá sumrinu 2015,
þegar tilkynnt var að samningar hefðu náðst
við þrotabú föllnu bankanna, og náði hæstu
hæðum í byrjun júní 2017 þegar bandaríkja-
dalur kostaði aðeins 97 kr. (nú 121 kr.), pund-
ið 126 kr. (nú 172 kr.) og evran 110 kr. (nú 147
kr.). „Á sama tíma bárust reglulega fréttir af
því að útflutningsfyrirtæki ættu í mestu
vandræðum og að þeim gengi erfiðlega að
vera samkeppnishæf á alþjóðamarkaði,“ segir
Konráð og bætir við að sem betur fer hafi út-
flutningsgreinarnar náð að standa af sér
styrkingu krónunnar sem tók að veikjast
seinni hluta sumars 2017 og hafði gefið mikið
eftir í árslok 2018, m.a. tengt rekstrarvanda
WOW air.
Hagkerfið á svipuðum
stað og fyrir faraldur
Niðurstaða greiningar Viðskiptaráðs er
m.a. sú að undirliggjandi þættir í hagkerfinu
bendi ekki til að innistæða sé fyrir verulegri
styrkingu krónunnar umfram það sem var
fyrir faraldur. Fjölgun ferðamanna, endur-
nýjaður áhugi erlendra fjárfesta á Íslandi,
og ágætishorfur í útflutningsgreinum, s.s. í
fiskeldi, eru á meðal þeirra þátta sem gætu
haft styrkjandi áhrif á gengið. Þróun vaxt-
armunar og hreinnar erlendrar stöðu auk
batnandi framleiðni bendir líka til að geta
hagkerfisins til að standa undir sterkara
gengi hafi aukist lítillega. Hins vegar eru
viðskiptakjör lakari og raungengið nú þegar
um 7% yfir jafnvægisraungengi samkvæmt
mati Seðlabankans.
Konráð segir Viðskiptaráð ekki gera neina
tilraun til þess að giska á hvað væri „rétt“
gengi fyrir krónuna eða spá fyrir um það
hvernig gengið kemur til með að þróast.
Hann segir það ekki markmið út af fyrir sig
að krónan sé veik eða sterk og að gengið
verði einfaldlega að endurspegla styrk hag-
kerfisins í samanburði við helstu viðskipta-
lönd. Hins vegar verður, að mati Konráðs, að
reyna að lágmarka sveiflur og reyna með
einhverju móti að sporna við þeirri tilhneig-
ingu krónunnar að ýmist styrkjast eða veikj-
ast mun meira en tilefni er til.
Í greiningunni er lagt til að Seðlabankinn
og fjárfestar myndi sér skoðun á hvaða gengi
hagkerfið ráði við og sendi markaðinum
þannig skýr skilaboð sem gætu ýmist slegið
á óhóflega bjartsýni eða dempað of mikla
svartsýni. Þá geti fjársterkir aðilar eins og
lífeyrissjóðirnir leikið stærra sveiflujöfnun-
arhlutverk með því að vakta vandlega hvern-
ig krónan þróast með tilliti til undirliggjandi
þátta og aukið við gjaldeyriskaup sín þegar
gengið er hagstætt sem um leið spornar
gegn of mikilli styrkingu krónunnar.
„Annað sem gæti hjálpað til að halda öfg-
um í gengisþróun í skefjum væri að endur-
skoða þær séríslensku reglur sem gilda um
afleiðuviðskipti á gjaldeyrismarkaði,“ segir
Konráð. „Grunar mig að það væri mjög gott
að leyfa slík viðskipti upp að einhverju
marki, í takt við þær hugmyndir sem vara-
seðlabankastjóri fjármálastöðugleika viðraði
á peningamálafundi Viðskiptaráðs í nóvem-
ber á síðasta ári.“
Gæti þess að krónan ofrísi ekki
Morgunblaðið/Eggert
Innspýting Kampakátir ferðamenn á leið í hvalaskoðun. Ferðamannaiðnaðurinn
gæti verið kominn á fulla ferð síðar í sumar með tilheyrandi innstreymi gjaldeyris.
- Krónan á það til að ýmist styrkjast eða veikjast mun meira en tilefni er til - Viðskiptaráð leggur til
að leiðandi aðilar sendi markaðinum skýr skilaboð til að slá ýmist á of mikla bjartsýni eða bölsýni
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Langur kórónuveiruvetur er að baki og víða
hægt að greina batamerki í atvinnulífinu. Er
ekki síst beðið með óþreyju eftir erlendu
ferðamönnunum sem fjölgar jafnt og þétt og
margir sem spá að um mitt sumar verið
ferðamannastraumurinn hér um bil kominn í
eðlilegt horf.
Samhliða batamerkjunum hefur krónan
tekið að styrkjast og bara frá byrjun maí hef-
ur hún styrkst um 2,5 til
2,9% gagnvart evru og
bandaríkjadal. Nemur
styrkingin um 4% undan-
farna þrjá mánuði og 10%
frá því krónan var veikust í
september síðastliðnum og
er gengi krónunnar í dag á
svipðu reiki og í upphafi
heimsfaraldurs.
Gengisþróunin vekur
upp ýmsar spurningar og
fer það eftir því hvar fólk
stendur hvort það ókyrrist eða gleðst yfir
þeirri stefnu sem krónan hefur tekið: útflutn-
ingsgreinarnar myndu síður vilja að gjald-
miðillinn styrktist mikið meira á meðan neyt-
endur láta sig dreyma um lægra verð á
innfluttum varningi og ódýrari ferðalög út í
heim.
Of mikil styrking gengur
alltaf til baka með látum
Viðskiptaráð gaf fyrir skemmstu út áhuga-
verða greiningu á horfum í gengismálum þar
sem varað er við þeim hættum sem gætu
skapast ef krónan styrkist mjög mikið og eins
mælst til þess að Seðlabankinn og aðrir stórir
aðilar á gjaldeyrismarkaði myndi sér skoðun
á því hvaða gengi samræmist þeim aðstæðum
sem eru í hagkerfinu, s.s. með tilliti til fram-
leiðni, vaxtamunar og viðskiptakjara.
Konráð Guðjónsson er hagfræðingur og að-
stoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Ís-
lands og segir hann að reynslan hafi kennt að
Konráð
Guðjónsson
« Á fundi efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis á laugardag var
ákveðið að vísa nýju frumvarpi um líf-
eyrismál aftur til ríkisstjórnarinnar.
Fyrr í mánuðinum birti Morgunblaðið
viðtal við Ólaf Pál Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóra Íslenska lífeyrissjóðsins,
og kom þar fram óánægja með vöntun
á samráði við samningu frumvarpsins.
Lagði Ólafur til að fyrst yrði lokið við
grænbókarvinnu, í góðu samráði við
alla hagsmunaaðila, áður en ráðist yrði
í svo umfangsmiklar breytingar á
lagaramma lífeyrismála.
Í ákvörðun efnahags- og viðskipta-
nefndar er tekið í sama streng. Hvetur
nefndin til að frumvarpið verið rýnt
með tilliti til þeirra ábendinga sem fram
hafa komið í umsögnum, og að samráð
verði haft við hagsmunaaðila um fyr-
irhugaðar breytingar. Leggur nefndin til
að málið njóti forgangs hjá viðkomandi
ráðuneyti og að stefnt verði að því að
leggja frumvarpið fram að nýju á næsta
löggjafarþingi. ai@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Umdeilt Frumvarpið felur í sér umfangs-
miklar breytingar á lífeyrismálum.
Frumvarpi um lífeyrismál vísað til baka