Morgunblaðið - 14.06.2021, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2021
Karlmaður skaut tvö börn og einn
eldri borgara til bana í bænum Ar-
dea, sem er skammt utan Rómar, í
gær. Læsti maðurinn sig svo af í
íbúð í nokkrar klukkustundir, þar
sem lögreglan reyndi að semja við
hann um að gefa sig fram, áður en
maðurinn framdi sjálfsvíg.
Mario Savarese, bæjarstjóri Ar-
dea, sagði að árásarmaðurinn og
fórnarlömbin hefðu öll búið í sömu
húsaþyrpingu í bænum, en talið er
að maðurinn hafi átt við geðtrufl-
anir að stríða. Samkvæmt sjón-
arvottum hóf maðurinn skothríð
við nálægan lystigarð, og hæfði
drengina tvo og manninn, sem var á
hjóli þar hjá. Ríkir mikil sorg á Ítal-
íu vegna málsins.
ÍTALÍA
AFP
Morð Lögreglumenn brutu sér leið inn
til mannsins, sem var þá þegar látinn.
Eldri maður og tvö
börn skotin til bana
Keiko Fujimori,
forsetaframbjóð-
andi í Perú,
stendur við ásak-
anir sínar um
kosningasvindl á
hendur mótfram-
bjóðanda sínum,
Pedro Castillo, í
forsetakosning-
unum í Perú.
Rúm vika er
frá því kosið var en landsmenn bíða
óþreyjufullir eftir niðurstöðum.
Mjótt er á munum milli frambjóð-
enda þegar búið er að telja tæp 99%
atkvæða en Castillo leiðir með
50,14% fylgi. Munar nú 49 þúsund
atkvæðum, en Fujimori hefur farið
fram á að 200 þúsund atkvæði verði
gerð ógild. Myndi sú ákvörðun snúa
kosningunum henni í hag.
PERÚ
Sakar mótframboð
um kosningasvik
Keiko
Fujimori
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims
hétu því að þeir myndu gefa einn
milljarð skammta af bóluefnum gegn
kórónuveirunni til fátækari ríkja
heims, en leiðtogafundi þeirra, sem
haldinn var í Cornwall, lauk í gær.
Samþykktu leiðtogarnir einnig að
herða á baráttunni gegn hlýnun jarð-
ar, en þeir beindu spjótum sínum
einnig gegn Rússum og Kínverjum.
„Við munum beisla kraft lýðræðis-
ins, frelsis, jafnréttis, réttarríkisins
og virðingu fyrir mannréttindum til
þess að svara stærstu spurningunum
og mæta mestu áskorununum,“
sagði í sameiginlegri yfirlýsingu
fundarins, sem jafnframt var fyrsti
fundur Joes Bidens Bandaríkjafor-
seta með helstu bandamönnum
Bandaríkjanna.
Sagði Biden á fréttamannafundi
við lok leiðtogafundarins að hann og
kollegar hans væru sammála um að
„Bandaríkin væru aftur komin að
borðinu“, en Biden mun næst halda
til Brussel og sækja þar leiðtogafund
Atlantshafsbandalagsins. Sagði
Biden að sameiginlegar varnir
bandalagsríkjanna væru „heilög
skylda“ Bandaríkjamanna.
Á miðvikudaginn mun Biden svo
funda með Vladimír Pútín Rúss-
landsforseta í Genf, en Biden sagði
að hann leitaðist ekki eftir „ágrein-
ingi“ við Rússland eða Kína. Engu að
síður myndi hann setja fram skýr
skilyrði sem þyrfti að uppfylla áður
en samskipti stórveldanna tveggja
gætu batnað.
Boris Johnson, forsætisráðherra
Breta og gestgjafi fundarins, hrósaði
Biden í hástert og sagði að iðnríkin
sjö stæðu nú sameinuð á ný vörð um
hin „lýðræðislegu gildi“.
Gagnrýnendur sögðu hins vegar
að loforð leiðtoganna hrykkju
skammt til þess að mæta þörf fátæk-
ari ríkja á bóluefnum, en áætlað er
að 11 milljarða skammta sé þar þörf.
Heita milljarði skammta
- Leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims heita því að beisla „kraft lýðræðisins“ til að
svara áskorunum okkar tíma - Biden segir Bandaríkin komin „aftur að borðinu“
AFP
G7 Leiðtogarnir sjö ásamt fulltrú-
um Evrópusambandsins.
Joe Biden Bandaríkjaforseti og forsetafrúin Jill
Biden hittu Elísabetu 2. Englandsdrottningu í
Windsor-höllinni í gær. Biden-hjónin ferðuðust
frá Cornwall með Air Force-þotu forsetans til
London og tóku síðan þyrlu frá Heathrow-
flugvellinum til Windsor. Heimsóknin stóð yfir í
um klukkustund og greinir BBC frá því að for-
setinn hafi drukkið te með drottningunni. Heim-
sóknin var í kjölfar leiðtogafundar G7-ríkjanna.
AFP
Biden fékk sér te með Englandsdrottningu
Benjamin Netanyahu tapaði í gær
völdum í Ísrael eftir 12 ára sam-
fellda setu sem forsætisráðherra.
Þjóðernissinninn Naftali Bennett er
nýr forsætisráðherra Ísraels og leið-
ir hann nýja ríkisstjórn sem sam-
anstendur af fordæmalausu banda-
lagi þjóðernissinna og
jafnaðarmanna með meirihuta upp á
aðeins 60 sæti gegn 59.
Skömmu fyrir ósigur sinn sagði
Netanyahu að ef það væri hlutskipti
hans að vera í stjórnarandstöðu
myndi hann gera það með höfuðið
hátt, „þar til við tökum niður þessa
slæmu ríkisstjórn og snúum aftur að
því að leiða landið á okkar vegum“.
Netanyahu hefur lengi verið ráðandi
í ísraelskum stjórnmálum og dáður
af hægrimönnum sem táknmynd
þjóðaröryggis. Á sama tíma hafa
andstæðingar hans kallað hann
„glæpamálaráðherra“.
Bennet verður forsætisráðherra
fram í september 2023 en þá tekur
Yair Lapid, formaður jafn-
aðarmannaflokksins Yesh Atid, við
keflinu seinni tvö ár kjörtímabilsins.
Mikið var um fagnaðarlæti á götum
Ísraels í kjölfar tíðindanna.
AFP
Ísrael Andstæðingar Netanyahu tóku tíðindunum fagnandi.
Tólf ára valdatíð
Netanyahu lokið
- Naftali Bennett forsætisráðherra