Morgunblaðið - 14.06.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 14.06.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ THE WASHINGTON POST ROGEREBERT.COM TOTAL FILM USA TODAY THE SEATTLE TIMES THE GUARDIAN GEGGJAÐ FRAMHALD AF EINUM ÓVÆNTASTA SPENNUÞRILLER SÍÐUSTU ÁRA HROLLVEKJANDI SPENNUMYND THE WRAP FILM SÝNDMEÐ ÍSLENSKUTALI 97% SAN FRANCISCO CHRONICLE INDIE WIRE » Dans- og söngvamyndinIn The Heights í leik- stjórn Jons M. Chu var frumsýnd á Tribeca-hátíð- inni í New York í liðinni viku og sama dag tekin til sýn- ingar hér á landi. Handrit myndarinnar skrifaði Quiara Alegría Hudes og byggir á samnefndnum söngleik þeirra Lin-Manuel Miranda, sem sjálfur leikur í mynd- inni. Aðrir leikarar eru Ant- hony Ramos, Melissa Bar- rera, Leslie Grace, Corey Hawkins, Olga Merediz og Jimmy Smits auk þess sem Marc Anthony bregður fyrir. In The Heights frumsýnd á Tribeca-hátíðinni í New York AFP Gleði Dascha Polanco faðmar Jasmine Cephas Jone og Marc Anthony faðmar Anthony Ramos á rauða dreglinum. Geislandi Lin-Manuel Miranda og Leslie Grace á frumsýningunni. Bókin Tvísaga eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur vakti gríðarlega at- hygli þegar hún kom út, en í bókinni sagði Ásdís átakanlega fjöl- skyldusögu sína. Hún tók þráðinn upp í bókinni Hornauga sem kom út tveimur árum síðar og vinnur nú að þriðju bókinni um ættmenni sín eins og hún rekur í viðtali við Árna Matt- híasson í Dagmálum dagsins, sem eru aðgengileg áskrifendum Morg- unblaðsins. Hún ræðir einnig um skáldsöguna Ein sem kom út á síð- asta ári Ásdís segir að þegar hún hafi ver- ið búin að fá upplýsingar um það hver föðurætt hennar væri hafi hún farið að grafast nánar fyrir um hverra manna hún væri. Hún segir að blóðfaðir hennar hafi sagt henni sögur af alls konar fólki og svo hafi hún grúskað í Íslendingabók. Þar rakst hún ættmenni sem fór til Am- eríku og fór að velta því fyrir sér hver það hafi verið. „Ég fór að spyrjast fyrir um hann en fékk bara svör eins og „þetta er bara einhver frændi okkar“, „það var eitthvað vesen á honum“, „það var eitthvað sem gerðist“, sem mér fannst áhugavert; það sem fólk vill ekki tala um er alltaf áhugavert. Ég fór smám saman að finna ein- hverjar upplýsingar og fannst það meira og meira spennandi og svo endar það með því að ég fór í miðju Covid til Kaupmannahafnar. Ég var búin að panta fullt af gögnum á bæði Konunglega bókasafninu og á Þjóð- skjalasafninu og fór í „Svarta dem- antinn“ í Kaupmannahöfn, rosalega flottan og virðulegan lestrarsal þar sem verðir standa yfir manni meðan maður er að fletta í gegnum gömul gögn. Þar sem ég var að skoða þessi gögn fann svo ég hreinlega fjársjóð. Á svona söfnum sitja yfirleitt eldri menn sem eru hættir að vinna og hafa allan tíma í heimi til að blaða í gömlum gögnum, og mig langaði eiginlega að standa upp og kalla upp yfir mig: Vitiði hvað ég fann!? En ég gerði það ekki. Og ég ætla heldur ekki að segja þér það,“ segir Ásdís og hlær. Morgunblaðið/Hallur Már Uppruni Ásdís Halla Bragadóttir vinnur að þriðju bókinni í ættarsögu sinni. Fjársjóður í svörtum demanti - Framhald ættarsögu Ásdísar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.