Morgunblaðið - 14.06.2021, Side 18

Morgunblaðið - 14.06.2021, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2021 ✝ Guðný Egils- dóttir fæddist í Byggðarholti í Lóni, Austur-Skaftafells- sýslu, 27. desember 1936. Hún lést föstudaginn 28. maí 2021 á Hrafnistu Sléttuvegi. Foreldrar henn- ar voru Egill Bene- diktsson, f. 7.2. 1907, d. 18.11. 1986 og Guðfinna Sigurmundsdóttir, f. 25.1. 1911, d. 25.8. 1999. Systkini Guðnýjar eru Benedikt, f. 13.4. 1934, Óttar, f. 30.10. 1935, d. 16.4. 1950, Stefán, f. 19.1. 1940, d. 28.1. 1973 og Kristín, f. 13.3. 1949. Guðný giftist 30. október 1959 Sigurði Einarssyni frá Hvalnesi í Lóni, f. 23.6. 1925, d. 29.1. 2009. Foreldrar hans voru Einar Ei- ríksson, f. 10.6. 1883, d. 3.1. 1973 og Guðrún Þórðardóttir, f. 14.9. 1884, d. 9.7. 1926. Dóttir Guðnýjar var Hulda Ár- dís Guðnýjardóttir, f. 22.8. 1954, d. 9.6. 1957. Dætur Guðnýjar og Sigurðar eru: 1) Oddný Þóra, f. 20.2. 1960. Maki Hrafn S. Melsteð, f. 15.10. 1959. Synir þeirra eru: Sigurður Már, f. 11.4. 1994 og Sigursteinn Orri, f. 8.8. 1996. 2) Hildur Árdís, síðar austur á heimaslóðir til Hafnar í Hornafirði árið 1959 og bjuggu þar til ársins 1989, lengst af í húsi sínu Miðtúni 1. Guðný var að mestu heimavinnandi framan af með stórt heimili, 5 börn og aldraða föðursystur Sigurðar, Oddnýju Sigríði Eiríksdóttur, sem gengið hafði honum í móð- urstað. Auk þess bjó Stefán bróðir hennar um tíma hjá þeim. Heimili þeirra stóð ávallt opið öllum sem þangað vildu koma og var mikill gestagangur í gegnum tíðina. Guðný vann vertíðarbundið við fiskvinnslu. Lengst af vann hún ýmis verslunarstörf bæði hjá tengdaföður sínum og síðar í Kaupfélaginu. Auk þess var hún umboðsmaður Morgunblaðsins og Dagblaðsins og sá um dreifingu þeirra til margra ára. Árið 1989 fluttu Guðný og Sig- urður til Reykjavíkur og áttu heimili á Ásvallagötu 17. Voru þau þá í meiri nálægð við dætur sínar og barnabörn. Guðný hélt áfram að vinna við verslunarstörf og þá hjá Pennanum í Austur- stræti. Árið 2014 flytur Guðný í Bólstaðarhlíð 41, þá orðin ekkja og nýlega greind með parkinson. Hún flytur síðan á hjúkrunar- heimili Hrafnistu á Sléttuvegi 25 fyrir rúmu ári þar sem hún kvaddi skyndilega. Útförin fer fram frá Háteigs- kirkju í dag, 14. júní 2021, klukk- an 15. f. 27.6. 1961, d. 26.7. 2020. Barnsfaðir Brynjar Einarsson, f. 9.2. 1965. Börn þeirra eru: a) Einar, f. 2.3. 1990. Maki Al- dís Gróa Sigurð- ardóttir, f. 10.9. 1992. Börn þeirra eru: Guðný Líf, f. 14.2. 2016 og tvíbur- arnir Telma Lovísa og Sigurður Leó, f. 24.3. 2020. b) Guðný Hödd, f. 29.12. 1992, d. 31.5. 2004. 3) Eva Guðfinna, f. 8.6. 1962. 4) Erna Guðrún, f. 8.6. 1962. 5) Anna Signý, f. 13.9. 1963. Maki Kamel Benhamel, f. 18.2. 1967. Börn þeirra eru: Örn Calvin, f. 26.7 1993, Sólon, f. 24.9. 1997 og Embla Signý, f. 1.9. 2003. Guðný ólst upp í Byggðarholti og síðar í Þórisdal í Lóni. Æska Guðnýjar litaðist af erfiðum áföll- um. Hún veiktist ung af berklum og dvaldi langtímum saman á spítala vegna eftirkasta og haml- aði það frekari skólagöngu henn- ar. Guðný fluttist til Reykjavíkur upp úr tvítugu og vann á Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur og fór í Hússtjórnarskóla Reykjavíkur. Hún og Sigurður byrjuðu búskap sinn í Reykjavík 1958 og fluttu Við kvöddumst alltaf með faðm- lögum og kossaflensi en hvernig kveð ég þig nú í hinsta sinn, elsku mamma mín? Allar minningarnar í gleði og sorg sem koma fram í þúsundum myndbrota sem ná yfir allt mitt líf. Sá tími er langur þar sem ég var mjög ung þegar ég byrjaði að safna í minningabank- ann. Söknuðurinn og sorgin er mikil yfir að minningarnar verði ekki fleiri en ég veit að „þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín“. (Kahil Gibran) Ljóð Davíðs Stefánssonar, þíns uppáhaldsskálds, hljómar fyrir mér eins og það hafi verið samið við dánarbeð þinn, sem var svo fal- legt alveg eins og þú. Við sjáum, að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóst þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt og svanur á bláan voginn. Eins og sólin kemur alltaf upp aftur, þá átt þú alltaf þinn stað í hjarta mér og þín trú, von og kær- leikur. Mín hinsta kveðja er: Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ (Valdimar Briem) Þín Oddný. Elsku mamma, þá er hún kom- in, kveðjustundin okkar. Engar fleiri heimsóknir, engar skemmti- legar samræður og faðmlög. Eng- ar rúsínur eða brjóstsykur í skál, engar veitingar úr eldhúsinu, ekk- ert rölt um nágrennið né kaffi- húsaferðir, engir ísbíltúrar og nú er bara þögn. Engin símtöl, rödd- in þín horfin. Ég heyri þig segja: Ætlið þið kannski að kíkja? Að fá að sjá ykkur, fjölskylduna mína er það sem ég lifi fyrir, sagðir þú og horfðir svo fallega í augun mín. Fjölskyldan var þér allt. Allar okkar stundir saman. Elsku mamma mín, hve sárt er að kveðja svo snögglega þó svo að við vitum öll að tíminn okkar kemur alltaf að lokum, þó við vitum ekki alltaf hvenær eða hverjir það eru sem eru næstir. Það þekkjum við svo vel. Þú varst samt sannfærð um að núna værir þú alveg örugglega næst. Það var ekki auðvelt fyrir þig að kveðja þína eigin dóttur síð- astliðið sumar svo skyndilega og nú ert þú farin líka. Tvö síðustu ár voru þér ekki auðveld þó svo að þú ættir svo sannarlega þína góðu daga og gleðistundir. Að missa heilsuna, vera ófær um að búa á eigin heimili var svo sárt. Og við tók biðtími á þremur sjúkrastofn- unum áður en þú varst svo heppin að fá inni á Sléttunni og þar áttum við saman yndislegar stundir þrátt fyrir lokanir og höft. Þú svo verkjuð en alltaf svo glöð að fá að sjá fólkið þitt á þessum erfiðu tím- um hvort sem var innlit í gegnum glugga, símhringingar eða mynd- símtal og best af öllu voru auðvit- að heimsóknirnar. Og nú vorum við farin að hlakka til sumarsins. Nú ertu farin, elsku mamma mín, og eftir sit ég hér og sakna þín. Ég ætla að muna allar góðu gleði- stundirnar og sorgirnar sem við áttum saman. Þú studdir mig allt- af, allt mitt líf og það kom að þeim degi sem ég gaf þér minn stuðning eins og ég gat og í hjarta mínu veit ég að við báðar gerðum alltaf allt okkar besta fyrir hvor aðra og ég veit að þú gerðir það líka fyrir alla aðra. Elsku mamma, ég kveð í þakklæti fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig, fyrir allt sem þú ert mér og allt sem þú kenndir mér og ég veit og ég vona að í mér búi eitt- hvað frá þér. Ég hef svo oft átt þá ósk að geta málað fallegri heim fyrir þig, elsku mamma mín. Ég sé fyrir mér ótal tímaskeið og fallega andlitið þitt í gegnum breytingar lífsins. Ég sé fallega, brosandi, sterka og hjartahlýja konu sem gafst aldrei upp. Lífið gaf þér hamingju, gleði og sigra og beygði þig og sveigði og særði þig djúp- um sorgarsárum. Þú hélst alltaf áfram, elsku fallega mamma mín, alltaf, jafnt í gleði og sorg, þú gekkst leiðina þína og ég ætla að muna það fyrir mig. Þú hélst alltaf í trúna, vonina og kærleikann sama hvað gekk á. Táknmynd þess barst þú um hálsinn síðustu áratugina, þetta fallega men, svo nátengt þér og táknrænt fyrir þitt líf. Ég veit að innra með þér bjó óvenjumikill styrkur, óbilandi styrkur til að taka öllu því sem lífið gaf og halda alltaf áfram. Elsku mamma, nú ertu horfin að eilífu úr þessu lífi, inn í sumarlandið bjarta og ég ætla að geyma fallegu myndina af þér ávallt í hjarta mér. Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði og fyrirgaf þér. Hún ávallt er vörn þín, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan sem ól þig og helgar sitt líf. Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði og tár falla á fold. Þú veist hver var skjól þitt þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. En sólin hún hnígur og sólin hún rís. Og sjá þér við hlið er þín hamingjudís, Sem alltaf er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Það er íslenska konan, tákn trúar og vonar. (Ómar Ragnarsson) Takk fyrir allt og allt, elsku mamma mín. Eva. Ástkæra mamma mín hefur nú kvatt þetta jarðneska líf. Það er góð og falleg minning, síðasta samveran okkar saman, degi fyrir andlátið. Ég sitjandi á bekk við hliðina á mömmu í hjóla- stólnum þar sem við nutum þess að vera saman í ró og næði, vera í hjartanu, hlusta á kyrrðina, eins og sálir okkar töluðu saman. Rabba saman og njóta sumarkom- unnar. Finna ilminn, nýút- sprungnir fíflar. Allt var að byrja að spretta, lifna við og springa út á sama tíma og sálin þín var á förum, hefja nýtt líf, sumarið þitt var að koma, elsku hjartans mamma mín. Fuglarnir sungu fyrir okkur. Við fylgdumst með og þú með fífil í hendi. Ég barnið þitt gaf þér fífil eins og ég væri ég lítil enn á ný. Gleði þín var hrein, gleði þín varð gleði í mínu hjarta eins og svo oft. Það var alltaf svo gott að vera með þér og við leyfðum okkur að hlakka til sumarsins saman. Ég er óendanlega þakklát fyrir þessa fal- legu stund og allar stundirnar með þér, lífið okkar saman. Elsku mamma sem var svo ljúf og góð, með fallegt bros og nær- veru. Mamma mín sem hefur lifað svo margt. Svo kærleiksrík, falleg, næm og þolinmóð, svo ótrúlega þrautseig og sterk. Við höfum lifað svo ótalmargt saman. Góðar og dýrmætar gleðistundir jafnt sem stór áföll og dimmar og þungar sorgir. Lífið gefur og lífið tekur, verkefnin eru misjöfn sem við mannfólkið fáum. Hvernig þú vannst úr þínu fannst mér alltaf aðdáunarvert. Þú hélst alltaf áfram eins vel og þú gast og sagðir svo oft „annað getur maður ekki gert“. Í mínum huga gerðir þú allt á eins fallegan hátt og mögulegt var, með óbilandi styrk og mikilli reisn. Það gerðir þú líka þegar kallið þitt kom, þú fórst ein, í friði og ró. Fjölskyldan var mömmu allt og hún hélt ávallt svo fallega utan um alla. Mamma, kletturinn í lífi mínu ásamt pabba, þau voru svo sam- stiga og kærleiksrík. Í hjarta mínu og huga er djúpt þakklæti fyrir tímann og stundirn- ar okkar saman og það að hafa get- að stutt mömmu og styrkt þegar hún þurfti á að halda og fá að halda utan um hana eins og hún hefur Guðný Egilsdóttir Nú kvarnast úr röðum Ofanbyggj- ara en svo eru þeir kallaðir sem búa og bjuggu fyrir „ofan Hraun“ í Vest- mannaeyjum. Addi Óli eins og hann var alltaf kallaður var frá Suðurgarði, sonur Óla Þórðar og Svölu systur pabba míns (Súlla á Saltabergi) og við því systkina- börn. Addi Óli var glæsimenni, hraustmenni og ekki skemmdu fyrir honum persónutöfrar fullir af hlýju, glettni og gleði sem gerði samvistir við þennan mann svo einstaklega ljúfar. Addi sem var 11 árum eldri en ég sagði alltaf að ég væri uppá- haldsfrændi hans. Líklega átti hann fullt af uppáhaldsfrændum og –frænkum en hann var klár- lega uppáhaldsfrændi minn. Addi Óli helgaði sjónum ævistarf sitt. Fór hann þar fremstur meðal jafningja með ósérhlífni og dugn- aði. Til margar sögur af honum sem styðja það en þær bíða betri tíma. Síðustu ár þreytti frændi glímu við illvígan sjúkdóm sem að end- ingu lagði hann að velli. „See you later aligator“ voru alltaf kveðjuorð hans forðum daga þegar við kvöddumst og svo hló hann þessum smitandi hlátri. Við eigum vonandi eftir að hittast aft- ur, frændi, kannski ekki alveg strax en það verður örugglega gaman þá. Það er sjónarsviptir að frænda og hans er sárt saknað en Árni Óli Ólafsson ✝ Árni Óli Ólafs- son fæddist 24. mars 1945. Hann lést 29. maí 2021. Útförin fór fram 12. júní 2021. minninguna um góð- an dreng geymum við í hjarta okkar. Hönnu Birnu og krökkunum votta ég alla mína dýpstu samúð. Haraldur Geir. Addi Óli frændi okkar í Suðurgarði er einn af þessum karakterum sem aldrei gleymast. Ekki aðeins að Sigurgeir frændi okkar í Þorlaugargerði hafi ritað um hann ógleymanlegar lýsingar í nýútkominni bók hans um Vest- mannaeyjar, heldur var upplifun okkar sem vorum 10-20 árum yngri einnig efni í góðar minning- ar. Addi Óli var þannig úr garði gerður að við nutum alltaf óskiptr- ar athygli hans þegar við komum með fjölskyldunni í Suðurgarð. Oft er það svo að fullorðna fólkið hópar sig saman og börnin finna sér annan stað. En það var öðru nær þegar Addi Óli var heima. Hann hafði þetta einstaka lag á okkur krökkunum og var ávallt fyrstur til að fagna okkur þegar við stigum inn í eldhúsið í Suður- garði. Síðan var ekki óalgengt að byrjað væri á að fara í sjómann við Óla í Suðurgarði og síðan tók son- urinn Addi Óli við. Það var því ákveðin tilhlökkun að koma í Suð- urgarð á sunnudagsrúntinum með fjölskyldunni. Í „Cowboy“-leikj- unum, sem upplagt var að leika á túnum, klettum og hlöðum um- hverfis Suðurgarð, spurði Addi Óli alltaf hver væri „Lone Rang- er“, en það var hans uppáhalds- karakter í kúrekamyndum. Við vorum því öll spenntust að taka það hlutverk að okkur í leikjunum. Við vorum afar stolt af kvon- fangi Adda Óla, Hönnu Birnu, þegar við fengum að sjá hana fyrst og heyra um ráðahaginn. Okkur þótti hún hæfa þessum uppáhaldsfrænda okkar einstak- lega vel. Það var ekki verra að hún var systir Rannveigar og krumma úr þekktum sjónvarpsþáttum. Við vorum í för með fallegu og skemmtilegu fólki. Þessi mannvinur, sjómaður og stýrimaður á aflaskipum átti ekk- ert nema gott í hjarta sínu. Þegar Addi Óli og Hanna Birna fluttu á Höfðaveginn fækkaði reyndar komum okkar þangað því Suðurgarður var höfuðbólið. En til allrar hamingju tóku Addi Óli og Hanna Birna við Suðurgarði þegar Svala og Óli höfðu flutt í himingeima. Þótt heimsóknum fækkaði, þar sem við vorum flutt frá Eyjum, var þó alltaf gott að koma og finna hlýtt viðmót og gestrisni þeirra hjóna. Á bernskuárum okkar, tengd- um Suðurgarði, keppti olíuelda- vélin við þéttan sígarettureykinn í eldhúsinu þar sem mikið var hleg- ið og spjallað. Líklega hefur sú blanda ekki hjálpað til þegar tímar sóttu fram og kröfðu sinn toll af þessum vinum okkar. Addi Óli barðist við krabbamein síðustu árin þótt alltaf tækist hann á við það með æðruleysi, von og birtu. Við minnumst þessa yndislega frænda okkar með virðingu og söknuði. Við finnum að birta hans og jákvætt viðmót lifir í frændum okkar Ólafi og Jóhanni Inga og ekki síst í Önnu Svölu. Megi guð styrkja Hönnu Birnu og ykkur öll í sorginni. Árni, Margrét, Gylfi, Sif og Þór Addi Óli í Suðurgarði var æv- intýri. Við hann átti lýsing á forn- kappa forðum: Hann var hávax- inn, hnarreistur, beinnefjaður og fríður. Addi Óli var afbragðs- drengur. Við ólumst upp saman og vorum alla tíð eins og bræður. Hann var árinu yngri en ég, en við vorum systrasynir og ólumst upp fyrir ofan Hraun, í sveitinni í Vest- mannaeyjum. Það voru alltaf mikil tilþrif í Suðurgarði. Þar var gestkvæmara en almennt tíðkaðist. Gamla Sóló- eldavéin malaði í horninu á eld- húsinu við hliðina á eldhúsborð- inu. Þar liðu margar spjallstundir í flæðandi kaffi. Við vorum þrír frændur. Ofanbyggjarar, knýttir saman. Við Addi Óli og Geiri í Þor- laugargerði. Það var í mörgu að snúast. Á túninu heima byggðum við alþjóðlegan íþróttavöll. Í Vil- hjálmsvík úti í Klauf rákum við hafskipaútgerð þar sem við gerð- um út kubbaskip og sigldum til allra heimsálfa. Þannig var margt að gerast og þetta var ótrúlegt umhverfi að alast upp í. Í Suðurgarði ólumst við upp við að sinna kúnum, verka bjargfugla, stunda heyskap og ganga í þau verk sem þurfti. Addi Óli var mik- ill spjallari og hafði gaman af að skiptast á skoðunum við aðra, en hann var vel að sér í ótrúlega mörgu. Ævistarf Adda Óla var sjó- mennska. Hann var hörkusjómað- ur, duglegur og vinsæll skips- félagi. Hann gegndi skipstjórn og öðrum störfum um borð en var alltaf fyrst og fremst sjómaður. Ég hef alltaf dáð hann bróður minn því hann var alla tíð harð- duglegur en ekki framhleypinn. Hann hét fullu nafni Árni Óli Ólafsson og var sonur Ólafs Þórð- arsonar rafvirkja og Önnu Svölu Árnadóttur Johnsen húsfreyju. Hanna Birna Jóhannsdóttir og Árni Óli giftust ung að árum. Hrygginn úr búskap þeirra hafa þau búið í Suðurgarði með pomp og prakt. Þau eiga þrjú glæsileg börn, Ólaf Árna, Jóhann Inga og Önnu Svölu. Ég vil þakka honum bróður mínum samveruna. Það var gott að eiga hann að. Góður Guð verndi hann og gæti í sínum himnaranni. Halldóra og Árni Johnsen. Heimaey og Heimaklettur, þar sem ég finn svo mikinn samnefn- ara í Adda Óla. Heimahagar þar sem lífið kveikti ljós hvern einasta dag. Heimahagar þar sem brauð- strit varð að velmegun. Heima- hagar þar sem stríðin voru til að sigrast á. Heimahagar sem hann aldrei yfirgaf. Addi Óli er heima- klettur sem elskaði fátt meira en frjálsræðið, sjómennskuna, fjöl- skylduna og lífið sjálft á eyjunni þar sem hann unni sér allra best. Adda leið aldrei vel í höfuðborg- inni og það kom yfirleitt í hlut Hönnu Birnu, eiginkonu, að keyra á þessum dýrslegu umferðaræð- um, þar sem hver titturinn af fæt- ur öðrum reyndi að troða á rétti þess sem hann átti. Ég varð þeirr- ar gæfu aðnjótandi að vera sendur 14 ára til Vestmannaeyja í hreins- unarvinnu sumarið́74 eftir gos- ið́73. Það þurfti aldrei að senda mig þangað aftur, ég fór sjálfvilj- ugur næstu sumur og gat ekki beðið eftir að komast þangað. Því er ekki síst að þakka þeim Hönnu og Adda sem tóku mér sem sínu eigin og ég gat verið á mínum for- sendum og upplifað allt sem Eyjar höfðu að bjóða, án nokkurra kvaða. Ég fékk reyndar mína eig- in vekjaraklukku og var tilkynnt með viðhöfn að ég yrði ekki vak- inn til vinnu. Ég svaf aldrei yfir mig í Eyjum. Eini óskundinn sem ég man eftir að hafa gert Adda, er að hafa gengið til liðs við Tý, sem var hitt og mun óæðra fótbolta- félagið í Eyjum. Hann var Þórari og leit á þessa ákvörðun mína sem borgaralegt mótmælauppeldi sem ég kom með úr höfuðborginni. Ég jafnaði ágreininginn með mæting- um á æfingar ÍBV. Addi upplifði sjálfur og yfirsteig hindranir sem litu út eins og óbrjótandi múr fyrir litlar sálir. Hann var skjól í stormi, gustur í gleði og sögumað- ur af guðs náð. Hinar ómerkileg- ustu frásagnir af veraldlegum verkum urðu eins og brennan í Herjólfsdal á besta degi, hlaðin spennu og eldsins glóð, þar sem frásögnin, stundum stórlega ýkt, fór fram úr sjálfri sér af engri ástæðu, þetta var bara Addi Óli að segja frá. Addi sagði margar sög- ur af sjó og allar báru þær Ægi konungi vel söguna og meira að segja þegar þeir misstu Ísleif í fjöruna við Ingólfshöfða í mars 7́5, var það ekki Ægi að kenna. Um haustið 7́6 kom Addi í heimsókn til okkar í Leirubakkann og leitaði eftir leyfi til að ráða mig í pláss næsta sumar, nú væri kominn tími til að gera dreng að manni. En þann dag í dag geri ég mér enga grein fyrir því hvað hann sá í þess- um þvengmjóa borgardreng, sem verður sjóveikur af því að ganga fjöruborð í rólegheitum. Af óskyldum ástæðum varð ekkert úr sjómennsku minni. Nú er Addi farinn í síðustu ferðina, frjáls og óheftur. Stendur við stýrið, tekur stefnuna og andar að sér fersku sjávarlofti. Múkkinn gargar á hann og honum er alveg sama, það er engin fyrirstaða nokkurs stað- ar. Við minnumst klettsins sem naut sín, gaf af sér og tók þeim leiðum í lífinu sem í boði voru. Við söknum og syrgjum á sama tíma og gleðitár styrkja þá leið sem Addi Óli er kominn á, laus úr viðj- um sársauka og þróttleysis. Vertu sæll meistari. Sendi Hönnu Birnu, Óla, Jó- hanni, Önnu og fjölskyldum mína innilegustu samúðarkveðju. Jóhann Gylfi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.