Morgunblaðið - 14.06.2021, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2021
✝
Þorbjörg Sig-
urðardóttir
fæddist þann 24.
mars 1927 á Eyrar-
bakka. Hún lést á
Hjúkrunar-
heimilinu Ljós-
heimum á Selfossi
þann 5. júní 2021.
Foreldrar Þor-
bjargar voru Sig-
urður Óli Ólafsson,
fyrrv. alþingis-
maður, f. 1896, d. 1992, og Krist-
ín Guðmundsdóttir húsmóðir, f.
1904, d. 1992. Þorbjörg var elst
fjögurra systra en tvær þær
næstelstu, Ragnheiður og Sig-
ríður, létust barnungar. Yngsta
systir Þorbjargar er Sigríður
Ragna Sigurðardóttir, fyrrum
dagskrárstjórnandi hjá RÚV, f.
25.9. 1943, gift Hákoni Ólafssyni
verkfræðingi, f. 21.9. 1941. Börn
þeirra eru Kristín Martha, Sig-
urður Óli og Hrefna Þorbjörg.
Þorbjörg giftist Kolbeini Inga
Kristinssyni, fyrrv. kaupmanni,
f. 1.7. 1926, d. 30.11. 2010, þann
16.4. 1949 og átti með honum
farsælt hjónaband í 61 ár.
Einkasonur Þorbjargar og Kol-
upp. Þorbjörg gekk í Kvenna-
skólann í Reykjavík og eignaðist
þar lífstíðarvinkonur sem stofn-
uðu saumaklúbb sem starfaði í
tæplega 75 ár. Hún var einnig í
saumaklúbbi með æsku-
vinkonum frá Selfossi um
margra ára skeið. Þorbjörg og
Kolbeinn fluttu til Reykjavíkur
árið 1955 og voru búsett þar í
tæp 30 ár. Þau ráku saman
matvöruverslunina Kostakjör í
Skipholti 37 á árunum 1964-
1974 ásamt foreldrum Þor-
bjargar. Eftir að Kolbeinn tók
við starfi kaupfélagsstjóra hjá
Höfn á Selfossi árið 1975 fluttu
þau hjónin fljótlega aftur til Sel-
foss og áttu þar heimili til ævi-
loka. Þorbjörg var mikil fjöl-
skyldumanneskja og tók
jafnframt virkan þátt í félagslífi.
Hún gekk ung í skátahreyf-
inguna sem hún bar ávallt mik-
inn hlýhug til. Þá var hún félagi
í stúkunni Þóru innan Odd-
fellow-reglunnar á Íslandi og
auk þess félagi í Kvenfélagi
Ásprestakalls í Reykjavík og
Kvenfélagi Selfoss. Þá var hún
mikill golfunnandi en þau hjónin
léku golf nánast allan ársins
hring meðan líf og heilsa leyfði.
Útför Þorbjargar fer fram í
Selfosskirkju í dag, 14. júní
2021, og hefst athöfnin kl. 13.
Skv. núgildandi sóttvarna-
reglum takmarkast þátttaka í
athöfninni við 300 kirkjugesti.
beins er Sigurður
Kristinn viðskipta-
fræðingur, f. 11.2.
1960, kvæntur
Eddu D. Sigurðar-
dóttur snyrtifræð-
ingi, f. 11.12. 1958.
Foreldrar Eddu
voru Sigurður Ás-
mundsson sendi-
fulltrúi, f. 1932, d.
1999, og Karí Kar-
ólína Eiríksdóttir
sjúkraliði, f. 1935, d. 2016. Börn
Sigurðar og Eddu eru; 1) Eva
Katrín, f. 25.7. 1985, gift Krist-
jáni Þór Gunnarssyni og börn
þeirra eru Karólína Kolbrún,
Alexandra Edda og Viktoría
Hekla. 2) Andrea Þorbjörg, f.
13.9. 1990, búsett í Danmörku
og í sambúð með Mick Kjær
Christensen. Sonur Andreu er
Jakob Juul Jannicksson. 3)
Kristín Edda, f. 22.9. 1993, í
sambúð með Þorsteini Berg-
mann Þorsteinssyni. Börn
þeirra eru Alexander Ari og Ída
Miriam.
Skömmu eftir fæðingu fluttist
Þorbjörg á Selfoss með for-
eldrum sínum þar sem hún ólst
Minni kvenna
Fósturlandsins Freyja,
fagra vanadís,
móðir, kona, meyja,
meðtak lof og prís.
Blessað sé þitt blíða
bros og gullið tár.
Þú ert lands og lýða
ljós í þúsund ár.
(Matt. Joch.)
Mín kæra Obba. Ég þakka þér
fallegt ferðalag og kveð með
söknuð í hjarta.
Edda Dagmar, tengdadóttir.
Elskuleg amma mín hún Obba
er látin. Í gegnum hugann fljúga
minningar og tárin streyma nið-
ur kinnarnar. Hún var yndisleg
kona með stórt og hlýtt hjarta.
Ávallt glæsileg til fara og hárið
alltaf flott þegar Anna var búin
að greiða henni. Amma var kurt-
eis, talaði aldrei illa um aðra og
vildi öllum vel. Amma hafði alltaf
í nógu að snúast, hvort sem það
voru Oddfellow-fundir, sauma-
klúbbur, ferðalög eða golf. Henni
leiddist aldrei. Hún var elskuð,
dýrkuð og dáð og ég hef alltaf
kallað hana drottninguna.
Hafnartúnið var fyrsta húsið
sem ég lék mér mikið í sem barn.
Alltaf var amma tilbúin með,
steikt brauð, laxabrauð, flatkök-
ur, kex með osti og rifsberjasult-
una hennar góðu svo ekki sé
minnst á appelsínukökuna. Í Há-
engi sem var einn af mínum
uppáhaldsstöðum fékk ég nýupp-
teknar gulrætur, rófur og rad-
ísur sem amma og afi höfðu
ræktað. Uppáhaldssagan var
alltaf lesin fyrir mig áður en ég
fór að sofa og amma strauk mér
blítt og kyssti mig á ennið og
sagði „góða nótt elsku angasílið
mitt“. Ég dáðist að fingurbjarga-
safni ömmu og fékk alltaf leyfi til
að telja þær og velja mér eina
eða tvær til að taka með heim.
Árið 2002 flutti ég til Danmerkur
ásamt foreldrum mínum og yngri
systur. Ég saknaði afa og ömmu
þegar í stað en eftir nokkur ár
þar ákvað ég að fara til Íslands
og gekk i Húsmæðraskólann í
Reykjavík. Ömmu fannst það
mjög góð ákvörðun hjá mér enda
hafði hún sjálf verið þar í námi
mörgum áratugum áður. Það leið
ekki á löngu þar til ég hringdi til
ömmu hágrátandi og sagði að ég
kynni afskaplega lítið til verka.
Amma tók mig í kennslu og á
einni helgi lærði ég að prjóna,
sauma og strauja hjá henni. Þeg-
ar ég varð stúdent árið 2011 var
haldin mikil veisla á heimili nán-
ustu vinahjóna mömmu og
pabba, þeim Einari Þór heitnum
og Andreu Þorbjörgu Rafnar
nöfnu minni. Amma mætti glæsi-
leg að vanda og færði mér sér-
staka gjöf; „Fuglinn í búrinu“,
hálsmen sem ég hélt svo mikið
upp á. Það var besta gjöf dagsins
sem ég mun alltaf ganga með og
hugsa til ömmu. Einu ári síðar
fæddist sonur okkar Jannicks,
hann Jakob Juul sem var fyrsti
langömmustrákurinn hennar
ömmu. Hún sýndi honum mikla
umhyggju og ást við fyrstu sýn.
Jakob minn gleymir aldrei ull-
arsokkunum, vasapeningunum
og knúsunum sem amma Obba
gaf honum alltaf. Ég syrgi ekki
bara ömmu mína heldur góða og
trausta vinkonu sem hefur verið
mér stoð og stytta. Hún er fyr-
irmyndin mín sem ég mun alltaf
líta upp til og hugsa hlýtt um. Ég
kveð ömmu með miklum söknuði
og sáru hjarta. Ég trúi því að hún
sé komin á góðan stað og loks
sameinuð afa Kolla sem var
hennar heittelskaði. Ég geng
með hálsmenið, hugsa til þín og
er full þakklætis þegar ég hugsa
um allar góðu stundirnar sem við
höfum átt saman. Ég býð þér
góða nótt, elsku amma mín, og
trúi því að þú haldir verndar-
hendi yfir okkur.
Þín
Andrea Þorbjörg.
Elskuleg amma mín er fallin
frá eftir 94 ár á þessari jörð.
Minningarnar eru svo margar
og söknuðurinn mikill.
Virðing, þakklæti og traust,
kærleikur, ást og umhyggja eru
orð sem eru mér efst í huga er ég
rita þessi orð um ömmu Obbu,
konuna sem kenndi mér svo
margt um lífið og var mér svo
kær.
Hún var amma Obba mín og
systra minna. Langamma dætra
minna. Tengda-amma mannsins
míns, amma stórfjölskyldunnar.
Hún var amma Obba okkar
allra.
Falleg, klár og fín var hún.
Heilsteypt, skynsöm, kurteis og
ábyrg með mikinn húmor. Full af
visku og gæfu. Ósérhlífin og hall-
mælti aldrei neinum. Alltaf vel til
höfð með varalit og í háum hæl-
um. Sannkölluð hefðarfrú með
stóru „H“.
Myndlist var henni hugleikin
og var hún með eindæmum vand-
virk þegar hún vann að sínum
verkum. Hún naut góðrar tónlist-
ar og fannst fátt skemmtilegra
en að dansa. Skiptisporin með
afa Kolla voru aldrei langt undan
þegar rétta lagið hljómaði á fón-
inum. Ferðalög, golf og sauma-
klúbbar með góðum vinkonum
voru einnig hennar dálæti.
Hún var leiðandi í skátastarfi
og hjá Oddfellow-reglunni á Sel-
fossi. Einnig kenndi hún lengi
færni í mannlegum samskiptum,
ræðumennsku og sjálfsstyrkingu
hjá ITC-samtökunum. Hún var
vel lesin og alltaf með puttann á
púlsinum hvað varðaði fréttir og
almenn hagsmunamál.
Hún var fyrirmynd í einu og
öllu. Sannkölluð kjarnakona. Al-
gerlega á pari við Vigdísi Finn-
bogadóttur. Við fjölskyldan höf-
um alltaf sagt að amma Obba
hefði sómað sér vel sem forseti
Íslands. Hún var skilgreiningin á
sameiningartákni. Hún var sam-
einingartákn okkar fjölskyldu.
Amma Obba var amman sem
alltaf fyllti nammiskúffuna áður
en við systur komum í heimsókn
og sá til þess að við fengjum gjaf-
ir á afmælisdegi hvor annarrar
svo hvorug okkar yrði leið. Hún
eldaði besta matinn og passaði að
enginn færi svangur heim eftir
heimsókn hjá afa Kolla og ömmu
Obbu. Plokkfiskur, kjúklinga-
réttur, rækjusalat og steiktar
samlokur voru efst á óskalista
hjá mér. Ekki má gleyma hafra-
kexinu með næfurþunnu lagi af
rækjuosti. Jóla- og appelsínu-
kaka í eftirrétt voru einnig í
uppáhaldi að ógleymdum jólaísn-
um.
Hún las fyrir mig og okkur
systur ótalmargar sögur og
kenndi okkur hinar ýmsu bænir.
Uppáhaldssagan hjá okkur
systrum er enn þá: „Kerlingin og
grísinn“ sem hún las af einstakri
natni fyrir okkur.
Þvílík gæfa að hafa átt ömmu
eins og ömmu Obbu. Heimurinn
væri sannarlega betri ef allir
ættu eina ömmu Obbu sér við
hlið.
Ég er þakklát fyrir allar minn-
ingarnar og gleðst yfir öllum
dýrmætu stundunum sem við
höfum átt saman í gegnum tíð-
ina.
Ég trúi því að amma Obba sé
komin í flottustu dansskóna, búin
að punta sig og svífi nú um dans-
gólf ævintýralandsins með afa
Kolla. Hann alsæll með að fá
Obbu sína í fangið aftur.
Ég er þakklát almættinu fyrir
ömmu mína Obbu og afa Kolla,
þau voru eitt.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson)
Eva Katrín Sigurðardóttir
ömmustelpa.
Elsku Obba. Takk fyrir að
hafa kennt mér að strauja skyrt-
ur að hætti Húsmæðraskólans,
búa til kálböggla og lagköku.
Takk fyrir rækjukokteilinn,
Bessastaðakökurnar og silfur-
glösin í jólaboðunum. Máva-
stellið. Takk fyrir verslunar-
mannahelgina í Tanganum,
þegar þið mamma voruð með
okkur Sigurði Óla og þú spilaðir
á gítar og við sungum skáta-
söngva alla helgina og borðuðum
ölfusárlax með smælki, dilli,
smjöri og agúrkusalati. Elsku
Obba, takk fyrir þessa stóísku ró.
Takk fyrir Tomma og Jenna í
Hafnartúni, Lion Bar hjá Lauga
kaupmanni á Eyrarbakka og
maríustakkinn sem við klipptum
niður á haustin og þurrkuðum.
Takk fyrir að hafa kennt mér að
þeyta rjóma, sem er kúnst ef rétt
er að farið, og fyrir að hafa tekið
litlu konunni minni og Bjarna
Palla af ástúð og væntumþykju.
Allar minningar tengdar þér eru
ljúfar og fallegar. Svo auðvitað
minningin um mömmu í síman-
um að tala við þig hvert einasta
kvöld. Síminn hringir, ég svara
og æpi svo: „mamma – Obba“.
Það situr líka eftir að ég heyrði
þig segja við mömmu að ég ætti
örugglega eftir að doktorera og
ég man hvað mér fannst það frá-
leitt. Og ég man hvað mér fannst
þú flott þegar þú fórst að læra
málun að nýju eftir að Kolli dó,
hvað ég var stolt þegar þér
fannst áramótatrifflið mitt ljúf-
fengt og fékkst þér aftur og inni-
lega glöð þegar þér fannst frum-
legt hjá mér að gefa þér
UNICEF-bólusetningarpakka
handa börnum í jólagjöf. Í mín-
um minningum ertu lítillát,
virðuleg og fullkomin en líka
glettin, framsýn og glöð. Ein
sterkasta minningin um þig er þó
ekki mín, heldur ljósmynd af þér
og mömmu í mölinni á Selfossi.
Þið standið hlið við hlið. Mamma
lítil með risastóra hvíta slaufu í
ljósu hári og þú tvítug, glæsileg
með bylgjað dökkt, glansandi
hár, á háhæluðum skóm í kápu
eða dragt – og Selfoss hefur
breyst í París.
Kristín Martha
Hákonardóttir.
Elskuleg móðursystir mín hún
Obba hefur kvatt okkur.
Obba var einstök manneskja.
Það geislaði alltaf af henni hlýja
og góðmennska. Ég á mjög
margar góðar og ljúfar minning-
ar um Obbu. Öll jólaboðin í Hafn-
artúni, sumarstemning í Tangan-
um, pössun í Selvogsgrunni og
yndislega rækjusalatið sem eng-
inn gerði betur.
Í seinni tíð var hún dugleg að
halda ræður við hin ýmsu tilefni.
Ræðurnar hennar Obbu náðu
alltaf athygli allra áheyrenda
enda voru þær einlægar og fal-
legar eins og hún sjálf.
Obba var dugleg og ákveðin og
dæmi um það var þegar hún kom
í stúdentsveislu Jóns Helga fyrir
tveimur árum. Mikið var gott að
sjá hana þar.
Ég kveð Obbu með þakklæti
fyrir allar góðu stundirnar.
Sigurður Óli Hákonarson.
Eins og örþunnur silkihanski,
eins og mjúkt leður, eins og brot-
hætt postulín, eins og vel fægt
silfur, eins og stífaður blúndu-
dúkur, eins og formfögur stytta,
eins og dúnmjúk draumterta,
eins og sérsaumuð slæða, eins og
milt sherry, eins og fagurt sendi-
bréf, eins og fínleg brúða, eins og
ljúf tónlist, eins og viðkvæmur
strengur, eins og slípaður dem-
antur. Þannig minnumst við ein-
stakrar konu með hjarta úr gulli.
Hún Obba var nett og grönn,
gerði hlutina í réttri röð með var-
færnum höndum, alúð og vand-
virkni. Til hinsta dags var klæða-
burður hár og fas allt til fyrir-
myndar. Hún var „chic“ eins og
þeir segja á frönsku. Smáatriðin
skiluðu sér einstaklega vel á upp-
dekkuðu kaffiborði, frá servíettu-
broti til skínandi kristalsglasa.
Listræn og falleg hún Obba á
sinn hljóða og hógværa hátt.
Kímin og glaðlynd á góðri stundu
og gat hlegið að tvíræðu glensi
eins og drottningum einum er
lagið með hönd fyrir munni en
glettnislegum augum. Gjafmild
og góð og kunni þá list að hlusta.
Af gamla skólanum, nýtin, stál-
heiðarleg, áhugasöm og vitur
sjálfstæðiskona. Við fjölskylda
Eddu tengdadóttur hennar vor-
um afar heppin að kynnast þeim
heiðurshjónum Þorbjörgu Sig-
urðardóttur og Kolbeini Krist-
inssyni fyrir hátt í 40 árum. Við
metum mikils þann vinskap,
traust og væntumþykju sem gaf
okkur dýrmætar og sprúðlandi
stundir í þeirra nærveru. Að
skála við Obbu og Kolla var at-
höfn í sjálfu sér. Ávallt horfst í
augu áður en varir snertu veigar
og mikilvægi samverunnar inn-
siglað. Tanginn á Selfossi með
sumarkvöldin fögur og Ragga
Bjarna á fóninum. Þá brostu
blómálfar og lífið var ljúft. Nú
kveðjum við járnfrúna Obbu sem
var yndislegt eintak af mann-
eskju. Við drjúpum höfði af virð-
ingu og þakklæti fyrir allt sem
hún var okkur í þessu lífi. Elsku
Siggi, Edda og fjölskylda, mynd-
in og minningin er tær, björt og
fögur. Megi Drottinn opna sínar
fegurstu vistarverur, það á perl-
an okkar svo sannarlega skilið.
F.h. Lund-Hansen-fjölskyld-
unnar,
Birna Katrín Sigurðardóttir.
Í dag kveðjum við kveðjum
kæra Oddfellowsystur. Með
þessum fátæklegum orðum
minnumst við Þorbjargar en eig-
um minningar sem eru dýrmæt-
ari en öll orð.
Þorbjörg bar með sér hlýju og
alúð hvert sem hún kom og hvar
sem hún var. Þessi netta kona
var ætíð vel tilhöfð, fínleg og
glæsileg. Þokkinn var henni eðli-
legur og framkoma hennar þann-
ig að manni datt í hug að þar færi
sönn „hefðardama“. En fyrst og
síðast var það nærvera hennar
sem gerði þessa fíngerðu konu
stóra. Þegar Þorbjörg gekk hæg-
látlega inn í herbergið var eftir
því tekið. Þegar hún talaði lágum
rómi var eftir því hlustað. Hún
gaf frá sér hlýju og kærleika sem
samferðamenn og systur þáðu og
settu í hjarta sitt. Í nærveru
hennar urðu allir betri og vand-
aðri manneskjur. Hún hafði ekki
um það orð heldur einfaldlega
gaf af sér.
Í systrahópi Rebekku-
stúkunnar nr. 9, Þóru, var hún
fyrirmynd okkar. Hún var sann-
ur Oddfellowi enda mannrækt og
kærleikur henni eðlislægur. Um
hana lék næstum því áþreifanleg
birta. Hennar spor eru djúp og á
engan hátt í samræmi við líkam-
lega burði þessarar fínlegu konu.
Árið 2010 missti Obba eigin-
mann sinn, Kolbein Inga. Þau
voru eitt og milli þeirra var óskil-
greind fegurð. Þegar Kolbeinn
dó missti Obba mikið en af sama
æðruleysinu og rónni sem ein-
kenndi hana ætíð tókst hún á við
sorg sína.
Þorbjörg var falleg að innan
sem utan. Hún bar með sér ljós
sem við sem nú söknum og syrgj-
um geymum í hjarta okkar.
Þannig mun hennar kærleiksljós
aldrei slokkna.
Um leið og við kveðjum Þor-
björgu sendum við fjölskyldu,
syni, tengdadóttur og barna-
börnum hugheilar samúðar-
kveðjur.
Guð er heppinn að hafa fengið
Þorbjörgu til sín.
Þar til við hittumst að nýju, í
vináttu, kærleika og sannleika.
F.h. Þórusystra,
Elsa Ingjaldsdóttir.
Þorbjörg
Sigurðardóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
REGÍNA HANNA GÍSLADÓTTIR,
Sléttuvegi 27, Reykjavík,
lést sunnudaginn 6. júní. Útför hennar fer
fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
15. júní klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Alzheimersamtökin.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Hrafnistu við
Sléttuveg fyrir góða umönnun.
Þórður Haukur Jónsson
Jón Rafnar Þórðarson Valgerður Ásgeirsdóttir
Björgvin Þórðarson Þórhildur Garðarsdóttir
Unnur Th. Söreide Torleif Söreide
Marta Þórðardóttir Egill Þorsteins
barnabörn og barnabarnabörn
Þorbergur Kristinsson
✝
Þorbergur
fæddist 9. maí
1943. Hann lést á
27. maí 2021.
Þorbergur var
jarðsunginn 7. júní
2021.
ár … þú hváðir, og
sagðir 30 ár. Ein-
hvern veginn æxl-
uðust hlutirnir
þannig að við vorum
í litlum samskiptum
síðustu ár nema á
ættarmótum eða
stórviðburðum sem
oftast tengdust þá
Fríðu systur okkar.
Við hringdumst
ekki á, en vissum
alltaf hvor af öðrum, sem eftir á
að hyggja er sorglegt. Við vorum
í miklum samskiptum þegar ég
Elsku stóri bróð-
ir, þá er komið að
ferðalokum. Mikið
sakna ég þess að
okkar samleið varð
ekki lengri. Leiðir okkar skildi
og ég tengdist þér meir í veik-
indum þínum en undanfarin 20
var yngri og ég leit upp til þín
sem stóra bróður. Það þarf ekki
að fara mörgum orðum um hæfi-
leika þína sem flottur málari og
listamaður. Einn góður í lokin.
Þegar ég var 10 ára fórst þú með
mig í bíó, það var verið að sýna
Spartakus sem var bönnuð innan
16 ára! Þú sagðir að þú værir
pabbi minn hehe … þú varst
rúmlega tvítugur. Góða ferð
elsku bróðir í sumarlandið.
Elsku Sirra, börn og ástvinir
allir, innilegar samúðarkveðjur.
Þinn bróðir,
Jón Kristinn (Nonni).