Morgunblaðið - 14.06.2021, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2021
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur SÁÁ
Aðalfundur SÁÁ verður haldinn mánudaginn
21. júní kl. 17:15 á Hilton Reykjavik Nordica
við Suðurlandsbraut.
Vegna sóttvarna þarf að skrá sig á fundinn á
vefsíðu SÁÁ www.saa.is, skráningu lýkur á
miðnætti 20. júní.
Dagskrá fundarins er:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar samtakanna lagðir fram
3. Lagabreytingar
4. Kosning í stjórn
5. Ákvörðun félagsgjalda
6. Önnur mál
SÁÁ
Efstaleiti 7
103 Reykjavík
Sími: 530 7600
saa@saa.is
www.saa.is
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30 -Tæknilæsi kl.9:00-
12:00, Android, þarf að skrá sig - Kraftur í KR kl.10:30, síðasti tíminn
fyrir sumarfrí -Tæknilæsi kl.13:00-16:00, Apple, þarf að skrá sig -
Kundalini jóga kl.14:15, ókeypis - Kaffi kl.14:30-15:20 -
Allir velkomnir - Nánari upplýsingar í síma 411-2701 / 411-2702
Árskógar Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9 - 12.
Leikfimi / Jóga kl. 10. Félagsfundur kl. 11. Handavinna kl. 12-16.
Félagsvist kl. 12:45. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:30-
15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að
skrá sig í viðburði eða hópa: 411-2600.
FEBH Flatarhrauni Hfj Spilum félagsvist alla mánudaga kl 13.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:10-11:00.
Opin Listasmiðja kl. 9-12. Ganga kl. 10. Hádegismatur kl. 11:30-12:30.
Handavinnuhornið kl. 13-15:30. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30.
Garðabæ Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Gönguhópur fer frá
Jónshúsi kl. 10:00. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13:00. Stólajóga í
Jónshúsi kl. 11:00. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 12:40. Bridge í
Jónshúsi kl.13:00. Ganga fyrir fólk m/göngugrind fer frá Jónshúsi kl.
14.00. Smiðjan Kirkjuhvol opin kl. 13:00 – 16:00
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30.
Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Minningahópur kl. 10:30. Jóga með Ragnheið
Ýr á netinu kl. 11:15. Stólaleikfimi 13:30.
Gönguhópur – lengri ganga kl. 13:30.
Korpúlfar Útvarspleikfimi í Borgum kl. 9:45. Gönguhópar kl. 10
gengið frá Borgum og Grafarvogskirkju, þrír styrkleikahópar kaffisp-
jall á eftir. Dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 11:00 í Borgum og
verður í allt sumar, aðgangur ókeypis. Allir hjartanlega velkomnir.
Seltjarnarnes kaffi og spjall í króknum á Skólabraut frá klukkan 9:00,
Leikfimi í salnum Skólabraut kl.11:00. Skráning stendur yfir í ferðina í
Grasagarðinn og Café Flóru nk. þriðjudag. Ferðin er fólki að kost-
naðarlausu. Einnig minnum við á fyrirhugaða ferð á Langjökul
fimmtudaginn 24. júní. Dagsferð sem hentar öllum. Skráning og allar
uppl. í síma 8939800 og á fb. síðunni eldri borgarar á seltjarnarnesi.
Vantar þig
lögfræðing?
FINNA.is
Færir þér
fréttirnar
mbl.is
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
✝
Gísli Björg-
vinsson fæddist
í Reykjavík 24. júlí
1961. Hann lést á
Landspítalanum 3.
júní 2021.
Foreldrar hans
voru Sigríður Ingv-
arsdóttir hár-
greiðslumeistari, f.
22. apríl 1934, d. 16.
maí 2003 og Björg-
vin Gíslason, f. 25.
mars 1928, d. 30.
ágúst 1982. Sigríður giftist Jóni
Pétri Ragnarssyni sagnfræð-
ingi, f. 4 mars 1929, d. 6.feb.
2016, árið 1964. Jón gekk Gísla
í föðurstað frá 1962.
Systkini Gísla föðurmegin
eru: a) Unnur, f. 9. jan. 1963.
b) Kristinn, f. 16. apríl 1964. c)
Jóhann, f. 3. okt. 1965.
Gísli giftist eiginkonu sinni,
Ernu Martinsdóttur, f. 3 júlí
1963, stuðningsfulltrúa þann
27. maí 2021 en þau voru búin
að vera í sambúð í 32 ár.
Foreldrar Ernu voru: Ólöf
Ragnarsdóttir, f. 3. mars 1940,
d. 3. okt. 1992 og Martin H.
Andersen, f. 20.
feb. 1928, d. 5.
ágúst 1984.
Systkini Ernu
eru: a) Ragnar
Guðlaugsson, f. 3.
feb. 1960 og b)
Rósa Mart-
insdóttir, f. 9. des.
1964.
Börn Gísla og
Ernu eru: 1) Jón
Pétur flugvirki,
vinnur í Frank-
furt, f. 28. nóv. 1993 og 2) Ólöf
Erna iðnaðarverkfræðingur, f.
27. júlí 1997, unnusti hennar er
Sindri Sigurður Jónsson við-
skiptafræðingur, f. 28. júlí
1996.
Gísli ólst upp í Reykjavík og
var stúdent frá FB 1982. Hóf
störf í Landsbankanum að
loknu stúdentsprófi. Seinna
hóf hann störf hjá Securitas og
vann þar þangað til hann lét af
störfum vegna veikinda í októ-
ber 2020.
Útför Gísla fer fram frá
Seljakirkju í dag, 14. júní 2021,
kl. 13.
Það er ekki gefið að systkini,
sem kynnast ekki fyrr en seint á
unglingsaldri, eigi einhverja sam-
leið í lífinu. Þrátt fyrir að ég og
yngri bræður mínir höfum ekki
vitað af eldri hálfbróður fyrr en á
unglingsárunum varð Gísli fljótt
eðlilegur hluti af fjölskyldunni og
samskiptin alltaf góð. Síðustu
daga hafa margar minningar
skotið upp kollinum. Við Gísli höf-
um aldrei verið sammála í pólitík
og ekki haldið með sömu liðum í
íþróttum, en það er hollt að vera
ekki alltaf sammála. Gísli var eld-
heitur stuðningsmaður Fram í ís-
lenska boltanum og United í þeim
enska. Ein skemmtileg minning,
sem tengist íþróttunum er frá
árinu 1989 þegar Gísli hjálpaði
Fram að verða bikarmeistarar. Á
þessum árum hélt ég enn þá með
KR, af skyldurækni við rætur úr
Vesturbænum. Gísli fjárfesti í
tveimur miðum á úrslitaleikinn
milli Fram og KR og gaf mér, vit-
andi það að KR hafði aldrei unnið
leik, þegar ég var á vellinum.
Þetta gekk eftir og Fram vann
leikinn 3-1, góð fjárfesting sagði
bróðir minn!
Þegar við urðum eldri tók golf-
ið við. Það var alltaf gaman að
hitta Gísla á golfvellinum og við
áttum margar góðar stundir sam-
an í golfi síðustu árin. Gísla og
sérstöku golfsveiflunnar hans
verður sárt saknað á næstu golf-
mótum okkar systkina og maka.
Sumarið 2020 vildi það þannig
til að ég var á ferðalagi með minni
fjölskyldu og Gísli og Erna voru
fyrir tilviljun á sömu slóðum. Við
áttum mjög góðan dag saman á
slóðum forfeðranna í Breiðdaln-
um og á Breiðdalsvík og dagur-
inn var toppaður með heimsókn í
brugghúsið Beljanda. Gísli ætl-
aði sér að koma aftur á þessar
slóðir, en það verður því miður
ekki. En, við hin eigum góðar
minningar frá þessari samveru.
Síðasta samverustund mín
með Gísla var mjög ánægjuleg.
Ég varð þess heiðurs aðnjótandi
að fá að vera viðstödd brúðkaup
þeirra Gísla og Ernu þann 27.
maí síðastliðinn. Það var löngu
kominn tími á að þau innsigluðu
farsælt samband sitt og ég var
búin að benda bróður mínum
reglulega á það í mörg ár. Þetta
var hátíðleg og falleg stund hjá
sýslumanni, sólin skein og allir
voru glaðir. Eftir athöfnina átt-
um við notalega stund úti í sól-
inni, skáluðum og spjölluðum í
góða veðrinu. Þegar við kvödd-
umst grunaði ekkert okkar að
Gísli ætti bara tæpa viku eftir í
þessu lífi.
Þegar einhver á sama aldri og
maður sjálfur fellur frá vekur
það mann óneitanlega til um-
hugsunar um lífið og tilveruna og
það hvernig maður ætlar að eyða
þeim tíma sem maður á eftir á
þessari jörð. Ég ætla að reyna að
fara vel með þann tíma.
Elsku bróðir, það er komið að
kveðjustund. Þessi stund kom
allt of snemma og þótt þú hafir
verið að glíma við erfið veikindi
undanfarna mánuði grunaði eng-
an að það væri svona stutt eftir.
Elsku Erna, Jón Pétur og
Ólöf Erna, ykkar missir er mikill,
en minningar um ástkæran eig-
inmann og góðan föður lifa
áfram.
Unnur Björgvinsdóttir.
Kveðja frá saumaklúbbnum
Hún er enn hálfóraunveruleg
tilfinningin um að Gísli sé ekki
lengur með okkur. Hann sem var
alltaf hrókur alls fagnaðar, sá
sem var okkar öflugastur í rækt-
inni, golfinu og sundinu. Það
stenst engan veginn að hann sé
kallaður burt svo fljótt.
Saumaklúbburinn er ekki stór
og tengist bæði fjölskyldu- og
vinaböndum. Gísli kom í hópinn
fyrir um 30 árum þegar hann og
Erna fóru að draga sig saman.
Sumir í hópnum þekktu þó Gísla
fyrir í gegnum vinnu í Lands-
bankanum. Á þessum árum hef-
ur margt verið brallað. Í fyrstu
voru það alls kyns uppákomur
tengdar ungum börnum okkar,
en seinni árin matarboð, hótel-
gistingar, ferðir erlendis og topp-
urinn var síðan ferð til Berlínar
haustið 2019 þar sem Gísli var
sjálfskipaður fararstjóri, enda
búinn að heimsækja Þýskaland
oftar en tölu verður á komið.
Það kom sem þruma úr heið-
skíru lofti þegar Gísli greindist
með krabbamein sl. haust. Það
var því gleðilegt að fylgjast með
góðum árangri meðferðarinnar
og hitta Gísla hressan og kátan á
leið í ræktina eða á golfvöllinn nú
þegar voraði. En skjótt skipast
veður í lofti og þurfti Gísli að
leggjast inn á spítala vegna fylgi-
kvilla meðferðarinnar og átti því
miður ekki afturkvæmt þaðan.
Við munum sakna Gísla, ekki
síst glaðværðarinnar og hnytt-
inna tilsvara í bland við þrjósku
og þvermóðsku sem hann hafði
oft gaman af að sýna. Söknuður-
inn er samt mestur hjá Ernu,
Jóni Pétri, Ólöfu Ernu og Sindra
sem sjá á eftir eiginmanni, föður
og tengdaföður allt of snemma og
svo skelfilega óvænt. Hugur okk-
ar er hjá þeim og megi góður guð
styrkja þau í sorginni og leiða
þau áfram.
Helga og Júlíus.
Guðrún og Alfreð.
Sigríður og Víðir.
Traustur, sannur vinur, kátur
og hress að jafnaði, skemmtileg-
ur, sérstakur, seigur, dulur, góð-
ur í fótbolta, mikill Framari og
Júnæted-maður, einkar lunkinn í
golfi, fjölskyldumaður og stoltur
af börnunum sínum.
Gísli Björgvinsson var ekki
maður margra orða þegar talið
barst að honum sjálfum. Honum
tókst einhvern veginn alltaf að
beina umræðunni annað og oftar
en ekki að Fram eða Júnæted.
Hann verðskuldaði hins vegar
hrós og hlý orð því hann var
drengur góður.
Sumt finnst manni svo sjálf-
sagt en svo breytast hlutirnir og
ekkert verður eins og það var.
Stórt skarð er höggvið í vinahóp-
inn okkar við fráfall Gísla. Við
vorum ungir og alltaf að hittast -
á æfingum, í skólanum, í bíó, á
skemmtunum, á vellinum, í pók-
er, í sunnudagsfótboltanum –
ógleymanlegar minningar. Svo
liðu árin, tímarnir breyttust og
samverustundum fækkaði. Á ein-
um tímapunkti var ákveðið að
hittast árlega en það gekk misvel.
Gísli var ekki ánægður og gekk
harðast fram í að hvetja til mann-
fagnaða. Næsta samkoma verður
án hans en við munum heiðra
minningu Gísla með því að við-
halda og rækta vináttuna. Hon-
um gleymum við aldrei og Gísli
verður alltaf með okkur í anda og
sögum.
Innilegar samúðarkveðjur til
Ernu, Jóns Péturs, Ólafar Ernu
og Sindra Sigurðar.
Einar, Friðrik, Gunnar,
Haraldur, Kristján og Ólafur.
Við hjá Securitas kveðjum í
dag samstarfsfélaga og vin sem
fallinn er frá. Gísli hóf störf hjá
okkur sem öryggisvörður árið
2013 og voru verkefni hans af
ýmsum toga. Fljótt kom í ljós að
starfið átti einstaklega vel við
hann, sérstaklega þar sem fjöl-
breytni og samskipti voru í fyr-
irrúmi. Gísli var mikill prinsipp-
maður og ákveðinn og það eru
kostir sem við mátum mikils hjá
honum, hann var traustsins verð-
ur í starfi og leysti verkefni sín
vel og af kostgæfni. Við Gísli náð-
um vel saman og áttum oft
skemmtileg samtöl um ýmislegt
utan vinnutengdra málefna. Eitt
af því sem ég minnist hvað helst
frá okkar spjalli er hversu mikill
fjölskyldumaður Gísli var. Það
var afar ánægjulegt að fá að
fylgjast með gegnum árin og fá
fréttir hjá honum þegar tímamót
voru í fjölskyldunni, til að mynda
þegar unga fólkið hans fór í nám
og það leyndi sér ekki hversu
stoltur hann var af sínum nán-
ustu, Ernu og börnunum. Gísli
var mikill golfáhugamaður og
stundaði þá íþrótt af miklu kappi
yfir sumartímann. Hann var virk-
ur í Golfklúbbi Securitas, mætti á
nær öll golfmót sem klúbburinn
stóð fyrir og var hans sárt saknað
á fyrsta móti ársins sem haldið
var fyrir skömmu.
Það var okkur samstarfsfólki
Gísla þungbært að heyra af því
þegar hann veiktist, en hann
tókst á við veikindin af æðruleysi
og hugrekki. Við minnumst Gísla
af hlýhug og sendum fjölskyldu
og vinum innilegar samúðar-
kveðjur.
Fyrir hönd Securitas,
Ísleifur Árnason.
Gísli Björgvinsson
Það sem ég á eftir
að sakna hennar
stóru systur minnar,
en hún var af flest-
um kölluð Systa. Við ólumst upp
við leik og störf í sveitinni, hún fór
ung að vinna í Kaupfélagi Súgfirð-
inga og þegar ég fór að vinna á
sama stað, var hún búin að stofna
heimili og fjölskyldu og fékk ég
fæði hjá þeim Hadda og aðgang að
saumavél. Svo flutti ég til Reykja-
víkur, en oft var gist í fríum hjá
þeim á Suðureyri. Systa var mjög
greiðvikin, félagslynd og glaðvær.
Kristjana
Friðbertsdóttir
✝
Kristjana Frið-
bertsdóttir
(Systa) fæddist 22.
september 1939.
Hún lést 24. maí
2021.
Útförin fór fram
12. júní 2021.
Það kom oft í hennar
hlut að hugsa um
börn og bú þar sem
Haddi var oft í burtu
vegna starfa sinna
sem sjómaður. Við
fjölskyldan komum
vestur með okkar
yngsta barn mánað-
argamalt og þá var
drifið í að láta skíra
stelpuna og sló Systa
upp skírnarveislu
eins og ekkert væri. Hún passaði
svo þetta stelpuskott, Svölu eins
árs, þegar við hjónin fórum til út-
landa í þrjár vikur.
Þegar þau fluttu í Þorlákshöfn
þá styttist á milli heimsókna og
svo heimsóttu þau okkur meðan
við vorum í Danmörku. Eftir að
við komum heim aftur fékk ég
vinnu hjá þeim í Bókabúð Breið-
holts, en þá voru þau flutt til
Reykjavíkur og jókst þá samvera
okkar. Við fylgdumst að í starfi
Kiwanis, Súgfirðingafélagsins,
frænkufundi og öðrum heimsókn-
um og svo áttum við yndislegar
stundir með þeim í sumarbú-
staðnum í Borgarfirði, þeirra
Paradís.
Þau voru dugleg að ferðast og
góðir ferðafélagar og eru eftir-
minnilegar margar ferðirnar, Taí-
land, Ríó, Egyptaland, siglingar í
Miðjarðarhafi og Karabíska. Þá
kynntu þau okkur fyrir Kanar-
íeyjum og góðar voru ferðirnar
þangað. Síðasta ferðin með þeim
var til Benidorm þar sem þau ætl-
uðu að stinga af í tilefni 80 ára af-
mælis þeirra 2019. Þegar við
fengum að vita það pöntuðum við
Baldur líka í sömu ferð og sama
gerðu Ásta og Kjartan. Þau fengu
ekki að vita um það fyrr en
skömmu fyrir brottför. Þarna
fengum við yndislegan tíma sam-
an í systraferð. Svo kom Covid og
setti stopp á allar utanlandsferðir.
Nokkrar systraferðir voru líka
farnar innanlands og voru góðar
útilegur. Við Systa fórum stund-
um í bæjarferðir, svona til að
„toga í tuskur“, fá okkur svo kaffi
og tertu og ræða málin.
Eftir að hún flutti nær mér dró
ég hana með mér í línudans og
prjónakaffi í Gerðubergi og það
síðasta fjórum dögum áður en hún
dettur og var flutt á sjúkrahús þar
sem æxlið fannst sem dró hana að
lokum til dauða, tók aðeins tvo
mánuði. Svo erfitt sem það var tók
hún því af æðruleysi eins og henn-
ar var von og vísa, hafði meiri
áhyggjur af fjölskyldu sinni sem
eftir yrði og sumir langt í burtu.
Hún gat búið heima í einn mánuð
þar sem allir reyndu að hlúa að
henni sem best og Haddi snerist í
kringum hana allan sólarhringinn,
en eftir að hún dettur aftur, þá
lömuð á vinstri hlið, beið aðeins
sjúkrahúsvist, síðast á líknardeild-
inni þar sem hún lést 24. maí. Það
verður erfitt að sætta sig við að
hittast ekki óvænt eða í boði hjá
okkur eða þeim.
Elsku Haddi og fjölskylda öll,
hugur okkar fjölskyldu er hjá ykk-
ur. Við þökkum yndislega sam-
fylgd og geymum ljúfar minning-
ar um hana Systu okkar.
Kristín.