Morgunblaðið - 14.06.2021, Side 28

Morgunblaðið - 14.06.2021, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2021 Hvernig talar maður um kynferðis- ofbeldi? Þetta haust rifja ég upp all- ar sögurnar sem ég hef heyrt um karlmenn sem hafa verið beittir ofbeldi. Slagsmál á skólalóðinni, löðrungur frá drukknum manni í biðröðinni á McDonalds. Nú eða hnífur sem skyndilega glampar á í myrkrinu og veldur svo mikl- um ótta að fórn- arlambið pissar í buxurnar. Karl- menn geta leyft sér að segja frá reynslu sinni, allt frá skemmtileg- um sögum að einhverju sem þeir hafa burðast með alla ævi. Þeir geta sagt frá þessu í einrúmi eða í fjölmennum veislum. Þetta er þekkt í sögunni. Í leikritum úr fornöld og í Gamla testamentinu eru lýsingar á vígvöllum karlmanna og nákvæmar lýsingar á styrjöldum og átökum. Öðru máli gegnir um kynferðisof- beldi. Það skín einungis í gegn á milli lína og í yfirborðsmenningu okkar tíma er alltaf gefið í skyn að hið allra versta hafi gerst. Líf kon- unnar er í rúst, kjóllinn rifinn og hún verður aldrei aftur söm og jöfn. Í bókinni Våldtäkt (2018) segir þýski menningarsögufræðingurinn Mithu M. Sanyal að mynd okkar af fórnarlambinu byggist á gömlum hugmyndum um að heiður og per- sónuleg virðing konu tengist líkama hennar og kynferðislegum hrein- leika. Þær hugmyndir breyti nauðg- un í árás á sjálfsvitund konunnar. Ofbeldið óhreinki dýpstu tilfinning- ar hennar og á eftir sé skömmin allsráðandi. Í skáldsögum leggur fórnarlambið oft á ráðin um blóð- uga hefnd en oftast standi það í sturtunni og reyni árangurslaust að þvo af sér skömmina. Hvernig getur það verið að svo mikil og algeng reynsla komist eiginlega fyrir í einni frásögn? Ættu ekki viðbrögðin við ofbeldi að geta birst í jafn mörgum myndum og fórnarlömbin eru? Ég upplifi að þessar takmörkuðu myndir setja svip sinn á möguleik- ann til að tala um nánast allt sem rúmast í víðu samhengi þess sem kallast „kynferðisleg áreitni og of- beldi“. Að þær hafa átt þátt í því að konur hafa þagað um það sem ekki hefur hvílt þungt á þeim. Atburði sem hafa öllu heldur verið þeim grátbrosleg smáatriði eða minni- háttar truflun. Eitthvað sem hefði eiginlega getað orðið skemmtilegar sögur. Eitthvað sem varð til þess að þær komust að einhverju nýju um sjálfar sig og varð til þess að þær breyttu um stefnu. Umfram allt hafa svona atburðir haft áhrif á tengsl okkar við erfiða reynslu – og tregðuna til að segja orðið nauðgun. Það finn ég hjá mörgum kvennanna sem ég hef talað við. Þeim finnst að hugtakið verði persónueinkenni og það vilja þær ekki. – Ég er ánægð yfir því að mér tókst að gera atburðinn eðlilegan – með því að hugsa með mér að ég hefði átt upptökin. Það gerði mig að þátttakanda og meðseka. Ég varð- veitti frelsi mitt, segir ein kona sem seinna afréð að vera ekki með í greininni. Konurnar eru mjög nákvæmar hvað varðar einstök atriði þegar ég reyni að kortleggja Arnault. Þær senda mér myndir af dagbókar- færslum eða spjallsamræðum og nánast allar móta mikilvægustu spurningarnar sjálfar: – Hvernig gat ég fengið mig til að hitta hann aftur? – Hvernig gat ég farið heim með honum eftir allt sem ég hafði heyrt? – Hvernig gat ég haldið áfram að fara í Forum? Vitnisburðirnir eru flóknir og konurnar sem hafa ákveðið að vera með vilja að það endurspeglist í textanum. Lydia segist alls ekki hafa þekkt sig sem saklausa fórnar- lambið. – Ég vildi sjálf hafa kynmök. Ég er enginn púrítani. Það eru liðin mörg ár en ég hef ekki kært þótt ég viti hvað Jean-Claude Arnault get- ur gert. Ég hef sjálf tekið þátt í þögguninni en maður verður að geta sagt frá ofbeldi sem á sér stað þegar ástandið er ekki svart-hvítt. Sannleikurinn er ekki alltaf skiljan- legur fólki sem skoðar atburðinn utan frá. Seinna sagði Lydia að vitnis- burður sem eitthvað væri að marka fæli í sér áhættu. Hlyti að gera það. – Þegar ég afréð að vera með fannst mér ég tefla gjörvallri til- veru minni í tvísýnu. Þegar ég kærði nauðganirnar smám saman virtust margir vilja trúa því að ég reyndi að dylja hið „órökrétta“ í framgöngu minni. Að ég hefði orðið að horfast í augu við það. En það var þvert á móti. Ég dró þetta sjálf fram þegar ég talaði við þig og seinna við lögregluna. Hvernig á fórnarlamb að bera sig að svo því verði trúað? Hvaða við- bragða væntum við? Mithu M. San- yal segir að svörin við þeim spurn- ingum byggist líka á hugmyndinni um kynferðislegan hreinleika. Hug- myndum sem í upphaflegri mynd segja að þeim konum verði einum nauðgað sem hafi heiður til að glata. Af þeim sökum hafi þess verið vænst af konum sem hefur verið nauðgað að þær sannfærðu réttvís- ina um að þær væru skírlífar. Það hafi þær að nokkru leyti gert með því að reyna að sýna fram á að þær hefðu barist harkalega á móti og að nokkru leyti með því að sýna hina miklu þjáningu sem ofbeldið hefði valdið þeim. Hafi þær á einhverju augnabliki verið aðgerðalausar hafi það bent til þess að þær hafi látið „draga sig á tálar“. Hafi þær eftir meinta nauðgun virst hafa það gott eða haldið áfram að lifa lífinu hafi þær augljóslega ekki haft neinni sæmd að glata. Áratugum saman hefur verið barist fyrir viðurkenningu á því að rétturinn til yfirráða yfir eigin lík- ama sé skilyrðislaus. Árið 1965 var kynferðislegt ofbeldi í hjónabandi gert saknæmt í Svíþjóð. Árið 2013 var nauðgunarhugtakið útvíkkað þannig að það nær einnig yfir fólk í „mjög viðsjárverðri stöðu“, ef það er til dæmis sofandi eða alvarlega veikt, eða bregst við með aðgerða- leysi vegna „mikils ótta“. Nú á dögum er það brot að hafa kynmök við einhvern án samþykkis hans og gildir þá einu þótt hinn brotlegi sé maki fórnarlambsins. Sama gildir þótt fólk hafi drukkið frá sér ráð og rænu, hafi lengi látið sig dreyma um kynmök við viðkom- andi, eða farið heim með ókunnug- um og sést skemmta sér með hon- um. En gamlar hugmyndir lifa áfram. Á fyrsta áratug tuttugustu og fyrstu aldar hafa réttarhöld í sænskum nauðgunarmálum einkum beinst að klæðnaði og kynferðis- legri sögu málsaðila. Haustið 2018 var opinberlega rætt um ákærur Lydiu á hendur Jean-Claude Arnault. Þá skrifaði rithöfundurinn og pistlahöfundurinn Lena Anders- son í Dagens Nyheter og sagði að réttarkerfið gæti ekki rannsakað meintar nauðganir sem einstaka atburði. Þess í stað yrði að skoða „heildarmyndina“ og þar telur hún það skipta miklu máli að kynmökin hafi í upphafi átt sér stað með vilja beggja. Hún segir líka að líta verði á fólk sem „skynsemisverur“ og það að fórnarlamb fallist á að hitta ofbeld- ismanninn aftur telur hún merki þess að það ætli að „gera kynnin nánari“. Í Aftonbladet leggur þá- verandi menningarritstjóri, Åsa Linderborg, áherslu á hið sama og tekur sem dæmi að margar konur „sem vissu hvað þær voru að gera“ hafi leitað til listræns stjórnanda Forums vegna þess að þær hugðust „hagnast á kynmökum“. Þær eru báðar þeirrar skoðunar að mann- eskja sem haldi áfram að hitta of- beldismanninn geti ekki hafa upp- lifað atburðinn sem sérlega alvarlegan. Linderborg telur þessa röksemd afsökun fyrir óaðgæslu Arnault. Hegðun kvennanna hafi valdið því að hann hafi átt erfitt með að skilja að þær hafi ekki viljað hafa kynmök við hann, segir hún. Þessar fullyrðingar leiða huga minn að vitnisburðunum í farsíma mínum. Haustið 2018 hefur upp- tökuappið að geyma yfir þrjátíu ásakanir um áreitni og rannsókn mín er orðin að efni í bók. Níu kvennanna sem hafa kosið að láta rannsaka frásagnir sínar telja sig hafa orðið að þola alvarlegt ofbeldi og allar frásagnirnar hafa að geyma sögur um einhvers konar and- spyrnu. Endurtekin „nei“ og tár, grátbænir og táraflóð á eftir. Á sama tíma sýnir tölfræðin að sjö af hverjum tíu fórnarlömbum nauðgana bregðast við með því að nánast lamast meðan á ofbeldinu stendur og að mörg telja sig ófær um að flýja úr hinni ógnandi aðstöðu sem þau eru í áður en ofbeldið hefst. Haustið 2017 stend ég sjálfa mig að því að reyna að „hreinsa“ frá- sagnir kvennanna. Ég á líka erfitt með að skilja hvers vegna þær fóru ekki bara úr íbúðinni fyrir eða eftir ofbeldið. Að þær skuli ekki hafa beðið leigubílstjórann sem ók þeim í Stokkhólmi að nema staðar og hleypa þeim út. Að þær hafi lamast í stað þess að veita mótspyrnu. Ég óttast að þeim verði ekki trúað, að vitnisburðinum verði snúið gegn þeim. Mig langar til að gera þær að greinilegri fórnarlömbum og á næt- urnar velti ég því fyrir mér hvort ég eigi kannski að fella niður loka- hlutann í frásögnum kvennanna. Lokin sem hafa nánast alltaf að geyma frásögn af því að þær hafi hitt nauðgarann aftur. Eins og margar gera eftir nauðgun. Kannski hefði ég líka getað bætt vitnisburði þeirra ef þær hefðu fall- ist á það en ekki reynt að gera frá- sögnina flóknari. Þær segja oft frá því sama, hvað eftir annað, eins og þær séu að leita að sönnustu orð- unum. Samtölin minna á skriftir – og í öllum tilraunum til þess að koma heiðarlega fram er hluti raun- veruleikans og sjálfi sem aldrei verður útskýrt fyllilega: – Ég get ekki svarað því hvers vegna þetta gerðist. Var það ef til vill vegna þess að Jean-Claude var viljasterkari en ég á þessu augna- bliki? – Ég hef alltaf búið yfir dálítilli sjálfseyðingarhvöt. Ég veit ekki hvers vegna og get ekki sagt til um hvaðan hún kemur. Endurtekin „nei“ og tár, grátbænir og táraflóð Bókarkafli |Árið 2017 birtist forsíðufrétt í sænska dagblaðinu Dagens Nyheter þar sem átján konur báru áhrifamann í sænsku menningarlífi þungum sökum. Í bókinni Klúbburinn fjallar blaðakonan Matilda Voss Gustavsson, höfundur fréttarinnar, um þær afleiðingar sem fréttaflutningurinn hafði og lýsir þeim hörðu átökum sem urðu innan sænsku akademíunnar. Ljósmynd/ Thron Ullberg Afhjúpun Blaðamaðurinn Matilda Voss Gustavsson fletti ofan af áratuga misferli tengdu Sænsku akademíunni. Nauðgari Jean-Claude Arnault í réttarsal í Stokkhólmi haustið 2018. Hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi í undirrétti fyrir nauðgun. Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.