Morgunblaðið - 15.06.2021, Side 1

Morgunblaðið - 15.06.2021, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 5. J Ú N Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 138. tölublað . 109. árgangur . STÓRAFMÆLI REYKJAVÍKUR- FLUGVALLAR ALLIR AÐ GERA EITTHVAÐ MAGNAÐ GLÆSIKERRUR OG UMHVERFIS- VÆNIR JEPPAR IÐAVÖLLUR Í HAFNARHÚSI 28 BÍLABLAÐIÐ 16 SÍÐURSÉRBLAÐ 8 SÍÐUR Lappað var upp á andlit styttunnar af Kristjáni níunda Danakonungi, sem stendur við Stjórn- arráðið, í gær. Viðgerðir standa nú yfir á þeirri styttu sem og styttunni af Hannesi Hafstein, ráð- herra og skáldi, sem einnig stendur við Stjórn- arráðið. Þá eru viðgerðir á styttu af Jóni Sig- urðssyni, helsta leiðtoga Íslendinga í sjálfstæðisbaráttunni á nítjándu öld, einnig á áætlun en sú stytta stendur á Austurvelli. Lappað upp á Kristján níunda Morgunblaðið/Eggert Gert við frægar styttur í miðborg Reykjavíkur _ „Auðvitað er þetta heilmikil upphæð en á móti kom að um- svif félagsins voru minni,“ seg- ir Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður Afls starfsgreina- félags á Austur- landi. Á aðal- fundi félagsins í síðustu viku kom fram að tekjutap þess á síðasta ári er metið á 70-100 milljónir króna. Tapið er rakið til samdráttar á fé- lagssvæðinu vegna áhrifa kórónu- veirunnar. »10 Tekjutapið allt að 100 milljónir króna Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við erum staðráðin í að vísa áfram leiðina á sviði endurnýjanlegra orku- gjafa. Það er leiðin til betri framtíðar fyrir okkur öll. Við hlökkum til að finna bestu leiðina til þess að koma okkar hreinu orku á erlenda mark- aði,“ segir Hörður Arnarson, for- stjóri Landsvirkjunar. Landsvirkjun og hafnaryfirvöld í Rotterdam hafa lokið við forskoðun varðandi möguleika á að flytja grænt vetni frá Íslandi til Rotterdam. Sam- kvæmt upplýsingum frá Landsvirkj- un sýna niðurstöðurnar að tæknin er fyrir hendi auk þess að verkefnið er talið fjárhagslega ábatasamt. Eins telur Landsvirkjum að verkefnið yrði mikilvægt framlag í baráttunni gegn loftslagshlýnun, þegar hag- kerfi heimsins skipta út jarðefna- eldsneyti fyrir endurnýjanlega orku á komandi áratugum. Stefnt er að því að á seinni hluta næsta árs liggi fyrir útlistun á ætl- unum Landsvirkjunar og hafnar- yfirvalda í Rotterdam en þau telja raunhæft að grænt vetni verði sent héðan til Rotterdam fyrir 2030. Síðustu mánuði hafa fyrirtækin unnið saman að því að tilgreina helstu þætti virðiskeðjunnar, frá framleiðslu á endurnýjanlegri orku og vetnisframleiðslu á Íslandi til flutninga til Rotterdamhafnar. Sam- kvæmt upplýsingum frá Landsvirkj- un sýnir forskoðunin að verkefnið getur hafist á síðari hluta þessa ára- tugar og yrði af stærðargráðunni 2 til 4 TWh (eða 200 til 500 MW). Telur fyrirtækið að þessi fyrstu skref geti dregið úr kolefnislosun sem nemur einni milljón tonna á ári, en síðar sé möguleiki á að minnkunin geti hlaupið á milljónum tonna. Orkan sem notuð væri gæti verið blanda af endurnýjanlegri orku; vatnsorku, jarðhita og vindorku. Útflutningur hefjist fyrir 2030 - Landsvirkjun og hafnaryfirvöld í Rotterdam áforma útflutning á grænu vetni MGrænt ljós á útflutning »4 Mikill snjór er enn á sunnanverðu há- lendinu, svo sem í Hrafntinnuskeri, sem er við Laugaveginn svonefnda. Fannir vetrarins ná upp á miðja veggi skálans og bætt hefur á þær með snjó- komu síðustu daga. Aðstæður sem þessar eru ekki einsdæmi, hvort held- ur litið er til staðar eða stundar nú um miðjan júní, að sögn Páls Guðmunds- sonar framkvæmdastjóra Ferðafélags Íslands. Í Hrafntinnuskeri er Höskuldar- skáli, eitt fjögurra sæluhúsa FÍ á Laugaveginum. Þangað og í skálana í Landmannalaugum og Þórsmörk eru skálaverðir nú að mæta til sumar- starfa, en áður er búið að gera húsin klár í sumarnot. „Göngufólk lætur ekki snjóinn stoppa sig og þau fyrstu leggja á Laugaveginn 16. júní,“ segir Páll. Víða á Norður- og Austurlandi er nú snjór í fjöllum, þótt hvergi hafi hlotist búsifjar af. Bændur telja þetta þó allt meinlaust, þótt eitthvað kunni að hægja á sprettu. Þetta skaði ekki held- ur búpening, svo sem sauðfé, sem sé nánast allt enn á gjöf þótt sett hafi ver- ið út í girðingarhólf. Sumarsnjó muni fljótt taka upp, rétt eins og á Jökuldal í gær. »6 Hrafntinnusker Snjór er upp á miðja veggi á skálanum í Hrafntinnuskeri, sem nú er verið að opna aftur eftir veturinn. Kuldakastið nú er óvænt. Sumarsnjór og sæluhúsið enn í fönn - Göngufólk af stað á Laugavegi - Hægt gæti á sprettu á kuldasvæðum nyrðra Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hannes Hilmarsson fjárfestir hefur keypt þakíbúð í Skuggahverfinu á 365 milljónir króna. Íbúðin er á tveimur hæðum og með henni fylgja rúmgóðar svalir og þakgarður. Seljandi íbúðarinnar er félagið Skuggi 4 ehf., sem er í eigu þriggja félaga í eigu jafn margra fjárfesta. Íbúðin var áður í eigu Róberts Wessman, forstjóra Alvogen, sem seldi hana við kaup á íbúðum á RÚV-reitnum. Þar áður var íbúðin í eigu Guðmundar Kristjánssonar, sem gjarnan er kenndur við Brim, en athygli vekur að íbúðin er enn fokheld, fimm árum eftir að íbúðat- urninn var tilbúinn. Stefnan þrýstir upp verðinu Ólafur H. Guðgeirsson, fast- eignasali hjá Eignamiðlun, hafði milligöngu um söluna á umræddri þakíbúð við Vatnsstíg. Ólafur segir takmarkað framboð af íbúðum í svo háum gæðaflokki hafa áhrif á verðið, líkt og á bestu sjávarlóðum á til dæmis Seltjarnar- nesi og Arnarnesi. „Við erum að verða það efnuð þjóð að það er markaður fyrir svona eign- ir,“ segir Ólafur og bendir á að sér- býli séu að verða takmörkuð gæði á höfuðborgarsvæðinu vegna skipu- lagsstefnu borgarinnar. »12 Seld á 365 milljónir - Metverð fyrir þakíbúð í borginni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þakíbúð Gott útsýni er úr íbúðinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.