Morgunblaðið - 15.06.2021, Síða 8

Morgunblaðið - 15.06.2021, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2021 malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í MALBIKUN Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband. Elías Elíasson verkfræðingurbenti á ýmsar áhugaverðar staðreyndir um borgarlínuna í grein hér í blaðinu í gær. Hann ræddi þá stefnu borgaryf- irvalda að breyta hverfum borg- arinnar þannig að næg þjónusta væri innan hvers hverfis til að fólk þyrfti síð- ur á bílum að halda, nokkurs kon- ar afturhvarf til fortíðar. - - - Elías benti á að til að ná þessufram þyrfti að þétta hverfin og fjölga íbúum. Svo sagði hann: „Vandinn er sá að framkvæmdir eru verulega dýrari þar sem byggð er þétt og þrengsli á byggingastað. Treg umferð hækkar kostnaðinn einnig. Sveitarfélög verða þá að takmarka framboð lóða svo fast- eignaverð hækki, ella geta fjár- festar sem taka framkvæmdirnar að sér ekki selt og þá er sjálfhætt að byggja. Þetta hefur óheppileg áhrif á húsnæðismarkað og hækk- ar fasteignagjöld.“ - - - Annað sem Elías benti á er aðgert er ráð fyrir að borg- arlínan fái sérstaka akrein „í miðju vegar þar sem hún tefur aðra um- ferð meir en á sérakreinum í út- kanti vega“. Þessar aðgerðir og aðrar til að tefja almenna umferð verði til að auka ferðatíma og kosta tugi milljarða á ári og koma niður á velferð íbúa landsins. - - - Þetta eru sláandi lýsingar eneiga því miður við rök að styðjast. Með miklum ólíkindum er að svo öfgakennd og skaðleg áform skuli hafa náð í gegn og eigi jafnvel stuðning í flestum flokkum. Ekki síst þegar haft er í huga að almenningur vill frekar láta lag- færa stofnbrautir en sóa fé með borgarlínu. Elías Elíasson Borgarlínustefnan hækkar íbúðaverð STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ „Við finnum að áhuginn á því að koma til Íslands er að aukast. Fyr- irspurnum fjölgar og bókunum sömuleiðis,“ segir Linda Gunnlaugs- dóttir, framkvæmdastjóri Smyril line á Íslandi. Júní er rólegur mánuður í saman- burði við fyrri ár að sögn Lindu. Hins vegar er útlit fyrir að staðan breytist talsvert um næstu mánaða- mót. „Já, 1. júlí eigum við von á 6-700 manns með ferjunni. Okkur sýnist að ferðatímabilið muni lengjast inn á haustið í ár. Það er bara flott, við fögnum því.“ Ef hvert einasta rúm er nýtt í Norrænu komast 1.580 manns með ferjunni. Linda segir aðspurð að fólk vilji hafa rúmt um sig og því teljist mjög góð nýting nú vera um 1.100 manns. 6-700 manns í einni ferð sýn- ir að allt mjakist nú í rétta átt að hennar mati. Linda segir að bókunarstaðan nú sé mun betri en útlit var fyrir í vor. „Þetta er allt að koma. Um 80-90% farþeganna eru bólusett núna. Fólk vill koma til Íslands því við höfum staðið okkur vel og það hefur hjálpað mikið að nú fær fólk að nota siglinga- tímann hingað sem sóttkví. Það græðir því tvo daga og þarf aðeins að vera í þrjá daga í sóttkví við komuna til landsins.“ hdm@mbl.is 80-90% farþeganna eru bólusett - Farþegum með Norrænu er að fjölga - Ferðatímabilið lengist inn í haustið Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Norræna Bókunum til landsins fjölgar nú með hverri vikunni. Þjóðhátíðardagur Íslendinga verður haldinn hátíðlegur á fimmtudaginn víðsvegar um landið. Í Reykjavík verða hátíðahöld með svipuðu sniði og á síðasta ári vegna samkomutakmarkana. Er fólk hvatt til að halda upp á daginn með vinum og fjölskyldu og skreyta heimili og garða með fánum og fánalitum. Það verður þó einhver dagskrá á Klambra- túni og í Hljómskálagarði sem og óvæntar uppákomur í miðborginni. Morgunathöfnin á Austurvelli verð- ur sýnd í beinni útsendingu á RÚV. Verður hún að öðru leyti með hefð- bundnum hætti og samanstendur af ávarpi forsætisráðherra og frumflutn- ingi fjallkonunnar á sérsömdu ljóði í tilefni dagsins. Að því loknu munu ný- stúdentar leggja blómsveig að leiði Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar í Hólavallakirkjugarði. Forseti borg- arstjórnar, Alexandra Briem, flytur ávarp og skátar munu standa heið- ursvakt. Rýmkanir á samkomutakmörk- unum tóku gildi á miðnætti í nótt svo nú mega allt að 300 manns koma sam- an og fjarlægðartakmörk eru aðeins einn metri. Ef ekki er unnt að uppfylla eins metra regluna gildir grímu- skylda. Mörg fjölmennustu bæjarfélögin hafa þurft að grípa til annarrar út- færslu á þjóðhátíðinni en þau eru vön vegna sóttvarnareglna. Í fyrra voru þó í gildi samkomutakmarkanir á þessum sama tíma svo mörg þeirra styðjast við svipað fyrirkomulag og var þá. Í Kópavogi og á Reykjanesi verða hverfishátíðir, í Hafnafirði verða fjöldatakmörk á viðburði og á Sel- tjarnarnesi eru íbúar hvattir til að halda daginn hátíðlegan með vinum og fjölskyldu. thorab@mbl.is Takmarkanir setja svip sinn á 17. júní - Ekki nægar til- slakanir fyrir hefð- bundin hátíðahöld Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 17. júní Þjóðhátíðardagurinn í Reykjavík í venjulegu árferði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.