Morgunblaðið - 15.06.2021, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2021
Tunguhálsi 10
Sími 415 4000
www.kemi.is
kemi@kemi.is
Þóra Birna Ingvarsdóttir
thorab@mbl.is
Ársfundur Háskóla Íslands var
haldinn í gær. Farið var yfir árs-
skýrslu skólans, ný stefna kynnt
sem og önnur áform.
Nemendum við háskólann fjölgaði
umtalsvert, úr 15.000 í 16.000, á
skólaárinu sem leið.
Tekjur skólans jukust milli ára en
þar vógu þyngst aukin framlög rík-
issjóðs. Í stjórnarsáttmála ríkis-
stjórnarinnar voru fyrirheit um að
ná OECD-meðaltalinu á framlögum
ríkisins á hvern nemanda. Því marki
var náð í ár. Næsta markmið er að
fjármögnun skólans verði sambæri-
leg öðrum Norðurlandaþjóðum fyrir
lok árs 2025.
Ný lög um skattaafslátt vegna
góðgerðarfélaga munu hafa töluverð
áhrif á rekstur háskólans. Fjár-
magnstekjuskattur af styrktar-
sjóðum verður felldur niður auk
þess að gjafir til skólans verða skatt-
frjálsar.
Unnið er að heildarskipulagi há-
skólasvæðisins og samræmingu við
borgarlínuna en stoppistöðvar henn-
ar verða á þremur stöðum innan há-
skólasvæðisins. Viðræður standa nú
yfir við Hótel Sögu. Jón Atli Bene-
diktsson rektor HÍ vonar að brátt
verði hægt að flytja menntavísinda-
sviðið þangað. Útlit er svo fyrir að
Hús íslenskunnar, sem rís nú við
Arngrímsgötu í Reykjavík, verði
tekið í notkun árið 2023. Lögð hafa
verið drög að sérstöku fasteigna-
félagi Háskóla Íslands sem mun
halda utan um allar fasteignir skól-
ans.
Jón Atli fór yfir áhrif kórónu-
veirufaraldursins á háskólastarfið.
Sagði hann að frammistaða háskól-
ans og fjöldi rannsóknarverkefna
innan hans sýndu mikilvægi þess að
fjárfesta í grunninnviðum á við há-
skólann. Hann sagði að þótt mikinn
lærdóm mætti draga af svona fjar-
námsvetri væri staðnám mikilvægt.
Matsmenn eru enn að fara yfir
hve umfangsmikið vatnstjónið var
þegar flæddi inn í háskólabygg-
inguna Gimli. Ekki verður hægt að
kenna í stofunum eða nota skrifstof-
urnar þar fyrr en eftir áramót og því
mun skólinn standa frammi fyrir
áskorunum þegar nemendur mæta í
haust.
Ný stefna Háskólans, HÍ26 „Betri
háskóli – betra samfélag“, var einnig
kynnt. Í henni er sjónum beint að
sjálfbærni, fjölbreytileika og ný-
sköpun í þágu samfélagsins ásamt
hvetjandi vinnuumhverfi fyrir bæði
nemendur og starfsfólk skólans.
Jarðvísindafólk HÍ hlaut ársfund-
arverðlaun háskólans fyrir frum-
kvæði og þjónustu í tengslum við
eldsumbrotin á Reykjanesskaga
undanfarna mánuði. Hópurinn hefur
skapað nýja þekkingu á gangvirki
náttúruaflanna og verið óþreytandi í
upplýsingagjöf til fjölmiðla sem og
stjórnvalda til þess að greiða fyrir
upplýstri ákvarðanatöku.
„Betri skóli – betra samfélag“
- OECD-meðaltalinu náð - Viðræður við Hótel Sögu - Ekkert starf í Gimli til áramóta - Ný
stefna kynnt - Unnið að heildarskipulagi háskólasvæðisins - Jarðvísindafólk HÍ hlaut verðlaun
Ljósmynd/ Kristinn Ingvarsson
Ungir háskólanemar. Háskóli unga fólksins er byrjaður á ný eftir hlé vegna Covid. Um 120 krakkar á aldrinum 12-14 ára sækja skólann dagana 14.-16. júní.
Ljósmynd/ Gunnar Sverrisson
Ársfundur Jarðvísindafólk hlaut verðlaun fyrir frumkvæði og þjónustu í tengslum við eldsumbrot á Reykjanesskaga.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það voru minni umsvif hjá félaginu
enda færri félagsmenn í vinnu á síð-
asta ári en árið áður. Þetta má einkum
rekja til samdráttar í ferðaþjónust-
unni,“ segir Hjördís Þóra Sigurþórs-
dóttir, formaður Afls starfsgreina-
félags á Austurlandi.
Á aðalfundi félagsins í síðustu viku
kom fram að tekjutap þess á síðasta
ári er metið á 70-100 milljónir króna.
Tapið er rakið til samdráttar á fé-
lagssvæðinu vegna áhrifa kórónu-
veirunnar.
Hjördís segir að minna hafi skilað
sér af félagsgjöldum en einnig hafi
töluvert meira verið sótt í sjúkrasjóð
en árið áður. Halli var á rekstri sjúkra-
sjóðs. Umsóknir um aðra styrki hafi
verið svipaðar og fyrri ár.
„Auðvitað er þetta heilmikil upphæð
en á móti kom að umsvif félagsins voru
minni. Það var lítið um félagsstarf
vegna samkomutakmarkana, það var
ekkert trúnaðarmannanámskeið hald-
ið og formaðurinnn var lítið á ferðinni
svo eitthvað sé nefnt,“ segir Hjördís í
samtali við Morgunblaðið.
Hún bætir við að ástandið hafi
komið misjafnlega við félagsmenn
Afls. Suðurhluti félagssvæðisins hafi
orðið verst úti sökum mikilla umsvifa
ferðaþjónustu þar.
Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir að
ólíkt sé hvernig aðildarfélög sam-
bandsins komi undan kórónuveiru-
faraldrinum. Félög þar sem almennt
verkafólk og starfsfólk í ferðaþjón-
ustu sé fjölmennt hafi komið verr út
en önnur. „Það er halli hjá flestöllum
félögum en sem betur fer hafa þau
flest borð fyrir báru. Ég hef ekki
heyrt af því að félögin þurfi að draga
úr þjónustu, það er ekki áhyggju-
efni,“ segir Drífa.
Hún segir ennfremur að félögin
verði af tekjum ef félagsmenn gæta
ekki sjálfir að greiðslum til þeirra.
„Það er allur gangur á því hvort fólk
man eftir því að greiða áfram af at-
vinnuleysisbótunum til að það haldi
réttindum sínum.“
Tekjutapið nam
tugum milljóna
- Samdráttur hjá verkalýðsfélögum
Hjördís Þóra
Sigurþórsdóttir
Drífa
Snædal