Morgunblaðið - 15.06.2021, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Upphaf Herferð til eflingar Ljósinu sem ber yfirskriftina Þinn stuðningur er okkar endurhæfing var hrundið af stað
í síðastliðinni viku. Við athöfn sem var efnt til þá var Eliza Reid forsetafrú meðal fjölmargra góðra gesta.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Um 600 manns sækja nú í mánuði
hverjum til Ljóssins, endurhæfing-
arstöðvar fyrir krabbameinsgreinda
við Langholtsveg í Reykjavík. „Fólk
sem hingað sækir hefur aldrei verið
fleira sem aftur sýnir vel þörfina á
þjónustunni sem hér býðst,“ segir
Sólveig Kolbrún Pálsdóttir, kynning-
arstjóri Ljóssins. Hrundið var af stað
í síðustu viku herferð sem miðar að
því að fjölga Ljósvinum, það er fólki
og fyrirtækjum sem leggja starfsem-
inni lið með mánaðarlegu framlagi.
Leiðin fram undan
Fólki sem greinst hefur með
krabbamein og aðstandendum stend-
ur margt til boða í Ljósinu. Þeir sem
þangað koma í fyrsta sinn fara í upp-
hafi í viðtal hjá iðjuþjálfa, félags-
ráðgjafa sem og sjúkraþjálfara. Þar
er staða viðkomandi rædd heild-
stætt, sjúkdómurinn og leiðin fram
undan. Samkvæmt því er sniðin áætl-
un að þörfum hvers og eins; félags-
legur stuðningur, iðja og líkamleg
þjálfun.
Komið hefur verið upp prýðilegri
íþróttaaðstöðu í húsakynnum Ljóss-
ins, þar sem íþróttafræðingar og
sjúkraþjálfarar eru fólki til halds og
trausts. Einnig býðst þeim sem til
Ljóssins sækja ráðgjöf sálfræðinga,
næringarráðgjafa og annara fag-
stétta. Slíkt er mikilvægt, því að
greinast með krabbamein gjör-
breytir einu og öllu í lífi þess sem
veikjast og fjölskyldu hans.
Lýsa þakklæti
Nánast öll þjónusta sem fólk nýtur
hjá Ljósinu er án endurgjalds.
Sjúkratryggingar Íslands greiða
laun starfsfólks. Frekari efling starf-
seminnar og þróun nýrra þjónustu-
þátta, sem sífellt er í gangi, greiðist
hins vegar af sjálfsafla- og styrkt-
arfé.
„Ljósvinir eru mikilvægir starf-
semi Ljóssins og þeim viljum við
fjölga,“ segir Sólveig Kolbrún. Her-
ferð sem miðar að fjölgun bakhjarla
hófst í síðustu viku með samkomu
þar sem Eliza Reid forsetafrú hratt
verkefninu úr vör. Birt eru á sam-
félagsmiðlum og víðar myndbönd
þar sem þjónustuþegar lýsa þakk-
læti sínu – og því góða sem þeir hafa
notið hjá Ljósinu. Leikstjóri
herferðarinnar er Ninna Pálmadótt-
ir, en hún nam leikstjórn í NYU
Tisch School of the Arts, og hlaut
hún Edduna fyrir myndina Paper-
boy. Yfirskrift herferðarinnar er
Þinn stuðningur er okkar endurhæf-
ing.
Sannkallað ljós
Ebenezer Bárðarson hefur nýtt
sér þjónustu Ljóssins frá því seint á
árinu 2019. Sjálfur greindist hann
með blöðuhálskrabbamein árið 2015
sem tekist hefur að halda í skefjum
með lyfjum og öðrum úrræðum.
„Þetta er einstakur staður og hér
hef ég fengið mikilvæga aðstoð.
Sjálfur er ég vel settur, á dásamlega
aðstandendur sem hafa veitt mér
mikinn styrk og stuðning. Ég er fé-
lagslega sterkur og á mörg áhuga-
mál. Að koma hingað eftir gönguferð
um Langholtshverfið og gera styrkt-
aræfingar í líkamsræktartækjum í
salnum hefur verið mér afar mikils
virði,“ segir Ebeneser og enn frem-
ur: „Hér er tekið á móti öllum með
brosi sem er smitandi. Vissulega
koma skjólstæðingarnir hingað á
erfiðum tíma í sínu lífi, en þrátt fyrir
það er brosið mikilvægt í vinnunni
við sjúkdóminn. Sannkallað ljós.“
Vilja fjölga
Ljósvinum
- Herferð af stað - Ljós við Lang-
holtsveg - Endurhæfing fyrir krabba-
meinsgreinda - Þakklæti og bros
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bros Ebenezer Bárðarson er einn fjölmargra sem nýta sér þjónustu Ljóssins og mætir þangað reglulega. Hér eru
þau Ebenezer og Sólveig Kolbrún Pálsdóttir, sem er kynningarstjóri þessarar góðu og mikilvægu starfsemi.
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2021
„Endurnýting og -vinnsla eru hvar-
vetna áherslumál,“ segir Sigurður
Halldórsson framkvæmdastjóri
Pure North Recycling. Í gær skrif-
uðu fulltrúar þess félags og Bænda-
samtaka Íslands, Skaftárhrepps og
Sorpsamlags Strandasýslu undir
samning um samstarf. Með því verð-
ur bændum, sveitarfélögunum og
fleirum gert kleift að skila rúlluplasti
í endurvinnslu.
Í vinnslustöð Pure North Recycl-
ing hefur verið tekið á móti plasti af
heyrúllum úr Skaftárhreppi og af
Ströndum, gjarnan 40-50 tonn á ári.
Sigurður Halldórsson segir sam-
komulagið sem gert var í gær í anda
hugmyndafræði hringrásarhagkerf-
isins og aukinnar sjálfbærni. Með
breyttum lögum sem samþykkt voru
á Alþingi um helgina eru mörkuð
skýrari starfsskilyrði fyrir innlenda
endurvinnslu. Sigurður segir bænd-
ur og sveitarfélög áfram um að gera
sífellt betur í úrvinnslu úrgangs.
Samningur um samstarf sem undir-
ritaður var í gær muni stuðla að vit-
undarvakningu hér á landi um mik-
ilvægi flokkunar og þau áhrif sem
betri úrgangsstjórnun hefur á land-
búnað.
Vinnsluaðferð Pure North er sögð
einstök á heimsvísu. Nýting um-
hverfisvænna orkugjafa leiðir af sér
allt að 75% minni kolefnislosun til
viðbótar við minni umhverfisáhrif
vegna flutninga á óunnu plasti frá Ís-
landi. sbs@mbl.is
Ljósmynd/Aðsend
Plast Frá vinstri: Sigurður Halldórsson og Áslaug Hulda Jónsdóttir frá
Pure North, Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri og formaður Sambands ísl.
sveitarfélaga og Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands.
Samið um plast
- Hringrásarkerfi eflt í Hveragerði
SKVÍSAÐU ÞIG UPP
FYRIR SUMARIÐ
STÆRÐIR 1428
Sundkjóll
15.990 kr
Stærðir 42-56
Bikiní haldari
8.990 kr
C-H skálar
Bikiní haldari
8.990 kr
Stærðir 42-54
Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
Þú getur skoðað úrvalið og pantað í
netverslun www.curvy.is
Opið í verslun Curvy
alla virka daga frá kl. 11-18 &
laugardaga frá kl. 11-16
ys