Morgunblaðið - 15.06.2021, Side 12

Morgunblaðið - 15.06.2021, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2021 15. júní 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 121.42 Sterlingspund 171.74 Kanadadalur 100.23 Dönsk króna 19.795 Norsk króna 14.6 Sænsk króna 14.629 Svissn. franki 135.27 Japanskt jen 1.1078 SDR 174.91 Evra 147.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 178.2056 Hrávöruverð Gull 1891.95 ($/únsa) Ál 2490.0 ($/tonn) LME Hráolía 72.41 ($/fatið) Brent « Í dag klukkan 12 lýkur hlutafjár- útboði Íslands- banka sem hófst á mánudaginn í síð- ustu viku. Í gær kom fram í tilkynningu á vef bankans að líkur væru á því að lægri tilboð en 79 krónur á hvern hlut í út- boðinu yrðu ekki samþykkt, en leiðbeinandi verð útboðs- hluta er á bilinu 71 til 79 krónur. Miðað við 79 króna söluverð er mark- aðsverðmæti Íslandsbanka að loknu út- boðinu 158 milljarðar króna. Til sölu eru að lágmarki 25% af út- gefnu og útistandandi hlutafé bankans en heimilt verður, sem hluti af útboð- inu, að stækka útboðið í allt að 35% af útgefnu útistandandi hlutafé bankans. Það myndi skila ríkinu rúmlega 55 millj- örðum króna. Að kvöldi fyrsta dags út- boðsins tilkynnti bankinn að þá þegar hefðu borist áskriftir fyrir meira en 35% hlut í bankanum. Stefnt er að því að taka hlutabréf í Ís- landsbanka til viðskipta í kauphöllinni eftir að útboðinu lýkur. Bankinn mun þá verða þriðja stærsta félagið í Kauphöll- inni á eftir Marel og Arion banka. Hlutafjárútboði Íslands- banka lýkur í dag Markaður Íslands- banki er á leið í kauphöllina. STUTT Viðskipti með hlutabréf lággjaldaflug- félagsins Play á First North-markaðn- um í Kauphöll Íslands hefjast í júlí nk. Þetta kemur fram í fjárfestakynningu félagsins sem birt var í gær. Hlutafjár- útboð félagsins mun fara fram 24. og 25. júní nk. þar sem safna á allt að 4,3 milljörðum króna. Boðnar verða til sölu tæplega 222 milljónir hluta, eða 31,7% af bréfum félagsins, bæði til al- mennings og fagfjárfesta. Leitast verður við að skerða ekki tilboð undir 500 þ.kr. Lágmarksfjárhæð sem al- menningur getur skrifað sig fyrir er 100 þ.kr. en 20 milljónir hjá fagfjár- festum. Verð á hlut til almennings er 18 krónur en 18-20 krónur til fagfjár- festa. Nú þegar hefur félagið safnað jafnvirði tæpra sex ma.kr. frá 60 fjár- festum. Í kynningunni segir að félagið hygg- ist fljúga milli Íslands og Evrópulanda, en árið 2022 bætist Bandaríkin við sem áfangastaður. Fyrsta flug 24. júní Fyrsta flug félagsins verður farið 24. júní nk. og hefur miðasala farið fram úr væntingum, samkvæmt kynn- ingunni. Flogið verður á Airbus A 321neo flugvélum sem félagið hefur leigt til næstu tíu ára á hagstæðum kjörum. Áfangastaðir eru Alicante, Barse- lóna, Berlín, Kaupmannahöfn, Lond- on, París og Tenerife. Í kynningunni segir að Play verði rekið með tapi á þessu ári en á næsta ári verði hagnaður upp á hálfan millj- arð króna. Árið 2025 stefnir félagið á 5,2 milljarða hagnað og 62 milljarða í tekjur. Árið 2024 mun Play verða með 545 manns í fullu starfi og flytja 440 þúsund farþega til Íslands. Stærsti hluthafi í dag er lífeyrissjóðurinn Birta með 12,55%, Fiskisund með 11,86% og Stoðir með 8,37%. tobj@mbl.is Flug Búningar starfsmanna Play voru kynntir á dögunum. Viðskipti með Play hefjast í júlí - Safna 4,3 millj- örðum í hlutafjár- útboði í næstu viku BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Skuggi 4. ehf., félag í eigu þriggja fjárfesta, hefur selt þakíbúð á Vatns- stíg 20-22 til félagsins Punds ehf. á 365 milljónir. Fram kemur í kaupsamningi sem var móttekinn til þinglýsingar 25. maí að eignin sé 314,4 fermetrar. Söluverðið er því um 1.160 þúsund á fermetra, sem er ekki langt frá ásettu verði í mörgum dýrari lúxusíbúðum í miðborginni undanfarið. Með íbúðinni fylgja fjögur stæði í bíla- geymslu. Hún er á tveimur hæðum, á 16. og 17. hæð og með 11,7 fermetra svölum til suð- urs á 16. hæð og 39,6 fermetra þak- garði til suðurs á 17. hæð. Birt flat- armál íbúðar er 299,8 fermetrar og geymsla í kjallara er 14,6 fermetrar. Kaupandi eignarinnar er sem áður segir félagið Pund ehf. en samkvæmt Creditinfo er það í eigu Hannesar Hilmarssonar fjárfestis. Samkvæmt afsali frá september 2017 seldi félag- ið Fiskitangi ehf. íbúðina félaginu Hrjáf ehf. Hið fyrrnefnda í eigu Guð- mundar Kristjánssonar, sem gjarnan er tengdur við Brim, en hið síðar- nefnda í eigu Róberts Wessman fjár- festis. Hluti af fasteignaviðskiptum Fram kom í fjölmiðlum á sínum tíma að Róbert hefði látið íbúðina í skiptum fyrir íbúðir norðan við Út- varpshúsið í Efstaleiti. Virðist nú þessum kapli lokið með því að eignin er komin úr höndum Skugga 4. ehf. og til Hannesar. Ólaf- ur H. Guðgeirsson, fasteignasali hjá Eignamiðlun, hafði milligöngu um söluna á íbúðinni sem afhendist fok- held. Skv. Creditinfo er Skuggi 4 ehf. í eigu Kristjáns Gunnars Ríkharðs- sonar, Hilmars Ágústssonar og Pét- urs Stefánssonar. Fáar í þessum gæðaflokki Spurður hvort söluverðið sé ekki með fádæmum á íslenskum fast- eignamarkaði bendir Ólafur á að íbúðin sé í háum gæðaflokki. „Þetta er fágæt íbúð. Íbúðir á efstu hæðum í þessum húsum eru einstak- ar og ekki margar íbúðir á Íslandi í þessum gæðaflokki. Útsýnið úr íbúð- inni er stórkostlegt en íbúðin er hönnuð með tilliti til útsýnis. Í henni eru gólfsíðir gluggar, rúmgóðar sval- ir og þakgarður. Þá er mikil lofthæð í íbúðinni,“ segir Ólafur. Fram kom í umfjöllun um Austur- höfn í ViðskiptaMogganum 28. apríl að dýrasta íbúðin í Austurhöfn kost- aði um hálfan milljarð fokheld. Ólaf- ur segir takmarkað framboð af slík- um íbúðum, sem og af bestu sjávar- lóðum, hafa áhrif á verðið. Framboð hefur áhrif á verð „Við erum að verða það efnuð þjóð að það er markaður fyrir svona eign- ir. Það er hæpið að byggðar verði íbúðir eins og í Austurhöfn með slíku útsýni yfir höfnina. Sömuleiðis er ólíklegt að byggðar verði íbúðir með öðru eins útsýni og á Vatnsstígnum. Síðan má nefna sjávarlóðir á Sel- tjarnarnesi og á Arnarnesi en fram- boð slíkra lóða gæti aukist eftir því sem höfuðborgarsvæðið stækkar. Sjávarlóðir eru því kannski ekki jafn takmörkuð gæði og útsýnisíbúðir í miðborginni,“ segir Ólafur. Þakíbúð seld á 365 milljónir - Pund ehf., félag Hannesar Hilmarssonar, keypti fokhelda íbúð í Skuggahverfinu - Fasteignasali segir að eftir því sem þjóðin efnist verði fágætar eignir dýrari Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Við Sæbraut Umrædd þakíbúð á Vatnsstíg 20-22 er í turninum sem er lengst til vinstri á myndinni hér fyrir ofan. Gæði Íbúðin er á tveimur hæðum. Ólafur Helgi Guðgeirsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.