Morgunblaðið - 15.06.2021, Side 22

Morgunblaðið - 15.06.2021, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2021 Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Aðalfundur Loðnuvinnslunnar hf. verður haldinn í Wathneshúsinu á Fáskrúðsfirði föstudaginn 2. júlí 2021 kl. 18.30. Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf. Stjórn Loðnuvinnslunnar hf. LVF Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9-12.30 -Tæknilæsi kl.8.30-12.30, Android, þarf að skrá sig - Boccia kl.10-11. - Félagsvist kl.13-16- Tæknilæsi kl.13-16. Apple, þarf að skrá sig - Kaffi kl.14.30-15.20 - Nánari upplýsingar í síma 411-2701 / 411-2702 - Allir velkomnir Árskógar Smíðastofa með leiðb. kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12. Handavinna kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.30- 15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa: 411-2600. Garðabæ Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 13.45 -15.15. Poolhópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11.í Jónshúsi. Smiðjan Kirkjuhvol opin kl. 13– 16. Gerðuberg Opin handavinnustofa frá kl. 8.30 –16. Alltaf heitt á könnunni. Gönguhópur (leikfimi og ganga) frá kl. 10. Núvitund kl. 11 –11:30. Myndlist/listaspírur kl. 13 –16. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8.30-10.30. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Bingó kl. 13.15 - spilaðar 8 umferðir. Korpúlfar Útvarpsleikfimi kl. 9.45 í Borgum, Boccia kl. 10. í Borgum. Helgistund frá Grafarvogskirkju kl. 10.30 í Borgum. Hádegisverður 11.30 til 12.30. Spjallhópur góð og gleðileg samvera í Borgum kl. 13. í listasmiðju, allir velkomnir. Sundleikfimi með Brynjólfi í Grafarvogs- sundlaug kl. 14. Kaffihúsið opið frá 14.30 til 15.30 gaman að sjá ykkur sem flest. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10 og 18.30, kaffikrókur frá kl. 9. pútt á flötinni við Skólabraut kl. 10.30. Minnum á ferðina í Grasagarðinn/café Flóra. Breytum um umhverfi og göngum saman, skoðum og njótum. Farið frá Skólabraut kl. 13.30 frítt er í ferðina, Vantar þig fagmann? FINNA.is mbl.is alltaf - allstaðar Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi Skyrtur st. 12 -28 netverslun www.gina.is Sími 588 8050. - vertu vinur ✝ Örn Einarsson fæddist á Reyðarfirði 7. september 1932. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð 3. júní 2021. Foreldar hans voru Steinunn Sig- ríður Krist- insdóttir Beck, húsfreyja og verkakona, f. 1.1. 1899, d. 19.3. 1997, og Einar Guðmundsson timburmaður, f. 29.2. 1888, d. 24.1. 1975. Systkini hans eru: Drengur Einarsson, f. 28.4. 1922, d. 28.4. 1922, Kristinn Þór Ein- arsson, f. 22.7. 1925, Már Ein- arsson, f. 31.12. 1926, d. 26.7. 1943, og Margrét Siggerður Einarsdóttir, f. 4.5. 1929. Kreukels og Emil Thor Kreu- kels. Sambýliskona Guð- mundar er Mina Johnsen, f. 14.9. 1959. 2) Már Arnarson, f. 6.4. 1959, maki Ásta Björg Þor- björnsdóttir, f. 17.6. 1961. Börn þeirra eru Steinunn Anna Radha, f. 10.7. 1998, og Grétar, f. 14.6. 2001. 3) Anna María Arnardóttir, f. 19.3. 1961, sonur hennar og Karls Jóhanns Rafnarssonar er Örn, f. 29.9. 1983. Maki Önnu Maríu er Þorvarður Krist- ófersson, f. 28.4.1961. Börn þeirra eru Anna Birna, f. 17.4. 1989, og Kristófer Óli, f. 17.10. 1993. Sambýliskona Arnar er Sig- ríður Sigurðardóttir versl- unarkona, f. 24.9. 1933. Örn fæddist og ólst upp á Reyðarfirði með fjölskyldu sinni. Stundaði hann nám við Héraðsskólann á Laugum í Þingeyjarsýslu þar sem hann lauk undirbúningi fyrir iðnnám árið 1950. Örn fluttist eftir það til Reykjavíkur þar sem hann lagði stund á prentiðn. Þar kynntist hann eiginkonu sinni Steinunni Önnu Guðmunds- dóttur og settust þau að í Kópavogi þar sem þau ólu upp börnin sín þrjú. Örn starfaði sem prentari hjá Tímanum, Blaðaprenti og endaði starfs- feril sinn hjá Gutenberg. Sam- hliða prentstarfi keyrði hann rútur, fyrst hjá Norðurleið og síðar Guðmundi Jónassyni. Örn naut útivistar og gekk iðulega um Kópavog þveran og endi- langan meðan krafta naut við. Bjó Örn í Kópavogi alla tíð og í seinni tíð með sambýliskonu sinni Sigríði. Örn ferðaðist mikið, bæði innanlands og ut- an. Síðustu tvö ár dvaldi Örn á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Útför Arnar fer fram frá Digraneskirkju í dag, 15. júní 2021, klukkan 13. Athöfninni verður streymt á: https://youtu.be/yHk6myYdRwo. Örn kvæntist 23.6. 1954 Stein- unni Önnu Guð- mundsdóttur hús- freyju, f. 3.8. 1935, d. 22.11. 1986. Foreldrar hennar voru Guðmundur Bjarnason, bóndi í Hlíðarhvammi í Sogamýri í Reykjavík, og Jó- hanna Magn- úsdóttir húsfreyja. Steinunn og Örn eignuðust þrjú börn, þau eru: 1) Guðmundur Arnarson, f. 21.8. 1955, kvæntur Maríu E. Frímannsdóttur, f. 29.3. 1956, slitu samvistir. Barn þeirra er Guðrún Birna, f. 28.12. 1979, sambýlismaður Thijs Kreukels, f. 14.2. 1980. Börn þeirra eru Sölvi Kreukels, Nanna Lóa Elsku afi, margt skilur þú eft- ir þig. Minningu um bragð af rauðum trönuberjasafanum og mjúkar gjafir sem voru van- metnar í litlum barnabarnshuga en hafa nú breyst í gull og veita yl í formi minninga um mann sem hafði hemil á okkur geml- ingunum, ekki með valdi, heldur kímnigáfu. Með því ólstu af þér fólk sem passar upp á að minn- ing þín lifi í kærleika. Vegna feimni faldi ég mig stundum þegar afi kom í heim- sókn og mikið missti ég af góðum félagsskap og nærandi samskipt- um. Ég verð ævinlega þakklát fyrir að hafa náð að kynnast afa seinna, þegar ég hóf störf á Sunnuhlíð í Kópavogi, þar sem hann hafði þá búið í um hálft ár. Herbergi afa varð að griðastað sem óréttlæti heimsins náði ekki til. Þar mátti fussa yfir and- styggðum lífsins en jafnframt hlæja og segja brandara eftir vinnudaginn. Þannig tjáðum við hvort öðru að við færum hönd í hönd gegnum súrt og sætt. Í eitt af þessum skiptum spurði ég hvernig honum liði og hann sagð- ist vera hræddur við að deyja, sem ég samþykkti með þögn sem hann rauf með gríni, slík var ein- lægnin. Afi þorði að sýna hversu stoltur hann væri af afkomend- um sínum. Það lá við að hann stæði á göngum heimilisins og öskraði að ég væri barnabarnið hans og svo rigndi yfir mig gull- hömrunum í kjölfarið. Trú hans á mér veitti mér trú á sjálfa mig. Þegar afi veiktist urðu orðaskipt- in færri og tjáningin breyttist en þó skildum við alltaf hvort ann- að. Sama hvað dundi á var kímni- gáfa hans sterkasta vopn, hann gat nefnilega alltaf blikkað mann. Steinunn Anna. Kannski var þetta 1961 eða var það 62? Sest var upp í gljá- fægðan svartan Wolselay 1947 og ekið úr Kópavogi niður í Skuggahverfi. Ilmur af leðri, tréverki og bóni, mjúk sæti. Okkur síðan boðið inn í furðu- verk veraldarinnar, Prentsmiðj- una Eddu. Hávaðinn tsjiggu, tsjiggu, tsjiggu og kannski svo- lítið fíli bomm bomm bomm líka, ys og þys, lykt af farva, blýi, at- hafnasemi og já bara ilmur dag- anna. Við vorum, litlir guttarn- ir, Mummi og ég staddir í miðju alheimsins þar sem allt var að gerast. Þarna var Örn Einarsson á heimavelli og sýndi okkur hvernig hlutirnir virkuðu. Hérna var setjaraborðið, þar vann hann mikið, vélasalurinn og pappírinn. Við fengum oftar að fara með en þetta sinn var einhvern veginn svo eftirminni- legt. Var þetta sunnudagur eða voru allir dagar þá sunnudagar og enginn skóli? Örn var Prentari með stórum staf, þetta voru menn sem báru virðingu fyrir sínu fagi. Hvít skyrta og bindi var vinnuklæðn- aður. Menn voru fagmenn, enda elsta fagfélag landsins Prent- arafélagið. Margar fleiri góðar minning- ar koma í hugann frá liðnum dögum, setið við eld á sævar- strönd, gengið um firnindi og tjaldað á Krísuvíkurbjargi. En ríkust er minningin um góðan dreng, alltaf í jafnvægi, glaður og indæll og fastur fyrir ef þess þurfti. Fjölhæfur mjög, spilaði á harmóniku sem ungur maður á böllum um allt, mikill boxari á boxárunum, bílamaður og auð- vitað bóka. Kunni frá bókum að segja og prentverki og þá ekki hvað síst er varðaði Austfirðina. Rætt um pólitík og þá gjarnan broslegu hliðina. Örn vann allt- af mikið og yfir sumarið var hann mikið í akstri fyrir Guð- mund Jónasson á háfjallatrukk- um. Margar góðar sögur voru af þeim túrum sagðar. Faðir minn og Örn voru ná- grannar. Þau Steinunn bjuggu í næsta húsi og við Mummi urð- um aldavinir, alltaf að leika. Þannig var um þá vinina, Örn og Hörð, í upphafi sjöunda ára- tugarins er þeir kynntust, menn á besta aldri, manndóms- áranna, tengdust sterkum böndum sem héldu til æviloka. Töluðu saman oft í viku, oftast á hverjum degi meiripart full- orðinsáranna. Einungis nú sein- ustu misserin er heilsa Arnar tók að gefa sig minnkaði sam- bandið, en skemmdist ekki. Þegar menn kveðja kemur söknuður í hugann, maður hef- ur ekki lengur aðgang að hluta af manns eigin lífi. Ekki er lengur hægt að spyrja og grafa upp, maður saknar hlutanna sem eru tapaðir, þekking, vizka og staðreyndir og spyr sig af hverju maður spurði ekki. Kæru Mummi, Már og Anna María og fólkið ykkar og Sig- ríður, innilegar samúðarkveðj- ur. Valdimar og Hörður. Örn Einarsson Það er með söknuði og þakk- læti sem ég kveð hana Rúnu móður mína. Síðustu 8 ár ævi sinnar var hún á hjúkr- unarheimilinu Sóltúni þar sem hún naut hlýju og einstakrar umönnunar. Þangað kom hún til dvalar í kjölfar þess að heilaslag svipti henni skyndilega úr lífs- ins meginstraumi. Eftir þetta hamlaði líkaminn för, en lífsvilj- inn hélst lengst af óheftur. Þeir, sem lítt þekktu til, voru undr- andi þegar hún sagðist um helg- ar ætla akandi á Volvonum austur að Gjábakka til gisting- ar. Já, sannfærandi reyndi hún að snúa þeim um fingur sér. Það var helst pabbi sem varðist þessum hugarórum í skjóli heyrnarleysis. Þótt skamm- tímaminnið væri stundum hnök- rótt var hægt að fletta upp í minni hennar um hagi forfeðr- anna, hver átti hvern, bústaði þeirra og störf. Ég hef án efa reynst mömmu erfiðastur okkar bræðra, enda Þóra Guðrún Óskarsdóttir ✝ Þóra Guðrún Óskarsdóttir fæddist 5. ágúst 1933. Hún lést 31. maí 2021. Útför Þóru Guð- rúnar fór fram í kyrrþey að hennar ósk. frumburður henn- ar. Fyrstu skýru minningar mínar eru þegar hún kom með Baldvin bróð- ur heim af fæðing- ardeildinni. Þá hékk ég uppi í tré við heimkeyrsluna og lét illa, kvartaði undan því að hún kæmi þarna með lítinn apa inn á heimilið. Stuttu seinna strukum við vinirnir, 5 ára óvitar, að heiman úr Þingholtinu niður á höfn. Þar vorum við fljótt hand- samaðir af sjómönnum í klof- stígvélum og færðir á lögreglu- stöðina. En hvað gerði mamma með þann óstýrláta þegar hringt var í hana þaðan? Jú, hún smalaði saman krökkum í hverfinu og lét síðan færa okkur heim í lögreglubíl! Ég man enn hvað ég skammaðist mín skelfi- lega. Það markaði snemma lundar- far mömmu að alast upp sem einbirni. Síðar þroskaðist hún við að ala upp þrjá drengi vest- ur í BNA, með pabba oft fjarri vegna vinnu, en dauðþreyttan þess á milli. Ég tel að hin fyrri hlutskipti hafi styrkt hana til að nálgast okkur karlpeninginn með nauðsynlegri röggsemi, nokkuð sem einkenndi hana alla tíð. Þegar barnabörnin komu til sögunnar þá gat hún loks slakað á og notið sín í nýju hlutverki. Hún gerði ekki upp á milli kynja en fannst þó notaleg til- breyting að kaupa kjóla fyrir stúlkurnar. Barnabörnin minn- ast öll með hlýju þeirra stunda sem hún fór ásamt pabba með þau í sumarkofann vatns- og rafmagnslausa að Gjábakka. Þar var eldað með gasi og lesið við kertaljós. Þegar langömmu- börnin tóku að birtast gladdist hún með vaxandi fjölda þeirra, það áttunda nýfætt þegar skyn hennar dofnaði og tilvera slökknaði. Ég veit að móðir mín hélt fast í barnstrú sína og eru orð Hallgríms Péturssonar því nú við hæfi: Dauðinn því orkar enn til sanns, útslokkna hlýtur lífið manns, holdið leggst í sinn hvíldarstað. Hans makt nær ekki lengra en það. Sálin, af öllu fári frí, flutt verður himnasælu í. Óskar Einarsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.