Morgunblaðið - 15.06.2021, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2021
30 ára Dagný er
Borgfirðingur og ólst
upp á Helgavatni í
Þverárhlíð en býr núna
á Gilsbakka í Hvít-
ársíðu með manni sín-
um og börnum. Dagný
er leikskólakennari að
mennt og starfar á leikskólanum
Hnoðrabóli á Kleppjárnsreykjum. Hún á
tvíburasysturina Guðnýju og bræðurna
Diðrik, f. 1983, og Bjarka, f. 1994.
Maki: Sigurður Ólafsson smiður, f.
1988.
Börn: Magnús, f. 2017, og Ólöf, f. 2020.
Foreldrar: Ágústa Ólöf Gunnarsdóttir, f.
1959, og Vilhjálmur Diðriksson, f. 1963.
Þau eru búsett á Helgavatni.
Dagný
Vilhjálmsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Fólk sem hagar sér heimskulega
veldur vandræðum, láttu það ekki koma
þér úr jafnvægi, reyndu frekar að sjá
fyndnu hliðina á því.
20. apríl - 20. maí +
Naut Láttu ekki deigan síga við að fá fram
þau úrslit mála sem þér eru mest að skapi.
Talaðu hreint út við vinnufélaga þína og
hugaðu betur að sjálfum þér.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þótt aðrir vilji velta sér upp úr
fortíðinni er ekki þar með sagt að þú þurfir
að gera það líka. Með þínu skrefi fram á
við ertu að breyta heiminum.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú ert eins og heitur teketill sem
er rétt við að fara að ýla af ánægju. Segðu
sögur. Vertu óhræddur og hrintu lausninni
bara í framkvæmd sem fyrst.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þér gefast mörg tilefni til upplyft-
ingar en vertu vandlátur og veldu þér
skemmtun við hæfi. Viltu kannski frekar
vera heima og endurmeta líf þitt? Láttu
skapið ráða för.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú hefur tekist mikla ábyrgð á
herðar og þarft á öllu þínu að halda til
þess að komast af. Leitaðu samstarfs því
margt smátt gerir eitt stórt.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það getur skipt sköpum að þú gerir
þér grein fyrir því hvaða kröfur aðrir gera
til þín. Vandaðu vel til verka og reyndu að
koma í veg fyrir ástæðulausan misskilning.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Hreinskilnar og innilegar
samræður við fjölskyldumeðlim skipta
sköpum til þess að halda friðinn á heim-
ilinu. Vertu því sanngjarn.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú ættir að taka meira tillit til
annarra því þú græðir ekkert á því að gera
hlutina upp á þitt eindæmi.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þig hefur lengi dreymt um að
vinna í lottóinu, en í dag er eins og á viss-
an hátt hafi þér tekist það. Reyndu að
skipuleggja þig.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þér hættir til þess að hlaða of
miklu á dagskrána og stendur svo uppi
með svikin loforð. Gættu að hvað þú segir.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú ert að vinna að stóru og tíma-
freku verkefni. Farðu og aflaðu þér félaga;
margar hendur vinna létt verk.
rekin af miklum metnaði og þetta
var ótrúlega skemmtilegur tími.“
Eftir útskrift frá Emerson um
áramót 1999 hóf Rakel störf sem
fréttamaður hjá fréttastofu Sjón-
varpsins í janúar 2000. Hún hefur
starfað á fréttastofum Ríkisútvarps-
ins óslitið síðan, sem fréttamaður,
þáttastjórnandi í sjónvarpi, vakt-
stjóri, varafréttastjóri, ritstjóri
Kveiks 2019-2020 og fréttastjóri síð-
an í apríl 2014. Það var á vinnu-
á fréttastofu Útvarps. Lokaverk-
efnið í meistararnáminu var heimild-
arþáttur um gagnagrunn deCode á
heilbrigðissviði. „Það var mjög gam-
an í náminu í Boston og aðstöðumun-
urinn mikill miðað við HÍ. Við vorum
með fullbúið sjónvarpsstúdíó og há-
skólinn rak útvarpsstöð sem hafði
mikla hlustun. Svo vorum við líka
með toppkennara, t.d. kennara sem
hafði pródúserað fyrir CNN-
fréttastöðina. Fjölmiðladeildin var
R
akel Þorbergsdóttir
fæddist 15. júní 1971 á
Sjúkrahúsinu á Akur-
eyri og bjó fyrstu árin í
Glerárþorpi en flutti
svo í Brekkuhverfi með foreldrum
árið 1975. Frá hausti 1980 dvaldi
Rakel fjóra mánuði ársins á Akur-
eyri hjá föðurforeldrum og föður en
8 mánuði hjá móður í Reykjavík.
Þessi tvískipta búseta milli Akureyr-
ar og Reykjavíkur varði allt til ársins
1994 en síðustu sumrin bjó hún hjá
föðurömmu sinni, sem þá var orðin
ekkja. „Fyrst vildi ég ekkert fara
suður, því ég var Akureyringur í húð
og hár og öll stórfjölskyldan var þar.
En eftir á að hyggja sé ég bara kosti
við það að hafa fengið að búa á báð-
um stöðum. Maður hefur víðari sýn á
lífið og tilveruna.“
Eftir grunnskólanám í Lundar-
skóla, Glerárskóla og Austurbæjar-
skóla hóf Rakel nám í Mennta-
skólanum í Reykjavík 1987 og
útskrifaðist þaðan af fornmálabraut
vorið 1991. Um haustið lá leiðin til
Grenoble í Frakklandi í frönskunám
í útlendingadeild háskólans í Gre-
noble. „Það var frábær reynsla og
þótt ég sé kannski ekki talandi eins
og innfædd, þá get ég bjargað mér á
frönskunni, sem hefur stundum nýst
í fréttunum.“
Snemma árs 1992 sneri Rakel svo
aftur til Akureyrar þar sem hún
vann í fiskvinnslu hjá Útgerðarfélagi
Akureyringa eða þar til hún hóf nám
í stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands haustið 1992. Hún vissi strax á
þessum tíma að hún vildi fara í fjöl-
miðlun og fannst stjórnmálafræðin
góður grunnur fyrir þann vettvang.
Hún útskrifaðist þaðan vorið 1996 en
hafði þá unnið í gestamóttöku Hótels
Sögu í eitt ár áður en BA-ritgerð um
embætti forseta Íslands var skilað.
Eftir útskrift úr diploma-námi í hag-
nýtri fjölmiðlun 1997 hóf Rakel í
kjölfarið störf sem blaðamaður á
Morgunblaðinu það sumar. Á Morg-
unblaðinu starfaði hún í rúmt ár eða
þar til hún hélt til Boston og hóf
meistararanám í ljósvakafjölmiðlun í
Emerson College haustið 1998.
Sumarið 1999 var Rakel svo ráðin
sem fréttamaður í sumarafleysingar
staðnum sem Rakel kynntist eig-
inmanni sínum, Ragnari Santos.
„Við kynntumst í vinnunni en fórum
nú leynt með þetta í byrjun þótt við
værum bæði einhleyp, því svona
vinnustaðarómans gengur ekkert
alltaf upp. Við vorum búin að þekkj-
ast í eitt ár þegar við ákváðum að
rugla saman reytum og núna eru
tuttugu ár liðin.“
Rakel segir að útivist, ferðalög og
fótbolti séu helstu áhugamálin. „Ég
Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri RÚV – 50 ára
Fjölskyldan Hér er fjölskyldan saman komin. Frá vinstri: Ragnar, Elsa fremst, Rakel, Sölvi og Alex Viðar.
Fréttir og rauðir djöflar
Fréttastofan Hér var fréttadeildin loksins kominn í nýtt fréttastúdíó 2018.
Old Trafford Hérna er Rakel með
fjölskyldunni hjá uppáhaldsliðinu,
en eiginmaðurinn tók myndina.
30 ára Guðný ólst
upp á Helgavatni í
Borgarfirði þar sem
hún býr núna, en hún
flakkar mikið á milli
Reykjavíkur og Borg-
arfjarðar. „Ég vinn
sem smiður á sumrin
í sveitinni og rek Me Time Iceland á vet-
urna þar sem við höldum jógahelgar
uppi í Borgarfirði þar sem gott er fyrir
fólk að komast í kyrrðina og út í náttúr-
una. Síðan er ég mikill ferðalangur og
bíð spennt eftir að kófinu ljúki til að fara
utan.“
Foreldrar: Ágústa Ólöf Gunnarsdóttir, f.
1959, og Vilhjálmur Diðriksson, f. 1963.
Þau eru bændur á Helgavatni.
Guðný
Vilhjálmsdóttir
Til hamingju með daginn
Garðabær Guðni Thor Guðnason
fæddist 27. janúar 2021 kl. 5:20. Hann
vó 3.334 g og var 52 cm langur. For-
eldrar hans eru Guðni Rúnar Skúla-
son og Guðný Lára Bragadóttir.
Nýr borgari
SÉRBLAÐ
Ferðalög Sérblöð um ferðalögkoma vikulega út í júní
Hvert blað beinir sjónum sínum
að einum landsfjórðung
• Hvert skal halda í sumarleyfinu?
• Viðtöl við fólk sem elskar að ferðast um Ísland
• Leynistaðir úti í náttúrunni
• Hvar er best að gista?
• Ferðaráð
• Bestu sumarfrí Íslendinga
Pöntun auglýsinga og nánari
upplýsingar augl@mbl.is