Morgunblaðið - 15.06.2021, Side 28
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Viðamikil samsýning, Iðavöllur, var
opnuð um liðna helgi í öllum sölum
Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi.
Titillinn er sóttur í Völuspá því æsir
hittust á Iðavelli við frumsköpun
heimsins og komu síðan aftur saman
að loknum ragnarökum til að skapa
nýja heimsmynd, eins og segir á vef
safnsins. Iðavöllur Hafnarhússins er
sagður vettvangur skapandi lista-
manna í hringiðu umbreytinga við
upphaf nýrrar þúsaldar og þema sýn-
ingarinnar skapandi og umbreytandi
kraftur sem búi í vinnu listamanna og
endurspegli fjölbreytt viðfangsefni á
tímum tæknilegra og félagslegra um-
breytinga.
Í vexti og blóma
Listamennirnir fjórtán sem verk
eiga á sýningunni eru álitnir leiðandi
afl sinnar kynslóðar meðal þeirra sem
eru í hvað mestum vexti og blóma á
sínum ferli. Eru þeir sagðir endur-
spegla viðfangsefni og nálgun samtím-
ans. Þessi tiltekna kynslóð listamanna
fellur á milli hinna svokölluðu X- og Y-
kynslóða og muna því tímana tvenna,
þá sem við lifum nú og þá sem voru
fyrir netvæðingu, snjallsíma, sam-
skiptamiðla og aðrar stafrænar bylt-
ingar. Þetta eru „fulltrúar kynslóðar
sem tekst á við aukinn hraða, meira
upplýsingaflæði, óljósari landamæri,
reikult kyngervi, breytt samskipta-
mynstur, nýja tækni – allt á meðan
þau muna á eigin skinni það sem áður
var,“ eins og segir á vef safnsins og að
listafólkið upplifi endalok heimsins í
vissum skilningi og leggi sitt af mörk-
um við nýtt upphaf.
Sýningarstjórar eru Aldís Snorra-
dóttir, Markús Þór Andrésson og safn-
stjórinn Ólöf Kristín Sigurðardóttir.
Brotnar rúður
Aldís segir sýninguna teygja sig um
allt safn, meira að segja gluggana.
Vegna framkvæmda í Tryggvagötu er
nú gengið inn í safnið um portið við
hlið Tollhússins og hefst sýningin því í
raun þar. „Við erum algjörlega búin að
snúa öllu á hvolf,“ segir Aldís um sýn-
inguna. Í portinu megi sjá skúlptúr
eftir Evu Ísleifs, skúlptúr í líki bursta-
bæjar á hjólum sem hægt sé að ýta
áfram og fer hann þá í hringi um
rýmið.
Í portinu má einnig sjá verk Arnar
Alexanders Ámundasonar, „Lista-
safnið er brotið“. „Hann er búinn að
líma filmur í alla gluggana eins og gler-
ið sé brotið og svo varúðarlímband
yfir, rautt og hvítt, líkt og starfsmenn
safnsins hafi komið og reynt að bjarga
einhverju. Hann er dómínerandi á öllu
gleri í húsinu sem er töluvert af,“ segir
Aldís. Hún nefnir að Örn hafi fengið
þessa hugmynd löngu áður en jarð-
skjálftarnir hófust í aðdraganda eld-
gossins á Reykjanesi. Aldís segir þessa
blekkingu Arnar hafa virkað svo vel að
einhverjir gestir hafi trúað því að rúð-
urnar í safninu væru brotnar og haft
orð á því að skipta þyrfti um þær.
Breiddin mikilvæg
Listafólkið á sýningunni er allt fætt
undir lok áttunda áratugarins eða í
byrjun þess níunda og Aldís segist
sjálf vera af þessari kynslóð, þeirri
sem falli á milli „analog“ og „digital“
tækninnar. „Við reyndum líka að velja
dálítið breiðan hóp, listamenn sem
væru að vinna í ólíka miðla og sýna
frekar breiddina á þeim verkum sem
þetta fólk er að gera. Okkur fannst líka
mikilvægt að gefa öllum gott rými til
að vinna þannig að þetta eru allt ný og
nýleg verk, stórar innsetningar og allir
að gera sitt allra besta og gera eitthvað
magnað,“ segir Aldís.
Hún er spurð að því hvort ekki hafi
þurft að fórna mörgum listamönnum
sem komnir voru á blað. „Jú, þetta var
alveg erfitt val,“ svarar Aldís. Hún,
Markús og Ólöf hafi hvert um sig búið
til lista yfir nöfn, borið saman bækur
sínar og athugað hvaða nöfn komu fyr-
ir á öllum listunum. „Við reyndum að
velja breiddina frekar af því maður
þarf alltaf einhvern veginn að tak-
marka sig. Við lögðum upp með að
þetta yrðu mögulega færri listamenn
en stækkuðum svo hópinn og tókum
þá yfir alla salina.“
Ósjálfrátt þema
Mörg verka sýningarinnar eru unn-
in beint í rýmið eða með það í huga og
má sem dæmi nefna Elínu Hansdóttur
sem vinnur beint með arkitektúr húss-
ins, súlurnar í sýningarsölum. „Hún
hefur unnið með þær sem efnivið,
skapað fleiri súlur, tekið ljósmyndir
sem sýna þær frá ýmsum sjónar-
hornum í mismunandi skala,“ útskýrir
Aldís og er í framhaldi spurð að því
hvort listamennirnir hafi unnið út frá
þema eða haft algjörlega frjálsar
hendur. „Við leyfðum þeim að hafa
frjálsar hendur en vissulega er heiti
sýningarinnar Iðavöllur,“ svarar Aldís
og því hafi verið tenging fyrir við Völu-
spá, endalok heimsins og nýtt upphaf.
„Það var áhugavert hvað listamenn-
irnir tóku ósjálfrátt inn eitthvert þema
þannig að margir fóru að vinna með
eitthvað á iði. Það er margt sem hring-
snýst eða er á iði í rýminu. Hringurinn
og að fara í hringi varð óvænt stef og
svo byrjuðu verkin bara að tala sam-
an,“ segir hún.
Náttúran áberandi
Aldís segir listamennina vinna í
ólíka miðla, m.a. gamalgróna á borð við
textíl og að umfjöllunarefnin séu af
ýmsu tagi. Náttúran sé til að mynda
áberandi sem og loftslagsmál. „Anna
Rún Tryggvadóttir kemur með náttúr-
una inn, bókstaflega, með sex tré sem
hún fann í Heiðmörk og kom fyrir á
stórum mótorum sem snúast. Öll trén
snúast og stýra því dálítið hvernig
maður fer um rýmið. Það var alltaf
ákveðið hjá henni að finna tré í Heið-
mörk og svo kviknuðu þar gróðureldar
og fannst henni áhugavert að tækla
það líka og því eru nokkur trjánna
sviðin. Þegar maður kemur þarna inn
tekur á móti manni sterk gróðurlykt
og við munum sjá laufin falla og þessa
hringrás náttúrunnar,“ segir Aldís.
En var ekkert mál að fylla öll þessi
rými í þessu stóra safni, Hafnarhús-
inu? „Það hefði alveg verið ágætt að
hafa meira pláss,“ segir Aldís kímin.
Hugmyndirnar og innsetningarnar
hafi orðið það stórar að vandræðalaust
hafi verið að fylla rýmið. „Það var bara
æðislegt að geta gefið öllum svona gott
rými og það er næstum því eins og
þarna séu fjórtán einkasýningar í einni
samsýningu sem tala allar saman.“
Sýningunni lýkur 17. október.
Endir og upphaf, sköpun og umbreyting
- Allir salir Hafnarhússins hafa verið lagðir undir samsýninguna Iðavöllur - Fjórtán listamenn sem
falla á milli X- og Y-kynslóðanna sýna ný verk - Það er margt sem hringsnýst eða er á iði í rýminu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hringrás Hluti af verki Önnu Rúnar Tryggvadóttur sem sótti í það tré í Heiðmörk. Þau eru á mótorum sem snúast.
Umfangsmikil „Við erum algjörlega búin að snúa öllu á hvolf,“ segir Aldís
Snorradóttir um sýninguna í Hafnarhúsinu. Þau Markús Þór Andrésson og
safnstjórinn Ólöf Kristín Sigurðardóttir eru sýningarstjórar.
Fjölbreytileg Hluti verks Elínar Hansdóttur sem vinnur beint með arkitekt-
úr hússins, súlurnar í sýningarsölum, og hefur meðal annars bætt við súlum.
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2021
- heimili, hönnun, tíska
og samkvæmislífið
Lífstílsvefurinn okkar
- fylgt landsmönnum í 10 ár
SMARTLAND
MÖRTUMARÍU
Vertu með
á nótunum
Þessir listamenn eiga verk á
Iðavöllum:
Anna Júlía Friðbjörnsdóttir
Anna Rún Tryggvadóttir
Arna Óttarsdóttir
Arnar Ásgeirsson
Bjarki Bragason
Dodda Maggý
Elín Hansdóttir
Eva Ísleifs
Guðmundur Thoroddsen
Hildigunnur Birgisdóttir
Páll Haukur Björnsson
Rebecca Erin Moran
Styrmir Örn Guðmundsson
Örn Alexander Ámundason
14 sýna á
Iðavöllum
LISTAMENNIRNIR