Morgunblaðið - 15.06.2021, Page 29

Morgunblaðið - 15.06.2021, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ THE WASHINGTON POST ROGEREBERT.COM TOTAL FILM USA TODAY THE SEATTLE TIMES THE GUARDIAN GEGGJAÐ FRAMHALD AF EINUM ÓVÆNTASTA SPENNUÞRILLER SÍÐUSTU ÁRA HROLLVEKJANDI SPENNUMYND THE WRAP FILM SÝNDMEÐ ÍSLENSKUTALI 97% SAN FRANCISCO CHRONICLE INDIE WIRE BLOOM nefnist fyrsta umfangsmikla samstarfsverkefnið sem sprettur upp úr nýju norrænu samstarfsneti, Yggdrasil, þar sem leikhús og leik- hópar sem starfa í Skandinavíu vinna saman. Um er að ræða samstarf milli Kristján Ingimarsson Company (KIC) og Teater Nordkraft í Álaborg í Danmörku, Hálogaland Teater í Tromsö í Noregi og Borgarleikhúss- ins á Íslandi. „Hugmyndin er að framleiðsla þvert á landamæri styðji við bakið á sjálfstæðri leikhússenu. Í framleiðslu BLOOM verður samstarfið með ný- stárlegum hætti þar sem KIC sér um listræna framleiðslu og útfærslu, sem meðal annars er unnin í gegnum vinnustofur en leikhúsin þrjú sem koma að samstarfinu sjá svo um upp- setningu á hverjum stað fyrir sig. Í samstarfinu er lögð mikil áhersla á að nýta eins og mögulegt er starfskrafta á hverjum stað fyrir sig, þegar sýn- ingin ferðast um. Þess vegna er stefn- an sú að tveir til þrír leikarar frá fyrsta sýningartímabilinu í Álaborg fari með til annars vegar Íslands og hins vegar Noregs, þar sem tveir til þrír leikarar frá Borgarleikhúsinu og leikhúsinu í Hálogalandi verða svo æfðir inn í sýninguna á nýju sex vikna æfingatímabili. Hér er komið spenn- andi tækifæri fyrir hefðbundin leik- hús til að vinna með tilraunakenndari leikhópum og í þessu tilfelli gefur það KIC einnig tækifæri til þess að bjóða ólíkum leikurum að kynnast aðferð- um hópsins. Þannig fær stór upp- færsla lengra líf og fleiri fá tækifæri til þess að sjá hana, bæði hérlendis og erlendis,“ segir í tilkynningu frá Borgarleikhúsinu, en stefnt er að frumsýningu BLOOM hérlendis leik- árið 2022-2023. Samkvæmt upplýsingum frá hópn- um fara konur með öll hlutverkin í BLOOM, en sýningin verður „ófilter- uð sprengja af þeim litríka, líkamlega frumkrafti sem einkennir jafnan ævintýralegar sýningar Kristjáns Ingimarssonar.“ BLOOM í Borg- arleikhúsinu - Yggdrasil nýtt norrænt samstarfsnet Kraftur Konur leika öll hlutverk. Myndlistarhjónin Christo og Jeanne-Claude voru fræg fyrir gjörninga þar sem þau pökkuðu mannvirkjum eða náttúrufyrir- bærum inn með sínum hætti. Jean- Claude lést árið 2009 og Christo í fyrra en þá vann hann að undirbún- ingi síðasta slíka gjörnings þeirra sem átti að felast í því að pakka Sigurboganum í París inn en hug- myndina höfðu þau þróað frá sjö- unda áratug liðinnar aldar. Og þótt hjónin séu bæði fallin frá verður verkið framkvæmt, undir stjórn frænda Christos. Samkvæmt The Guardian verður Sigur- boginn klædd- ur í silfurblátt efni sem hald- ið verður sam- an með rauðu reipi og verð- ur ráðist í verkið í næsta mánuði, nú þegar öll leyfi hafa fengist. Um 25.000 fermetrar efnis fara í verkið og 3 km af reipi. Allur verður efni- viðurinn síðan endurunninn eftir að framkvæmdinni lýkur í október. Sigurboganum verður pakkað inn Undirbúningsteikning Christos að verkinu. Í Mexíkóborg hefur verið opnuð viðamikil margmiðl- unarsýning, DaVinci Experience, sem hverfist um list- sköpun og hugmyndaheim endurreisnarmeistarans kunna Leonardos da Vinci. Hér skoðar sýningargestur eina kunnustu teikningu meistarans, Vitrúvíusarmann- inn svokallaða. Teikningin sjálf, frá 1490, er varðveitt í Accademia-safninu í Feneyjum og er sjaldan sýnd opin- berlega, þar sem hún er mjög viðkvæm. Við teikn- inguna hefur Da Vinci skrifað hugleiðingu verk róm- verska arkitektsins Vitúvíusar og um hlutföll líkamans. AFP Vitrúvíusarmaðurinn stór í Mexíkó Skáldsaga rithöfundarins Louise Erdrich, The Night Watchman, hreppti hin eftirsóttu bandarísku Pulitzer-verðlaun í sínum flokki. Sagan fjallar um nokkra ættingja Chippewa-ættbálks bandarískra frumbyggja á 6. áratug síðasta ára- tugar þegar stjórnvöld undirbúa að taka lönd þeirra. Aðalpersónan byggist á afa Erdrich sem var einn höfðingja ættbálksins. Meðal annarra helstu Pulitzer- verðlauna í menningargeiranum má nefna að í flokki sögulegra bóka hreppti verðlaunin Marcia Chatela- in fyrir Franchise: The Golden Arches in Black America, sem fjallar um samband skyndibita- keðja og samfélaga hörunds- dökkra. Besta ævisaga var valin The Dead Are Arising: The Life of Malcolm X eftir Les Payne og Tamöru Payne en hún hafði áður hreppt National Book Award. Na- talie Diaz hlaut Pulitzer-- verðlaun fyrir bestu ljóðabók ársins, Post- colonial Love Poem, og í flokki bóka almenns efnis var valin best Wilmington’s Lie: The Mur- derous Coup of 1898 and the Rise of White Supremacy eftir David Zucchino en hún fjallar um hvíta öfgamenn í Norður-Karólínu. Verðlaun fyrir besta leikritið hreppti Katori Hall fyrir The Hot Wing King og þá hlaut Tania León verðlaun fyrir besta tónverk, hljómsveitarverkið Stride, sem Fíl- harmóníusveitin í New York frum- flutti í fyrra. Erdrich hreppti Pulitzer-verðlaunin Louise Erdrich Bandaríski leik- arinn Ned Beatty er látinn, 83 ára að aldri. Beatty lék í um 150 kvikmyndum og sjónvarpsþáttum á löngum ferli en sló fyrst í gegn í Deliverence (1972). Hann var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í Network (1976) og fór til að mynda með áberandi hlutverk í tveimur myndum um Superman, í All the President’s Men, Nashville, The Big Easy og Hear My Song. Í sjónvarpi lék hann til að mynda í þáttaröðunum Roseanne og Homi- cide: Life on the Street. Beatty var einnig vinsæll sviðsleikari en settist í helgan stein fyrir átta árum. Leikarinn Ned Beatty látinn Ned Beatty

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.