Morgunblaðið - 15.06.2021, Qupperneq 32
Sjálfsmynd er heiti nýrrar plötu Bubba Morthens sem
kemur út á morgun, miðvikudag. Annað kvöld kl. 20.30
heldur hann tónleika ásamt hljómsveit og gestum í Eld-
borgarsal Hörpu og fagnar útgáfunni með þeim hætti.
Uppselt er á tónleikana en áhugasamir geta keypt sér
aðgang að tónleikunum í netstreymi. Tónlistarkonurnar
vinsælu Bríet og GDRN koma fram með Bubba ásamt
Aurora-kórnum en kórstjóri er Sigríður Soffía Hafliða-
dóttir. Hljómsveitarstjóri á tónleikunum er Guðmundur
Óskar Guðmundsson.
Bubbi fagnar útgáfu Sjálfsmyndar
með tónleikum í Eldborg á morgun
Fyrri úrslitaleikur Vals og Hauka um Íslandsmeistara-
titil karla í handknattleik fer fram á Hlíðarenda í kvöld.
Patrekur Jóhannesson þjálfari Stjörnunnar, sem veitti
Haukum harða keppni í undanúrslitunum, telur að
Haukar séu sigurstranglegri en býst eftir sem áður við
hnífjöfnu einvígi þar sem úrslitin ráðist á lokasek-
úndum seinni leiksins á föstudaginn. »27
Reiknar með hnífjöfnu einvígi
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Vitaleiðin, braut við suðurströndina
milli Selvogs- og Knarrarósvita við
Stokkseyri, var formlega opnuð sl.
laugardag. Leiðin er alls um 50 kíló-
metra löng og er
um svæði þar sem
er fjölbreytt nátt-
úra og margvís-
legir möguleikar
til afþreyingar í
þremur byggðar-
lögum; Þorláks-
höfn, Eyrarbakka
og Stokkseyri.
„Vitaleiðin býð-
ur upp á margt
skemmtilegt, fjöl-
breytta náttúruupplifun og dýralíf,
menningu, mat, sögu og afþreyingu
svo að dæmi séu tekin,“ segir Laufey
Guðmundsdóttir verkefnisstjóri hjá
Markaðsstofu Suðurlands. Hún hefur
verið í fararbroddi við að koma þess-
ari nýju leið á kortið, en þetta er af-
rakstur af áfangastaðaáætlun fyrir
Suðurland. Í því starfi var farið vítt
yfir sviðið og valdir staðir sem gætu
verið áhugaverðir viðkomustaðir
ferðamanna. Allt var þetta gert í því
augnamiði að dreifa álagi.
Aka, ganga og hjóla
Nafnið Vitaleiðin kom af sjálfu sér.
Í vestri er Selvogsviti, þá Hafnarnes-
viti við Þorlákshöfn og loks Knarr-
arósviti nærri Stokkseyri. Þessa leið
má aka, ganga, hlaupa, hjóla og fara
ríðandi á hestum. Unnið hefur verið
að stígagerð á ýmsum hluta þessarar
leiðar, þótt víða sé verk óunnið.
Vitaleiðin er unnin í samvinnu
Markaðsstofu Suðurlands, Sveitar-
félagsins Árborgar og Sveitar-
félagsins Ölfuss ásamt ferðaþjónustu
á svæðinu. Margt kom inn í myndina í
leit að nýjum áfangastöðum, en leiðin
milli Selvogs og Stokkseyrar þótti
henta sérstaklega vel. Á Vitaleiðinni
eru sögð vera tækifæri fyrir fólk sem
vill njóta, meðal annars þá sem búa á
svæðinu og vilja jákvæða upplifun í
nærumhverfi sínu. Fara hægt yfir og
vinda ofan sér með aðstoð kyrrð-
arinnar í náttúrunni en um leið soga í
sig orkuna frá Atlantshafinu.
Upphaf og endir
Í ávarpi sem Gestur Þór Krist-
jánsson, forseti bæjarstjórnar Ölfuss,
flutti við opnun Vitaleiðarinnar lýsti
hann verkefninu sem innviða-
uppbyggingu. Íbúum fjölgaði mikið
og því þyrfti að mæta meðal annars
með gerð útivistarsvæða. Þá væri
þess sennilega ekki langt að bíða að
hæfust farþegasiglingar frá megin-
landi Evrópu til Þorlákshafnar. Þá
væri mikilvægt að nýir afþreyingar-
möguleikar, svo sem Vitaleiðin, væru
tilbúnir. „Eigi ferðalag að heppnast
þarf góðan upphafspunkt og enda-
stað. Á þessari nýju leið höfum við
hvort tveggja: vita hvorn á sínum
enda og einn í miðjunni,“ segir Gest-
ur.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Strönd Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri í Árborg, Gestur Þór Kristjánsson forseti bæjarstjórnar Ölfuss og Þór-
arinn Gylfason teiknari, sem gerði kortið á sjóvarnagarðinum á Eyrarbakka sem þeir þremenningar standa við.
Þrír vitar á ströndinni
- Ný ferðaleið - Ölfus og Árborg - 50 km - Margt að sjá
Laufey
Guðmundsdóttir
Vitaleiðin Ljósið í Selvoginum.
ALLT FYRIR
ÚTILEGUNA!
COLEMAN SPRUCE
FALLS 4 PLUS
79.995.
CAMPINGAZ
KÆLIBOX 28L
26.995.
BARDANI MONKEY
BARNASTÓLL
4.995.
BARDANI MUSICA
GRANDE BORÐ
22.995.
BARDANI GOBLIN
MATARSTELL
8.995.
Fiskislóð 1, Reykjavík / Hvannavellir 14,Akureyri / www.ellingsen.is
COLEMAN DECK
STÓLL
16.995.
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 166. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
ÍÞRÓTTIR MENNING