Morgunblaðið - 30.06.2021, Side 4
Eldgosið í Geldingadölum 19. mars -26. júní
Flatarmál hrauns, km2
Rúmmál hrauns, milljónir m3
3,82
79,8
13,0
Myndataka úr lofti
Pleiades gervitungl
TF-FMS sniðmælingar
Riegel Lidar
26. júní var flatarmál hraunsins
3,82 ferkílómetrarsem er á við
meira en 540 Laugardalsvelli
Hraunið er orðið um
79,8 milljón rúmmetrar ogmyndi því fylla nærri
80 þúsund Laugardalslaugar
Hraunrennslið er um
13 rúmmetrar á sek-úndu sem eru yfir
50 vörubílshlöss á mínútu
Ný gosop
Heimild: Jarðvísindastofnun HÍ, Náttúru-
fræðistofnun Íslands og Landmælingar Íslands
mars apríl maí júní
mars apríl maí júní
mars apríl maí júní
Hraunflæði, m3/s
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Breytingar sem urðu nýlega á gos-
óróa í gígnum í Geldingadölum urðu
mögulega vegna hruns úr gígbarm-
inum, að mati Þorvaldar Þórðarson-
ar, prófessors í eldfjallafræði við Há-
skóla Íslands.
„Við höfum séð svipað gerast áður
eftir að það hrundi niður í gíginn,“
sagði Þorvaldur. Hann sagði að það
hafi hugsanlega tafið eitthvað fyrir
hraunflæðinu og hægt á afgösun sem
hafi valdið minni gosóróa eins og
sást á jarðskjálftamælum. Lélegt
skyggni hefur verið á gosstöðvunum
undanfarið og lítið sést í vefmynda-
vélum nema þoka. Það hefur því ekki
verið hægt að fletta upp í myndum
þeirra til að sjá hvort það hrundi úr
gígbarminum.
„Gígurinn náði svo að hreinsa sig
og þá fylgdi smá sjónarspil eins og
venjulega,“ sagði Þorvaldur. Sam-
starfsmenn hans voru á gosstöðvun-
um í gær og þeir sáu að ysta hraun-
totan suðvestan megin í Nátthaga
var aftur tekin að skríða fram. Þor-
valdur taldi líklegt að hraunflæði
niður í Meradali, í Geldingadali og í
Nátthaga væri enn stöðugt.
„Meginrásin, sem viðheldur
hraunflæðinu, er undir yfirborðinu
og við sjáum hana ekki. Hún hlýtur
að vera þarna því vöxturinn á hraun-
inu er svo stöðugur. Breytileiki sem
við sjáum í gígnum virðist ekki hafa
áhrif á hraunflæðið,“ sagði Þorvald-
ur. Hann varð vitni að því um daginn
í Geldingadölum að yfirflæði hrauns
fór yfir hraunskorpu sem hafði
storknað nokkru fyrr. Skorpan
brotnaði og þá kom þar upp glóandi
kvika. Þorvaldur telur að bráðin
kvika sé undir stórum hluta yfir-
borðs hraunsins. Hann var í Mera-
dölum í fyrradag og þar var ekki að
sjá mikla yfirborðsvirkni. „En
hraunyfirborðið hafði greinilega
hækkað og það var mikill hiti í
hrauninu. Maður fann alveg fyrir
honum,“ sagði Þorvaldur. Hann
sagði að þótt ekki sjáist í rauðglóandi
hraun sé ekki þar með sagt að þetta
sé óvirkt. Hraunið sé jafnt og þétt að
tjakka sig upp.
„Það er ótrúlegt að sjá hvað
hraunið er jafn þykkt. Það er alveg
rennislétt í dölunum, sama í hvaða
dal þú ferð. Það þýðir að undir öllu
þessu yfirborði sem við sjáum er
vökvakjarni sem er að lyfta öllu upp
jafnt og þétt,“ sagði Þorvaldur.
Hraunárnar sem stundum sjást
eru líkt og straumvatn sem er að
leggja. Glóandi áin sést þar sem
straumurinn er stríðastur og svo er
storkin skel með jöðrunum, líkt og ís
við bakka í ás sem er að leggja.
Hraunárnar eru því töluvert breiðari
en sýnist á yfirborðinu.
Þorvaldur sagði að nýjustu mæl-
ingar á hraunrennsli staðfesti að
kvikuframleiðnin í gosinu hafi ekki
minnkað.
Hann sagði varasamt að ganga út
á nýtt hraun. Víða er storkin skel
sem brotnar undan þunga manns og
þá er hætt við slysi, jafnvel fótbroti.
Mikil virkni er undir yfirborðinu
- Hrun úr gígbarminum olli mögulega breytingu á gosóróa
- Meginrásir hraunflæðis frá gígnum eru undir yfirborðinu
Morgunblaðið/Eggert
Nátthagi Hrauntotan neðst t.v. var
að teygja sig lengra í gær.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2021
Esther Hallsdóttir
esther@mbl.is
Alls hafa sex nýliðar verið ráðnir í
hlutastarf hjá slökkviliði Fjalla-
byggðar. Þar eru nú 34 liðsmenn
auk slökkviliðsstjóra og vara-
slökkviliðsstjóra.
Jóhann K. Jóhannsson slökkvi-
liðsstjóri segir ráðningarnar vera
nauðsynlegar til nýliðunar.
„Það þurfti að bregðast við hækk-
andi meðalaldri í liðinu. Á ein-
hverjum tímapunkti kúplast þeir
eldri frá, en við viljum ekki missa
þá strax því þeir hafa þekkingu og
reynslu og það þarf að vera búið að
þjálfa nýjan mannskap. Það er bæði
verið að hugsa fram í tímann og
tryggja að slökkviliðið sé starf-
hæft,“ segir hann við Morgunblaðið.
Slökkvilið Fjallabyggðar er með
einingar á Siglufirði og á Ólafsfirði
og voru þrír ráðnir á hvorn stað.
Alls sóttu fjórtán um störfin, þar af
tvær konur. Önnur þeirra hlaut
ráðningu og segist Jóhann geta
slegið því föstu að um sé að ræða
fyrstu konuna sem ráðin er í
slökkviliðið.
Þversnið af atvinnuflórunni
Jóhann segir að á næstu þremur
til fjórum árum þurfi reglulega að
ráða inn til að snúa við þróuninni í
hækkandi meðalaldri. Hann vonast
til að geta ráðið fleiri strax á næsta
ári og geta þá fjölgað konum.
Þeir sem sinna störfum hjá
slökkviliðinu sinna að jafnaði öðrum
störfum samhliða en mæta í hús
þegar kallið kemur. Koma þeir alls
staðar að og segir Jóhann hópinn
þversnið af atvinnuflóru sveitar-
félagsins. Greitt er fyrir æfingar og
útköll en útköllin eru að meðaltali
um það bil tvö í mánuði.
„Síðasti laugardagur var fyrsti
dagurinn þar sem nýliðarnir fóru í
gegnum þessa grunnþætti sem snúa
að slökkvistarfinu, það er annars
vegar reykköfun og hins vegar
dælu- og slönguvinna. Þetta var al-
veg frábær dagur í blíðskaparveðri
á Siglufirði, tuttugu stiga hita.
Þau stóðu sig ofsalega vel við að
fara í gegnum þetta. Reykköfun er
náttúrlega eitt erfiðasta viðfangs-
efni sem slökkviliðsmenn takast á
við og það er ekki allra að fara bæði
í gallann og svo með tækin á bak-
inu, en það sem þau sýndu lofar
góðu,“ segir Jóhann.
Reykur Nýliðarnir æfðu reykköfun í fyrsta sinn á laugardaginn og segir slökkviliðsstjórinn vinnubrögðin lofa góðu.
Endurnýjun í slökkvi-
liði Fjallabyggðar
- Réðu sex nýliða í slökkviliðið - Kona komin í hópinn
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
(HER) hefur fellt úr gildi starfsleyfi
Vöku fyrir móttökustöð fyrir úr-
gang, bílapartasölu, bifreiða- og
vélaverkstæði og hjólbarðaverk-
stæði eftir að úrskurðarnefnd um-
hverfis- og auðlindamála (ÚUA)
komst að þeirri niðurstöðu að fella
bæri úr gildi ákvörðun HER veit-
ingu tímabundins starfsleyfis að
Héðinsgötu 2 í Reykjavík.
Sú starfsemi er því án starfsleyfis
og óheimil, að sögn Heilbrigðiseftir-
lits Reykjavíkur (HER), en í Morg-
unblaðinu í gær sagði Reynir Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Vöku
hf. að verið væri að átta sig á stöð-
unni og sjá hvað Heilbrigðiseftirlitið
segði.
Heilbrigðiseftirlitið hefur sent
Vöku bréf þar sem þetta er ítrekað.
Auk þess hefur verið rætt við for-
svarsmann í síma vegna stöðvunar á
starfseminni. Sú starfsemi Vöku
sem ekki er starfsleyfisskyld er
áfram heimil. Það á t.d. við um akst-
ursþjónustu, fjarlægingu númers-
lausra bíla fyrir sveitarfélög og
geymslu á þeim.
gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Vaka Starfsleyfið í Reykjavík er ekki lengur í gildi og því er starfsleyfis-
skyld starfsemi fyrirtækisins ekki lengur heimil, að sögn HER.
Starfsleyfi úr gildi