Morgunblaðið - 30.06.2021, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 30.06.2021, Blaðsíða 23
ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2021 _ Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, mun ekki semja við tyrkneska félagið Adana Demirspor þrátt fyrir að fjölmiðlar í Tyrklandi hafi greint frá því í síðustu viku að félagaskiptin væru langt á veg komin. Birkir er samningslaus eftir að samn- ingur hans við Brescia á Ítalíu rann út. _ Körfuknattleiksdeild Hauka og Sól- rún Inga Gísladóttir hafa komist að samkomulagi um að hún leiki með liðinu næstu þrjú árin. Sólrún hefur undanfarin ár leikið í bandaríska há- skólaboltanum með Coastal Georgia Mariners. Sólrún er uppalin hjá Hauk- um og lék með liðinu tímabilið 2016/ 17 áður en hún hélt vestur um haf. _ Knattspyrnudeild ÍA hefur gengið frá samningi við hollenska varnar- manninn Wout Droste. Er hann 32 ára hægri bakvörður sem á að baki yfir 120 leiki í efstu deild í Hollandi. _ Los Angeles Clipp- ers er enn með í baráttunni um sæti í úrslitum NBA- körfuboltans eftir 116:102-útisigur á Phoenix Suns í fimmta leik lið- anna. Í fjarveru Kawhis Leonard spilaði Paul George gríðarlega vel og átti stærst- an þátt í sigri Clip- pers. George skoraði 41 stig, tók 13 fráköst og gaf sex stoðsend- ingar. Eitt ogannað ÓL Í TÓKÝÓ Kristján Jónsson kris@mbl.is Ásgeir Sigurgeirsson er á leið á Ólympíuleika í annað sinn og mun keppa í skotfimi með loftskamm- byssu í Tókýó í Japan í næsta mán- uði. Áður en heimsfaraldurinn skall á keppti Ásgeir reglulega á mótum erlendis auk þess að keppa fyrir fé- lagslið í Þýskalandi. Staða hans á heimslistanum hefur oft verið ágæt á síðustu árum. Hann hefur hins vegar ekki keppt erlendis síðan á EM í mars í fyrra og átti þar af leiðandi ekki á von á því að fá keppnisrétt á leik- unum í sumar. „Þetta kom mér mjög á óvart. Ég hafði dregið saman seglin í æf- ingum og var í raun ekkert að velta þessu fyrir mér. Ég var í raun meira með hugann við fjölskylduna og vinnuna heldur en skotfimi,“ sagði Ásgeir þegar Morgunblaðið náði tali af honum áður en hann fór á æfingu í gær. Ekki er furða þótt Ásgeir hafi lítið verið að velta fyrir sér þátt- töku á Ólympíuleikunum því hann hafði fengið þær fréttir að kvóta- plássi í skotfimi á leikunum hefði verið úthlutað. Þar væri Ísland ekki inni í myndinni. „Þjálfari minn tjáði mér að öllum kvótaplássum hefði verið úthlutað en að ein þjóðin hefði skilað inn plássi fyrir einn keppanda. Þá fékk ég keppnisrétt,“ sagði Ásgeir en hann mun hafa átt besta skor í skotfimi hjá þeim þjóðum sem ekki höfðu fengið keppnisrétt í greininni á leikunum, en Ásgeir hefur á síð- ustu árum keppt á ófáum stórmót- um í skotfimi. Margt breyst frá 2012 Ásgeir er á leið á Ólympíuleika í annað sinn en hann vann sér inn keppnisrétt á leikunum í London árið 2012. Þar náði hann athyglis- verðum árangri í keppni með loft- skammbyssu af 10 metra færi og hafnaði í 14. sæti. Var Ásgeir ekki langt frá því að komast í úrslit þótt hann hefði ekki mikla alþjóðlega keppnisreynslu á þeim tíma. „Það hefur margt breyst síðan þá. Ég er allt annar maður í dag með aðrar áherslur. Tíminn er allt- of fljótur að líða,“ sagði Ásgeir og hann ætlar að njóta þess að keppa. „Ég mun nálgast þetta af æðru- leysi og taka þetta á gleðinni. Ég held að það sé skynsamlegast fyrir mig núna. Ég æfi þokkalega mikið en gæti þess að fara ekki of geyst í það. Þar sem ég hef ekkert verið að keppa þá er erfitt að vera með miklar væntingar. Ég mun reyna að njóta þess að fá að gera það sem mér finnst gaman að gera, með þeim bestu í heiminum. Það eru ekki allir sem fá slíkt tæki- færi.“ Öðruvísi leikar Aðspurður hvort hann telji það hjálpa sér að hafa kynnst því einu sinni áður að vera á Ólympíuleikum segir Ásgeir að tölurnar á skotskíf- unni séu alltaf á sama stað. „Ég hugsa það, en mér skilst að allir Ólympíuleikar séu einstakir. Sérstaklega þessir því þessir leikar verða allt öðruvísi en þeir hafa ver- ið vegna heimsfaraldursins. Tían er samt alltaf á sama stað og þetta er engin breyting að því leytinu til. En það verður örugglega skrítið að vera í Ólympíuþorpinu vegna þess að ég held að menn megi lítið gera. Allt umstangið í kringum þetta verður miklu minna. Miklu færri verða í fylgdarliði keppenda og engir áhorfendur frá öðrum þjóðum en Japan,“ sagði Ásgeir Sig- urgeirsson sem keppir 24. júlí eða daginn eftir setningarhátíðina. Hann segist búast við því að fljúga til Japan hinn 17. júlí. Morgunblaðið/Eggert Skytta Ásgeir Sigurgeirsson er sjóaður í alþjóðlegum keppnum í skotfimi en átti þó ekki von á farmiða til Japan. - Ásgeir fer til Japan með gleði í farteskinu - Boð um að keppa var óvænt Mun njóta þess að keppa England og Úkraína urðu í gær síð- ustu liðin til að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitunum á EM karla í knattspyrnu. Þau koma til með að mætast í 8-liða úrslitum keppninnar. Þar munu einnig eigast við Belgía og Ítalía, Sviss og Spánn og Tékkland og Danmörk. Eins og sjá má halda Danir uppi heiðri Norðurlandaþjóðanna í þetta skiptið. Nokkuð sem við Íslendingar gerðum á síðasta EM. England vann Þýskaland 2:0 á Wembley í gær og sigurinn var afar sætur fyrir Englendinga sem svo oft hafa þurft að sætta sig við tap á móti Þjóðverjum í mikilvægum leikjum. Ummæli Garys Lineker, eins marka- hæsta leikmanns í sögu enska lands- liðsins, eru fyrir löngu orðin fræg. „Knattspyrnan er einfaldur leikur. 22 leikmenn elta bolta í 90 mínútur og þegar upp er staðið vinna Þjóðverjar.“ En ekki í þetta skiptið. Raheem Sterling skoraði fyrir England á 75. mínútu og Harry Kane bætti við marki á 86. mínútu. Hans fyrsta mark í keppninni og það kom á heppilegum tíma. Phillipp Lahm, fyrrverandi fyrirliði Þjóðverja og gestapenni hjá Morgun- blaðinu og mbl.is, ýjaði að því í grein á mbl.is í gærmorgun að þetta gæti orð- ið niðurstaðan. Hann spáði ekki fyrir um úrslit en sagði bæði þessi lið vera í uppbyggingarferli og þar væru Eng- lendingar komnir lengra. Enska liðið væri mun stöðugra en það þýska sem sæist meðal annars á því að England hefur ekki fengið á sig mark í keppn- inni. Svíar féllu úr keppni í gær. Úkraína hafði betur 2:1 en sigurmark liðsins kom á lokamínútu í framlengingunni þegar Artem Dovbyk skoraði laglegt skallamark. Úkraína hefur komið mörgum á óvart á EM þótt liðið hafi einnig verið með á síðasta EM. Við stjórnvölinn er gamla hetjan, Andriy Shevchenk, og hann virðist kunna ýmislegt fyrir sér sem þjálfari. Oleksandr Zinchenko skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Úkraínu á 27. mín- útu en Emil Forsberg jafnaði á 43. mínútu. kris@mbl.is Nú tókst Englendingum að sjá við Þjóðverjum - England hefur ekki fengið á sig mark á EM til þessa AFP 2:0 Harry Kane fagnar marki sínu sem réð úrslitum í gær. Sævar Atli Magnússon, fyrirliði og framherji Leiknis úr Reykjavík, var besti leikmaður tíundu umferðar Pepsi Max-deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Sævar skoraði bæði mörk Leiknismanna þegar þeir urðu fyrstir til að leggja Víkinga að velli, 2:1, og hann fékk tvö M fyrir frammi- stöðu sína hjá Morgunblaðinu. Sævar, sem hefur samið við Breiðablik fyrir næsta tímabil, er næstmarkahæstur í deildinni en hann hefur gert átta af ellefu mörkum Leiknis á tímabilinu. Sævar er í liði umferðarinnar hjá Morgunblaðinu í þriðja skipti á þessu tímabili, en þeir Rasmus Christiansen, miðvörður Vals, og Höskuldur Gunnlaugsson, miðjumaður og fyrirliði Breiðabliks, eru einnig valdir í liðið í þriðja sinn. 10. umferð í Pepsi Max-deild karla 2021 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 24-5-1 Steinþór Már Auðunsson KA Brynjar Hlöðversson Leiknir R. Rasmus Christiansen Valur Elís Rafn Björnsson Stjarnan Orri Sveinn Stefánsson Fylkir Höskuldur Gunnlaugsson Breiðablik Eyjólfur Héðinsson Stjarnan Björn Daníel Sverrisson FH Ísak Snær Þorvaldsson ÍA Andri Rafn Yeoman Breiðablik Sævar Atli Magnússon Leiknir 2 2 2 3 3 3 Sævar bestur í 10. umferðinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.