Morgunblaðið - 30.06.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 30.06.2021, Blaðsíða 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2021 and i v e 35% AFSLÁTTUR 35% AFSLÁTTUR 100% NÁTTÚRULEGAR AFURÐIR 20% FERSKT KJÖT Kauptúni 3, Garðabæ | www.fisko.is Opið: Mán.-Fös. 10-19, Laug. 10-18, Sun. 12-18 ..kíktu í heimsókn DENTAL CARE SKIN COMPLEX STRENGTH & VITALITY 70 ÁRA Kristófer Einarsson fæddist 30. júní 1951 á Blönduósi og ólst upp á Skagaströnd til 14 ára aldurs. Þá flutti hann að heiman vestur til Ólafsvíkur og hóf lífsbaráttuna frekar ungur að árum. Hann réð sig til sjós til að byrja með og síðan lærði hann járnsmíði og lauk því námi og vann í áratugi við sitt fag og hefur unnið alla tíð sem verktaki. Síðustu 16 ár hefur Krist- ófer unnið fyrir Marel ehf. og líkar það mjög vel. Þegar Krissi varð 60 ára lét hann drauminn um mót- orhjólalífið í frístundum verða að veruleika og flutti inn tvö glæsileg Harley Davidson-hjól sem fá aldrei að vera rykfallin í skúrnum. FJÖLSKYLDA Eiginkona Kristófers er Guðrún Björg Ketilsdóttir, mannauðsfulltrúi hjá Þjónustumiðstöð rannsóknaverkefna. Þau eiga börnin Einar Óla viðskiptafræðing, f. 1980 og Elísabetu Ingu, fatahönnuð og framhaldsskólakennara, f. 1983. Fyrir átti Kristófer Mariu Yvonne, f. 1972 og Erlend, f. 1973, d. 1992. Kristófer verður að heiman og í sólbaði á af- mælisdaginn. Kristófer Einarsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú nýtur mikilla vinsælda og því tekur félagslífið óvenjumikinn tíma. Þú ert jákvæð/ur og því ganga nánustu sambönd þín sérstaklega vel þessa dagana. 20. apríl - 20. maí + Naut Stundum er gott að hugur ráði en stundum er betra að hlusta á rödd hjartans. Gættu þess að tala svo skýrt að aðrir þurfi ekki að velkjast í vafa um meiningu þína. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú hefur verið að velta fyrir þér ákveðnum hlutum og nú er komið að því að láta til skarar skríða. Heimurinn sér þig. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú verður að bregðast við óvænt- um fréttum með stillingu og hugsa þitt mál vandlega áður en þú afræður til hvaða að- gerða þú grípur. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Það eru ekki allir sem gera sér grein fyrir hversu mikla hæfileika þú hefur því hógværð þín hefur falið þá. Innsæi þitt er sjóðheitt í augnablikinu. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú ættir að gefa þér tíma til þess að staldra við og virða fyrir þér umhverfið, sem þú telur alla jafna sjálfsagt. Taktu breyt- ingum fagnandi. 23. sept. - 22. okt. k Vog Veltu því fyrir þér hvernig þú vilt sjá þér farborða. Reyndu að taka vel í hlutina, þótt erfitt sé og varastu að bera salt í sárin. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Það er hið besta mál að vera ánægður með sjálfan sig ef hrokinn er ekki með í för. Gefðu þér tíma til að rækta sálar- líf þitt en gættu þess að forðast allar öfgar í þeim efnum. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Kauptu listrænan hlut eða eitt- hvað falllegt fyrir heimili þitt í dag. Inn- og útganga nýrra persóna hrindir heppilegri atburðarás af stað í dag. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú munt vekja athygli í dag, sama hvað þú tekur þér fyrir hendur. Þú hefur ástæðu til að fagna góðum árangri. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þér er að takast að koma skikki á hlutina og átt hrós skilið fyrir allt það erf- iði sem þú hefur lagt á þig. Best er að taka strax ákvarðanir og teysta á innsæið. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þér var kennt að hætta strax við óraunhæf markmið – gleymdu þeim ráðum. Líttu fyrst í eigin barm, kannski talar þú bara ekki nógu afdráttarlaust. hlýjar tilfinningar til landsins eftir námsdvöl foreldra minna í landinu. Svo tala ég sænskuna reiprennandi því ég var að læra íslensku og sænsku á sama tíma sem krakki. Núna held ég að sjálfsögðu með Sví- um í fótboltanum í Evrópukeppn- inni.“ Örlygur flutti aftur heim til Ís- lands árið 2005 ásamt þáverandi eig- inkonu sinni og börnum sem voru orðin þrjú. Hann fór að starfa sjálf- stætt við hljóðvinnslu og tónlistar- upptökur. Árið 2011 hóf Örlygur störf hjá Origo (þá Nýherja) og starfar þar enn sem söluráðgjafi auk þess að taka að sér útsetningar, upp- tökur og hljóðblöndun í hljóðveri Ö rlygur Smári fæddist í Reykjavík 30. júní 1971 og fluttist þriggja mán- aða til Aix-en-Provence í Frakklandi þar sem foreldrar hans stunduðu nám. Árið 1975 fluttist fjölskyldan til Stokk- hólms í Svíþjóð til frekara náms og gekk þá Örlygur í Bergshamra- skóla auk þess að leika stöðu fram- herja í knattspyrnu með IFK Bergs- hamra og AIK við góðan orðstír. Svíþjóðardvölin stóð til ársins 1981 þegar flutt var til Íslands, nánar til- tekið í Vesturbæinn í Reykjavík, og þar fór Örlygur í Vesturbæjar- skólann og byrjaði í Knattspyrnu- félagi Reykjavíkur. „Það var bara yndislegt að koma heim og ég féll strax vel inn í hópinn og á góðar minningar frá þessum tíma. Góðir krakkar í Vesturbænum sem mér er enn hlýtt til.“ Eftir Vesturbæjarskólann var skólagangan hefðbundin fyrir Vest- urbæing þess tíma: Hagaskóli og Menntaskólinn í Reykjavík. Örlygur útskrifaðist úr Menntaskólanum í Reykjavík með stúdentspróf af eðl- isfræðibraut árið 1991. Síðan fór hann stuttlega í stjórnmálafræði í HÍ, en fór svo að vinna. Örlygur hefur alltaf haft mikinn áhuga á tónlist. „Amma átti píanó og gítar og líklega hefur áhuginn byrj- að þar. Við bræðurnir byrjuðum snemma að grúska í tónlist og ég hef alltaf verið að spila og hef gaman af því að semja lög.“ Örlygur starfaði um tíma í Hljóð- færahúsinu, sem verslunarstjóri hjá Skífunni, við sölu fasteigna hjá Mið- borg fasteignasölu og sem viðskipta- stjóri hjá Símanum. Árið 2001 flutt- ist Örlygur búferlum til Svíþjóðar með þáverandi eiginkonu sinni og dóttur. Hann stundaði þar nám í S.A.E. (School of Audio Engineer- ing) í hljóðvinnslu og upptökum í Stokkhólmi og útskrifaðist þaðan í janúar 2003. Hann fór strax að vinna við fagið í Stokkhólmi, bæði við tón- list og hljóðvinnslu fyrir sjónvarp. „Mér leið mjög vel í Svíþjóð og það var svolítið eins og að koma heim því við fjölskyldan höfum alltaf haft sínu, Poppvélinni, í Vesturbæ Reykjavíkur. Örlygur hefur samið og útsett fjöldann allan af vinsælum dægur- lögum fyrir íslenska tónlistarmenn og hefur tekið þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins og samið framlag Ís- lands í Eurovision í fjögur skipti (Tell Me 2000, This Is My Life 2008, Je Ne Sais Quoi 2010 og Ég á líf 2013). „Áhuginn á Eurovision kemur líka frá veru minni í Svíþjóð. Þeir eru eiginlega meiri Eurovision- áhugamenn en Íslendingar og þá er mikið sagt!“ Örlygur segist ekki nálgast það að semja Eurovision-lög út frá einhverri formúlu. „Ég vil bara semja gott lag og eini Euro- vision-ramminn er að lagið má ekki vera lengra en 3 mínútur. Þannig að ég set mig ekki í einhverjar stell- ingar, bara sem gott lag og sendi það af stað og sé svo hvað gerist.“ Nýjasta tónlistarafurð Örlygs er lagið Sumardans með Poppvélinni sem hefur hljómað á öldum ljósvak- ans undanfarnar vikur. „Lagið er inni á Spotify og er svona hress Örlygur Smári tónlistarmaður og söluráðgjafi hjá Origo – 50 ára Parið Hér eru Örlygur og Guðrún Valdís að njóta lífsins á góðri stundu. Syngjandi glaður með sumarsmell Horft til austurs Hér er Örlygur að drekka í sig fréttir frá austurblokk- inni, enda áhugamaður um sögu. Fótboltinn Örlygur styður sína menn Svía í Evrópukeppninni í fót- bolta, enda ólst hann að hluta upp í Svíþjóð og sterk taugin til Svíaríkis. 70 ára brúðkaupsafmæli eiga í dag, 30. júní 2021, hjónin Mundheiður Gunnarsdóttir, f. 23.2. 1932 á Hólmavík og Lýður Jónsson, f. 17.9. 1925 á Skriðinsenni, Óspakseyr- arhreppi í Strandasýslu. Þau gengu í hjóna- band 30. júní 1951 á Skagaströnd og byggðu sér heimili í Reykjavík hvar þau hafa búið alla tíð og eignuðust 4 dætur. Þær eru Gunn- hildur, f. 1952; Anna Jóna, f. 1958; Bryndís, f. 1962 og Jónína, f. 1969. Barnabörnin eru 10 talsins og barnabarnabörnin einnig 10. Mundheiður og Lýður eru nú nýlega flutt í Hrafnistu í Hafnarfirði þar sem þau njóta elliáranna saman. Fjölskyldan mun skála við þau í tilefni dagsins. Platínubrúðkaup Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.