Morgunblaðið - 30.06.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.06.2021, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2021 Í sumarskapi Þessi unga stúlka naut sólargeislanna á höfuðborgarsvæðinu með því að fara í handahlaup á Skólavörðustíg. Það er enda um að gera að nýta veðrið þegar það gerist sem best. Kristinn Magnússon Nú er stutt stund milli stríða. Þingi lok- ið en ekki langt í að kosningabaráttan hefjist. Fjarri dag- legum skarkala stjórnmálanna gefst tækifæri til að meta verk síðustu ára; hvar og hvernig náðist ár- angur og hvar ekki. En um leið búa sig undir átök komandi mánaða og ára; ydda hugmyndafræðina og gera nýja verkáætlun. Markmið mitt í stjórnmálum er einfalt; að hafa áhrif á framtíð samfélagsins með því að hrinda hugsjónum okkar sjálfstæðismanna í framkvæmd. Hljómar einfalt en getur orðið snúið í framkvæmd, ekki síst í ríkisstjórnarsamstarfi við aðra flokka. Þá skiptir skýr stefna og þingstyrkur mestu en einnig hæfileikinn til að koma til móts við ólík sjónarmið án þess að missa sjónar á hugsjónum. Fyrir stjórnmálamann er mikil- vægt að átta sig á því að aðstæður eru mismunandi og það er langt í frá sjálfgefið að þátttaka í ríkis- stjórn tryggi brautargengi stefnu- mála. Þátttaka í ríkisstjórn getur aldrei verið sjálfstætt markmið stjórnmálaflokks, jafnvel þótt ein- staka þingmenn láti sig dreyma um frama og vegtyllur. Tilgang- urinn er að tryggja framgang hug- sjóna og á stundum er árangursríkara að standa utan ríkis- stjórnar og fá svigrúm til að vökva ræturnar – huga að liðsskip- aninni og styrkja bak- landið. Stjórn- málaflokkur sem starfað hefur í 92 ár tjaldar ekki til einnar nætur – horfir lengra en rétt fram yfir næstu kosningar. Samkvæmisleikur – vonir og væntingar Í aðdraganda þingkosninga er ekki óeðlilegt að kjósendur velti því fyrir sér hvers konar ríkis- stjórn kunni að taka við völdum á komandi kjörtímabili. Mikið vatn á eftir að renna til sjávar áður en gengið verður að kjörborði og því eru vangaveltur um ríkisstjórn ekki mikið annað en samkvæmis- leikur sem endurspeglar vonir og væntingar. Og auðvitað ræður nið- urstaða kosninga mestu um hvers konar ríkisstjórn verður mynduð. Stuðningur við ríkisstjórn Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks er um 60% samkvæmt mælingu Gallup. Þetta er margfalt meiri stuðningur en síðustu fjórar ríkisstjórnir þar á undan nutu í aðdraganda kosninga. Það á því ekki að koma á óvart að margir kjósendur telji skynsamlegt að stjórnarflokkarnir endurnýi samstarfið að loknum kosningum. En svo einfalt er þetta ekki. Þegar málefnasamningur og verkaskipting nýrrar ríkisstjórnar lá fyrir undir lok nóvember 2017, sagði ég í niðurlagi pistils hér í Morgunblaðinu: „Fyrir okkur Sjálfstæðismenn skiptir mestu að störf og stefna nýrrar ríkisstjórnar taki mið af einkunnarorðum flokksins. Að rík- isstjórnin verði ríkisstjórn hins venjulega Íslendings – kennarans, sjómannsins, bóndans, iðnaðar- mannsins, verkakonunnar, hjúkr- unarfræðingsins, litla atvinnurek- andans. Að bakbein íslensks samfélags – millistéttin – skynji að ríkisstjórnin ætlar að standa vörð um lífskjör og sækja fram. Við þurfum að sannfærast um að með þátttöku í ríkisstjórn náum við ár- angri og höfum tækifæri til að tryggja framgang hugsjóna okk- ar.“ Forsenda þátttöku í ríkisstjórn Að loknum kosningum í septem- ber næstkomandi gildir hið sama og skrifað var fyrir tæpum fjórum árum. Sjálfstæðisflokkurinn á góða möguleika á því að setjast niður við samningsborðið við myndun ríkisstjórnar með aukinn þingstyrk og þar með meira bolmagn til að standa tryggan vörð um grunngildi flokksins. Ein forsenda þess að Sjálfstæð- isflokkurinn taki þátt í ríkisstjórn er að málefnasamningur og verk ríkisstjórnar, endurspegli skilning á samhengi skatta, ríkisútgjalda, hagvaxtar og velsældar. Að sam- keppnishæfni þjóðar ráðist ekki síst af öflugum innviðum, hófsemd í opinberum álögum, greiðu að- gengi að erlendum mörkuðum, skilvirkni í stjórnkerfinu og hag- kvæmum ríkisrekstri. Það þarf ekki mikla innsýn eða skilning á stefnu Sjálfstæðisflokks- ins til að átta sig á því að flokk- urinn getur ekki tekið þátt í ríkis- stjórn sem heldur áfram að ríkisvæða heilbrigðiskerfið, kemur í veg fyrir samþættingu og sam- vinnu sjálfstætt starfandi þjón- ustuaðila og hins opinbera – tekur hagsmuni kerfisins fram yfir hags- muni sjúkratryggðra (okkar allra) og undirbýr þannig jarðveg fyrir tvöfalt heilbrigðiskerfi, sem er eit- ur í beinum hvers sjálfstæðis- manns. Með sama hætti geta þing- menn flokksins ekki réttlætt stuðning við ríkisstjórn sem heldur sjálfstæðum fjölmiðlum í hel- greipum, þar sem hagsmunir ríkis- fyrirtækis ganga framar öllu öðru. Ríkisrekin fjölmiðlun gengur þvert á hugmyndir hægri manna og gref- ur undan borgaralegum öflum. Ekki síst þess vegna verður Sjálf- stæðisflokkurinn að spyrna við fót- um – loksins gæti einhver sagt. Og fleira skiptir máli þegar tek- in er afstaða til þess hvort rétt sé að taka þátt í myndun nýrrar rík- isstjórnar. Uppbygging mennta- kerfisins er eitt. Skynsamleg og sjálfbær nýting náttúruauðlinda annað. Jákvætt viðhorf til atvinnu- lífsins er skilyrði. Að gera launa- fólki kleift að taka með beinum hætti þátt í rekstri fyrirtækja er mikilvægt og byggja þannig fleiri stoðir undir fjárhagslegt sjálfstæði heimilanna, er lykillinn að hjarta sjálfstæðismanna. Og fleira skiptir miklu, en verður ótalið að þessu sinni. Innan jafnt sem utan ríkis- stjórnar er Sjálfstæðisflokkurinn regnhlíf þeirra sem vilja takmarka völd ríkisins, tryggja frelsi borg- aranna, standa vörð um öflugt vel- ferðarkerfi og hafa skilning á menningu og sögu lands og þjóðar. Á þessari regnhlíf heldur forysta flokksins með stuðningi þingmanna og almennra flokksmanna. Fá störf eru meira krefjandi – kalla á trú- mennsku og sannfæringu fyrir hugsjónum. Með þetta í huga verð- ur að ganga til kosninga og spila úr þeim spilum sem kjósendur gefa við kjörborðið. Eftir Óla Björn Kárason » Forysta flokksins heldur á regnhlífinni með stuðningi þing- manna. Fá störf eru meira krefjandi – kalla á trúmennsku og sannfæringu fyrir hugsjónum. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Vonir, væntingar og skyldur í ríkisstjórn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.