Morgunblaðið - 30.06.2021, Síða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2021
Í sumarskapi Þessi unga stúlka naut sólargeislanna á höfuðborgarsvæðinu með því að fara í handahlaup á Skólavörðustíg. Það er enda um að gera að nýta veðrið þegar það gerist sem best.
Kristinn Magnússon
Nú er stutt stund
milli stríða. Þingi lok-
ið en ekki langt í að
kosningabaráttan
hefjist. Fjarri dag-
legum skarkala
stjórnmálanna gefst
tækifæri til að meta
verk síðustu ára; hvar
og hvernig náðist ár-
angur og hvar ekki.
En um leið búa sig
undir átök komandi mánaða og
ára; ydda hugmyndafræðina og
gera nýja verkáætlun.
Markmið mitt í stjórnmálum er
einfalt; að hafa áhrif á framtíð
samfélagsins með því að hrinda
hugsjónum okkar sjálfstæðismanna
í framkvæmd. Hljómar einfalt en
getur orðið snúið í framkvæmd,
ekki síst í ríkisstjórnarsamstarfi
við aðra flokka. Þá skiptir skýr
stefna og þingstyrkur mestu en
einnig hæfileikinn til að koma til
móts við ólík sjónarmið án þess að
missa sjónar á hugsjónum.
Fyrir stjórnmálamann er mikil-
vægt að átta sig á því að aðstæður
eru mismunandi og það er langt í
frá sjálfgefið að þátttaka í ríkis-
stjórn tryggi brautargengi stefnu-
mála. Þátttaka í ríkisstjórn getur
aldrei verið sjálfstætt markmið
stjórnmálaflokks, jafnvel þótt ein-
staka þingmenn láti sig dreyma
um frama og vegtyllur. Tilgang-
urinn er að tryggja framgang hug-
sjóna og á stundum er
árangursríkara að
standa utan ríkis-
stjórnar og fá svigrúm
til að vökva ræturnar
– huga að liðsskip-
aninni og styrkja bak-
landið. Stjórn-
málaflokkur sem
starfað hefur í 92 ár
tjaldar ekki til einnar
nætur – horfir lengra
en rétt fram yfir
næstu kosningar.
Samkvæmisleikur
– vonir og væntingar
Í aðdraganda þingkosninga er
ekki óeðlilegt að kjósendur velti
því fyrir sér hvers konar ríkis-
stjórn kunni að taka við völdum á
komandi kjörtímabili. Mikið vatn á
eftir að renna til sjávar áður en
gengið verður að kjörborði og því
eru vangaveltur um ríkisstjórn
ekki mikið annað en samkvæmis-
leikur sem endurspeglar vonir og
væntingar. Og auðvitað ræður nið-
urstaða kosninga mestu um hvers
konar ríkisstjórn verður mynduð.
Stuðningur við ríkisstjórn
Vinstri grænna, Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks er um 60%
samkvæmt mælingu Gallup. Þetta
er margfalt meiri stuðningur en
síðustu fjórar ríkisstjórnir þar á
undan nutu í aðdraganda kosninga.
Það á því ekki að koma á óvart að
margir kjósendur telji skynsamlegt
að stjórnarflokkarnir endurnýi
samstarfið að loknum kosningum.
En svo einfalt er þetta ekki.
Þegar málefnasamningur og
verkaskipting nýrrar ríkisstjórnar
lá fyrir undir lok nóvember 2017,
sagði ég í niðurlagi pistils hér í
Morgunblaðinu:
„Fyrir okkur Sjálfstæðismenn
skiptir mestu að störf og stefna
nýrrar ríkisstjórnar taki mið af
einkunnarorðum flokksins. Að rík-
isstjórnin verði ríkisstjórn hins
venjulega Íslendings – kennarans,
sjómannsins, bóndans, iðnaðar-
mannsins, verkakonunnar, hjúkr-
unarfræðingsins, litla atvinnurek-
andans. Að bakbein íslensks
samfélags – millistéttin – skynji að
ríkisstjórnin ætlar að standa vörð
um lífskjör og sækja fram. Við
þurfum að sannfærast um að með
þátttöku í ríkisstjórn náum við ár-
angri og höfum tækifæri til að
tryggja framgang hugsjóna okk-
ar.“
Forsenda þátttöku í ríkisstjórn
Að loknum kosningum í septem-
ber næstkomandi gildir hið sama
og skrifað var fyrir tæpum fjórum
árum. Sjálfstæðisflokkurinn á góða
möguleika á því að setjast niður
við samningsborðið við myndun
ríkisstjórnar með aukinn þingstyrk
og þar með meira bolmagn til að
standa tryggan vörð um grunngildi
flokksins.
Ein forsenda þess að Sjálfstæð-
isflokkurinn taki þátt í ríkisstjórn
er að málefnasamningur og verk
ríkisstjórnar, endurspegli skilning
á samhengi skatta, ríkisútgjalda,
hagvaxtar og velsældar. Að sam-
keppnishæfni þjóðar ráðist ekki
síst af öflugum innviðum, hófsemd
í opinberum álögum, greiðu að-
gengi að erlendum mörkuðum,
skilvirkni í stjórnkerfinu og hag-
kvæmum ríkisrekstri.
Það þarf ekki mikla innsýn eða
skilning á stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins til að átta sig á því að flokk-
urinn getur ekki tekið þátt í ríkis-
stjórn sem heldur áfram að
ríkisvæða heilbrigðiskerfið, kemur
í veg fyrir samþættingu og sam-
vinnu sjálfstætt starfandi þjón-
ustuaðila og hins opinbera – tekur
hagsmuni kerfisins fram yfir hags-
muni sjúkratryggðra (okkar allra)
og undirbýr þannig jarðveg fyrir
tvöfalt heilbrigðiskerfi, sem er eit-
ur í beinum hvers sjálfstæðis-
manns. Með sama hætti geta þing-
menn flokksins ekki réttlætt
stuðning við ríkisstjórn sem heldur
sjálfstæðum fjölmiðlum í hel-
greipum, þar sem hagsmunir ríkis-
fyrirtækis ganga framar öllu öðru.
Ríkisrekin fjölmiðlun gengur þvert
á hugmyndir hægri manna og gref-
ur undan borgaralegum öflum.
Ekki síst þess vegna verður Sjálf-
stæðisflokkurinn að spyrna við fót-
um – loksins gæti einhver sagt.
Og fleira skiptir máli þegar tek-
in er afstaða til þess hvort rétt sé
að taka þátt í myndun nýrrar rík-
isstjórnar. Uppbygging mennta-
kerfisins er eitt. Skynsamleg og
sjálfbær nýting náttúruauðlinda
annað. Jákvætt viðhorf til atvinnu-
lífsins er skilyrði. Að gera launa-
fólki kleift að taka með beinum
hætti þátt í rekstri fyrirtækja er
mikilvægt og byggja þannig fleiri
stoðir undir fjárhagslegt sjálfstæði
heimilanna, er lykillinn að hjarta
sjálfstæðismanna. Og fleira skiptir
miklu, en verður ótalið að þessu
sinni.
Innan jafnt sem utan ríkis-
stjórnar er Sjálfstæðisflokkurinn
regnhlíf þeirra sem vilja takmarka
völd ríkisins, tryggja frelsi borg-
aranna, standa vörð um öflugt vel-
ferðarkerfi og hafa skilning á
menningu og sögu lands og þjóðar.
Á þessari regnhlíf heldur forysta
flokksins með stuðningi þingmanna
og almennra flokksmanna. Fá störf
eru meira krefjandi – kalla á trú-
mennsku og sannfæringu fyrir
hugsjónum. Með þetta í huga verð-
ur að ganga til kosninga og spila
úr þeim spilum sem kjósendur
gefa við kjörborðið.
Eftir Óla Björn
Kárason » Forysta flokksins
heldur á regnhlífinni
með stuðningi þing-
manna. Fá störf eru
meira krefjandi – kalla
á trúmennsku og
sannfæringu fyrir
hugsjónum.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Vonir, væntingar og skyldur í ríkisstjórn