Morgunblaðið - 30.06.2021, Side 12

Morgunblaðið - 30.06.2021, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Öllum getaorðið ámistök, nema ef til vill þeim sem ekkert gera - og jafnvel það væru í eðli sínu mistök. En stundum eru mistökin ítrekuð, stór og smá, og lýsa þá frekar við- horfi eða afstöðu og hætta um leið að teljast mistök. Þegar horft er yfir feril Rík- isútvarpsins á undanförnum árum hljóta að minnsta kosti að vakna efasemdir um að þau lögbrot sem stofnunin hefur framið séu einungis saklaus og afsakanleg mis- tök. Þau séu frekar eitthvað verra. Getur verið að lög- brotin stafi af viðhorfi starfsmanna og innbyggðri afstöðu stofnunarinnar sjálfrar til sín og annarra? Getur verið að ítrekuð „mis- tök“ stafi af því að innan stofnunarinnar hafi orðið til það viðhorf að hún sé svo merkileg og hafi þá stöðu í þjóðfélaginu að hún sé í raun hafin yfir lög? Það er í það minnsta fullt tilefni til að velta þessu fyrir sér nú þegar Ríkisútvarpið verður uppvíst að enn einu brotinu. Og enn tengist það auglýsingum, því þó að brot- in séu margvísleg og misjöfn þá tengjast þau ósjaldan auglýsingum eða jafnvel kostun. Í gær birti Fjölmiðlanefnd ákvörðun nr. 1/2021 með þeirri „niðurstöðu að Ríkis- útvarpið ohf. hafi brotið gegn 5. mgr. 41. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 með birtingu auglýsinga í tengslum við Krakkafréttir, sjónvarpsþátt sem er ætlað- ur börnum yngri en 12 ára og er sýndur á RÚV.“ Þetta brot, líkt og sum önnur, virðist stafa af því að Ríkisútvarpið telur sjálfsagt að það dansi almennt á mörkum hins löglega, sé sí- fellt að láta reyna á mörkin í stað þess að taka þá afstöðu að vera örugglega réttum megin laganna, eins og sjálf- sagt er að krefjast af opin- berri stofnun sem árlega fær milljarða króna frá skatt- greiðendum. Önnur nýleg dæmi um brot Ríkisútvarpsins tengd auglýsingum og kostun eru þegar Fjölmiðlanefnd komst að þeirri niðurstöðu að Ríkisútvarpinu hefði verið óheimilt að fá kostun á sjón- varpsþátt og sömuleiðis að því hefði verið óheimilt að rjúfa þátt með auglýs- ingum. Enn fremur hefur Fjölmiðlanefnd komist að þeirri niðurstöðu að Ríkisútvarpið hafi brotið gegn lögum um hámarksmagn auglýsinga á hverri klukkustund. Loks má nefna - og er þetta þó fjarri því tæmandi upptalning - að Ríkisútvarp- ið var sektað vegna „ófull- nægjandi birtingar gjald- skrár fyrir auglýsingar og kostanir í tengslum við heimsmeistaramót karla í knattspyrnu, HM 2018 á RÚV“. Síðastnefnda brotið var mjög alvarlegt gagnvart öðrum á markaðnum þó að það hljómi sakleysislega í niðurstöðu Fjölmiðla- nefndar. Þá var sektin sem Ríkisúvarpinu var gert að greiða smávægileg miðað við tjónið sem stofnunin olli öðr- um á markaðnum og miðað við þann ávinning sem hún hafði af lögbrotinu. Þetta er raunar gegnumgangandi með þær sektir sem lagðar eru á stofnunina, þær eru það lágar að þær hafa engin áhrif á brotaviljann. Ríkisútvarpið starfar á markaði, nánar tiltekið á fjölmiðlamarkaði og á aug- lýsingamarkaði. Það er um- hugsunarvert, svo ekki sé meira sagt, að þessi ríkis- stofnun, sem fær um fimm milljarða króna á ári frá skattgreiðendum og er auk þess leyft að afla milljarða króna í auglýsingatekjur, skuli ganga fram af því of- forsi á auglýsingamarkaði sem dæmin sanna. Deilt hefur verið um það, meðal annars á Alþingi fyrr á þessu ári, hvort að Ríkis- útvarpinu ætti að vera heim- ilt að afla sér auglýsinga- tekna. Inn í þá umræðu væri eðlilegt að tekin væri fram- ganga Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Stofn- unin hefur ekki gengið gæti- lega fram og reynt að halda sig innan ramma laga og heilbrigðra viðskiptahátta. Þvert á móti hefur hún ítrek- að gerst brotleg við lög, fyrir utan almenna framgöngu á þessum markaði sem er sér- staklega skaðleg fyrir þá einkareknu miðla sem enn reyna þó að halda úti starf- semi í samkeppni við ríkis- rekið ofureflið. Lögbrot Ríkis- útvarpsins geta tæpast lengur talist mistök} Ítrekuð lögbrot É g hef ákveðið í samráði við Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins að ráðast í tilraunaverkefni um sér- staka móttöku fyrir konur innan heilsugæslunnar. Vísbendingar eru um að þörfum kvenna fyrir heilbrigðisþjón- ustu sé ekki alltaf mætt sem skyldi. Bent hefur verið á niðurstöður rannsókna sem sýna þetta, ábendingar þess efnis hafa borist ráðuneytinu og orðið hefur almenn vitundarvakning sem dregið hefur fram mikilvægi þess að bæta úr á þessu sviði. Í fyrra fól ég Finnborgu S. Steinþórsdóttur, doktor í kynjafræði, að vinna úttekt þar sem heilsufar kynjanna var kortlagt úr frá kynja- og jafnréttissjónarmiðum og lagt mat á það hvort heilbrigðisþjónustan mæti ólíkum þörfum kynjanna. Að mínu mati var bæði tímabært og mikilvægt að leggjast í slíka vinnu. Niðurstaða Finnborgar er að konur virðast búa við lakara heilsufar og verri lífs- gæði en karlar og að ástæður þess megi rekja að hluta til félagslegrar og efnahagslegrar stöðu þeirra í samfélaginu, þ.e. kynjaðra áhrifaþátta sem hafa áhrif á heilsu og líðan. Í skýrslunni eru tillögur að aðgerðum og heilbrigðisráðu- neytið vinnur nú að framkvæmd þeirra. Þar er meðal ann- ars lagt til að efla þurfi þekkingu og færni heilbrigðis- starfsfólks til að greina áhrif samtvinnaðra þátta á heilsu og velferð, og hvernig kynjaðar staðalmyndir geta haft áhrif á heilsu og aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Ákvörðun um að þróa verkefni um kvennamóttöku í heilsugæslunni fellur vel að þessari tillögu úr skýrslu Finn- borgar. Heilsugæslan hefur fengið 60 milljóna króna viðbótarframlag vegna verkefnisins um kvennamóttöku, þar af fær Þróunarmiðstöð ís- lenskrar heilsugæslu 15 milljónir króna. Hlut- verk þróunarmiðstöðvarinnar verður að tryggja þekkingaröflun á þessu sviði og koma henni á framfæri á landsvísu. Sem dæmi um málefni sem mikilvægt er að heilsugæslan sinni og varða konur sérstaklega eru breytingaskeið kvenna, upplýsingar um getnaðarvarnir, ráðgjöf um ofbeldi og afleið- ingar þess og ýmsir sjúkdómar sem herja sér- staklega á konur, svo eitthvað sé nefnt. Vegna þessa hefur verið bent á að sérstakar móttökur fyrir konur í heilsugæslu gætu verið góð leið til að uppfylla betur þarfir þeirra fyrir þjónustu. Í því tilraunaverkefni sem nú hefur verið ákveð- ið að ráðast í er miðað við opnun einnar kvennamóttöku innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem mönnuð verði stöðugildum heilbrigðisstarfsfólks sem hefur þekk- ingu á viðfangsefninu, s.s. læknum, hjúkrunarfræðingum eða ljósmæðrum. Undirbúningur að opnun kvenna- móttöku hefst nú þegar. Með því að taka markviss skref í þá átt að stuðla að bættri heilbrigðisþjónustu við öll kyn og stuðla að úrbótum á þessu sviði bætum við heilsu og líðan, og aukum þar með jafnrétti kynjanna. Svandís Svavarsdóttir Pistill Móttaka fyrir konur í heilsugæslunni Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is R ykkorn frá Sahara hafa oft borist til Íslands. Þetta kemur fram í nýrri vísindagrein um fok ryks og stórra kvarsagna frá Sahara og hingað í Nature Scienti- fic Reports. Höfundar greinarinnar eru György Varga, Pavla Dagsson- Waldhauserová, Fruzsina Holman- Gresina og Ágústa Helgadóttir. Vísindamennirnir starfa við ELKH- rannsóknamiðstöðina í stjörnufræði og jarðvísindum í Búdapest í Ungverjalandi, Land- búnaðarháskóla Íslands og hjá Landgræðslunni. Þeir lýstu því hvernig ryk- storma frá Sahara hefur orðið vart á Íslandi á undanförnum 15 árum. Fjallað er um veðurfræðilegan bakgrunn stormanna, leiðir sem rykagnirnar ferðast, möguleg upp- runasvæði og almenna eiginleika ryksins. Alls voru greindir 15 ryk- stormar og sýndi greiningin að fín- korna ryk getur ferðast þúsundir kílómetra frá Sahara. Rykagnir sem safnað var á Keldnaholti þeg- ar sterkir rykstormar geisuðu sýndu að það voru ekki aðeins agn- arsmá rykkorn sem komu þessa löngu leið heldur einnig stærri agnir sem voru allt að 0,1 mm í þvermál. Ljóst þykir að loftslagsbreyt- ingar hafa m.a. haft áhrif á loft- strauma, flutningskerfi andrúms- loftsins. Það þótti einkar mikilvægt hvað vísindamennirnir fundu mikið af stórum, loftbornum rykkornum. Áhrif loftslagsbreytinga Niðurstöðurnar benda til þess að suður-norðlægir vindar séu orðnir meira ráðandi en áður og flytji heitt loft til heimskautssvæð- isins. Um leið jafnast út hitamunur á milli norður- og suðurslóða sem hefur áhrif á loftstrauma. Áreiðan- legar veðurfarsmælingar eru til allt frá 9. áratug 19. aldar. Meðal- hiti á jörðinni hefur hækkað um nærri eitt stig (°C) síðan þá. Megn- ið af þessari hlýnun hefur orðið á síðustu 10-15 árum. Hún dreifist ekki jafnt og er hlýnun á norður- slóðum mun meiri en á suðlægari slóðum. Ein afleiðing af þessu eru sterkir vindar frá eyðimerkur- svæðum Norður-Afríku sem geta borið mikið ryk norður á bóginn. Þessa hefur stundum orðið vart á meginlandi Evrópu. Í Ungverja- landi hafa fundist tengsl á milli skotvinda í háloftunum og meira foks af ryki frá Sahara til svæð- isins við Karpatafjöll. Það þykir þó einkar áhugavert að rykið frá Sa- hara hafi svo oft sem raun ber vitni fokið alla leið til Íslands. Þá þykir það undirstrika mikilvægi niðurstaðnanna að grein- ing á hundruðum þúsunda smærri og stærri steinagna sýna að mun meira af stórum ögnum berst út í andrúmsloftið en áður var talið. Þessi stærri korn draga í sig geisla sólarinnar og hitna fremur en að endurkasta sólargeislunum eins og smærri rykkorn gera. Það stuðlar að hlýnun andrúmsloftins í stað þess að kæla það. Niðurstaðan er sú að taka verði tillit til þeirra áhrifa í veðurfarslíkönum. Ísland er helsta upprunasvæði ryks í Evrópu. Hér eru 44.000 fer- kílómetra eyðimerkur og að með- altali er jarðvegsfok hér í 135 daga á ári. Sýni af íslensku ryki voru rannsökuð til að greina þau frá ryki frá Sahara-eyðimörkinni. Hægt er að greina með sérstökum tækjabúnaði hvaðan rykið er komið og meira að segja hvar á Íslandi einstök rykkorn eru upprunnin út frá stærð þeirra og lögun. Rykið fýkur hingað frá Sahara-eyðimörk Gervihnattamynd/NASA Loftflutningar Á þessari gervihnattamynd sést hvernig rykský er á leið frá Sahara-eyðimörkinni til Íslands. Myndin var tekin 24. apríl 2019. Dr. Pavla Dags- son-Waldhause- rová, loftgæða- og ryksérfræð- ingur, er einn ís- lensku vísinda- mannanna sem tóku þátt í rannsókninni og skrifuðu greinina. Hún er á meðal stofn- enda Rykrannsóknafélags Íslands sem stuðlaði að fjölþjóðlegu sam- starfi vísindamanna. „Við munum örugglega halda þessum rannsóknum áfram,“ sagði Pavla. Hún hóf rykrann- sóknir 2010-2011 í samvinnu við Ólaf Arnalds prófessor við LBHÍ og Harald Ólafsson prófessor við HÍ. Pavla fékk styrk frá Rannís til verkefnisins og sagðist mundu leita stuðnings við frekari rann- sóknir á þessu sviði. Þessar rannsóknir og fleiri hafa þegar skilað mikilvægum niðurstöðum um ryk og uppruna þess. Meiri rannsóknir RYKRANNSÓKNIR Pavla Dagsson- Waldhauserová

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.