Morgunblaðið - 30.06.2021, Qupperneq 22
Eitt
ogannað
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2021
Pepsi Max-deild kvenna
Þór/KA – Fylkir........................................ 0:0
ÍBV – Þróttur R........................................ 1:2
Valur – Keflavík........................................ 4:0
Staðan:
Valur 8 5 2 1 20:11 17
Breiðablik 7 5 0 2 27:11 15
Selfoss 7 4 1 2 13:10 13
Þróttur R. 8 3 3 2 18:14 12
Stjarnan 7 3 1 3 9:11 10
ÍBV 8 3 0 5 13:17 9
Keflavík 8 2 3 3 8:13 9
Fylkir 8 2 3 3 8:16 9
Þór/KA 8 2 2 4 7:12 8
Tindastóll 7 1 1 5 5:13 4
EM karla 2021
16-liða úrslit:
England - Þýskaland................................ 2:0
Svíþjóð – Úkraína ............................ (frl.) 1:2
_ England mætir Úkraínu í 8-liða úrslitum
í Róm 3. júlí.
50$99(/:+0$
Úrslitakeppni NBA
Vesturdeild, úrslit:
Phoenix - LA Clippers ..................... 102:116
_ Staðan er 3:2 fyrir Phoenix.
>73G,&:=/D
Knattspyrna
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Sauðárkróksvöllur: Tindastóll – Selfoss . 18
Kópavogur: Breiðablik – Stjarnan...... 19.15
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Fagverksvöllur: Afturelding – ÍA....... 19.15
2. deild karla:
Fjarðabyggðarhöllin: Leiknir F. – KV.... 17
Ólafsfjörður: KF – Fjarðabyggð ............. 18
Húsavík: Völsungur – Magni............... 19.15
BLUE-völlur: Reynir S. – Njarðvík ... 19.15
Ásvellir: Haukar – ÍR........................... 19.15
Vogaídýfuvöllur: Þróttur R. – Kári .... 19.15
Í KVÖLD!
Knattspyrnumaðurinn Brynjar Ingi
Bjarnason er að ganga til liðs við
ítalska B-deildarfélagið Lecce. Ak-
ureyri.net greindi frá þessu í gær.
Miðvörðurinn ungi, sem er ein-
ungis 21 árs gamall, er uppalinn hjá
KA á Akureyri en hefur leikið með
bæði Einherja og Magna að láni frá
KA undanfarin ár. Hann lék alla
þrjá landsleiki Íslands í maí/júní og
hefur eftir það verið sterklega orð-
aður við erlend félög.
Lecce hafnaði í fjórða sæti
ítölsku B-deildarinnar á síðustu
leiktíð. sport@mbl.is
Brynjar Ingi á
leið til Ítalíu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ítalía Brynjar Ingi Bjarnason í leik
með KA gegn Stjörnunni.
Selfyssingurinn Guðmundur Þór-
arinsson er í liði umferðarinnar í
bandarísku MLS-deildinni í knatt-
spyrnu. Guðmundur lék vel fyrir
New York City í 2:1-sigri á DC
United á sunnudaginn var.
Guðmundur og félagar hafa ver-
ið á fínu skriði í deildinni og unnið
þrjá leiki af síðustu fjórum og sitja
þeir í sjöunda sæti með 17 stig, átta
stigum á eftir toppliði Seattle.
Guðmundur var í liði Íslands í
vináttuleik gegn Póllandi fyrr í
mánuðinum og átti þátt í báðum
mörkum Íslands í 2:2-jafntefli.
Valinn í lið um-
ferðarinnar
AFP
Örvfættur Guðmundur Þórarinsson
í landsleiknum gegn Póllandi.
FÓTBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Elín Metta Jensen gerði sér lítið fyr-
ir og skoraði þrennu fyrir Val þegar
liðið tók á móti Keflavík í úrvalsdeild
kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max-
deildinni, á Origo-vellinum á Hlíðar-
enda í áttundu umferð deildarinnar í
gær.
Landsliðsframherjinn skoraði
fyrstu þrjú mörk leiksins áður en
Sólveig Larsen innsiglaði sigur Vals-
kvenna með marki á lokamínútunum
en leiknum lauk með 4:0-sigri Vals
og var sigurinn aldrei í hættu.
„Elín var gagnrýnd nokkuð fram-
an af móti fyrir að vera lengi í gang,
en hún er nú komin með sjö mörk og
er markahæst allra í deildinni ásamt
DB Pridham hjá ÍBV,“ skrifaði Jó-
hann Ingi Hafþórsson m.a. í umfjöll-
un sinni um leikinn á mbl.is.
Valur fer með sigrinum upp í 17
stig í efsta sæti deildarinnar en
Keflavík er í sjöunda sætinu með 9
stig.
_ Elín Metta Jensen hefur nú
skorað sex þrennur í efstu deild frá
því hún lék sinn fyrsta meistara-
flokksleik í júlí 2010 en hún á að baki
158 leiki í efstu deild þar sem hún
hefur skorað 118 mörk.
Fyrsti sigur Þróttara
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
reyndist hetja Þróttar úr Reykjavík
þegar liðið heimsótti ÍBV á Há-
steinsvöll í Vestmannaeyjum.
Leiknum lauk með 2:1-sigri Þrótt-
ara en Ólöf Sigríður skoraði sig-
urmark leiksins á 81. mínútu þegar
hún fylgdi eftir eigin vítaspyrnu sem
Auður Scheving, markvörður ÍBV,
varði vel.
Eyjakonur geta nagað sig í hand-
arbökin fyrir að hafa ekki fengið
neitt úr úr leiknum eftir að hafa
brennt af tveimur vítaspyrnum, í
stöðunni 1:0 og 1:2.
„Eyjakonur fengu svo tækifæri til
þess að jafna metin í uppbótartíma
þegar þær fengu vítaspyrnu en Íris
Dögg í marki Þróttara var ákveðin í
að fá ekki mark á sig úr víta-
spyrnum í kvöld og gerði sér lítið
fyrir og greip spyrnuna hjá Liönu
Hinds,“ skrifaði Sara Rós Ein-
arsdóttir m.a. í umfjöllun sinni um
leikinn á mbl.is.
Þróttarar fara með sigrinum upp í
fjórða sæti deildarinnar með 12 stig
en ÍBV er í því sjötta með 9 stig.
_ Þetta var fyrsti sigur Þróttar
gegn ÍBV síðan liðin mættust fyrst í
nóvember 2004. Fyrir leik gærdags-
ins hafði ÍBV unnið fimmtán sinnum
og sex sinnum höfðu liðin gert jafn-
tefli.
Tókst ekki að nýta yfirburðina
Þór/KA mistókst að koma sér úr
fallsæti þegar liðið tók á móti Fylki á
SaltPay-vellinum á Akureyri en
leiknum lauk með markalausu jafn-
tefli.
Akureyringar voru sterkari aðilinn
í leiknum og áttu meðal annars
skalla í slá í síðari hálfleik en þeim
tókst ekki að nýta yfirburði sína í
leiknum og jafntefli því niðurstaðan.
„Ljósustu punktarnir í leiknum
voru varnarleikur og vinnusemi
Fylkiskvenna. Miðverðirnir Sæunn
Björnsdóttir og Kolbrún Tinna Eyj-
ólfsdóttir voru öflugir og María Eva
Eyjólfsdóttir studdi vel við þær allan
seinni hálfleikinn,“ skrifaði Einar
Sigtryggsson m.a. í umfjöllun sinni
um leikinn á mbl.is.
Þór/KA er áfram í níunda sæti
deildarinnar með 8 stig en Fylkir er
í því áttunda með 9 stig.
_ Þór/KA hefur gengið afar illa á
heimavelli í síðustu leikjum sínum en
liðið hefur aðeins fengið 1 stig af 12
mögulegum í síðustu fjórum heima-
leikjum sínum.
Valskonur á toppnum
- Eyjakonur brenndu af tveimur vítaspyrnum þegar Þróttur kom í heimsókn
- Þór/KA og Fylki tókst ekki að koma boltanum í netið í fallbaráttuslagnum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þrenna Landsliðsframherjinn Elín Metta Jensen kemur Val yfir gegn Keflavík á Hlíðarenda, en hún bætti síðar við tveimur mörkum í leiknum.
VALUR – KEFLAVÍK 4:0
1:0 Elín Metta Jensen 21.
2:0 Elín Metta Jensen 35.
3:0 Elín Metta Jensen 57.
4:0 Sólveig Larsen 84.
MM
Elín Metta Jensen (Val)
Mary Alice Vignola (Val)
M
Sandra Sigurðardóttir (Val)
Mist Edvardsdóttir (Val)
Ásdís Karen Halldórsdóttir (Val)
Sólveig Larsen (Val)
Anita Lind Daníelsdóttir (Keflavík)
Marín Rún Guðmundsdóttir (Keflavík)
Dómari: Eiður Ottó Bjarnason – 7
Áhorfendur: Á að giska 100.
ÍBV – Þróttur R. 1:2
1:0 Delaney Pridham 25.
1:1 Linda Líf Boama 47.
1:2 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 81
MM
Íris Dögg Gunnarsdóttir (Þrótti)
Katherine Cousins (Þrótti)
Liana Hinds (ÍBV)
M
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir ((Þrótti)
Linda Líf Boama ((Þrótti)
Delaney Pridham (ÍBV)
Hanna Kallmaier (ÍBV)
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason – 6.
Áhorfendur: 169.
ÞÓR/KA – FYLKIR 0:0
M
Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA)
Hulda Karen Ingvarsdóttir (Þór/KA)
Saga Líf Sigurðardóttir (Þór/KA)
Sæunn Björnsdóttir (Fylki)
Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir (Fylki)
Fjolla Shala (Fylki)
María Eva Eyjólfsdóttir (Fylki)
Dómari: Elías Ingi Árnason - 8.
Áhorfendur: 196.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/
fotbolti.
_ Hörður Axel Vilhjálmsson úr
Keflavík og Sara Rún Hinriksdóttir,
úr Haukum, voru kjörin bestu leik-
menn Íslandsmótsins í körfuknatt-
leik. Verðlaunin voru afhent á Grand
hótel í gær en Sara Rún er stödd er-
lendis og gat því ekki verið viðstödd.
Elísabeth Ýr Ægisdóttir úr Haukum
og Styrmir Snær Þrastarson úr Þór
Þorlákshöfn þóttu bestu ungu leik-
mennirnir en leikmenn í deildunum
sjá um að kjósa.
Lárus Jónsson hjá Þór Þorlákshöfn
var kjörinn besti þjálfarinn í efstu
deild karla og Ólafur J. Sigurðsson
hjá Val í efstu deild kvenna, en liðin
urðu bæði Íslandsmeistarar.
Á mbl.is/sport/korfubolti má sjá
hverjir skipa úrvalsliðin og þar er
einnig að finna viðtöl þessu tengd.
_ Sundmaðurinn Róbert Ísak Jóns-
son verður á meðal keppenda á
Paralympics, Ólympíumóti fatlaðra,
sem fram fer í Tókýó í Japan dagana
24. águst-5. september. Róbert Ísak
verður því fimmti íslenski keppand-
inn en þau Már Gunnarsson, Thelma
Björg Björnsdóttir, Bergrún Ósk
Aðalsteinsdóttir og Patrekur Andrés
Axelsson munu einnig taka þátt fyrir
Íslands hönd. .
_ Lionel Messi skoraði tvívegis þeg-
ar Argentína tryggði sér efsta sæti
A-riðils í Suður-Ameríku-bikarnum,
Copa America með 4:1-sigri á Bóli-
víu.
_ Ómar Ingi Magnússon, marka-
kóngur þýsku 1. deildarinnar í hand-
bolta, hefur framlengt samning sinn
við Magdeburg til ársins 2026. Hann
var áður með samning til ársins
2024.