Morgunblaðið - 30.06.2021, Qupperneq 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2021
H
verjum hefði dottið í hug
fyrir 20 árum að
bílahasarmyndin The
Fast and the Furious
yrði að níu mynda syrpu einhverra
dýrustu hasarmynda sögunnar og að
bílahasarinn yrði að slíkum súrreal-
isma að árið 2021 væru menn í sport-
bíl úti í geimnum að reyna að keyra á
gervihnött? Líklega ekki margir en
svona er nú staðan. Með hverri mynd
syrpunnar hefur hasarinn orðið fá-
ránlegri (þið munið eftir kafbátnum í
áttundu myndinni og hamaganginum
á frosnu Mývatni, er það ekki?) en
segja má að fáránleikinn nái nýjum
hæðum í nýjustu myndinni þegar
tveir úr „fjölskyldunni“ eru sendir út
í geim á sportbíl, sem fyrr segir, með
eldflaugarhreyfil á þakinu. Og lifa
það af, auðvitað.
Já, fjölskyldunni skrifa ég með
gæsalöppum því í öllum látunum, elt-
ingaleikjunum, skothríðunum og lim-
lestingunum hefur alltaf verið lögð
áhersla á fjölskylduna og mikilvægi
hennar og að hópurinn sem saman
hefur lent í hinum bjánalegustu æv-
intýrum sé álíka náinn og alvöru fjöl-
skylda. Vin Diesel rymur reglulega
um mikilvægi fjölskyldunnar og
bregður varla svip enda svo til gjör-
sneyddur leikhæfileikum. En svo
lengi sem þessi misheppnaða tilfinn-
ingasemi er í lágmarki heldur has-
arinn manni við efnið og það gerir
hann vissulega í F9. Því miður er lop-
inn teygður alltof mikið inni á milli
hasaratriða og klisjurnar eru þreyt-
andi.
Vin Diesel leikur sem fyrr hinn
svellkalda Dominic „Dom“ Torretto
sem er virkilega góður bifvélavirki og
enn betri bílstjóri. Í grófkornóttu
upphafsatriði og litdaufu (svo maður
fatti nú örugglega að það á að gerast í
gamla daga) sést faðir hans deyja í
kappakstri og í ljós kemur að Dom á
yngri bróður, Jakob. Dom er stungið
í steininn fyrir að ganga í skrokk á
manninum sem olli dauða föður hans
og kemst svo að því að Jakob er með
óhreint mjöl í pokahorninu. Jakob er
gerður útlægur en snýr aftur, áratug-
um síðar sem ægilegt og íturvaxið ill-
menni sem vill ná sér niður á stóra
bróður. Bræður munu berjast og allt
það og eru auk þess með pabbakomp-
lexa þrátt fyrir að vera miðaldra
vöðvatröll.
Jakob er með djöfullegt ráða-
brugg, vill komast yfir eitthvert kúlu-
laga tæki og stjórna með því öllum
heimsins vopnum og varnarkerfum.
Mun hann þá hafa heiminn í hendi sér
ásamt skaðræðiskvendinu Cipher og
illkvittnum syni ónefnds einræðis-
herra. Eða eitthvað í þá veru, þunn
grunnsagan skiptir svo sem engu
máli þegar upp er staðið. Upp skjóta
svo kollinum fyrrverandi óvinir, vinir
og fjölskyldumeðlimir, aðallega til að
gleðja eldheita aðdáendur syrpunnar
og einn rís meira að segja upp frá
dauðum enda allt hægt í F-heimi.
Sem fyrr enda svo öll ósköpin í léttri
sumarstemningu og allir skála í ís-
köldum Corona-bjór sem er auðvitað
vel við hæfi á fordæmalausum kór-
ónuveirutímum og mjög augljós Co-
rona-auglýsing.
F9 hefur sína kosti og galla, eins og
sjá má, og líkt og í fyrri F-myndum er
veiki hlekkurinn sagan og handritið.
Samtölin eru vægast sagt þunn og
undarleg spakmæli fljúga af og til, til
dæmis það að hættulegt sé að vera
varkár. Myndin er gerð fyrir stórt
tjald og öflugt hljóðkerfi og þegar
lætin eru mikil er hún fín afþreying,
þó alltof löng sé. Á meðan bílar fljúga,
hvort heldur er yfir gljúfur eða út í
geim, og hin ýmsu farartæki springa í
loft upp er þetta hið besta sjónarspil.
Leikstjórinn Justin Lin er greinilega
fagmaður þegar kemur að slíkum at-
riðum, eins og sjá má til dæmis af
æsilegri eftirför á jarðsprengjusvæði
í frumskógi snemma í myndinni. Hef-
ur þá einn úr fjölskyldunni reiknað út
hversu hratt þurfi að aka yfir slíkt
svæði til að halda lífi, sleppa við að
springa í loft upp. Eða þannig.
F9 er sumarmynd með stóru S-i og
eitthvað segir mér að gagnrýni muni
engu máli skipta þegar kemur að að-
sókn enda strax farið að undirbúa tí-
undu myndina og spurning hvert
verði farið í henni. Verður kapp-
akstur á Mars eða Júpíter? Það verð-
ur að minnsta kosti ekið hratt, enda
hættulegt að vera varkár, eins og
fram hefur komið. Og eitt spakmælki
frá Dom undir lokin: Það er sama
hvað þú ferð hratt, þú stingur ekki
fortíðina af.
Jarðtengingin endanlega rofin
Reiði Dom (Diesel) og Jakob (Cena) eru bræður en ólíkir í útliti og háttum.
Smárabíó, Sambíóin Egilshöll,
Akureyri, Álfabakka og Keflavík,
Laugarásbíó, Borgarbíó og
Háskólabíó
Leikstjórn: Justin Lin. Handrit: Justin
Lin og Daniel Casey. Aðalleikarar: Vin
Diesel, Michelle Rodriguez, John Cena,
Jordana Brewster, Tyrese Gibson, Luda-
cris og Nathalie Emmanuel. Bandaríkin,
2021. 145 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Glæfraakstur Það gengur á ýmsu í F9, eins og sjá má, og fjölmargir bílar enda í bílakirkjugarði.
F9: The Fast Saga bbmnn
Lista- og loftfimleikahópurinn Kría
Aerial Arts frumsýnir kl. 20 í kvöld
í Tjarnarbíói gagnvirka loftfim-
leikasýningu sem nefnist Game On.
Í sýningunni eru könnuð mörk
veruleika og fantasíu og þremur
sögupersónum fylgt eftir á ferð um
sýndarveröld þar sem þær heyja
baráttu, lenda í ævintýrum og hitta
fyrir magnaðar verur. Flytjend-
urnir klifra, dansa og svífa um loft-
in á glansandi silkislæðum og leika
hinar ýmsu sirkuslistir. Á sýning-
unni er líkt eftir viðmóti tölvuleiks
og áhorfendum boðið að taka þátt í
sköpun sögusviðsins með því að
velja á milli ólíkra atburðarása.
Áhorfendur velja
milli atburðarása
Á hvolfi Úr sýningunni Game On.
Valur Freyr Ein-
arsson, leikari og
höfundur verð-
launasýning-
arinnar Tengdó,
mun leikstýra
eigin verki á
Nýja sviði Borg-
arleikhússins á
næsta leikári.
Nefnist það
Fyrrverandi og
kemur úr ranni CommonNonsense-
hópsins en Ilmur Stefánsdóttir leik-
myndahöfundur hannar leikmynd
og búninga og tónlistin er í höndum
Davíðs Þórs Jónssonar. Anna Kol-
finna Kuran mun sjá um sviðshreyf-
ingar. Í tilkynningu segir að Fyrr-
verandi sé „hjartnæmt og bráð-
fyndið verk um líf með þeim sem
við héldum að við værum hætt að
búa með: fyrrverandi!“ Leikarar í
verkinu eru Jörundur Ragnarsson,
Vala Kristín Eiríksdóttir, Þorsteinn
Bachmann, Katla Margrét Þor-
geirsdóttir, Halldór Gylfason og
Esther Talía Casey. Áætluð frum-
sýning er í mars á næsta ári.
Valur Freyr leik-
stýrir eigin verki
Valur Freyr
Einarsson