Morgunblaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is H inn 24. maí síðastliðinn var haldið upp á 10 ára afmæli Sjávarklasans. Allt frá stofnun hefur Sjávarklasinn iðað af lífi og verið miðpunktur nýsköpunar í íslenskum sjávarútvegi. Ófá sprotafyrirtæki sem stígu sín fyrstu skref í Húsi Sjávarklasans úti á Grandagarði eru í dag orðin stöndug og verðmæt félög með viðskiptavini um allan heim. Þór Sigfússon, stofnandi Sjávar- klasans, er að vonum ánægður með árangurinn: „Þegar við byrj- uðum hafði ég enga hugmynd um hvar við myndum vera stödd að tíu árum liðnum, en ég var hins vegar sannfærður um að miklir mögu- leikar væru til staðar í haftengdri nýsköpun,“ segir hann. Það er til marks um áhrif Sjávarklasans að þegar verkefnið var sett á laggirnar mátti finna á Íslandi um 60 sprotafyrirtæki tengd bláa hagkerfinu. Í dag eru þau um 150 talsins og þau sem ekki hafa beinlínis orðið til úti á Grandagarði hafa haft einhverja tengingu við Sjávarklasann. „Við reyndum að reikna hversu miklu fjármagni félögunum í Húsi Sjáv- arklasans hefur tekist að afla sér og við hættum að telja þegar við vorum komin upp í fimm millj- arða,“ segir Þór. „Þá sýndi könnun sem við gerðum að mikil samvinna hefur átt sér stað í Húsi Sjáv- arklasans og að sjö af hverjum 10 frumkvöðlafyrirtækjum sem hafa haft hér starfsemi í skemmri eða lengri tíma áttu í samstarfi við a.m.k. eitt annað fyrirtæki í hús- inu. Er þetta skýr vísbending um að hugmyndin að baki klasanum virkar eins og vonast var til.“ Þór bætir við að sprotarnir sem hafa tekið þátt í starfi Sjávarklas- ans hafi reynst óvenjuþrautseigir. „Það hlutfall sprotaverkefna sem komist hefur á legg er töluvert hærra en í mörgum öðrum geirum og skýrist væntanlega af því að þau snúast um rekstur í raun- hagkerfinu frekar en t.d. starsfemi í sýndarheimum. Það virðist minni hætta á að sprotafyrirtæki lifi ekki af ef þau vinna að verðmæta- sköpun tengdri hafinu.“ Sjávarklasar spretta upp Velgengni Íslenska sjávarklasans hefur vakið athygli á heimsvísu og orðið öðrum innblástur til að setja sams konar sprota- og nýsköpunarsetur á laggirnar. „Í dag erum við með fimm syst- urklasa í Bandaríkjunum. Þá hafa Færeyingar líka sett sjávarklasa á laggirnar, og einnig er hægt að finna nýja sjávarklasa víðs vegar í Suður-Ameríku, í Kanada og á eyj- um í Kyrrahafinu sem við höfum tengst og aðstoðað. Útbreiðsla sjávarklasamódelsins er rétt að byrja og við finnum fyrir gríðar- legum áhuga á þeim aðferðum sem við höfum beitt,“ segir Þór. Sjávarklasinn hóf fyrir um átta árum að kynna Ísland sem það land sem nýtir meiri hliðarafurðir en nokkurt annað samanburð- artækt land. Klasinn nefndi þetta átak „100% landið“ sem vísaði í að mörg íslensk sjávarútvegsfyrirtæki stefna að fullri nýtingu alls þess afla sem kemur á land. „Þetta hef- ur vakið mikla athygli“, segir Þór. „Við erum núna að veita ráðgjöf bæði í Bandaríkjunum og á Kyrra- hafseyjunum varðandi fullnýtingu og nýtum okkur þá öflugt net sam- starfsfyrirtækja á borð við Matís og tæknifyrirtækin hér heima í því sambandi.“ Í nýrri greiningu Sjávarklasans um vinnslu hliðarafurða hérlendis kom í ljós að á árunum 2012-2019 jókst velta fyrirtækja, sem að- allega vinna með hliðarafurðir af ýmsu tagi, um 32%. „Við höfum náð upplýsingum frá bróðurparti þessara fyrirtækja en enn er verk að vinna að ná öllum tölum í hús. Við erum ánægð að sjá þennan vöxt í framleiðslu á vörum hér heima sem víðast hvar í heiminum eru nýttar sem landfylling eða hent í sjóinn,“ segir Þór. Verðmætari en fiskflökin Ljóst er að íslenska hagkerfið á mikið að þakka verðmætasköpun nýsköpunarfyrirtækja í bláa hag- kerfinu, og einnig er það víst að ballið er rétt að byrja. Þór segir velgengni sjávarútvegsins ekki síst koma til af því að nýsköpun hefur spilað stóran þátt í viðskiptum og rótgrónari fyrirtækin í geininni lagt sig fram við að fjárfesta í og styðja við bakið á sprotunum: „Það er ekki sjálfgefið hvernig þær lausnir, hugvit og fyrirtæki sem orðið hafa til hafa haldist hér á landi frekar en að vera seldar til annarra landa. Allt of oft eru það örlög íslenskra nýsköpunarfyr- irtækja að hverfa út í heim,“ segir Þór. „Við verðum að reyna að halda sem mest í að höfuðstöðvar þessara fyrirtækja verði hérlendis þótt við sækjum fjárfesta og þekk- ingu til annarra landa.“ Ef fram heldur sem horfir mun það gerast einn góðan veðurdag að meiri verðmætasköpun verður hjá nýsköpunarfyrirtækjunum en hjá hefðbundnu sjávarútvegsfyrirtækj- unum: að útflutningsverðmæti kröftugra ensíma, fullkomins vinnslubúnaðar, fæðubótarefna og lækningavara úr fiskafurðum verð- ur meira en útflutningsverðmæti fisksins sem seldur er til stór- markaða og veitingastaða: „Náttúrulegum, hreinum og sjálf- bærum uppsprettum prótíns hefur ekki fjölgað en með nýsköpuninni tekst að gera þessa auðlind æ verðmætari. Er t.d. lyfjageirinn og allur heilsugeirinn að átta sig æ betur á því hve áhugaverðir mögu- leikar eru innan seilingar.“ Erum rétt að byrja Aðspurður um tækifæri og áskor- anir næstu tíu ára segir Þór að hann reikni með að sjálfbærni og umhverfisáhrif verði mál málanna í sjávarútveginum. Á Íslandi og öðr- um löndum muni greinin keppast við að lágmarka kolefnisspor sjávarafurða, nýta nýja orkugjafa og gera veiðarfæri umhverf- isvænni. „Ég vil að Ísland verði líka í forystu á heimsvísu í full- vinslu á eldisfiski en sú afurð er í dag að langmestu leyti seld óunnin úr landi. Við erum líka rétt að byrja að nýta skóg hafsins, þótt við séum þegar með fleiri frum- kvöðlafyrirtæki á sviði þara- og smáþörungaræktunar en nokkur önnur af þeim löndum sem við ber- um okkur saman við,“ segir Þór. „Síðast en ekki síst tel ég mikil tækifæri í sölu á íslenskri þekk- ingu og ráðgjöf til annarra landa.“ Hugmyndin virkaði eins og vonir stóðu til Fjöldi verðmætra fyr- irtækja hefur orðið til innan Sjávarklasans eða í tengslum við hann. Þór Sigfússon segir sóknarfæri fram- tíðarinnar m.a. á sviði nýrra orkugjafa, þara- og smáþörungaræktar og sölu á ráðgjöf til annarra landa. Græðandi fiskroð Kerecis eru gott dæmi um hvað má skapa úr hliðarafurðum.Hús Sjávarklasans. Grandinn allur hefur gjörbreyst á undanförnum áratug. Morgunblaðið/Eggert Þór hefur haft í nógu að snúast undanfarin tíu ár og ótal áhugaverð verkefni orðið til innan Sjávarklasans. Til að greiða leiðina fyrir vöxt og nýsköpun segir Þór að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að halda áfram að stækka og verða enn öflugri. Eins og lesendur vita eru stærð fyrirtækja í greininni settar ákveðnar skorður með reglum sem setja þak á kvótaeign félaga. „Ein leið í kringum þá reglu gæti verið að leyfa sjávarútvegsfyrirtækjum sem eru almenningshlutafélög að eiga stærra hlutfall af kvótanum,“ segir Þór. „Stærri rekstr- areiningar eru betur í stakk búnar til að sækja á erlenda markaði og skapa meiri verðmæti úr þeirri þekkingu og markaðstengslum sem þegar eru fyrir hendi. Við þetta myndi grunnstoðin styrkjast og möguleikar nýsköpunarfyrirtækjanna um leið.“ Myndi hjálpa ef sjáv- arútvegsfyrirtæki væru enn stærri Morgunblaðið/Ernir Í fiskvinnslunni. Þór leggur til hærra kvótaþak á sjávarútvegsfyrirtæki sem eru almenningshlutafélög.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.