Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
H
inn 24. maí síðastliðinn
var haldið upp á 10 ára
afmæli Sjávarklasans.
Allt frá stofnun hefur
Sjávarklasinn iðað af lífi
og verið miðpunktur nýsköpunar í
íslenskum sjávarútvegi. Ófá
sprotafyrirtæki sem stígu sín
fyrstu skref í Húsi Sjávarklasans
úti á Grandagarði eru í dag orðin
stöndug og verðmæt félög með
viðskiptavini um allan heim.
Þór Sigfússon, stofnandi Sjávar-
klasans, er að vonum ánægður
með árangurinn: „Þegar við byrj-
uðum hafði ég enga hugmynd um
hvar við myndum vera stödd að tíu
árum liðnum, en ég var hins vegar
sannfærður um að miklir mögu-
leikar væru til staðar í haftengdri
nýsköpun,“ segir hann.
Það er til marks um áhrif
Sjávarklasans að þegar verkefnið
var sett á laggirnar mátti finna á
Íslandi um 60 sprotafyrirtæki
tengd bláa hagkerfinu. Í dag eru
þau um 150 talsins og þau sem
ekki hafa beinlínis orðið til úti á
Grandagarði hafa haft einhverja
tengingu við Sjávarklasann. „Við
reyndum að reikna hversu miklu
fjármagni félögunum í Húsi Sjáv-
arklasans hefur tekist að afla sér
og við hættum að telja þegar við
vorum komin upp í fimm millj-
arða,“ segir Þór. „Þá sýndi könnun
sem við gerðum að mikil samvinna
hefur átt sér stað í Húsi Sjáv-
arklasans og að sjö af hverjum 10
frumkvöðlafyrirtækjum sem hafa
haft hér starfsemi í skemmri eða
lengri tíma áttu í samstarfi við
a.m.k. eitt annað fyrirtæki í hús-
inu. Er þetta skýr vísbending um
að hugmyndin að baki klasanum
virkar eins og vonast var til.“
Þór bætir við að sprotarnir sem
hafa tekið þátt í starfi Sjávarklas-
ans hafi reynst óvenjuþrautseigir.
„Það hlutfall sprotaverkefna sem
komist hefur á legg er töluvert
hærra en í mörgum öðrum geirum
og skýrist væntanlega af því að
þau snúast um rekstur í raun-
hagkerfinu frekar en t.d. starsfemi
í sýndarheimum. Það virðist minni
hætta á að sprotafyrirtæki lifi ekki
af ef þau vinna að verðmæta-
sköpun tengdri hafinu.“
Sjávarklasar spretta upp
Velgengni Íslenska sjávarklasans
hefur vakið athygli á heimsvísu og
orðið öðrum innblástur til að setja
sams konar sprota- og
nýsköpunarsetur á laggirnar. „Í
dag erum við með fimm syst-
urklasa í Bandaríkjunum. Þá hafa
Færeyingar líka sett sjávarklasa á
laggirnar, og einnig er hægt að
finna nýja sjávarklasa víðs vegar í
Suður-Ameríku, í Kanada og á eyj-
um í Kyrrahafinu sem við höfum
tengst og aðstoðað. Útbreiðsla
sjávarklasamódelsins er rétt að
byrja og við finnum fyrir gríðar-
legum áhuga á þeim aðferðum sem
við höfum beitt,“ segir Þór.
Sjávarklasinn hóf fyrir um átta
árum að kynna Ísland sem það
land sem nýtir meiri hliðarafurðir
en nokkurt annað samanburð-
artækt land. Klasinn nefndi þetta
átak „100% landið“ sem vísaði í að
mörg íslensk sjávarútvegsfyrirtæki
stefna að fullri nýtingu alls þess
afla sem kemur á land. „Þetta hef-
ur vakið mikla athygli“, segir Þór.
„Við erum núna að veita ráðgjöf
bæði í Bandaríkjunum og á Kyrra-
hafseyjunum varðandi fullnýtingu
og nýtum okkur þá öflugt net sam-
starfsfyrirtækja á borð við Matís
og tæknifyrirtækin hér heima í því
sambandi.“
Í nýrri greiningu Sjávarklasans
um vinnslu hliðarafurða hérlendis
kom í ljós að á árunum 2012-2019
jókst velta fyrirtækja, sem að-
allega vinna með hliðarafurðir af
ýmsu tagi, um 32%. „Við höfum
náð upplýsingum frá bróðurparti
þessara fyrirtækja en enn er verk
að vinna að ná öllum tölum í hús.
Við erum ánægð að sjá þennan
vöxt í framleiðslu á vörum hér
heima sem víðast hvar í heiminum
eru nýttar sem landfylling eða
hent í sjóinn,“ segir Þór.
Verðmætari en fiskflökin
Ljóst er að íslenska hagkerfið á
mikið að þakka verðmætasköpun
nýsköpunarfyrirtækja í bláa hag-
kerfinu, og einnig er það víst að
ballið er rétt að byrja. Þór segir
velgengni sjávarútvegsins ekki síst
koma til af því að nýsköpun hefur
spilað stóran þátt í viðskiptum og
rótgrónari fyrirtækin í geininni
lagt sig fram við að fjárfesta í og
styðja við bakið á sprotunum: „Það
er ekki sjálfgefið hvernig þær
lausnir, hugvit og fyrirtæki sem
orðið hafa til hafa haldist hér á
landi frekar en að vera seldar til
annarra landa. Allt of oft eru það
örlög íslenskra nýsköpunarfyr-
irtækja að hverfa út í heim,“ segir
Þór. „Við verðum að reyna að
halda sem mest í að höfuðstöðvar
þessara fyrirtækja verði hérlendis
þótt við sækjum fjárfesta og þekk-
ingu til annarra landa.“
Ef fram heldur sem horfir mun
það gerast einn góðan veðurdag að
meiri verðmætasköpun verður hjá
nýsköpunarfyrirtækjunum en hjá
hefðbundnu sjávarútvegsfyrirtækj-
unum: að útflutningsverðmæti
kröftugra ensíma, fullkomins
vinnslubúnaðar, fæðubótarefna og
lækningavara úr fiskafurðum verð-
ur meira en útflutningsverðmæti
fisksins sem seldur er til stór-
markaða og veitingastaða:
„Náttúrulegum, hreinum og sjálf-
bærum uppsprettum prótíns hefur
ekki fjölgað en með nýsköpuninni
tekst að gera þessa auðlind æ
verðmætari. Er t.d. lyfjageirinn og
allur heilsugeirinn að átta sig æ
betur á því hve áhugaverðir mögu-
leikar eru innan seilingar.“
Erum rétt að byrja
Aðspurður um tækifæri og áskor-
anir næstu tíu ára segir Þór að
hann reikni með að sjálfbærni og
umhverfisáhrif verði mál málanna í
sjávarútveginum. Á Íslandi og öðr-
um löndum muni greinin keppast
við að lágmarka kolefnisspor
sjávarafurða, nýta nýja orkugjafa
og gera veiðarfæri umhverf-
isvænni. „Ég vil að Ísland verði
líka í forystu á heimsvísu í full-
vinslu á eldisfiski en sú afurð er í
dag að langmestu leyti seld óunnin
úr landi. Við erum líka rétt að
byrja að nýta skóg hafsins, þótt
við séum þegar með fleiri frum-
kvöðlafyrirtæki á sviði þara- og
smáþörungaræktunar en nokkur
önnur af þeim löndum sem við ber-
um okkur saman við,“ segir Þór.
„Síðast en ekki síst tel ég mikil
tækifæri í sölu á íslenskri þekk-
ingu og ráðgjöf til annarra landa.“
Hugmyndin virkaði eins og vonir stóðu til
Fjöldi verðmætra fyr-
irtækja hefur orðið til
innan Sjávarklasans
eða í tengslum við
hann. Þór Sigfússon
segir sóknarfæri fram-
tíðarinnar m.a. á sviði
nýrra orkugjafa, þara-
og smáþörungaræktar
og sölu á ráðgjöf til
annarra landa.
Græðandi fiskroð Kerecis eru gott dæmi um hvað má skapa úr hliðarafurðum.Hús Sjávarklasans. Grandinn allur hefur gjörbreyst á undanförnum áratug.
Morgunblaðið/Eggert
Þór hefur haft í nógu að snúast undanfarin tíu ár og ótal áhugaverð verkefni orðið til innan Sjávarklasans.
Til að greiða leiðina fyrir vöxt og nýsköpun segir
Þór að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að
halda áfram að stækka og verða enn öflugri. Eins
og lesendur vita eru stærð fyrirtækja í greininni
settar ákveðnar skorður með reglum sem setja
þak á kvótaeign félaga. „Ein leið í kringum þá
reglu gæti verið að leyfa sjávarútvegsfyrirtækjum
sem eru almenningshlutafélög að eiga stærra
hlutfall af kvótanum,“ segir Þór. „Stærri rekstr-
areiningar eru betur í stakk búnar til að sækja á
erlenda markaði og skapa meiri verðmæti úr
þeirri þekkingu og markaðstengslum sem þegar
eru fyrir hendi. Við þetta myndi grunnstoðin
styrkjast og möguleikar nýsköpunarfyrirtækjanna
um leið.“
Myndi hjálpa ef sjáv-
arútvegsfyrirtæki
væru enn stærri
Morgunblaðið/Ernir
Í fiskvinnslunni. Þór leggur til hærra kvótaþak á sjávarútvegsfyrirtæki sem eru almenningshlutafélög.