Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 12

Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is S jómannadagurinn minnir okkur á mikilvægi sjó- manna fyrir íslenskt sam- félag. Þetta er burðarstétt í okkar samfélagi og hafa verið undirstaða okkar lífsgæða í gegnum tíðina. Þessi stétt er ein af veigamestu stoðunum í atvinnulífi Íslendinga,“ segir Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, er blaðamaður spyr hvað dagurinn merki í hennar huga. „Þessi dagur minnir okkur líka á hvaða fórnir hafa verið færðar af sjómönnum í gegnum tíðina, bæði líf og heilsa og ekki síður fjarvistir frá fjölskyldu. Þetta minnir okkur líka á hvað hefur áunnist í slysavörnum sjómanna. Þetta er þeirra dagur,“ bætir hún við. Ljóst er að þrátt fyrir talsverðan árangur í aðbúnaði sjómanna og bættar vinnuaðstæður á liðnum ár- um er enn margt sem má betur fara að mati verkalýðshreyfingarinnar. „Ég veit að Sjómannasambandið hefur gert kröfu um að hvíldartími sjómanna verði mældur og það er eitthvað sem við höfum stöðugt áhyggjur af, að þeir búi ekki við sæmilegan aðbúnað í vinnu,“ segir Drífa. „Málið sem kemur upp í vetur hjá Hraðfrystihúsinu Gunnvöru beinir sjónum að því hvað sjómenn geta verið í veikri stöðu bæði gagn- vart skipstjóra og útgerð þegar heilsa þeirra og velferð er ekki sett í fyrirrúm. Þannig að það sýnir okkur að enn er tækifæri til að bæta.“ Þá bendir Drífa á að aðeins eru greidd 12% í lífeyrissjóð fyrir sjómenn á meðan greidd eru 15,5% fyrir restina af vinnumarkaðnum. „Þetta er ótækt enda eiga sjómenn að búa við sömu lífeyrisréttindi og aðrir, sem hefur ekki verið í gegn- um tíðina. Það er mikið áhyggjuefni að ekki sé betur búið að lífeyrisrétt- indum sjómanna.“ Tryggja fólki tækifæri Umfangsmikil sjálfvirkni- og tækni- væðing hefur átt sér stað í sjávar- útvegi á undanförnum árum og hef- ur sem afleiðing þess störfum fækkað. Þessu hefur fylgt verulega skert hlutfall kvenna í fiskiðnaði og kann að vera vegna þess að vinnsla fjölda afurða hafi færst á sjó með tæknivæddum skipum. Spurð um sýn verkalýðshreyfingarinnar á þessar breytingar svarar Drífa að þetta sé ekki endilega bundið við sjávarútveg heldur sé tæknivæð- ingin líklega áþreifanlegri en í öðr- um greinum. „Bæði af því að sjávarútvegurinn er mjög stór hluti af vinnumark- aðnum á ákveðnum svæðum og um- fang breytinganna getur verið mjög mikið. Þá komum við að hugmynd- inni um réttlát umskipti. Þegar svona stórar breytingar eru í vænd- um þá þurfum við að koma því í þann farveg að samið er um laun upp á nýtt í tengslum við framleiðni- aukningu en fækkun starfa. Og eins að gefa fólki tækifæri til að hverfa til annarra starfa, fá einhvers konar starfsendurmenntun til að mæta nýjum áskorunum. Það er bæði at- vinnurekendum og launafólki í hag að fara í gegnum slíkar breytingar í góðum takti. Síðan er annað mál að þessar miklu framleiðniaukningar sem skila auknum afköstum með færra starfsfólki setja fókusinn á skatta- umhverfið og hvernig sé hægt að miðla ágóða af aukinni framleiðni til almennings, ekki í gegnum laun heldur í gegnum skattkerfið. Þetta er ein af þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir til framtíðar og ekki síst í sjávarútvegi,“ útskýrir Drífa. Hún segir ekki auðvelt að finna bestu leið til að mæta þessari áskor- un framtíðarinnar í sjávarútvegi og að allir þættir er snerta greinina verði að vera undir og bendir á að í þessu samhengi verði að skoða veiðileyfagjöld, afnot af auðlindinni og skattlagningu þeirra verðmæta sem til verða í sjávarútvegi. „Við þurfum að tryggja að þjóðin öll njóti góðs af og ekki síst sjávarplássin.“ Eitt sé ljóst og það sé að náist fram- leiðniaukning og tilheyrandi aukin afkoma í sjávarútvegi án nokkurra breytinga á kerfinu í heild sé sam- félagið ekki að njóta góðs af því sem er að nást úr sameiginlegri auðlind, að sögn Drífu. Barátta fyrir vinnumarkaðinn Alþýðusambandið hefur, auk Sjó- mannafélags Íslands, í vetur gagn- rýnt harðlega frumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar, sveitarstjórnar- og samgönguráðherra, um íslenska alþjóðlega skipaskrá þar sem í því felst að heimilað verður fyrir kaup- skipaútgerðir að greiða laun sam- kvæmt kjörum í því ríki er hver skipverji á lögheimili. Þetta telur forysta verkalýðshreyfingarinnar heimila félagsleg undirboð á íslensk- um vinnumarkaði. Drífa telur þessi áform skjóta skökku við í samanburði við þann árangur sem náðst hefur á íslensk- um vinnumarkaði til þessa og telur forsetinn að hætta sé á að slíkt kunni að smita út frá sér til annarra atvinnugreina. „Þetta er í andstöðu við baráttu alþjóðlegu verkalýðs- hreyfingarinnar og tilmæli frá Al- þjóðavinnumálastofnuninni. Við erum á Íslandi. Útgjöld fólks eru hérna og þurfa íslensk laun að mæta því. Það er töluverð hætta ef atvinnurekendur geta valið á hvaða launum fólk er, við verðum að verja íslenska kjarasamninga. Það er allt- af hætta ef slegið er slöku við ein- hvers staðar að það smiti út frá sér. Barátta fyrir eina stétt er alltaf bar- átta fyrir vinnumarkaðinn í heild sinni.“ Stéttin í einstakri stöðu Sjómenn hafa staðið samningslausir um langt skeið og má segja að þeir séu að einhverju leyti utan hefð- bundna vinnumarkaðskerfisins. „Þeir eru búnir að vera samnings- lausir síðan desember 2019 og það á ekki að líðast á íslenskum vinnu- markaði að svona stór stétt sé samningslaus árum saman. Smá- bátasamningarnir hafa ekki verið gerðir síðan 2014.“ Spurð hvort Alþýðusambandið telji að breyta þurfi hvernig sé unn- ið að kjarasamningum stéttarinnar svarar Drífa að sjómannastéttin sé að vissu leyti frábrugðin öðrum stéttum á Íslandi. „Sjómanna- samband Íslands er aðili að ASÍ og við styðjum auðvitað kjaraviðræður þeirra. En auðvitað er það þannig að launauppbygging sjómanna er allt öðruvísi heldur en hjá restinni af vinnumarkaðnum í gegnum hluta- skiptakerfið. Það hefur verið al- menn sátt um það að sjómenn njóta þess ef vel gengur, þannig verður ekki þessi sama knýjandi þörf á gerð samninga. Svo er það þannig að sjómenn eru mjög breytileg stétt. Þeir eru ekki allir í sömu störfum, bátum eða undir sömu skilyrðum og það hefur oft reynst erfitt að ná þeim saman sem hópi í kjara- viðræðum.“ „Alltaf hætta ef slegið er slöku við“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Forseti ASÍ segir ótækt að sjómenn búi ekki við sömu lífeyrisréttindi og aðrar stéttir. Drífa Snædal Talsverður árangur hefur náðst í að bæta vinnuumhverfi sjómanna en betur má ef duga skal, segir Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands. Hún segir einnig mikilvægt að finna leiðir til þess að íslenskt samfélag allt njóti góðs af þeirri framleiðniaukningu sem fylgir aukinni tæknivæðingu sjávarútvegsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.