Morgunblaðið - 05.06.2021, Page 14
una. Það er ekkert sjálfgefið að
þegar það eru 26 karlar saman í
mánuð á sjó að allt gangi upp en
það gerir það nú samt. Mórallinn
er góður og menn eru yfirleitt
nokkuð léttir. Menn fara í rækt-
ina, grípa í pílu eða fara í golf-
hermi á frívaktinni eða þegar ró-
legt er og það er alltaf stutt í
grínið.“
Ekki verður hjá því komist að
minnast á að síðastliðið rúmt ár
hefur verið einkennilegt fyrir
þjóðfélagið allt, en Valur segir fátt
hafa breyst þrátt fyrir faraldur.
„Það eina sem hefur breyst varð-
andi Covid er að við förum í skim-
un fyrir hverja brottför, mætum
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Á
höfnin á Hrafni Svein-
bjarnarsyni er dugleg að
taka myndir og fékk
blaðamaður leyfi til að
birta nokkrar til að veita
innsýn í lífið um borð.
Er þetta skipstjórinn um borð?
spyr blaðamaður. „Já svo er sagt,“
svarar Valur.
Spurður hvernig hann myndi
lýsa mannskapnum, svarar hann:
„Áhöfnin er góð, hörkuduglegir og
öflugir strákar sem sjá til þess að
það vantar yfirleitt meira í vinnsl-
svo um borð og göngum frá kosti
og veiðarfærum og gerum skipið
klárt fyrir brottför.
Við fórum í fyrra inn til Eyja
vegna gruns um Covid en sem
betur fer var ekki smit heldur
slæm innflúensa sem herjaði á
okkur. Faraldurinn hefur því ekki
haft mikil áhrif og ekkert umfram
aðra hópa, menn fara eftir þeim
reglum sem gilda þegar þeir eru í
fríi og enginn hefur fengið Covid.“
Hann segir að veiðilega séð hafi
síðastliðið ár gengið ágætlega.
„Ýsa og karfi alls staðar en þorsk-
urinn látið hafa fyrir sér oft og
tíðum,“ útskýrir Valur og bætir
við að ufsinn sé líka vandfundinn.
Upp komu veikindi hjá skipverja í byrjun apríl og mætti Landhelgisgæslans á „sjúkrabíl sjómanna“. Það duga engin vettlingatök um borð í Hrafni Sveinbjarnarsyni.
„Alltaf stutt í grínið“
Það er dugnaður og gott skap sem einkennt hefur túrana á
frystitogaranum Hrafni Sveinbjarnarsyni GK-255, sem Þor-
björn hf. gerir út. Þetta segir skipstjórinn Valur Pétursson.
Ljósmyndir/Stefán Þór Friðriksson
Það fiskast ekki mikið ef veiðarfærin eru ekki í lagi og verður að huga vel að öllum
búnaði um borð. Eins og ávallt á sjó, tekst allt þegar samvinnan gengur vel.
Stund milli stríða. Ekki
veitir af því að taka nokkrar
mínútur í búningsklefanum.
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021