Morgunblaðið - 05.06.2021, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
S
tarfsemi Trackwell hefur
verið í örum vexti á und-
anförum árum og í dag
eru lausnir fyrirtækisins í
notkun víða um heim. Er
þess skemmst að minnast þegar
búnaður Trackwell var, um miðjan
síðasta áratug, tekinn til notkunar
við fiskveiðieftirlit á um 100 millj-
óna ferkílómetra hafsvæði í Kyrra-
hafinu sem 40 ríki hafa lögsögu yf-
ir.
Jón Ingi Björnsson er fram-
kvæmdastjóri Trackwell og segir
hann að dag hvern taki kerfi
Trackwell við skráningargögnum
frá um 15.000 skipum um allan
heim, þar af um 9.000 skipum í
Kyrrahafinu. „Hér á Íslandi berast
okkur í kringum þrjár milljónir
staðsetningartilkynninga á dag á
hverjum sólarhring.“
Hægt að nota hvar
í heiminum sem er
Skipta má starfsemi Trackwell í
tvo hluta: flotastýringu og forð-
astýringu. Undir forðastýringu
heyra lausnirnar Tímon og Floti
sem eru í notkun hjá fjölda ís-
lenskra fyrirtækja. Er Tímon hann-
aður til að halda utan um verk-,
vakta- og tímaskráningu starfs-
manna en Floti til að hafa eftirlit
með bíla- og tækjaflotanum. Undir
flotastýringu heyra Trackwell VMS
og Hafsýn þar sem fyrrnefnda
lausnin er sniðin að fiskveiðieftirliti
fyrir ríki og stofnanir en sú síð-
arnefnda ætluð skipstjórnarfólki og
útgerðum til að skrá veiðar og
vinnslu með skilvirkum og sjálf-
virkum hætti.
Upphaf Trackwell má rekja til
þróunar á sjálfvirku tilkynninga-
skyldunni, sem Trackwell rekur
enn fyrir hönd Vaktstöðvar sigl-
inga, en síðan þá hafa nýjar vörur
bæst við með reglulegu millibili.
Lausnir Trackwell gegna mik-
ilvægu hlutverki á stórum haf-
svæðum og eru t.d. notaðar til að
vakta veiðar og ferðir skipa í N-
Atlantshafinu, Kyrrahafi, Miðjarð-
arhafinu og hluta Indlandshafs. Hjá
Trackwell starfa 36 manns og er
öll þróun og þjónusta hér á landi
„Það sem hefur hjálpað okkur að
ná þessari miklu útbreiðslu er að
hugbúnaður okkar er hýstur í
tölvuskýjakerfum fyrirtækja á
borð við Amazon og Microsoft og
hægt að nýta lausnirnar hvar í
heiminum sem er án þess að við
þurfum að hafa starfsfólk eða vél-
búnað á staðnum. Aðgangur not-
enda og öll þjónusta okkar er síð-
an á netinu,“ útskýrir Jón Ingi.
Eins og að sækja
vörur inn á lager
Áhugavert er að skoða hverju
söfnun og miðlun fiskveiðiupplýs-
inga breytir fyrir útgerðarfélög.
Jón Ingi bendir á að nota megi
vörur Trackwell til að mæla ýmsa
þætti fiskveiða. „Á þann hátt
verða veiðar fyrsti hluti af virð-
iskeðju þess matvælaframleiðslu-
fyrirtækis sem útgerðarfélagið er.
Skipin geta sent í land – í raun-
tíma – upplýsingar um t.d. sam-
setningu aflans og hvaða vörur er
verið að framleiða um borð. Fram-
leiðslustjórar og sölustjórar í landi
taka við þessum upplýsingum og
nota til að taka ákvarðanir um
hvernig má hámarka virði vör-
unnar,“ segir Jón Ingi og bendir á
hvernig tæknin opni fyrir þann
möguleika að láta markaði stýra
veiðunum frekar en að veiða fyrst
og svo reyna eftir fremsta megni
að fá gott verð fyrir vöruna á
mörkuðum. „Útkoman er virð-
iskeðja þar sem útgerðir geta sótt
í hafið eins og þær væru að sækja
vöru inn á lager, til að koma á
móts við eftirspurn hverju sinni.“
Gögnin hjálpa líka til við að
gera veiðarnar skilvirkari. „Það
má t.d. keyra saman gögn um olíu-
eyðslu skipa og hve mikið veiddist
í hverju togi, hver togslóðin var og
hvaða veiðarfæri voru notuð. Með
því að vinna úr þannig gögnum má
meðal annars bæta rekjanleika,
minnka sótspor fisksins, og auð-
veldara verður fyrir skipstjórn-
armenn að átta sig á hvernig má
ná hámarksárangri við veiðarnar.
Um leið er verið að lágmarka um-
hverfisáhrifin en sjálfbærni og sót-
spor vega æ þyngra í þessari
grein.“
Þá hafa sumar útgerðir notað
rekjanleg gögn sem verða til við
veiðarnar til að gera fiskinn að
áhugaverðari vöru fyrir neytand-
ann. „Það eru einkum smábátaút-
gerðirnar sem hafa þreifað sig
áfram með þessa þjónustu með það
fyrir augum að geta fengið hærra
verð fyrir fiskinn. Fylgja þá upp-
lýsingarnar fiskinum alla leið til
neytandans sem getur t.d. notað
snjallsímaforrit til að sjá hvar og
hvenær fiskurinn var veiddur.“
Fiskveiðieftirlit verður
mun skilvirkara
Þegar kemur að fiskveiðistjórnun
hjálpa kerfi Trackwell við að koma
t.d. auga á skip við ólöglegar veið-
ar. Er hægt að tengja
staðsetningargögn Trackwell við
gervihnattamyndir og nýta gervi-
greind til að staðsetja skip sem
stinga í stúf. „Með þessu verkfæri
er hægt að gera fiskveiðieftirlit
skilvirkara. Í stað þess að senda
skip og flugvélar til eftirlits af
handahófi er hægt að senda þau
þangað sem mestar líkur eru taldar
á að brot séu að eiga sér stað,“ út-
skýrir Jón Ingi. „Sams konar
greiningu má líka nota til að koma
auga á t.d. skip sem eru að landa í
önnur skip úti á rúmsjó, og hægt
að nýta gögnin til að greina hegðun
skipa til að koma auga á hættu-
merki.“
Fiskveiðar verða
skilvirkari með
bættri öflun og
miðlun gagna
Vinnslustjórar og sölustjórar fá upplýsingar í raun-
tíma um samsetningu aflans. Staðsetningargögn,
gervihnattamyndir og gervigreind hjálpa til við að
auka skilvirkni í eftirliti með ólöglegum veiðum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gögn leika æ stærra hlutverk í
að auka skilvirkni veiða og
hámarka virði sjávarafurða.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Útkoman er virðiskeðja þar sem útgerðir geta sótt í hafið eins og þær væru að sækja vöru inn á lager,“ segir Jón Ingi
Björnsson um þá möguleika sem skapast þegar gögnum er safnað og miðlað í rauntíma á milli skips og lands.
Bara á Íslandsmiðum vinnur hugbúnaður Trackwell úr um þremur milljónum staðsetningarhnita á dag. Samsett mynd af notendaviðmóti Trackwell. Gögnin eru gerð auðskiljanleg.