Morgunblaðið - 05.06.2021, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Þ
að eru auðvitað kaflaskil að fá nýtt
skip inn í fyrirtæki og byggðarlag
eins og okkar. Þetta er gleðidagur og
áskorun líka að taka nýtt skip í notk-
un,“ segir Gunnþór Ingvason, fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, við komu
skipsins. „Svo er maður bara þakklátur fyrir að
fá að taka þátt í svona samstarfi við skipa-
smíðastöðina, áhöfnina, starfsmenn okkar og
starfsmenn Samherja. Þetta er voðalega
ánægjulegt og gefandi samstarf og er að skila
af sér mjög góðri afurð,“ bætir hann við.
Gunnþór segir faraldurinn ekki hafa komið
niður á umfangsmiklu samstarfi margra aðila
sem þurfti til að sinni nýsmíðunum. Hins vegar
hafi það vissulega verið þannig að starfsmenn
Síldarvinnslunnar þurftu að dvelja erlendis í
lengri tíma í senn vegna ferðatakmarkana. Auk
þess seinkaði afhendingu skipsins. Skipa-
smíðastöðin hafi hins vegar staðið sig vel þrátt
fyrir krefjandi aðstæður, að sögn hans. „Þetta
er hugsanlega ein fremsta skipasmíðastöð í
heimi, sérstaklega í smíði uppsjávarskipa. Þeir
afhenda fimm til sex uppsjávarskip á ári og
kunna sitt fag. Þetta gekk allt mjög vel.“
Hinn nýi Börkur var smíðaður hjá dönsku
skipasmíðastöðinni Karstensens á Skagen og
kostaði Síldarvinnsluna 5,7 milljarða króna.
Skipið, sem búið er til flotvörpu- og hringnóta-
veiða, er systurskip Vilhelms Þorsteinssonar
EA sem Samherji gerir út og kom til Akur-
eyrar í byrjun apríl.
Eldri Börkur í sölu
Spurður hvort gera megi ráð fyrir að nýr Börk-
ur verði afkastameiri en skipið sem hann leysir
af hólmi svarar hann: „Við höfum skip sem við
erum að fara með í sölu sem er smíðað 2012,
það er ekki eins og það sé mjög gamalt skip, en
þetta er burðarmeira. Það er allur nýjasti bún-
aður, hvort sem það er fiskileitartæki eða bún-
aður í kringum veiðarnar, vinnuaðstaða, aðbún-
aður eða búnaður á dekki.
Við ætlum okkur að spara töluverða olíu,
þetta er mun hagkvæmara skip. Við erum með
tvær aðalvélar, sem er ekki algengt. Við teljum
okkur geta náð töluverðum árangri þar í að
gera skipið mjög hagkvæmt. Það er mjög góð
nýting á allri afgangsorku í því. Við erum með
vatnslagnir í gólfum til að nýta vatnshita og af-
gangshita frá vélum. Það er nokkuð sem ég
held að ekki mörg önnur skip séu með.“
Hann segir hönnunina á skrokki og stefni
skipsins alla hafa tekið mið af því að hámarka
árangur og skila hagkvæmni. „Það er mjög
spennandi verkefni að taka þetta í notkun. Við
bíðum bara spenntir eftir því að byrja að nota
skipið og sjá hvernig þetta virkar. […] Það hef-
ur ekki reynt mikið á þetta skip, en það er búið
að reyna eitthvað á systurskipið Vilhelm Þor-
steinsson og þeir eru bara í skýjunum með það.
Stefnislagið skilar mjög góðum sjóskipum.“
Hægt er að sjá á myndum að Börkur fer vel í
sjó, að sögn Gunnþórs sem bendir á að tölu-
verður munur sést á hegðun skipsins og Beitis
sem fylgdi nýsmíðunum í Norðfirði á fimmtu-
dag. Upptöku af komu skipsins má finna á you-
tube-rás Síldarvinnslunnar.
Töluvert hefur verið fjárfest í nýjum upp-
sjávarskipum hér á landi á undanförnum á ár-
um. Spurður hvernig staða íslenska uppsjáv-
arflotans sé í samanburði við
samkeppnisþjóðir Íslendinga, Færeyinga og
Norðmenn, svarar Gunnþór: „Við höfum, Ís-
lendingar, verið að fjárfesta í uppsjáv-
arskipum undanfarin ár og erum komnir mjög
framarlega með okkar flota. Ég tel að við
stöndumst alveg þann samanburð í dag; þó að
við höfum kannski ekki gert það fyrir fimmtán
eða tuttugu árum þá gerum við það í dag.“
Til sýnis um helgina
Börkur verður í dag milli klukkan þrjú og
fimm síðdegis til sýnis fyrir starfsmenn Síld-
arvinnslunnar og fjölskyldur þeirra. Á sjó-
mannadaginn verður svo opnað fyrir almenn-
ing eftir að skipið hefur formlega fengið nafnið
við hátíðlega athöfn klukkan ellefu. Munu sjó-
menn úr áhöfninni fara um skipið með gestum.
Áskorun að taka nýtt skip í notkun
Það var bjart og stillt í Norðfirði er nýsmíði Síldarvinnslunnar sigldi til heimahafnar í fyrsta sinn í fylgd Beitis NK
á fimmtudag. Heimamenn voru mættir til að fagna komu skipsins, sem er nýjasta skip í flota landsins. Skipið
mun formlega fá nafnið Börkur við hátíðlega athöfn á sjómannadaginn, en það leysir eldri Börk af hólmi.
Ljósmynd/Kristín Hávarðsdóttir
Nýr Börkur kom til Neskaup-
staðar á fimmtudag og er hið
myndarlegasta. Fjöldi fólk
fylgdist með komu skipsins.
Ljósmynd/Kristín Hávarðsdóttir
Gunnþór Ingvason, fram-
kvæmdastjóri Síldar-
vinnslunnar, kveðst
ánægður með skipið.
Nýr Börkur NK
5 Mesta lengd skipsins er 89,07 metrar.
5 Skráð lengd þess er 83,40 metrar.
5 Breidd skipsins er 16,6 metrar.
5 Þrettán RSW-tankar eru um borð í
skipinu og er samanlagt rúmmál
þeirra 3.440 rúmmetrar.
5 Skipið er því alls 4.140 brúttótonn.
5 Skipið er byggt af Karstensen-
skipasmíðastöðinni í Danmörku en
skrokkurinn var smíðaður í Gdyniu í
Póllandi af sama fyrirtæki.
5 Auk hefðbundinnar 250 ampera land-
tengingar er skipið útbúið 1.100 am-
pera landtengingu.
5 Tvær aðalvélar eru í skipinu, af gerð-
inni Rolls Royce Bergen.
5 Vélarnar keyra út á eina skrúfu í gegn-
um einn sameiginlegan niðurfærslugír
(Flender GVL-1400).
5 Vélarnar hafa hvor sinn ásrafalinn
(Cummins AvK) upp á 2.300 kW.
Aukalega er ein ljósavél frá Mitsubishi
upp á 820 kW og ein hafnarvél frá
John Deere (6068) upp á 166 kW.
5 Aðalvélin knýr glussakerfið og drif-
búnað.
5 Á siglingu nægir að keyra aðra aðalvél
skipsins.
5 Á togi verða báðar aðalvélarnar í
gangi og knýja drifbúnað og sjá fyrir
raforkuþörf skips og búnaðar.
5 Aflstjórnunakerfi er fyrir rafmagnið.
5 Fljótandi tíðni er á rafkerfinu sem veit-
ir aðalvélum svigrúm til snúningshrað-
abreytinga upp á 17%.
„Þetta gekk bara óskaplega vel,“ segir Hjörvar
Hjálmarsson, skipstjóri á nýja Berki, um sigl-
inguna heim sem tók fimm daga. Siglt var
vestur í gegnum Skagerrak frá Skagen í Dan-
mörku og vestur með Noregi áður en stefnan
var tekin til vesturs í átt að Færeyjum og það-
an til Íslands. „Við vorum bara í skoðunarferð.
Skoðuðum Færeyjar vel og vinkuðum vinum
okkar þar. Mjög þægilegt ferðalag á mjög
góðu og glæsilegu skipi.“
Hjörvar er hæstánægður með hvernig sé að
sigla skipinu. „Það er mjög ljúft. Það er hljóð-
látt og sparneytið greinilega, það fer ekki mik-
ið af olíu miðað við fyrri skip. Þetta lítur allt
mjög vel út og næsta mál á dagskrá er að
prófa hann á veiðum núna eftir helgi.“
Vandað skip í alla staði
Spurður hvernig sé að setjast í skipstjórn-
arstólinn á glænýju skipi svarar skipstjórinn:
„Það er bara góð tilfinning að vera treyst fyrir
því að taka við nýju skipi og maður er stoltur
af því að fá svona tækifæri, það er ekki sjálf-
gefið á ferlinum að komast á nýsmíði. Þær
hafa nú ekki verið allt of margar hér á Íslandi
en fer fjölgandi sem betur fer.“
Þá segir Hjörvar margt
við nýja Börk minna á
geimskip. „Það er allt hlað-
ið af búnaði og svolítið nýr
heimur. Þótt það sé ekki
nema níu ára, skipið sem
við vorum á, þá er þetta
gríðarleg breyting í tækni
frá því að hann var klár-
aður. Þetta er allt eins
tæknilegt og hægt er og
mjög flott skipasmíðastöð
sem þetta er smíðað hjá, það er alveg ótrú-
lega vandað skipið að sjá í alla staði.“ Bætir
hann við að áhöfnin sé ánægð með aðbúnað
og vinnuaðstöðu um borð. „Þeir eru bara í
sjöunda himni með þetta. Allt eins glæsilegt
og hægt er.“
Er maður stoltur af því að vera á svona
skipi?
„Já, það er nú eiginlega ekki hægt annað.
Komum hérna í hádeginu [á fimmtudag] í
fylgd með Beiti í stórglæsilegu veðri, bæj-
arbúar á bryggjunni að mynda og við tókum
nokkra hringi fyrir framan þá. Þetta var mjög
flott stund.“
Skipstjórinn kveðst stoltur
Hjörvar
Hjálmarsson
Ljúft að sigla skipinu og stefnt á að hefja veiðar eftir helgi