Morgunblaðið - 05.06.2021, Side 26

Morgunblaðið - 05.06.2021, Side 26
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is V egna kórónuveiru- faraldursins féll sjó- mannadagurinn niður fyr- ir ári. Þetta árið eru sóttvarnaaðgerðir ekki eins strangar en Hálfdan Henrys- son segir að engu að síður verði há- tíðahöldin í Reykjavík og Hafnar- frði ekki með hefðbundnu sniði og t.d. engin dagskrá í boði við höfnina núna á sunnudaginn. Hálfdan er formaður sjómanna- dagsráðs höfuðborgarsvæðisins sem heldur utan um hátíðardag- skrána í Reykjavík og Hafnarfirði. „Við megum ekki hafa mikinn mannfjölda samankominn á einum stað og því verður ekki hefðbundin skemmtidagskrá úti á Grandagarði við Reykjavíkurhöfn né við Hafnar- fjarðarhöfn. Aftur á móti verða haldnir minni viðburðir og athafnir í samræmi við fjöldatakmarkanir,“ útskýrir Hálfdan og þykir miður að dagskráin þurfi að vera með breyttu sniði enn eina ferðina. „Sjó- mannadagurinn hefur vaxið mjög að vinsældum á síðustu árum og er það m.a. að þakka góðu framlagi Faxaflóahafna og Brims, áður Granda, sem hafa reynst mjög öfl- ugir samstarfsaðilar. Upp á síð- kastið höfum við fengið upp undir 40.000 manns í heimsókn út á Granda og einnig mikinn fjölda gesta á hátíðahöldin við Hafn- arfjarðarhöfn.“ Verður að bíða til næsta sumars eftir skemmtikröftunum, sölutjöld- unum og furðufiskunum sem venj- an er að hafa til sýnis á bryggjunni. Hins vegar mun sjómannadags- nefnd veita heiðursmerki fyrir sjó- sókn í samræmi við gamla hefð, við fámenna athöfn sem fer fram síð- degis á sunnudag og kl. 10 um morguninn verður haldin minning- arathöfn við Minningaröldurnar svokölluðu í Fossvogskirkjugarði. „Þar njótum við að vanda aðstoðar Landhelgisgæslunnar sem stendur heiðursvörð og leggur krans að minnismerkinu. Vill svo skemmti- lega til að franskt herskip verður statt í höfn á sjómannadaginn og sendir hóp skipverja til að standa heiðursvörð við hlið landhelgis- gæsluliða.“ Mikið meira en bara hátíð Starfsemi sjómannadagsráðs höfuð- borgarsvæðisins er umfangsmikil Til að gera langa sögu stutta var þessi sami loftskeytamaður kosinn formaður Félags íslenskra loft- skeytamanna nokkrum árum síðar og árið 1936 sendi hann öðrum samtökum sjómanna bréf þar sem hann útlistaði hugmyndir sínar. Er- indið fékk góðar viðtökur og var sjómannadagurinn fyrst haldinn há- tíðlegur árið 1938. „Ári seinna var sett á stofn sérstök stefnu- skrárnefnd til að vinna enn frekar að hagsmunum sjómanna og kvað stefnuskrá ráðsins á um að bæði tryggja að sjómannadagurinn yrði haldinn hátíðlegur ár hvert og líka að reist yrði davlarheimili fyrir aldraða sjómenn,“ segir Hálfdan. Sjómannadagsráð ætlaði líka að reisa minningarstyttu um látna sjó- menn við Reykjavíkurhöfn, en úr því varð aldrei því sumum þótti ekki rétt að sjómenn reistu minn- isvarða um sig sjálfa. Þess í stað fór allur krafturinn í að safna fyrir byggingu dvalarheimilis.“ Þar með upphófst mjög líflegt tímabil í skemmtanalífi höfuðborg- arbúa því sjómenn voru djarfir, frumlegir og uppátækjasamir í fjár- öflunartilraunum sínum. Ráku þeir m.a. dýragarð í Örfirsey, þar sem hægt var að sjá apa og ísbirni sem ekki fengu landvistarleyfi – eins og Hálfdan orðar það. Eins fengu þeir sæljón í garðinn og þá efndu þeir reglulega til feikivinsælla kabarett-sýninga í Austurbæjarbíói. „En mikil verðbólga á þessum tíma varð til þess að það fé sem safn- aðist rýrnaði hratt að virði. Sjó- mannadagsráð leitaði því aðstoðar ríkisstjórnarinnar og tókst að fá að láni fé sem nýtt var bæði til bygg- ingar hafnar á Húsavík og til að byggja Sólvang í Hafnarfirði. Fyrsta skóflustungn að Hrafnistu var tekin árið 1951 og húsnæðið tekið í notkun 1957. Árið 1954 fékk ráðið leyfi til að stofna happdrætti, og naut þar mikils velvilja Ólafs Thors en honum var síðar veitt fyrsta gullmerki Sjómannadags- ráðs.“ Lífleg fjölskylduhátíð Í áranna rás hefur yfirbragð sjó- mannadagsins tekið breytingum. Lengi vel var dagurinn ekki síst helgaður minningu þeirra sem létu lífið við að sækja sjóinn og segir Hálfdan að þegar sjómannadagsráð var stofnað hafi verið algengt að um 30 til 40 sjómenn færust ár hvert. Blessunarlega hefur starfs- umhverfi sjómanna batnað til muna og þó að starfið sé hættulegt þá eru dauðsföll við fiskveiðar fátíð. Í takt við þessa þróun hafa hátíða- höld og skemmtiatriði fengið æ meira vægi í dagskrá sjómanna- dagsins. „Sjómannadagurinn er í dag lífleg fjölskylduhátíð sem eyk- ur samhug meðal hinna ýmsu starfsgreina sem koma að fisk- veiðum og minnir þjóðina alla á hve miklu máli sjósókn skiptir fyrir þjóðarhag.“ Sjómannadagurinn aftur með breyttu sniði Bíða þarf fram á næsta ár með skemmtiatriðin og fjörið í Reykjavíkur- og Hafnarfjarðarhöfn en minningarathöfn og veiting viðurkenninga verða á sínum stað. Morgunblaðið/Eggert „Vill svo skemmtilega til að franskt herskip verður statt í höfn á sjómannadaginn og sendir hóp skipverja til að standa heið- ursvörð við hlið landhelgisgæsluliða,“ segir Hálfdan Henrysson um minningarathöfnina í Fossvoskirkjugarði. hafi verið við veiðar á Halamið- unum, lítið fiskirí en veðrið gott. Þar sem togarinn vaggaði í róleg- heitunum í morgunsárinu kom loft- skeytamaðurinn Henry A. Hálf- dansson fram í brúna og hélt þar mikla ræðu fyrir stýrimann á vakt og lýsti því hvernig hann sæi fyrir sér að halda sérstakan minning- ardag um sjómenn til að auka veg og virðingu stéttarinnar og auka skilning þjóðarinnar á þessu áhættusama starfi,“ útskýrir Hálf- dan. Morgunblaðið/Hari Frá hátíðahöldunum við Reykjavíkurhöfn 2019. Vonandi verður allt komið í eðlilegt horf á sjómannadaginn 2022 en í þetta skiptið verða skemmtikraftarnir og furðufiskarnir fjarri góðu gamni. Morgunblaðið/Ómar og hátíðahöld sjómannadagsins að- eins lítill hluti af starfinu. Vitaskuld fer heilmikið púður í undirbúning sjómannadagsins í venjulegu ár- ferði enda mikill metnaður lagður í að bjóða almenningi upp á alls kyns afþreyingu og skemmtun en undir sjómannadagsráð heyra líka átta dvalarheimili fyrir aldraða, Happ- drætti DAS og Laugarásbíó. „Til að ráða betur við öll þessi verkefni var afráðið fyrir nokkrum árum að leigja út rekstur Laugarásbíós. Þá á ráðið jörðina Hraunkot austur í Grímsnesi þar sem starfrækt var barnaheimili, félagsheimili og sum- arbústaðir en fyrir hálfu öðru ári seldum við góðu fólki þann rekstur sem hefur aðlagað hann betur nú- tímaferðaþjónustu, en sjó- mannadagsráð á enn jörðina sjálfa,“ útskýrir Hálfdan og bætir við að samtals starfi um tvö þúsund manns hjá sjómannadagsráði og undirfélögum þess. Sögu sjómannadagsins má rekja allt aftur til ársins 1929. „Sagan segir að sá gamli togari Hafstein Morgunblaðið/Golli Upp á síðkastið hafa borist fréttir af hjúkrunarheimilum sem eiga erfitt með að láta enda ná saman í rekstrinum. Spurður um þær áskoranir sem sjómenn og sjávar- útvegur standa frammi fyrir segir Hálfdan að það hafi frá upphafi verið stefna sjómannadagsráðs að hafa engin afskipti af pólítík né kjaramálum. Hins vegar megi nefna að hjúkrunarheimilin sem ráðið starfrækir glími við þann vanda að greiðslur ríkisins til málaflokksins eru of lágar. „Að undanförnu höfum við séð mörg dæmi þess að hjúkrunarheimili sem rekin hafa verið samkvæmt samn- ingi við ríkið hafa verið að skila rekstrinum aftur til hins opinbera vegna bágrar rekstrarstöðu. Framlög með hverjum íbúa hafa dregist saman undanfarin ár og höf- um við þurft að hafa mikið fyrir því að halda okkur rétt- um megin við núllið, og auðveldara fyrir okkur en marga aðra þar eð okkar rekstur er ekki hagnaðardrifinn.“ Segir Hálfdan ljóst að hjúkrunarheimilin í landinu séu upp til hópa vel rekin. „Heilbrigðisráðherra lét Gylfa Magnússon prófessor gera ítarlega úttekt á málaflokkn- um og var niðurstaðan af þeirri vinnu einfaldlega sú að sú upphæð sem fylgir með hverjum skjólstæðingi er allt of lág.“ Greiðslur til hjúkrunarheimila einfaldlega of lágar 26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.