Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 26
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
V
egna kórónuveiru-
faraldursins féll sjó-
mannadagurinn niður fyr-
ir ári. Þetta árið eru
sóttvarnaaðgerðir ekki
eins strangar en Hálfdan Henrys-
son segir að engu að síður verði há-
tíðahöldin í Reykjavík og Hafnar-
frði ekki með hefðbundnu sniði og
t.d. engin dagskrá í boði við höfnina
núna á sunnudaginn.
Hálfdan er formaður sjómanna-
dagsráðs höfuðborgarsvæðisins
sem heldur utan um hátíðardag-
skrána í Reykjavík og Hafnarfirði.
„Við megum ekki hafa mikinn
mannfjölda samankominn á einum
stað og því verður ekki hefðbundin
skemmtidagskrá úti á Grandagarði
við Reykjavíkurhöfn né við Hafnar-
fjarðarhöfn. Aftur á móti verða
haldnir minni viðburðir og athafnir
í samræmi við fjöldatakmarkanir,“
útskýrir Hálfdan og þykir miður að
dagskráin þurfi að vera með
breyttu sniði enn eina ferðina. „Sjó-
mannadagurinn hefur vaxið mjög
að vinsældum á síðustu árum og er
það m.a. að þakka góðu framlagi
Faxaflóahafna og Brims, áður
Granda, sem hafa reynst mjög öfl-
ugir samstarfsaðilar. Upp á síð-
kastið höfum við fengið upp undir
40.000 manns í heimsókn út á
Granda og einnig mikinn fjölda
gesta á hátíðahöldin við Hafn-
arfjarðarhöfn.“
Verður að bíða til næsta sumars
eftir skemmtikröftunum, sölutjöld-
unum og furðufiskunum sem venj-
an er að hafa til sýnis á bryggjunni.
Hins vegar mun sjómannadags-
nefnd veita heiðursmerki fyrir sjó-
sókn í samræmi við gamla hefð, við
fámenna athöfn sem fer fram síð-
degis á sunnudag og kl. 10 um
morguninn verður haldin minning-
arathöfn við Minningaröldurnar
svokölluðu í Fossvogskirkjugarði.
„Þar njótum við að vanda aðstoðar
Landhelgisgæslunnar sem stendur
heiðursvörð og leggur krans að
minnismerkinu. Vill svo skemmti-
lega til að franskt herskip verður
statt í höfn á sjómannadaginn og
sendir hóp skipverja til að standa
heiðursvörð við hlið landhelgis-
gæsluliða.“
Mikið meira en bara hátíð
Starfsemi sjómannadagsráðs höfuð-
borgarsvæðisins er umfangsmikil
Til að gera langa sögu stutta var
þessi sami loftskeytamaður kosinn
formaður Félags íslenskra loft-
skeytamanna nokkrum árum síðar
og árið 1936 sendi hann öðrum
samtökum sjómanna bréf þar sem
hann útlistaði hugmyndir sínar. Er-
indið fékk góðar viðtökur og var
sjómannadagurinn fyrst haldinn há-
tíðlegur árið 1938. „Ári seinna var
sett á stofn sérstök stefnu-
skrárnefnd til að vinna enn frekar
að hagsmunum sjómanna og kvað
stefnuskrá ráðsins á um að bæði
tryggja að sjómannadagurinn yrði
haldinn hátíðlegur ár hvert og líka
að reist yrði davlarheimili fyrir
aldraða sjómenn,“ segir Hálfdan.
Sjómannadagsráð ætlaði líka að
reisa minningarstyttu um látna sjó-
menn við Reykjavíkurhöfn, en úr
því varð aldrei því sumum þótti
ekki rétt að sjómenn reistu minn-
isvarða um sig sjálfa. Þess í stað
fór allur krafturinn í að safna fyrir
byggingu dvalarheimilis.“
Þar með upphófst mjög líflegt
tímabil í skemmtanalífi höfuðborg-
arbúa því sjómenn voru djarfir,
frumlegir og uppátækjasamir í fjár-
öflunartilraunum sínum. Ráku þeir
m.a. dýragarð í Örfirsey, þar sem
hægt var að sjá apa og ísbirni sem
ekki fengu landvistarleyfi – eins og
Hálfdan orðar það. Eins fengu þeir
sæljón í garðinn og þá efndu þeir
reglulega til feikivinsælla
kabarett-sýninga í Austurbæjarbíói.
„En mikil verðbólga á þessum tíma
varð til þess að það fé sem safn-
aðist rýrnaði hratt að virði. Sjó-
mannadagsráð leitaði því aðstoðar
ríkisstjórnarinnar og tókst að fá að
láni fé sem nýtt var bæði til bygg-
ingar hafnar á Húsavík og til að
byggja Sólvang í Hafnarfirði.
Fyrsta skóflustungn að Hrafnistu
var tekin árið 1951 og húsnæðið
tekið í notkun 1957. Árið 1954 fékk
ráðið leyfi til að stofna happdrætti,
og naut þar mikils velvilja Ólafs
Thors en honum var síðar veitt
fyrsta gullmerki Sjómannadags-
ráðs.“
Lífleg fjölskylduhátíð
Í áranna rás hefur yfirbragð sjó-
mannadagsins tekið breytingum.
Lengi vel var dagurinn ekki síst
helgaður minningu þeirra sem létu
lífið við að sækja sjóinn og segir
Hálfdan að þegar sjómannadagsráð
var stofnað hafi verið algengt að
um 30 til 40 sjómenn færust ár
hvert. Blessunarlega hefur starfs-
umhverfi sjómanna batnað til muna
og þó að starfið sé hættulegt þá
eru dauðsföll við fiskveiðar fátíð. Í
takt við þessa þróun hafa hátíða-
höld og skemmtiatriði fengið æ
meira vægi í dagskrá sjómanna-
dagsins. „Sjómannadagurinn er í
dag lífleg fjölskylduhátíð sem eyk-
ur samhug meðal hinna ýmsu
starfsgreina sem koma að fisk-
veiðum og minnir þjóðina alla á hve
miklu máli sjósókn skiptir fyrir
þjóðarhag.“
Sjómannadagurinn aftur með breyttu sniði
Bíða þarf fram á næsta
ár með skemmtiatriðin
og fjörið í Reykjavíkur-
og Hafnarfjarðarhöfn en
minningarathöfn og
veiting viðurkenninga
verða á sínum stað.
Morgunblaðið/Eggert
„Vill svo skemmtilega til að franskt herskip verður statt í höfn á sjómannadaginn og sendir hóp skipverja til að standa heið-
ursvörð við hlið landhelgisgæsluliða,“ segir Hálfdan Henrysson um minningarathöfnina í Fossvoskirkjugarði.
hafi verið við veiðar á Halamið-
unum, lítið fiskirí en veðrið gott.
Þar sem togarinn vaggaði í róleg-
heitunum í morgunsárinu kom loft-
skeytamaðurinn Henry A. Hálf-
dansson fram í brúna og hélt þar
mikla ræðu fyrir stýrimann á vakt
og lýsti því hvernig hann sæi fyrir
sér að halda sérstakan minning-
ardag um sjómenn til að auka veg
og virðingu stéttarinnar og auka
skilning þjóðarinnar á þessu
áhættusama starfi,“ útskýrir Hálf-
dan.
Morgunblaðið/Hari
Frá hátíðahöldunum við Reykjavíkurhöfn 2019. Vonandi verður allt komið í eðlilegt horf á sjómannadaginn 2022 en í þetta skiptið verða skemmtikraftarnir og furðufiskarnir fjarri góðu gamni.
Morgunblaðið/Ómar
og hátíðahöld sjómannadagsins að-
eins lítill hluti af starfinu. Vitaskuld
fer heilmikið púður í undirbúning
sjómannadagsins í venjulegu ár-
ferði enda mikill metnaður lagður í
að bjóða almenningi upp á alls kyns
afþreyingu og skemmtun en undir
sjómannadagsráð heyra líka átta
dvalarheimili fyrir aldraða, Happ-
drætti DAS og Laugarásbíó. „Til
að ráða betur við öll þessi verkefni
var afráðið fyrir nokkrum árum að
leigja út rekstur Laugarásbíós. Þá
á ráðið jörðina Hraunkot austur í
Grímsnesi þar sem starfrækt var
barnaheimili, félagsheimili og sum-
arbústaðir en fyrir hálfu öðru ári
seldum við góðu fólki þann rekstur
sem hefur aðlagað hann betur nú-
tímaferðaþjónustu, en sjó-
mannadagsráð á enn jörðina
sjálfa,“ útskýrir Hálfdan og bætir
við að samtals starfi um tvö þúsund
manns hjá sjómannadagsráði og
undirfélögum þess.
Sögu sjómannadagsins má rekja
allt aftur til ársins 1929. „Sagan
segir að sá gamli togari Hafstein
Morgunblaðið/Golli
Upp á síðkastið hafa borist fréttir af hjúkrunarheimilum
sem eiga erfitt með að láta enda ná saman í rekstrinum.
Spurður um þær áskoranir sem sjómenn og sjávar-
útvegur standa frammi fyrir segir Hálfdan að það hafi
frá upphafi verið stefna sjómannadagsráðs að hafa engin
afskipti af pólítík né kjaramálum. Hins vegar megi nefna
að hjúkrunarheimilin sem ráðið starfrækir glími við þann
vanda að greiðslur ríkisins til málaflokksins eru of lágar.
„Að undanförnu höfum við séð mörg dæmi þess að
hjúkrunarheimili sem rekin hafa verið samkvæmt samn-
ingi við ríkið hafa verið að skila rekstrinum aftur til hins
opinbera vegna bágrar rekstrarstöðu. Framlög með
hverjum íbúa hafa dregist saman undanfarin ár og höf-
um við þurft að hafa mikið fyrir því að halda okkur rétt-
um megin við núllið, og auðveldara fyrir okkur en marga
aðra þar eð okkar rekstur er ekki hagnaðardrifinn.“
Segir Hálfdan ljóst að hjúkrunarheimilin í landinu séu
upp til hópa vel rekin. „Heilbrigðisráðherra lét Gylfa
Magnússon prófessor gera ítarlega úttekt á málaflokkn-
um og var niðurstaðan af þeirri vinnu einfaldlega sú að
sú upphæð sem fylgir með hverjum skjólstæðingi er allt
of lág.“
Greiðslur til
hjúkrunarheimila
einfaldlega of lágar
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021