Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
M
iðsjávarlögin, sem við
köllum líka stundum
teppi, eru þykkt „lag“
lífvera sem fyrirfinn-
ast á mörkum þess í
sjónum þar sem dagsljós þrýtur og
myrkrið verður algert, Ameríkanar
kalla þetta twilight zone,“ segir
Klara Björg Jakobsdóttir, fiski-
fræðingur hjá
Hafrannsókna-
stofnun.
Stofnunin tek-
ur þátt í al-
þjóðlegu rann-
sóknaverkefni
um lífríkið á
þessu mikla dýpi
sem nefnist
MEESO og er
styrkt af
Evrópusam-
bandinu. „Í stórum dráttum er eitt
af markmiðum verkefnisins að
meta umfang lífmassa og fram-
leiðni í miðsjávarlögum N-
Atlantshafsins,“ útskýrir Klara, en
miðsjávarlögin ná frá um 200
metra dýpi að 1.000 metrum.
Lítið þekkt
Lagt var í leiðangur til að afla
gagna síðasta sumar og er Klara
einn höfunda skýrslu sem birt var
nýlega um niðurstöðurnar. Í leið-
angrinum var magn, dreifing og
samsetning miðsjávarfánu rann-
sökuð í tengslum við umhverf-
isþætti og vöxt og viðgang plöntu-
svifs.
„Segja má að lífverur í þessum
miðsjávarlögum myndi vistkerfi út
af fyrir sig og þykir tegunda-
fjölbreytnin í og við þessi miðsjáv-
arlög með ólíkindum. Miðsjáv-
arlögin eru enn lítið þekkt
fyrirbrigði en það hefur lengi verið
vitað að töluvert magn lífmassa
leynist í miðsjávarlögum úthafanna
og nýlega var lífmassi þeirra áætl-
aður um 10 milljarðar tonna. Það
er því eftir töluverðu að sækjast
með aukna prótínþörf heimsbyggð-
arinnar í huga. MEESO rannsakar
því einnig mögulega nýtingu á
þessum miðsjávarlögum bæði með
tilliti til arðbærni en einnig til sjálf-
bærni þess háttar veiða,“ segir
Klara.
Spurð hverjar helstu áskoranir
séu í slíkum rannsóknum svarar
hún: „Helsta áskorun rannsókn-
anna er vissulega dýptin. Berg-
málstækni spilar stórt hlutverk í
rannsóknum af þessu tagi. Þróun í
bergmálstækni hefur fleygt fram
og þ.a.l. þekking okkar aukist til
muna. Hins vegar eru þetta dýr
mælitæki og erfitt hefur verið að
halda í við framþróun þeirra.“
Ekki er ólíklegt að mörgum les-
endum kunni að finnast þeir fiskar
sem finnast á þessu mikla dýpi
ekki líta út fyrir að henta vel í mat-
væli. Innt álits á því hvort raun-
hæft sé að nýta þessar tegundir
segir Klara svo vera.
Þegar með veiðireynslu
„Veiðar í og við þessi miðsjávarlög
eru Íslendingum alls ekki ókunn:
Úthafskarfi heldur sig í og við þess
háttar miðsjávarlög. Einnig fóru
fram tilraunaveiðar á gulldeplu fyr-
ir um áratug hér við land en gull-
depla (Maurolicus mülleri) ásamt
ísalaxsíld (Benthosema glaciale)
eru tvær helstu fisktegundir sem
veiðast í nýtanlegu magni í N-
Atlantshafi.“
Þá bendir hún á að nokkur ís-
lensk útgerðarfyrirtæki taki þátt í
vinnufundum á vegum MEESO-
verkefnisins og hefur veiðireynsla
nokkurra íslenskra fiskiskipa í gull-
depluveiðum fyrir áratug verið
mikilvægt framlag í verkefnið, að
sögn Klöru.
Fjölbreytnin þykir með ólíkindum
Í miðsjávarlögunum er
áætlað að hægt sé að
finna um 10 milljarða
tonna lífmassa sem
kann að koma að notum
við að mæta prótínþörf
mannkynsins. Fátt er
þó vitað um lífríkið á
þessu mikla dýpi.
Við rannsóknirnar á þessu mikla dýpi er stuðst við bergmálsmæla.
Ljósmynd/Svanhildur Egilsdóttir/Hafrannsóknastofnun
Í miðsjávarlögum er að finna milljarða tonna af próteini sem ekki er nýtt í dag.
Klara Björg
Jakobsdóttir
Ljósmynd/Svanhildur Egilsdóttir/Hafrannsóknastofnun
Bjúgtanni er
ekki fallegur en
áhugaverður.
Sloans-gelgja hefur
tvöfalda röð ljósfæra.
Meginsvæði rannsóknarleiðangursins síð-
asta sumar fylgdi sniði sem liggur eftir
61°50’N-breiddarbaug, frá 38°49’V og að
16°05’V. Frá Grænlandshafi yfir Reykjanes-
hrygg og inn í Suðurdjúp, sem og á stöð í
Grindavíkurdýpi.
Fram kemur í skýrslunni að „eftir endi-
löngu sniðinu var um það bil 50 metra
þykkt blöndunarlag sem svifgróður virtist
dafna í. Samkvæmt bergmálsmælingum
voru tvö meginlög miðsjávarlífvera. Hlut-
fallslega sterkt endurvarp á tíðninni 18 kHz
stafaði einkum frá miðsjávarfiskum sem
héldu sig tiltölulega grunnt á nóttunni (ofan
við 100 m dýpi) en djúpt á daginn (~300-
400 m). Annað lag af sterku endurvarpi,
sem ekki virtist ferðast upp á nóttunni en
halda sig á 500-700 m dýpi allan sólar-
hringinn, kom fram á 38 kHz tíðni. Þetta
voru aðallega miðsjávarfiskar og sviflæg
krabbadýr.“
Þá sýndu niðurstöður að lífmassinn í
efstu 200 metrum sjávar hafi verið almennt
meiri í Grænlandshafi en í Suðurdjúpi. Meiri
þéttleiki var í dýrasvifinu á bilinu 0-50
metra dýpi en á bilinu 50-200 metrar.
„Marglyttur (aðallega Periphylla sp. og
Atolla sp.) voru yfirleitt meira en helmingur
lífmassans sem kom í stórátuvörpu. Um það
bil 130 tegundir voru greindar úr sjö dýra-
flokkum. Þar af voru um 50 fisktegundir og
40 tegundir krabbadýra. Algengustu fisk-
tegundirnar reyndust vera ísalaxsíld
(Benthosema glaciale), fiskar af stirnaætt
(Gonostomatidae) og íshafslaxsíld (Proto-
myctophum arcticum). Í skýrslunni eru
sýnd lengdar-þyngdarsambönd nokkurra
helstu tegunda sem komu í vörpuna.“
Um 130 tegundir greindar úr sjö dýraflokkum
Ljósmynd/Svanhildur Egilsdóttir/Hafrannsóknastofnun
Fjöldi tegunda var greindur í rannsókn Hafrannsóknastofnunar á miðsjávarlögum.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum