Morgunblaðið - 05.06.2021, Side 30

Morgunblaðið - 05.06.2021, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is M iðsjávarlögin, sem við köllum líka stundum teppi, eru þykkt „lag“ lífvera sem fyrirfinn- ast á mörkum þess í sjónum þar sem dagsljós þrýtur og myrkrið verður algert, Ameríkanar kalla þetta twilight zone,“ segir Klara Björg Jakobsdóttir, fiski- fræðingur hjá Hafrannsókna- stofnun. Stofnunin tek- ur þátt í al- þjóðlegu rann- sóknaverkefni um lífríkið á þessu mikla dýpi sem nefnist MEESO og er styrkt af Evrópusam- bandinu. „Í stórum dráttum er eitt af markmiðum verkefnisins að meta umfang lífmassa og fram- leiðni í miðsjávarlögum N- Atlantshafsins,“ útskýrir Klara, en miðsjávarlögin ná frá um 200 metra dýpi að 1.000 metrum. Lítið þekkt Lagt var í leiðangur til að afla gagna síðasta sumar og er Klara einn höfunda skýrslu sem birt var nýlega um niðurstöðurnar. Í leið- angrinum var magn, dreifing og samsetning miðsjávarfánu rann- sökuð í tengslum við umhverf- isþætti og vöxt og viðgang plöntu- svifs. „Segja má að lífverur í þessum miðsjávarlögum myndi vistkerfi út af fyrir sig og þykir tegunda- fjölbreytnin í og við þessi miðsjáv- arlög með ólíkindum. Miðsjáv- arlögin eru enn lítið þekkt fyrirbrigði en það hefur lengi verið vitað að töluvert magn lífmassa leynist í miðsjávarlögum úthafanna og nýlega var lífmassi þeirra áætl- aður um 10 milljarðar tonna. Það er því eftir töluverðu að sækjast með aukna prótínþörf heimsbyggð- arinnar í huga. MEESO rannsakar því einnig mögulega nýtingu á þessum miðsjávarlögum bæði með tilliti til arðbærni en einnig til sjálf- bærni þess háttar veiða,“ segir Klara. Spurð hverjar helstu áskoranir séu í slíkum rannsóknum svarar hún: „Helsta áskorun rannsókn- anna er vissulega dýptin. Berg- málstækni spilar stórt hlutverk í rannsóknum af þessu tagi. Þróun í bergmálstækni hefur fleygt fram og þ.a.l. þekking okkar aukist til muna. Hins vegar eru þetta dýr mælitæki og erfitt hefur verið að halda í við framþróun þeirra.“ Ekki er ólíklegt að mörgum les- endum kunni að finnast þeir fiskar sem finnast á þessu mikla dýpi ekki líta út fyrir að henta vel í mat- væli. Innt álits á því hvort raun- hæft sé að nýta þessar tegundir segir Klara svo vera. Þegar með veiðireynslu „Veiðar í og við þessi miðsjávarlög eru Íslendingum alls ekki ókunn: Úthafskarfi heldur sig í og við þess háttar miðsjávarlög. Einnig fóru fram tilraunaveiðar á gulldeplu fyr- ir um áratug hér við land en gull- depla (Maurolicus mülleri) ásamt ísalaxsíld (Benthosema glaciale) eru tvær helstu fisktegundir sem veiðast í nýtanlegu magni í N- Atlantshafi.“ Þá bendir hún á að nokkur ís- lensk útgerðarfyrirtæki taki þátt í vinnufundum á vegum MEESO- verkefnisins og hefur veiðireynsla nokkurra íslenskra fiskiskipa í gull- depluveiðum fyrir áratug verið mikilvægt framlag í verkefnið, að sögn Klöru. Fjölbreytnin þykir með ólíkindum Í miðsjávarlögunum er áætlað að hægt sé að finna um 10 milljarða tonna lífmassa sem kann að koma að notum við að mæta prótínþörf mannkynsins. Fátt er þó vitað um lífríkið á þessu mikla dýpi. Við rannsóknirnar á þessu mikla dýpi er stuðst við bergmálsmæla. Ljósmynd/Svanhildur Egilsdóttir/Hafrannsóknastofnun Í miðsjávarlögum er að finna milljarða tonna af próteini sem ekki er nýtt í dag. Klara Björg Jakobsdóttir Ljósmynd/Svanhildur Egilsdóttir/Hafrannsóknastofnun Bjúgtanni er ekki fallegur en áhugaverður. Sloans-gelgja hefur tvöfalda röð ljósfæra. Meginsvæði rannsóknarleiðangursins síð- asta sumar fylgdi sniði sem liggur eftir 61°50’N-breiddarbaug, frá 38°49’V og að 16°05’V. Frá Grænlandshafi yfir Reykjanes- hrygg og inn í Suðurdjúp, sem og á stöð í Grindavíkurdýpi. Fram kemur í skýrslunni að „eftir endi- löngu sniðinu var um það bil 50 metra þykkt blöndunarlag sem svifgróður virtist dafna í. Samkvæmt bergmálsmælingum voru tvö meginlög miðsjávarlífvera. Hlut- fallslega sterkt endurvarp á tíðninni 18 kHz stafaði einkum frá miðsjávarfiskum sem héldu sig tiltölulega grunnt á nóttunni (ofan við 100 m dýpi) en djúpt á daginn (~300- 400 m). Annað lag af sterku endurvarpi, sem ekki virtist ferðast upp á nóttunni en halda sig á 500-700 m dýpi allan sólar- hringinn, kom fram á 38 kHz tíðni. Þetta voru aðallega miðsjávarfiskar og sviflæg krabbadýr.“ Þá sýndu niðurstöður að lífmassinn í efstu 200 metrum sjávar hafi verið almennt meiri í Grænlandshafi en í Suðurdjúpi. Meiri þéttleiki var í dýrasvifinu á bilinu 0-50 metra dýpi en á bilinu 50-200 metrar. „Marglyttur (aðallega Periphylla sp. og Atolla sp.) voru yfirleitt meira en helmingur lífmassans sem kom í stórátuvörpu. Um það bil 130 tegundir voru greindar úr sjö dýra- flokkum. Þar af voru um 50 fisktegundir og 40 tegundir krabbadýra. Algengustu fisk- tegundirnar reyndust vera ísalaxsíld (Benthosema glaciale), fiskar af stirnaætt (Gonostomatidae) og íshafslaxsíld (Proto- myctophum arcticum). Í skýrslunni eru sýnd lengdar-þyngdarsambönd nokkurra helstu tegunda sem komu í vörpuna.“ Um 130 tegundir greindar úr sjö dýraflokkum Ljósmynd/Svanhildur Egilsdóttir/Hafrannsóknastofnun Fjöldi tegunda var greindur í rannsókn Hafrannsóknastofnunar á miðsjávarlögum. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.