Morgunblaðið - 05.06.2021, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
G
uðlaugur Óli Þorláksson gerir út
bátinn sinn frá Grímsey og landar
ýmist þar, á Dalvík, Húsavík eða
einhvers staðar á norðursvæðinu.
Engin fiskvinnsla er starfrækt
núna í Grímsey en að sögn Guðlaugs hefur eng-
inn fiskur verið unninn þar í eitt eða tvö ár.
Guðlaugur landar því sínum afla á markað þeg-
ar hann landar í Grímsey.
„Þetta er aðallega lönd-
unarhöfn og ferjan tekur
þetta í land eða við siglum
með það sjálfir til Dalvík-
ur,“ segir Guðlaugur.
Guðlaugur á stálbátinn
Hafborg EA-152.
„Þetta er 26 metra bátur,
skrokkurinn er smíðaður í
Póllandi árið 2016 og inn-
réttaður í Danmörku. Hann
kom á sjó í janúar árið 2017.
Ég get verið með 50 tonn í körum í honum,“
segir Guðlaugur. Hann segir toppaðstöðu vera
um borð.
„Við erum með krapavél um borð og getum
kælt rosalega vel. Við erum líka með mjög góða
aðstöðu bæði til slægingar og frágangs á fisk-
inum og að þvo hann.“ Báturinn er með heima-
höfn í Grímsey.
Fimm til sjö eru í áhöfn á Hafborginni, eftir
því hvort róið er á netum eða dragnót.
„Við erum stundum vestur í Grundarfirði á
netum á veturna, þá höfum við verið sex og sjö,
svo erum við fimm eða sex á sumrin á dragnót-
inni. Þá höfum við líka verið á netum að veiða
ufsa hérna á veturna og vorin inn á milli, svona
uppfylling,“ segir Guðlaugur.
Rær á voð og net til skiptis
Guðlaugur segist fara á net og snurvoð til
skiptis þessa dagana enda ekki lengur bannað
að gera út með fleira en eitt veiðarfæri um borð
í einu.
Hvernig gengur þér að gera út frá Grímsey?
„Það væri allt í lagi að gera út frá Grímsey ef
höfnin væri þannig að maður hefði einhverja
aðstöðu til að vera þar.
Hún er orðin þannig, blessuð höfnin, að við
getum ekki einu sinni legið á ferjubryggjunni
fyrir grjóti í höfninni. Svo getum við ekki snúið
við í litlu ytri höfninni því það eru svo miklar
grynningar orðnar inni í henni undanfarin ár.
Við þurfum alltaf að bakka upp með hafnar-
garðinum.“
Hann segir að dýpkunar hafi verið þörf lengi
í höfninni í Grímsey.
Minni staðir gleymist í sameiningum
„Það eru allir að tala um endalausar samein-
ingar á sveitarfélögum en Grímsey var komin í
þá stöðu að það var ekkert annað í myndinni
en að sameinast.
En það er svo oft með þessi litlu sveitarfélög
að þegar þau sameinast stærri sveitarfélögum
þá verða svo margir hlutir út undan, þó að hér
sé verið að gera ýmislegt.“
Hver er staðan á útgerð í eynni?
„Hér fækkar bátum og enn er verið að selja
kvóta úr plássinu. Þetta er að verða eini bát-
urinn á staðnum með einhvern kvóta.
Það hefur verið töluvert að gera undanfarin
sumur í strandveiðum og svo hafa bátar verið á
grásleppu. Svo eru tveir aðrir bátar sem gera út
á net og dragnót.“
Guðlaugur segir bátana meira eða minna
mannaða sjómönnum frá Akureyri.
„Það eru nokkrir sem búa hérna á staðnum
en þeir eru ekki margir,“ segir hann.
Guðlaugur er ekki mikill aðdáandi aðferða-
fræði fiskveiðistjórnunar á Íslandi og kallar eft-
ir því að stofnstærðarfræðingar fari víðar og
meti með fleiri aðferðum.
„Það sem er að ganga af okkur dauðum með
þessa útgerð er þessi endalausi niðurskurður á
aflaheimildum. Þessar litlu útgerðir þola þetta
ekki.“
Vill sérfræðinga inn í nútímann
Guðlaugur segir fiskveiðistjórnun á Íslandi
arfavitlausa og kallar eftir að sérfræðingar hjá
Hafrannsóknastofnun mæti í tuttugustu öldina í
það minnsta; „ég færi ekki einu sinni fram á að
þeir komi lengra“, segir Guðlaugur.
Hvaða breytingar sérð þú á stofninum
undanfarin ár?
„Það er miklu meira af stórum þorski hérna
núna en þegar til dæmis ég var að alast upp.
Ég er búinn að róa frá Grímsey frá því ég var
sjö eða átta ára,“ segir Guðlaugur og heldur
áfram að benda á þær miklu breytingar sem
hafa orðið á miðunum fyrir norðan land síðustu
ár og áratugi.
Ýsa, ufsi og langlúra
„Ég get tekið lítið dæmi um breytinguna sem
hefur orðið; maður var kominn upp undir þrí-
tugt þegar hægt var að fara að veiða eina og
eina ýsu hérna fyrir norðan. Undanfarið höfum
við verið að flýja endalaust undan ýsu á drag-
nótinni með ærnum tilkostnaði að reyna að
komast í eitthvað annað en ýsu því að hún er úti
um allt.
Fyrstu árin sem við vorum á dragnót fengum
við ekki eina einustu langlúru. Núna getum við
verið að veiða 20 til 30 tonn af langlúru leikandi
á haustin.
Ég er búinn að róa í örugglega þrjátíu ár
fram að Kolbeinsey og þá fékkstu ekki einn ein-
asta ufsa norðan við stóra grunnið eða Gróes-
hólinn sem er um 15 mílur norður af Grímsey.
Stóra grunnið er 30 mílur norður af Grímsey og
Kolbeinsey svo 40 mílur norður af Grímsey.
Á þessu svæði var ekki til neitt sem hét ufsi. Í
dag, á góðum degi við Kolbeinsey, getur þú talið
fimmtán til tuttugu torfur af ufsa allt í kringum
hólinn.“
Guðlaugur skorar á starfsmenn sem vinna við
stofnstærðarmat að koma norður.
„Ég hef ekki trú á því að einn einasti fiski-
fræðingur hafi komið þarna á svæðið að skoða.
Þeir vita ekki hvað þetta er.“
Gríðarleg breyting á miðunum
Guðlaugur Óli Þorláksson
gerir út bátinn Hafborg
EA-152 frá Grímsey á hjara
veraldar. Hann er einn fárra
úrgerðarmanna eftir í eyjunni
og hefur róið mikið við
Kolbeinsey í gegnum tíðina.
Guðlaugur segir meðal ann-
ars frá breytingum sem hafa
átt sér stað á hans sjómanns-
ferli á aðstöðunni í Grímsey.
Guðlaugur gerir ýmist út á dragnót eða net. Hann segir breytingarnar
á miðunum fyrir norðan gríðarlegar frá því hann fór fyrst á sjó.
Hafborg EA-152 er stálskip smíðað árið
2016 í Póllandi og innréttað í Dan-
mörku. Skipið kom til sjós í janúar
2017 og er með heimahöfn í Grímsey.
Guðlaugur Óli
Þorláksson
Valka óskar sjómönnum, landverkafólki og fjölskyldum
þeirra til haming ju með sjómannadaginn
valka.is
Framúrskarandi lausnir fyrir fiskvinnslur