Morgunblaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is G uðlaugur Óli Þorláksson gerir út bátinn sinn frá Grímsey og landar ýmist þar, á Dalvík, Húsavík eða einhvers staðar á norðursvæðinu. Engin fiskvinnsla er starfrækt núna í Grímsey en að sögn Guðlaugs hefur eng- inn fiskur verið unninn þar í eitt eða tvö ár. Guðlaugur landar því sínum afla á markað þeg- ar hann landar í Grímsey. „Þetta er aðallega lönd- unarhöfn og ferjan tekur þetta í land eða við siglum með það sjálfir til Dalvík- ur,“ segir Guðlaugur. Guðlaugur á stálbátinn Hafborg EA-152. „Þetta er 26 metra bátur, skrokkurinn er smíðaður í Póllandi árið 2016 og inn- réttaður í Danmörku. Hann kom á sjó í janúar árið 2017. Ég get verið með 50 tonn í körum í honum,“ segir Guðlaugur. Hann segir toppaðstöðu vera um borð. „Við erum með krapavél um borð og getum kælt rosalega vel. Við erum líka með mjög góða aðstöðu bæði til slægingar og frágangs á fisk- inum og að þvo hann.“ Báturinn er með heima- höfn í Grímsey. Fimm til sjö eru í áhöfn á Hafborginni, eftir því hvort róið er á netum eða dragnót. „Við erum stundum vestur í Grundarfirði á netum á veturna, þá höfum við verið sex og sjö, svo erum við fimm eða sex á sumrin á dragnót- inni. Þá höfum við líka verið á netum að veiða ufsa hérna á veturna og vorin inn á milli, svona uppfylling,“ segir Guðlaugur. Rær á voð og net til skiptis Guðlaugur segist fara á net og snurvoð til skiptis þessa dagana enda ekki lengur bannað að gera út með fleira en eitt veiðarfæri um borð í einu. Hvernig gengur þér að gera út frá Grímsey? „Það væri allt í lagi að gera út frá Grímsey ef höfnin væri þannig að maður hefði einhverja aðstöðu til að vera þar. Hún er orðin þannig, blessuð höfnin, að við getum ekki einu sinni legið á ferjubryggjunni fyrir grjóti í höfninni. Svo getum við ekki snúið við í litlu ytri höfninni því það eru svo miklar grynningar orðnar inni í henni undanfarin ár. Við þurfum alltaf að bakka upp með hafnar- garðinum.“ Hann segir að dýpkunar hafi verið þörf lengi í höfninni í Grímsey. Minni staðir gleymist í sameiningum „Það eru allir að tala um endalausar samein- ingar á sveitarfélögum en Grímsey var komin í þá stöðu að það var ekkert annað í myndinni en að sameinast. En það er svo oft með þessi litlu sveitarfélög að þegar þau sameinast stærri sveitarfélögum þá verða svo margir hlutir út undan, þó að hér sé verið að gera ýmislegt.“ Hver er staðan á útgerð í eynni? „Hér fækkar bátum og enn er verið að selja kvóta úr plássinu. Þetta er að verða eini bát- urinn á staðnum með einhvern kvóta. Það hefur verið töluvert að gera undanfarin sumur í strandveiðum og svo hafa bátar verið á grásleppu. Svo eru tveir aðrir bátar sem gera út á net og dragnót.“ Guðlaugur segir bátana meira eða minna mannaða sjómönnum frá Akureyri. „Það eru nokkrir sem búa hérna á staðnum en þeir eru ekki margir,“ segir hann. Guðlaugur er ekki mikill aðdáandi aðferða- fræði fiskveiðistjórnunar á Íslandi og kallar eft- ir því að stofnstærðarfræðingar fari víðar og meti með fleiri aðferðum. „Það sem er að ganga af okkur dauðum með þessa útgerð er þessi endalausi niðurskurður á aflaheimildum. Þessar litlu útgerðir þola þetta ekki.“ Vill sérfræðinga inn í nútímann Guðlaugur segir fiskveiðistjórnun á Íslandi arfavitlausa og kallar eftir að sérfræðingar hjá Hafrannsóknastofnun mæti í tuttugustu öldina í það minnsta; „ég færi ekki einu sinni fram á að þeir komi lengra“, segir Guðlaugur. Hvaða breytingar sérð þú á stofninum undanfarin ár? „Það er miklu meira af stórum þorski hérna núna en þegar til dæmis ég var að alast upp. Ég er búinn að róa frá Grímsey frá því ég var sjö eða átta ára,“ segir Guðlaugur og heldur áfram að benda á þær miklu breytingar sem hafa orðið á miðunum fyrir norðan land síðustu ár og áratugi. Ýsa, ufsi og langlúra „Ég get tekið lítið dæmi um breytinguna sem hefur orðið; maður var kominn upp undir þrí- tugt þegar hægt var að fara að veiða eina og eina ýsu hérna fyrir norðan. Undanfarið höfum við verið að flýja endalaust undan ýsu á drag- nótinni með ærnum tilkostnaði að reyna að komast í eitthvað annað en ýsu því að hún er úti um allt. Fyrstu árin sem við vorum á dragnót fengum við ekki eina einustu langlúru. Núna getum við verið að veiða 20 til 30 tonn af langlúru leikandi á haustin. Ég er búinn að róa í örugglega þrjátíu ár fram að Kolbeinsey og þá fékkstu ekki einn ein- asta ufsa norðan við stóra grunnið eða Gróes- hólinn sem er um 15 mílur norður af Grímsey. Stóra grunnið er 30 mílur norður af Grímsey og Kolbeinsey svo 40 mílur norður af Grímsey. Á þessu svæði var ekki til neitt sem hét ufsi. Í dag, á góðum degi við Kolbeinsey, getur þú talið fimmtán til tuttugu torfur af ufsa allt í kringum hólinn.“ Guðlaugur skorar á starfsmenn sem vinna við stofnstærðarmat að koma norður. „Ég hef ekki trú á því að einn einasti fiski- fræðingur hafi komið þarna á svæðið að skoða. Þeir vita ekki hvað þetta er.“ Gríðarleg breyting á miðunum Guðlaugur Óli Þorláksson gerir út bátinn Hafborg EA-152 frá Grímsey á hjara veraldar. Hann er einn fárra úrgerðarmanna eftir í eyjunni og hefur róið mikið við Kolbeinsey í gegnum tíðina. Guðlaugur segir meðal ann- ars frá breytingum sem hafa átt sér stað á hans sjómanns- ferli á aðstöðunni í Grímsey. Guðlaugur gerir ýmist út á dragnót eða net. Hann segir breytingarnar á miðunum fyrir norðan gríðarlegar frá því hann fór fyrst á sjó. Hafborg EA-152 er stálskip smíðað árið 2016 í Póllandi og innréttað í Dan- mörku. Skipið kom til sjós í janúar 2017 og er með heimahöfn í Grímsey. Guðlaugur Óli Þorláksson Valka óskar sjómönnum, landverkafólki og fjölskyldum þeirra til haming ju með sjómannadaginn valka.is Framúrskarandi lausnir fyrir fiskvinnslur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.