Morgunblaðið - 05.06.2021, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
G
U
N
N
A
R
J
Ú
L
A
R
T
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
A
usturland að Glettingi“ höf-
um við öll heyrt, alla vega
þau sem hlusta enn á veð-
urfregnir í útvarpi, og má
segja að orðin séu sam-
hangandi greypt í minni fólks.
Það er viðeigandi að nýr hvatning-
arstyrkur fyrir nemendur í háskóla-
grunni Háskólans í Reykjavík á
Austurlandi skuli hafa hlotið nafnið
Glettingur. Sjávarútvegsfyrirtæki á
Austurlandi eru áberandi stuðnings-
aðilar framtaksins.
Samkomulag um Gletting, nýjan
hvatningarstyrk atvinnulífsins fyrir
nemendur í háskólagrunni HR á
Austurlandi, var undirritað á
fimmtudaginn af rektorum Háskól-
ans í Reykjavík og Háskólans á
Akureyri, ásamt framkvæmdastjóra
Austurbrúar og fulltrúum atvinnulífs
á Austurlandi. Greint hefur verið frá
því að að HR muni í samstarfi við HA
bjóða upp á aðfaranám fyrir háskóla-
nám á svæðinu með sérstakri áherslu
á tæknigreinar.
Segja má að framtakið sé fyrsta
skrefið að langþráðri virkni háskóla-
starfsemi á Austurlandi.
Hingað til hefur tíðkast að halda
svokallaðan forsetalista í HR þar
sem námsárangur nemenda er verð-
launaður með styrkjum. Glettingur
kemur til viðbótar hefðbundnum for-
setalista og er einungis ætlaður nem-
endum í háskólagrunni á Austur-
landi.
Markmið með nýjum hvatningar-
styrk er að hvetja nemendur til góðr-
ar ástundunar og auka vitund og um-
ræðu um mikilvægi þekkingar-
starfsemi á Austurlandi.
Hálf milljón fyrir hæstu einkunnir
Þeir nemendur sem ljúka fullu námi
á einu ári með hæstu einkunn hljóta
styrkinn. Hver styrkur mun nema
500.000 krónum og er ráðgert að einn
til tveir nemendur geti hlotið styrk-
inn í lok námsárs. Alcoa-Fjarðaál,
Síldarvinnslan, Loðnuvinnslan,
Eskja og Laxar fjármagna styrkinn
sameiginlega til tveggja ára en
fulltrúar þeirra hafa tekið virkan
þátt í fjármögnun og stefnumótun
háskólaverkefnisins á Austurlandi.
Rektorar beggja skóla lýstu við
undirskriftina yfir ánægju með víð-
tæka aðkomu atvinnulífsins að verk-
efninu og sögðu hana til marks um
víðtækan og mikilvægan samfélags-
legan stuðning við uppbyggingu há-
skólanáms á svæðinu.
Háskólagrunnur HR á Austur-
landi er fyrir þá sem vilja hefja há-
skólanám en vantar tilskilinn undir-
búning. Hægt er að ljúka lokaprófi
úr háskólagrunni eða viðbótarnámi
við stúdentspróf og nýta sem leið inn
í nám á háskólastigi.
Austfirsk sjávarútvegsfyrirtæki setja á fót
hvatningarstyrk fyrir nemendur háskólagrunns
Austfirsk fyrirtæki hafa
sett á fót hvatningar-
styrk fyrir nemendur
háskólagrunns Háskól-
ans í Reykjavík. Fimm
fyrirtæki fjármagna
styrkinn, þar af fjögur
í haftengdri starfsemi.
Fulltrúar Austurbrúar, Alcoa-Fjarðaáls, Síldarvinnslunnar, Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri við undirritun samkomulagsins um Gletting.