Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 39

Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 39
Enn þann dag í dag er húsið við Seljaveg 2 kallað Héðinshúsið, þó að 32 ár séu liðin frá því að Héðinn flutti starfsemi sína þaðan, fyrst í Garðabæ og síðan til Hafnarfjarðar. Skyldi samt engan furða að nafnið sé fast á Seljaveginum enda starfaði Héðinn þar í rúmlega 40 ár. Starfsemi Héðins er nú að Gjáhellu 4, í 8 þúsund fermetra húsi sem fyrirtækið reisti í iðnaðarhverfinu í Hafnarfirði á 22 þúsund fermetra lóð árið 2008. 99 ára samleið með sjávarútveginum Héðinn hf. hefur átt samleið með íslenskum sjávarútvegi í tæpa öld. „Vjelsmiðjan Hjeðinn“ var stofnuð 1922 og megin viðfangs- efnin frá fyrsta degi voru véla- og skipaviðgerðir. Sjávarútvegurinn er hryggjarstykkið í starfsemi Héðins enn þann dag í dag, 99 árum síðar. Héðinn á með einum eða öðrum hætti stóran þátt í mörgum af nýjustu fiskiskipum íslenskra útgerðarfyrirtækja. Þau allra nýjustu eru Vilhelm Þorsteinsson EA og Börkur NK. Af öðrum má t.d. nefna Ilivileq GR, Heimaey VE, varðskipið Þór, Cuxhaven NC, Berlin NC, Emeraude og Kirkella. Héðinn hefur byggt flestallar lýsis- og mjölverksmiðjur landsins og leitt umbætur í þeim til að auka gæði og verðmæti hráefnis- ins. Þá hefur Héðinn þróað hina nýju HPP (Héðinn Protein Plant) sem stóreykur möguleikana til að skapa verðmætar vörur úr öllu hráefni sem fellur til á sjó og í landi. Starfsmenn Héðins eru rúmlega 100 og eru aðalstöðvar fyrir- tækisins að Gjáhellu 4 í Hafnarfirði. Ennfremur rekur Héðinn verkstæði á Grundartanga og í lok sumars verður útibú fyrir Kongsberg þjónustu opnað á Akureyri. Starfsemin skiptist í deildir eftir viðfangsefnum og hér kynnum við þær ásamt hluta af starfsfólkinu. Hamingjuóskir á sjómannadaginn Héðinn hf. óskar sjómönnum velfarnaðar á sjómannadaginn „Kongsberg Maritime er nýr eigandi að starfsemi Rolls-Royce Marine, en þetta er áfram sami búnaður og þjónusta og áður þó nafnið sé annað“ segir Rögnvaldur Höskuldsson, yfirmaður Kongsberg Maritime þjónustu Héðins hf. „Mörg af öflugustu og tæknivæddustu skipum landsins eru hönnuð og/eða búin tæknilausnum frá Kongsberg, áður Rolls-Royce Marine,“ segir Rögnvaldur. Undir þeim hatti er m.a. að finna Bergen aðalvélar, Brattvaag spilkerfi, Ulstein skrúfubúnað og Tenfjord stýribúnað. „Kongsberg Maritime deild Héðins sér annars vegar um sölu á búnaði og lausnum Kongsberg og hins vegar um allt sem snýr að viðhaldi, varahlutum og viðgerðum. Mikill fjöldi íslenskra skipa er með búnað frá þeim norsku framleiðendum sem mynda kjarnann í Kongsberg Maritime og það heldur þessari 12 manna deild okkar við efnið alla daga. En við störfum ekki í tómarúmi innan Héðins, því að véladeildin og renniverk- stæðið vinna afar náið með okkur. Þegar á stálsmíði þarf að halda höfum við svo að sjálfsögðu greiðan aðgang í þeim efnum innanhúss.“ Kongsberg Maritime þjónustan Héðinshúsin tvö Hinn nýi togari Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, Börkur NK 122, er systurskip Vilhelms Þorsteinssonar EA 11 sem eru í eigu Samherja og kom fyrir skömmu til landsins. Skipin eru hlaðin búnaði frá Kongsberg Maritime og þar á meðal má nefna: tvær Bergen aðalvélar, B33:45L6, 3.600 kW hvor; Promas CPP framdrifskerfi, skrúfa, stýri og gír; stýrisvél SR722 FCP; þrjár bógskrúfur TT1650 og TT2000; Helicon X3 skrúfustýring; 17 lágþrýsti vökva- vindur, tog- og hjálparvindur ásamt spilstjórnun Synchro X7. Héðinn hf. óskar Síldarvinnslunni og Samherja hjartanlega til hamingju með þessi nýju og glæsilegu fley.Frá vinstri: hluti starfsmanna Kongsberg Maritime deildar Héðins, Björgvin Helgi Hjartarson, Þorsteinn Sverrisson, Björgvin Valdimarsson, Sigurður Sævar Sigurðsson, Fannar Þórsson, Gunnar Hrafn Hall, Guðfinnur Arnar Kristmannsson og Rögnvaldur Höskuldsson. Kongsberg um borð í nýjum Berki NK og Vilhelm Þorsteinssyni EA Héðinshúsið við Seljaveg 2 eins og það leit út fyrstu árin, áður en hæð var byggð ofan á og viðbyggingar út að Mýrargötu og Ánanaustum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.